Morgunblaðið - 31.10.2003, Blaðsíða 16
16 | FÓLKIÐ | FÖSTUDAGUR 31|10|2003 MORGUNBLAÐIÐ
GUÐMUNDUR STEINGRÍMSSON –
DAGUR MANNKYNSSÖGUNNAR
Miðvikudaginn 29. október, á
Degi mannkynssögunnar, kem-
ur út skáldsagan Áhrif mín á
mannkynssöguna eftir Guð-
mund Steingrímsson. Þetta er
fyrsta skáldsaga Guðmundar,
sem er annars þekktur fyrir
pistla sína og tónlist sem einn
liðsmanna SKE. Í bókinni segir
frá ljósmyndaranum Jóni sem
fékk „blackout“ á Þorláks-
messukvöld í Lundúnum, en
daginn eftir taka að gerast und-
arlegir atburðir sem virðast allir eiga sér uppruna á þeim
tíma sem týndur er.
ÖLDIN TÓLFTA –
MINNISVERÐ TÍÐINDI 1101–1200
Bókaflokkurinn Aldirnar sem
hefur komið út hjá Iðunni um
áratuga skeið hefur rakið Ís-
landssöguna í aðgengilegu
formi, tínt út helstu viðburði og
sett upp eins og í fréttablaði
væri. Nú kemur út bókin um
tólftu öld og í henni rakin minn-
isverð tíðindi á árunum 1101–
1200 og einnig gefin mynd af
tíðarandanum.
MCSWEENEY’S MAMMOTH –
TREASURY OF THRILLING TALES
Vestur í Amríku rekur rithöf-
undurinn Dave Eggers
McSweeney’s útgáfuna, vef-
setrið og tímaritið. Eitt sinn
þegar Michael Chabon félagi
hans var að kvarta yfir því hve
allt væri nú með öðrum blæ,
rithöfundar hættir að skrifa
skemmtilegar smásögur, æv-
intýrasögur, eins og gert var í
gamla daga, skoraði Eggers á
hann að setja saman slíka
bók og Chabon tók áskor-
uninni. Útkoman var þessi
bók sem er sett saman eins og reyfarahefti frá sjötta ára-
tugnum með sögum eftir Glen David Gold, Elmore Leon-
ard, Neil Gaiman, Nick Hornby, Stephen King, Michael
Crichton, Dave Eggers, Michael Moorcock og Michael
Chabon svo nokkrir séu nefndir, skreytt undirfurðulegum
auglýsingum og pennateikningum.
ÚTGÁFAN - BÆKUR - GEISLAPLÖTUR - TÖLVULEIKIR
RÍÓ – UTAN AF LANDI
Ríó snýr aftur eftir nokkurt hlé
með plötu með nýjum lögum eftir
Gunnar Þórðarson; fyrsta plata
þeirra Ríó-félaga með nýju efni síð-
an 1996. Textar á plötunni, sem
mikið var lagt í, eru eftir Jónas Frið-
rik utan einn sem er sænsk gerð
Þorsteins Eggertssonar á texta
hans við Er ég kem heim í Búðardal. Lagt var upp með að
hafa plötuna sem órafmagnaðasta, þ.e. að leyfa óraf-
mögnuðum hljóðfærum að njóta sín, en þeir Ágúst Atla-
son, Helgi Pétursson og Ólafur Þórðarson taka meiri þátt í
hljóðfæraleik á plötunni en á mörgum undangengnum plöt-
um.
SUGABABE – THREE
Sugababe-stöllur eru ekki síst
frægar fyrir það hversu mikil sköss
þær eru, Mutya Buena og Keisha
Buchanan. Þær ná þó lengst á tón-
listinni og mál manna að breiðskífa
sem þær sendu frá sér fyrir ári hafi
verið ein besta poppplata ársins.
Nú kemur út ný plata frá þeim,
Three, og hefur fengið fína dóma í poppblöðum.
PAUL LYDON – VITLAUST HERBERGI
Paul Lydon hefur búið hér á landi
í fimmtán ár og auðgað íslenskt
tónlistarlíf, verið iðinn við að spila
og gefa út snældur og plötur. Nú
sendir hann frá sér diskinn Vitlaust
herbergi sem hann syngur á ís-
lensku, en áður eru komnar sjö-
tomman Blek Ink, Sanndreymi og
svo breiðskífan Blek Ink sem gefin var út vestan hafs. Paul
hefur einnig gefið út snældur, sjötommur og diska með
konu sinni Lauru Valentino, undir nafninu Paul & Laura.
RYAN ADAMS – ROCK ’N ROLL
Fáir tónlistarmenn hafa vakið
aðra eins athygli vestan hafs á síð-
ustu árum og sveitarokkarinn Ryan
Adams. Hann er ekki síst þekktur
fyrir gríðarleg afköst og þannig seg-
ir sagan að árið sem hann sendi
frá sér aðra sólóskífu sína hafi
hann samið og hljóðritað sextíu lög
til viðbótar og tekið upp eina plötu að auki með lögum eftir
aðra sér til skemmtunar. Úrval af lögunum sextíu var gefið
út á síðasta ári um það leyti sem Adams tók til við að hljóð-
rita nýja skífu, Rock ’n Roll, sem kemur út á þriðjudaginn.
http://audvaldid.blogspot.com/
„Quote dagsins í fréttayfirlitsmann Sjálf-
stæðisflokksins og hugmyndafræðing
okkar úngliða.
Vefur dagsins
Í dag hvet ég alla til að líta á stórgóðan
vef Stjórnarráðs Íslands. Þar er hægt að
finna allar fréttir tengdar ráðuneytunum,
sögu þeirra og fréttatilkynningar. Ómiss-
andi vefur í dagsins önn!
Það er spurning hvað önn dagsins sé
mikil þegar svona er statt hjá mönnum.“
29. október 10.47
http://www.gylfisteinn.com/
speki2.htm
„Tja hvur fjárinn. Rakst á lag á tölvunni
með Bonnie Tyler sjálfri. Viskíraddaða
kellingin er ennþá að maður! Hefur ekki
borið sitt barr síðan hún mæmaði í Laug-
ardalshöllinni 1984 minnir mig..
"Tuuuuurrrn arouuund"
Þetta er frábært góðir hálsar og það er
tónlistarlífinu til framdráttar að halda
þessari konu við efnið sem lengst, já
sem lengst segi ég!“ 29. október
http://drschnitzel.blogspot.com/
„Svakaleg tilfinning að vera vakhnaður
svona eldsnemma, í það minnsta fyrir
mann eins og mig sem er ennþá með
stírurnar í augunum um kaffileytið og
tannkremsbragð í trantinum fram að
kvöldmat. En það stefnir í met í lífsstíls-
breytingu, og þá á ég ekki við að vakhna
stundum á venjulegum skrifstofutíma“
29. október 11.54
Kæri
blogger.com…
Hönnuðir og hugmyndasmiðir hjá Nokia hafa
heldur en ekki unnið fyrir kaupinu sínu síð-
ustu mánuði; á markað streyma símar og ým-
islegur aukabúnaður fyrir þá. Það þykir ekki
tiltökumál lengur að myndavél sé í síma,
manni finnst eins og annar hver maður sé
með síma með myndavél. Ekki er þó bara að
menn bæti myndavélum í síma; hvers vegna
ekki að bæta síma í myndavél? eða svo hafa
Nokia-menn eflaust hugsað þegar þeir settu
á markað myndavél með SIM-korti, enda er
þá hægt að nota hana sem eftirlitsvél meðal
annars.
Tiltölulega einfalt er að setja vélina upp,
aðeins að setja í hana SIM-kort og í sam-
band við straum og þá er hún tilbúin til að
taka við stillingum. Hægt er að stilla vélina
alfarið í gegnum símann, senda SMS með
stillingum, en óneitanlega talsvert þægilegra
að gera það í tölvu, en á myndavélinni er rað-
tengi. Með vélinni fylgir standur til að festa
hana til dæmis á vegg eða í loft, en hægt er
að stilla hana svo að hún sendir myndir rétt-
ar þó vélin snúi á hvolf.
Notendur eru skilgreindir í vélinni, einn að-
alnotandi og svo eins margir og hver vill, en
ekki fleiri en tuttugu alls. Hægt er að gefa
notanda mismunandi aðgang, til að mynda
hvort hann megi biðja um mynd, hitastig eða
hljóð, en í vélinni er hljóðnemi. Hvenær sem
er er hægt að breyta stillingum með því að
senda vélinni SMS, gera hreyfiskynjara virkan
eða óvirkan, óska eftir mynd eða fá að vita
hitastigið. Það er líka
hægt að stilla vélina svo
að hún láti vita ef hita-
stigið sveiflast um ákveð-
ið gildi eða fer yfir eitthvert
hitastig.
Innrautt ljós er í vélinni svo
hún tekur myndir í myrkri, og
það svínvirkaði, myndirnar vissu-
lega í sérkennilegum litum, en mynd-
ir engu að síður sem getur komið sér
vel. Það gekk einnig vel að taka myndir í
venjulegri birtu, en myndgæði eru ekki
mikil og ef sá sem mynd var tekin af var
lengra en 4–5 metra í burtu
var erfitt að greina hver það
var. Ef menn ætla að nota
vélina sem öryggismyndavél
þarf því að hafa þetta í huga
þegar henni er komið fyrir.
Notagildið er talsvert í fljótu
bragði, sé fyrir mér að menn vilji
hafa vélina upp setta í sum-
arbústað og þannig stillta að hún
sendi SMS- og / eða MMS-skeyti
með mynd þegar hún nemur hreyfingu.
Líka er hægt að nota hana til að kanna veð-
urfar áður en lagt er af stað austur fyrir Fjall,
ástandið á golfvellinum, hvernig viðrar, eru
margir að spila, hvernig gengur barnfóstrunni
að ráða við krílin og svo má telja. Víst er vél-
in ekki ókeypis og kostar líka sitt að reka
hana, MMS-skeytin fást ekki gefins, er ef
menn þurfa á annað borð á slíkri vél að
halda vex þeim varla kostnaðurinn í augum.
Kostir: Handhæg myndavél sem hefur tals-
vert notagildi, til að mynda sem öryggisvél.
Gallar: Lítil myndgæði, erfitt að þekkja fólk
á myndum ef það er lengra en 3–4 metra í
burtu.
|arnim@mbl.is
Sími í myndavél
GRÆJURNAR
It’s A Dogs Life – PS2
It’s A Dogs Life er óvenjulegur
leikur fyrir Playstation 2 – einna
helst má lýsa honum sem hunda-
hermi. Leikandinn stýrir hundi,
Jake, sem er að leita leiða til að
frelsa tík frá hundafangaranum. Til
þess að ná að frelsa Daisy, en svo
heitir tíkin, þarf hann að brjótast í
gegnum stórborg, glíma við skíða-
brekkur og svo má lengi telja, og
leysa fjölda þrauta á leiðinni.
Þó Jake sé gáfaðri en hundar al-
mennt, er hann þó hundur og hagar
sér sem slíkur, rekur við þegar hon-
um sýnist sem svo, eltir ketti, skítur á gangstéttir og mígur á
brunahana. Það þarf líka að hugsa um hann, hann þarf að fá
reglulega að éta og það þarf að þrífa hann líka. Helsta hjálp-
artæki Jakes er nefið, hann er lyktnæmur eins og hunda er sið-
ur, og í leiknum birtist lykt sem litir. Til að mynda þarf að fara
varlega ef hann rekst á „gula lykt“, því slíka lykt á annar hund-
ur og það kostar slagsmál. Mjög er mismunandi hve auðvelt er
að eiga við ókunna hunda, fer eftir tegundinni og ekki gott að
lenda á Rottweiler.
Algjört
hundalíf