Morgunblaðið - 03.11.2003, Blaðsíða 1
2003 MÁNUDAGUR 3. NÓVEMBER BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
HROLLUR FÓR UM RÍKHARÐ ER EIRÍKUR SÖNG / B9
KATRÍN Jónsdóttir skoraði
eitt mark og lagði annað upp
á síðustu mínútunum þegar
Kolbotn vann Röa, 6:0, í gær
og tryggði sér silfurverðlaun-
in í norsku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu á ævintýralegan
hátt. Staðan var 3:0 þegar
fimm mínútur voru eftir og
Kolbotn þurfti þrjú mörk til
viðbótar til að ná silfrinu af
Asker. Katrín, sem lék síðasta
hálftímann, skoraði þá fjórða
markið og lagði síðan upp það
fimmta.
Forráðamenn norska
knattspyrnusambandsins
voru búnir að taka upp brons-
verðlaunin og gera þau tilbú-
in fyrir leikmenn Kolbotn en
þurftu að pakka þeim niður
aftur og taka fram silfrið.
Katrín tók fram skóna í
haust eftir nokkurt hlé og lék
síðustu fjóra leiki Kolbotn og
skoraði í þeim fjögur mörk.
Hún tók einnig þátt í nokkr-
um leikjum í vor þegar mikil
forföll voru í liðinu og var því
með nægilega marga leiki til
að hljóta verðlaunapening.
Trondheims-Örn varð
meistari með 47 stig, Kolbotn
og Asker fengu 39 hvort og
Röa var í fjórða sæti með 27
stig.
Katrín
með silfur
í Noregi
ÁSTHILDUR Helgadóttir og
stöllur hennar í Malmö FF
máttu þola tap fyrir Umeå í
úrslitaleik sænsku bikar-
keppninnar í knattspyrnu
kvenna á Råsunda-leikvang-
inum í Stokkhólmi á laug-
ardaginn, 1:0. Úrslitin réðust
á gullmarki, sem sænska
landsliðskonan Hanna Ljung-
berg skoraði á 103. mínútu
leiksins. Þetta var þriðji
bikarmeistaratitill Umeå, sem
er Evrópumeistari kvenna-
liða.
Ásthildur stóð vel fyrir sínu
í leiknum og sagði þjálfari
norska liðsins Kolbotn, lið
Katrínar Jónsdóttur, sem
fylgdist með leiknum – að
Ásthildur væri geysilega öfl-
ugur leikmaður. Kolbotn
mætir Malmö FF í Evrópu-
keppninni á næstunni.
Malmö
mátti
þola tap
Forráðamönnum Fram leist best áRúmenann en hæfileikar hans,
reynsla og þekking skara fram úr að
mati þeirra sem fóru yfir umsóknirnar.
Eftir viðræður við Geolgau um helgina
var svo ákveðið að semja við hann um
starfið.
Geolgau er 42 ára gamall og var
fastamaður í rúmenska landsliðinu í
um áratug. Eftir að knattspyrnuferl-
inum lauk hóf hann þjálfun hjá
Constructorul Craiova, liðinu sem
hann lék með í Rúmeníu, og þaðan lá
leiðin til Færeyja þar sem hann hefur
starfað undirfarin sex ár, fyrst hjá HB
og síðan hjá B-36. Lið undir hans
stjórn varð Færeyjameistari í tvígang
og vann tvo bikarmeistaratitla.
„Það er spennandi verkefni sem ég
hef tekið að mér. Mér líst vel á félagið
og eftir að hafa skoðað myndbönd af
leikjum liðsins þá sé ég að Fram hefur
nokkra góða knattspyrnumenn í sínum
röðum og marga unga og efnilega leik-
menn,“ sagði Geolgau við Morgunblað-
„Ég veit ekki alveg hvers vegna
Fram hefur verið í vandræðum und-
anfarin ár en ég ætla mér að reyna að
koma inn með nýtt hugarfar til leik-
manna og mitt markmið verður að
koma liðinu í hóp fimm efstu liða á
næsta tímabili og að vinna meistaratit-
ilinn innan þriggja ára. Ég öðlaðist
mikla og góða reynslu í Færeyjum og
ég lít á það sem stórt stökk fram á við
fyrir mig að taka við liði hér á Íslandi.
Ég hef fylgst með íslenskri knatt-
spyrnu úr fjarlægð og veit að landslið-
inu hefur vegnað vel og eins að margir
góðir knattspyrnumenn eru hér á
landi.“
Framarar hyggjast styrkja leik-
mannahóp sinn fyrir komandi leiktíð
en liðið varð fyrir blóðtöku á dögunum
þegar fyrirliðinn Ágúst Gylfason gekk
í raðir KR-inga. Framarar líta helst til
Færeyja en þar þekkir Geolgau vel til.
„Ég þarf tvær til þrjár vikur til að
ljúka við að sjá alla leiki liðsins frá því í
sumar og eftir það tek ég ákvörðun
með stjórninni um það hvernig leik-
menn við viljum fá til okkar, “ sagði
Geolgau sem kemur til starfa í endaðan
janúar en þar til mun aðstoðarþjálfari
Fram og þjálfari 2. flokksins, Jörundur
Áki Sveinsson, stýra æfingum.
ið í gær eftir að hafa handsalað samn-
inginn við Fram.
Geolgau bíður erfitt verkefni hjá
Frömunum en undanfarin fimm ár hef-
ur þeim tekist að bjarga sér á ævin-
týralegan hátt frá falli.
Morgunblaðið/Jim Smart
Rúmeninn Ioan Geolgau ásamt aðstoðarmanni sínum Jörundi Áka Sveinssyni í höfuðstöðvum Fram.
Meistaratitill
innan þriggja ára
RÚMENINN Ion Geolgau var í gær ráðinn þjálfari karlaliðs Fram í
knattspyrnu til næstu þriggja ára og þar með hafa öll liðin í efstu deild
gengið frá þjálfaramálum sínum fyrir næstu leiktíð. Um 50 erlendir
þjálfarar sóttust eftir þjálfarastarfinu hjá Fram, en Framarar auglýstu
eftir þjálfara í blöðum í Hollandi og á Englandi.
ÞJÁLFARARNIR hjá liðunum í
efstu deild í knattspyrnu á
næsta tímabili eru:
KR: Willum Þór Þórsson
FH: Ólafur Jóhannesson
ÍA: Ólafur Þórðarson
Fylkir: Þorlákur Árnason
ÍBV: Magnús Gylfason
Grindavík: Zeljko Sankovic
Fram: Ion Geolgau
KA: Þorvaldur Örlygsson
Keflavík: Milan Stefán Jankovic
Víkingur: Sigurður Jónsson
Þjálfarar