Morgunblaðið - 04.11.2003, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 299. TBL. 91. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Kemst ekki
í bobba
Jón Þorvaldsson á 500 tegundir
skelja og kuðunga Daglegt líf 25
Með Matthíasi Johannessen á sýningu
á höfundarverki hans Bækur 1
Pólitískur
áróðursmaður
Steve Forbes rekur fjölmiðla-
fyrirtæki og beitir því Erlent 16
FINNSK stjórnvöld sendu þúsundir sovéskra
stríðsfanga í fangabúðir nasista á árum síðari
heimsstyrjaldar. Þessu er haldið fram í nýrri
bók sem gefin hefur verið út í Finnlandi.
„Árin 1941 og 1942 sendi Finnland 2.892 sov-
éska stríðsfanga til Þýskalands, þ.á m. 500 gyð-
inga,“ sagði Elina Sana, finnskur sagnfræðingur
og blaðamaður, í samtali við AFP-fréttastofuna
en hún er höfundur bókarinnar „Luovutetut“,
eða „Þeir sem voru framseldir“. Heldur Sana
því fram í bók sinni að stjórnvöld í Helsinki hafi
látið undan þrýstingi nasista í þessum efnum í
mun ríkari mæli en áður hefur verið talið.
Niðurstöður sínar byggir Sana á viðtölum við
menn sem framseldir voru og afkomendur
þeirra, auk þess sem hún hefur rannsakað
skjalasöfn í bæði Þýskalandi og Finnlandi. Hún
segir að vísu að það hafi gert henni erfitt fyrir að
finnsk stjórnvöld eyddu öllum gögnum í stríðs-
lok sem gátu staðfest gjörðir þeirra og valdið
þeim álitshnekki.
Segir Sana að af þessum sökum hafi sennilega
mun fleiri sovéskir stríðsfangar verið fram-
seldir; tölur hennar séu einungis byggðar á til-
fellum sem henni tókst að staðfesta.
Ekki tókst að fá fulltrúa stjórnvalda til að tjá
sig um efni bókar Sana í gær en AFP ræddi við
Ohto Manninen, þekktan sagnfræðing í Finn-
landi, sem sagðist telja að Finnland hefði hugs-
anlega skipt á um 1.500 sovéskum stríðsföngum
og sambærilegum fjölda rússneskra fanga sem
voru í haldi Þjóðverja og voru af finnsku bergi
brotnir.
Nýjar ásakanir um hlut finnskra stjórnvalda í seinni heimsstyrjöld
Afhentu nasistum sovéska stríðsfanga
ÁKVÖRÐUNAR um aðlögun EES að
stækkun ESB er að vænta á miðvikudag eða
fimmtudag þegar utanríkisráðherrar Ís-
lands, Noregs og Liechtenstein ræða málið,
að sögn Ernst Walch, ut-
anríkisráðherra Liechten-
stein. Hann sagðist þakk-
látur utanríkisráðherrum
Íslands og Noregs fyrir að
hafa beitt sér fyrir lausn
málsins. „Samvinna okkar
gengur vel og við munum
gera allt sem í okkar valdi
stendur til að gera stækk-
un ESB vel heppnaða,“
sagði Walch við Morgunblaðið í gær.
Walch mun funda með Jan Pedersen, ut-
anríkisráðherra Noregs, á miðvikudag eða
fimmtudag, og verða þeir í sambandi við
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra:
„Ég þarf að afla mér allra upplýsinga. Við
munum ræða þetta á miðvikudag, eða
fimmtudag í síðasta lagi. Þar munum við
ræða málið og taka ákvarðanir.“
Þakklátur Íslandi og Noregi
Utanríkisráðherra Tékka, Cyril Svoboda,
sagði að loknum fundi með utanríkisráð-
herrum Íslands og Noregs í Prag á sunnu-
dag að á honum hefði komið greinilega fram
að Ísland og Noregur ætli að skrifa undir
samning um aðlögun EES að stækkun ESB
innan skamms og að þau vonist til þess að
Liechtenstein muni gera það einnig.
Walch segir ekki um það rætt að Íslend-
ingar og Norðmenn skrifi undir án Liecht-
enstein. Halldór og Pedersen hafi einungis
sagt að skrifað verði undir samninga um að-
lögun EES að ESB, og þeir vonist til að
Liechtenstein geri það líka þótt málamiðl-
unartillögur þeirra hafi ekki borið árangur.
„Ég er mjög þakklátur íslenska og norska
utanríkisráðherranum, þeir hafa litið á
þessar viðræður sem hluta af okkar EES-
samvinnu. Það hefur sannarlega aukið sam-
stöðu okkar. Við erum þakklátir fyrir að
þeir gera sér grein fyrir að þetta tengist
fullveldi því sem öll lönd eiga rétt á innan
EES,“ segir Walch.
Norski vefmiðillinn Nationen sagði í gær-
kvöldi að talsmaður stjórnvalda í Liechten-
stein hefði sagt NRK að Liechtenstein hefði
í gær ákveðið að undirrita samninginn um
aðlögun EES ásamt Noregi og Íslandi.
Utanríkisráðherra Liechten-
stein um EES og ESB
Ákvörðun
tekin í
vikunni
Ísland og Noregur/6
Ernst Walch
MÍKHAÍL Khodorkovskí, aðaleig-
andi og forstjóri rússneska olíufé-
lagsins Yukos, lýsti því yfir í gær að
hann væri hættur störfum hjá fyr-
irtækinu. Hann sagðist hins vegar
áfram ætla að vinna að því „að
byggja upp opið og raunverulega
lýðræðislegt samfélag í Rússlandi“.
Khodorkovskí var handtekinn
fyrir rúmri viku og hnepptur í
gæsluvarðhald eftir að ákæra var
gefin út á hendur honum fyrir víð-
tæk fjársvik. Telja margir að að-
gerðir á hendur honum séu af póli-
tískum rótum runnar. Sagði
ákvörðun hans um að hætta sem
forstjóri Yukos, auðveldaði honum
ekki aðeins að skipuleggja vörn
sína vegna meintra fjársvika held-
ur gerði hún honum einnig kleift að
hefja pólitísk afskipti fyrir alvöru –
en Khodorkovskí hefur áður lýst
áhuga á því að láta til sín taka í
stjórnmálum Rússlands.
Sögðu heimildarmenn The New
York Times ekki útilokað að Khod-
orkovskí byði sig nú fram gegn sitj-
andi forseta, Vladímír Pútín, í for-
setakosningum sem eiga að fara
fram í mars á næsta ári.
Khodorkovskí
einmitt í yfirlýs-
ingu sinni að
hann vildi með
ákvörðun sinni í
gær forða Yuk-
os frá því að
verða fyrir enn
frekari ofsókn-
um saksóknara í
Moskvu, sem fyrst og fremst
beindust gegn persónu hans.
Í frétt The New York Times í
gær sagði að tveir nánir samstarfs-
menn Khodorkovskís teldu að
Khodorkovskí
Moskvu. AFP.
Míkhaíl Khodorkovskí hættur sem forstjóri Yukos
Sagður hugleiða
pólitísk afskipti
MOHAMMED Zahir Shah (fyrir
miðju), sem í eina tíð var kon-
ungur Afganistans, tekur hér við
drögum að stjórnarskrá fyrir
landið í Kabúl í gær. Honum á
hægri hönd stendur Hamid
Karzai, forseti Afganistans, en
hann sagði í gær að stjórnar-
skráin hefði verið samin með það
í huga að hún yrði í gildi næstu
100–200 árin.
Þess hefur verið beðið um
nokkra hríð að lokið yrði við að
semja nýja stjórnarskrá fyrir
Afganistan. Stjórnarskrárdrögin
gera ráð fyrir að landið verði lýð-
ræðisríki þar sem forseti telst
æðsti pólitíski leiðtogi landsins.
Jafnframt er kveðið á um mik-
ilvægi íslamstrúar. Afganska
þjóðarráðið, Loya Jirga, fær
drögin nú til umræðu en eftir
samþykkt þeirra er stefnt að því
að halda kosningar í Afganistan.
AP
Stjórnarskrá fyrir Afganistan
FORYSTUMENN Evrópusam-
bandsins (ESB) hörmuðu í gær þá
fordóma gagnvart gyðingum sem
þeir sögðu birtast í niðurstöðum
nýrrar skoðanakönnunar sem sýnir
að íbúar Evrópu telja Ísrael helstu
ógnina við heimsfriðinn. Fyrr í gær
hafði Ísraelsstjórn lýst hneykslan
sinni á niðurstöðunum og brýnt fyrir
evrópskum leiðtogum að stuðla að
auknum skilningi meðal íbúa Evrópu
á erfiðu hlutskipti Ísraels.
Fram kemur í umræddri skoðana-
könnun, sem unnin var fyrir fram-
kvæmdastjórn ESB, að 59% Evr-
ópubúa álíta Ísraelsríki ógnun við
heimsfriðinn. Eru þetta fleiri en telja
Íran, Norður-Kóreu og Bandaríkin
ógnun við frið í heiminum.
Ítölsk stjórnvöld, sem nú fara með
forystu í ESB, hafa lýst yfir að niður-
staðan sé engin vísbending um opin-
bera afstöðu ESB til Ísraels. Hringdi
Silvio Berlusconi, forsætisráðherra
Ítalíu, í Ariel Sharon, forsætisráð-
herra Ísraels, til að lýsa „undrun og
gremju“ á niðurstöðunum.
Romano Prodi, forseti fram-
kvæmdastjórnar ESB, tók í sama
streng. Niðurstaðan benti til að í
Evrópu fyndist gyðingahatur og það
yrði ekki liðið.
Einhliða umfjöllun fjölmiðla
„Evrópubúar virðast ekki átta sig
á þeim þjáningum sem Ísraelar hafa
mátt þola. Í staðinn hafa þeir sett
gyðingaríkið á stall fyrir neðan
helsta glæparíki veraldar og alþjóð-
leg hryðjuverkasamtök,“ sagði í yf-
irlýsingu sem sendiráð Ísraels í
Brussel sendi frá sér vegna málsins.
Sögðust Ísraelar vera að hugleiða
að hefja sýningar á útúrsprengdum
strætisvagni í borgum Evrópu til að
sýna afleiðingar hryðjuverka.
59% Evrópubúa telja
Ísrael helstu ógnina
við heimsfriðinn
Prodi segir
ekki hægt
að líða gyð-
ingahatur
Brussel. AP, AFP.
ÍTALÍUDEILD kaþólsku góðgerð-
arsamtakanna Caritas hefur opnað
sérstaka vinalínu fyrir viðskipta-
vini vændiskvenna. „Við erum að
tala um þúsundir manna sem eng-
inn hugsar um,“ sagði Don Giov-
anni Sandona er hann vakti athygli
á þeim sálarkvölum sem hann sagði
menn sem greiða fyrir kynlíf gjarn-
an líða.
„Þetta frumkvæði er liður í því
að koma í veg fyrir vændi,“ sagði
Antonio De Poli, fulltrúi hjá
Caritas. Um sjötíu þúsund vændis-
konur eru á Ítalíu, um helmingur
þeirra ólöglegir innflytjendur frá
fátækum ríkjum Afríku.
Vinalína fyrir
viðskiptavini
vændiskvenna
Róm. AFP.
♦ ♦ ♦
Alltaf að
hugsa um orð