Morgunblaðið - 04.11.2003, Blaðsíða 17
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 2003 17
OPIÐ HÚS
HÁHOLT 4 - MOSFELLSBÆ
Gott 382 fm atvinnuhúsnæði á tveimur hæðum,
191 fm hvor hæð. Góð aðkoma og fjöldi bíla-
stæða. Eignin gæti hentað vel undir verslun,
þjónustu, skrifstofur, félagsstarfsemi, listamann
eða heildsölur. Húsnæðið er laust nú þegar og
verður til sýnis fimmtudaginn 6. nóv. frá kl.
16.00-18.00. V. 20,9 m. 3727
Skógarhlíð 18, sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Síðustu sætin til Prag þann 9.nóvember. Þú bókar 2 sæti, en greiðir bara
fyrir 1. Kynnstu þessari yndisfögru borg á besta tíma ársins þegar haustið
er að bresta á. Þú bókar núna, og tryggir þér síðustu sætin og að auki
getur þú valið um úrval hótela, þriggja og fjögra stjarna og að sjálfsögðu
nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 19.950
Fargjald kr. 32.600./ 2 = 16.300.-
Skattar kr. 3.650.-
Alm. verð kr. 20.950.-
2 fyrir 1 til
Prag
9. nóv
frá kr. 19.950
GENE Robinson, fyrsti samkyn-
hneigði biskupinn í Biskupakirkjunni
í Bandaríkjunum, var vígður á sunnu-
dag þrátt fyrir mótmæli ýmissa
frammámanna innan kirkjunnar þar
og í öðrum löndum. Í Afríku ætlar ein
kirkjudeild að slíta öllum tengslum
við þá bandarísku og í Bretlandi hefur
hópur manna hvatt til formlegs klofn-
ings í Biskupakirkjunni.
Um 4.000 manns, þar á meðal 55
biskupar, tóku þátt í vígsluathöfninni,
sem fram fór á litlum íþróttaleikvangi í
háskólabænum Durham í New
Hampshire. Voru langflestir við-
staddra stuðningsmenn Robinsons en
hann var áður kvæntur og á tvö börn
en býr nú með karlmanni. Utan leik-
vallarins var hins vegar samankominn
nokkur hópur, sem mótmælti vígsl-
unni.
„Ég get ekki lýst því hve miklu máli
þetta skiptir mig,“ sagði Robinson, „en
þetta snýst ekki bara um mig, heldur
allt það fólk, sem finnst það vera úti á
jaðri samfélagsins. Þessi samkoma er
til vitnis um, að við séum öll velkomin.“
Rowan Williams, erkibiskup af
Kantaraborg og andlegur faðir allra
Biskupakirkjumanna, sagði í yfirlýs-
ingu, að Biskupakirkjan í Bandaríkj-
unum hefði breytt í samræmi við það,
sem hún teldi rétt, en um leið harmaði
hann ágreininginn, sem upp væri kom-
inn.
Margar líflátshótanir
Mjög hart hefur verið lagt að Rob-
inson að hafna biskupsútnefningu
safnaðarins í New Hampshire og um
hríð naut hann lögregluverndar
vegna margra morðhótana.
Við athöfnina á sunnudag mót-
mæltu tveir kirkjunnar menn vígsl-
unni. David Bena, biskup í Albany í
New York, sagði, að safnaðarfólk um
allan heim væri almennt ósátt við
vígslu Robinson en áður hafði Earle
Fox, prestur í Pittsburgh, verið stöðv-
aður í miðjum klíðum er hann bað
Robinson „að hlífa okkur við útlist-
unum“ á kynlífsathöfnum samkyn-
hneigðra. Douglas Theuner, fráfar-
andi biskup í New Hampshire, sagði
hins vegar í sinni ræðu:
„Þú, Gene, ert það einingartákn
innan kirkjunnar, sem við hinir gát-
um ekki verið. Vígsla þín sem biskups
mun kalla til okkar stóran hóp krist-
inna manna, sem við vildum ekki
kannast við.“
Boða beinan klofning
Peter Jensen, erkibiskup og yfir-
maður Biskupakirkjunnar í Ástralíu,
sagði í gær, að víðast hvar um heim
yrði Robinson ekki viðurkenndur sem
biskup og áður hefur hann hvatt til, að
frjálslyndir Bandaríkjamenn, sem
samþykki „frávik frá kenningum
Biblíunnar“, verði reknir úr kirkj-
unni.
Peter Akinola, erkibiskup af Abuja
og yfirmaður Biskupakirkjunnar í
Nígeríu, hafnaði í gær kjöri Robin-
sons og í yfirlýsingu frá Biskupakirkj-
unni í Kenýa sagði, að öll tengsl við
kirkjuna í Bandaríkjunum yrðu rofin.
Talsmaður svokallaðs Umbótahóps
innan bresku kirkjunnar sagði í gær,
að ganga yrði formlega frá hugsan-
legum klofningi innan kirkjunnar.
Sagði hann, að kirkjan yrði að taka af-
stöðu til vígslu Robinsons og það yrði
best gert með því, að biskuparnir
lýstu yfir, að þeir vildu ekkert af
henni vita. Gerðu þeir það ekki, væri
klofningur innar kirkjunnar stað-
reynd.
Samkynhneigður biskup vígður í bandarísku Biskupakirkjunni
Hætta á klofningi
innan kirkjunnar
Vígslunni mót-
mælt sums staðar
sem „fráviki
frá Biblíunni“
Durham, London. AFP.
AP
Mark Andrew, sambýlismaður Gene Robinson, afhendir honum biskups-
mítrið við vígsluathöfnina í Durham á sunnudag.