Morgunblaðið - 04.11.2003, Blaðsíða 19
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 2003 19
1
#
1
!
4
$
7( 8 -
!"#$ %& 999( (
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
Með kveðju.
Hákon, sími 898 9396.
HÖFUM KAUPENDUR AÐ
EFTIRTÖLDUM EIGNUM
Raðhúsi á einni hæð í Lindahverfi, allt að 23 millj.
Raðhúsi í Mosfellsbæ á einni hæð, allt að 14,0 millj.
4ra herb. íbúð í Grafarvogi, allt að 13,0 millj.
Sérbýli í Smáíbúðahverfi/Hvassaleiti, allt að 29 millj.
Raðhúsi á þremur hæðum í 108 Rvík. allt að 15,0 millj.
Rað- eða parhúsi í 111 Rvík. allt að 22 millj.
Sérbýli Álftanesi, Garðabæ, Hafnarfirð,i allt að 22,0 millj.
Sérhæð í 107 Rvík. 3-4 svefnherb., allt að 18,0 millj.
Áhugasamir vinsamlega hafið samband og ég mun
fúslega veita nánari upplýsingar.
ÓSKA EFTIR LÚXUS ÍBÚÐ
Í LYFTUHÚSI
Nánari uppýsingar veitir Magnús Einarsson hjá Heimili fasteignasölu
í síma 898 5688 eða 530 6500
sími
530 6500
Finnbogi Hilmarsson
löggiltur fasteignasali
Opið mán.- fös. frá kl. 9-17
Hef verið beðin um að leita að vandaðri, minnst
100 fm, íbúð, 3ja-5 herbergja á svæði 101, 104,
105, 103 eða 108. Fjársterkir kaupendur og
góðar greiðslur. Verðhugmynd 20-30+ milljónir.Magnús Einarsson,
sölumaður
Kópavogi | Nokkur styr
hefur staðið um fyrirhug-
að deiliskipulag Lundar-
svæðis í Fossvogsdal og
hafa fulltrúar minnihlut-
ans í bæjarstjórn Kópa-
vogs lýst yfir áhyggjum
sínum af viljaleysi bæjar-
yfirvalda til að auka svig-
rúm til umsagnar. Á
Lundarsvæðinu eiga að
rísa átta háhýsi sem munu
hýsa um þrettán til fjór-
tán hundruð íbúa.
Áhugahópur um betri Lund heldur
í kvöld klukkan 20 kynningarfund í
Snælandsskóla þar sem rýnt verður í
fyrirhugaðar framkvæmdir á svæð-
inu og þá ágalla sem á þeim eru taldir.
Innlegg verða frá íbúum í nágrenni
Lundar, arkitektum, skipulagsfræð-
ingum og bæjarfulltrúum og eru íbú-
ar Kópavogs hvattir til að taka upp-
lýsta afstöðu til skipulags svæðisins.
Hannes Þorsteinsson er einn af
forsvarsmönnum Samtaka um betri
Lund. Hann segir samtökin vera
þverpólítísk og alls ekki beint gegn
bæjaryfirvöldum, heldur gegn þess-
um tilteknu hugmyndum, sem séu
meingallaðar. Hannes telur margt
hafa betur mátt fara í kynningarferl-
inu og því hvernig deiliskipulag
Lundar hefur verið samþykkt. „Allt
ferlið hefur verið nokkuð furðulegt og
ekki alveg samkvæmt hugmynda-
fræði staðardagskrár 21 sem hvetur
til samráðs við íbúa í sveitarfélaginu.
Það eru stórir gallar á fyrirhuguðu
skipulagi og byggingunum sem eiga
að rísa þarna. Í fyrsta lagi eru þær
risastórar, um fimmtíu metrar, sem
er ekki í neinu samræmi við byggðina
í kring og myndar gríðarlega skugga
á annars fallegu svæði. Byggingarnar
rísa ofan í lægð, en engu að síður ná
þær í sömu hæð og Hamraborgin og
útvarpshúsið í Efstaleiti. Þetta er
gríðarleg hæð.
Gallar þessarar hugmyndar eru
mýmargir, þar má nefna skerðingu
útsýnis, aukningu á hávaða, loftmeng-
un og umferðarálagi sem ekki er á
bætandi. Vindskilyrði breytast einnig
auk þess sem mik-
il fjölgun verður í
Snælandsskóla.
Hér er um að
ræða misnotkun á
hugtakinu „þétt-
ing byggðar.“ Það
er ekki fyrir mikil
eftirspurn eftir
fjölbýlishúsnæði í
Kópavogi, en
þeim mun meiri
eftirspurn eftir lágreistari rað- og
parhúsum. Ofan á allt saman er há-
vaðamengunin talin slík að nauðsyn-
legt er að hafa vélknúna loftræstingu,
sem getur reynst gróðrarstía sýkla og
heilsuvandamála ef henni er ekki
haldið fullkomlega við.“
Skyndileg umskipti
Hannes segir það furðulega tilvilj-
un að skipulagsnefnd Kópavogs hafi
einmitt mótmælt áformum Reykja-
víkurborgar um byggingu fjölbýlis-
húss við Suðurhlíð 38 í jan-
úar í fyrra. „Það hús átti að
vera langtum lægra en þau
sem nú rísa, einungis um
tólf metrar eða svo, en nú
kannast bæjaryfirvöld ekk-
ert við slíkt og vilja byggja
sem hæst á þessu fallega
svæði. Það er líka furðulegt
að allar fundargerðir skipu-
lagsnefndar eru aðgengi-
legar á Netinu nema fund-
argerð númer 976 frá 15.
janúar 2002, þar sem þessi mótmæli
koma fram. Í ályktun skipulagsnefnd-
ar sagði m.a. „Skipulagsnefnd telur
ljóst að fyrirhuguð byggð á þessum
stað sé of háreist með tilliti til byggð-
ar í nágrenninu og spilli útivistar-
svæðinu.“ Og núna vilja þeir byggja
átta fimmtíu metra háa risa í miðjum
Fossvoginum.“
Hannes segir að þegar um sé að
ræða svo verðmætt svæði eins og
Lundarsvæðið hefði að minnsta kosti
átt að fara fram hugmyndasam-
keppni. „Við viljum ekki fá aðra
Hamraborg. Það hefði verið lágmark
að sjá hvaða hugmyndir fólk hefði um
þetta í stað þess að ryðjast strax á
eina.“ Hannes hvetur íbúa Kópavogs
til að mæta í Snælandsskóla í kvöld og
kynna sér málið betur.
Áhugahópur um betri Lund heldur kynningarfund
TENGLAR
.....................................................
http://betrilund.klaki.net
http://www.lundur.net
Hannes
Þorsteinsson
Illa staðið að samráði
Tölvumynd af Lundarhverfinu séðu innan úr Fossvogsdal.
LEIKLISTARHÁTÍÐ Listar án landamæra
verður í Borgarleikhúsinu kl. 20 í kvöld.
Þátttakendur eru um 90 úr Perlunni, M.A.S.,
Tjarnarhópnum, Leikfélaginu Sólheimum og
úr leikhóp frá Fjölbrautaskóla Garðabæjar.
Leikhópurinn Perlan sýnir tvö leikatriði í
leikstjórn Sigríðar Eyþórsdóttur, Ef þú bara
giftist, úr Gísl eftir Brendan Behan og Vor,
eftir Stein Steinarr með tónlist eftir Mána
Svavarsson. Einnig munu þau sýna dans-
verkið Rómantíka eftir Láru Stefánsdóttur
og í því atriði er meðdansari Perlunnar Kol-
brún Anna Björnsdóttir. Perlan hélt upp á 20
ára leikafmæli sitt í mars sl. með veglegri yf-
irlitssýningu í Iðnó. Perlan hefur komið víða
fram á leikferlinum, svo sem í sjónvarpi, á
ráðstefnum, hjá félögum og félagasamtökum,
styrktarskemmtunum, skólum og listahátíð-
um og farið sjö leikferðir til útlanda. List-
rænn leiðbeinandi og framkvæmdastjóri
Perlunnar frá upphafi hefur verið Sigríður
Eyþórsdóttir en verndari leikhópsins er
Björk Guðmundsdóttir.
Leikfélag Sólheima mun sýna þrjú atriði
úr leikritinu Sólstafir, sögur frá Sólheimum
sem frumsýnt var síðastliðið vor. Við sköpun
þess var farin sú leið að spinna út frá lífs-
reynslusögum og minningabrotum íbúa á Sól-
heimum. Haldinn var hugarflugsfundur í
Sesseljuhúsi í upphafi ársins þar sem þeir
voru hvattir til að koma með hugmyndir og
lífsreynslusögur með það í huga að búa til úr
þeim leikrit. Eftir þann fund var byggður
grunnur að leikritinu en síðan fékk það að
þróast og vaxa undir leikstjórn Margrétar
Ákadóttur og á leiðinni bættust margar lífs-
reynslusögur í safnið. Leikfélag Sólheima er
72 ára og eitt elsta áhugamannaleikfélag
landsins.
M.A.S.-leikflokkurinn mun flytja verkið
Stutt mærðarspil um Píramus og Þispu hans,
mjög sorglega gamansögu úr Draumi á Jóns-
messunótt eftir William Shakespeare. Leik-
þátturinn er í leikstjórn Ingólfs Níelsar
Árnasonar og var það frumsýnt í júní sl. á
Íslandi og á leiklistarhátíð í Svíþjóð. M.A.S.
tengist handverkstæðinu Ásgarði og þetta er
í annað sinn sem leikhópurinn tekst á við
Shakespeare en síðast var það sjálfur
Hamlet sem glímt var við.
Tjarnarhópurinn mun flytja atriði úr leik-
ritinu Jólaævintýri eftir Jón Gunnarsson,
einn félaga í hópnum. Þau munu einnig
syngja lag Línu langsokks úr samnefndu
leikriti eftir Astrid Lindgren, en það leikrit
setti hópurinn upp síðastliðinn vetur. Þá
munu þau syngja lagið Veröldin er full af
vondum siðum sem var samið fyrir þau og
lesa ljóð, frumsamin og eftir þjóðskáldin.
Tjarnarhópurinn er skipaður hressum krökk-
um um tvítugt, sem flest fengu leiklist-
arbakteríuna í framhaldsskólunum sínum.
Þau eiga sameiginlegan brennandi áhuga á
leiklistinni og hittast vikulega í Iðnó til að fá
útrás fyrir sköpunargleðina. Leikstjórar
hópsins eru Guðlaug María Bjarnadóttir og
Guðný María Jónsdóttir.
Leikhópur af starfsbraut Fjölbrautaskóla
Garðabæjar mun flytja atriði úr leikgerð
sinni á barnasögunni um Tótu Tætibusku
sem hópurinn er að vinna að og frumsýnt
verður í desember nk. Leikstjóri er Sigrún
Sól Ólafsdóttir en Pálmi Sigurhjartarson er
tónlistarstjóri og leikur á píanó í sýningunni.
Nú er enn meiri áhersla en áður hefur tíðk-
ast hjá hópnum á ytri umgerð, og eru nem-
endur í fatahönnun í FG að vinna með leik-
hópnum að leikmynd og búningum. Nú er
stefnt að því að sýna verkið nokkrum sinn-
um, og verður leikskólum boðið að koma á
sýninguna. Í maí sl. samdi leikhópurinn og
setti upp leikritið Sögur úr daglegu lífi en
önnur verkefni hans hafa verið leikgerð á
Rómeó og Júlíu eftir Shakespeare og frum-
samið jólaleikrit, Leitin að jólaskrautinu.
Kynnar á leiklistarhátíðinni í Borgarleik-
húsinu eru Magnús Korntop og Björgvin
Franz Gíslason
Listahátíðin List án landamæra er haldin í
tilefni Evrópuárs fatlaðra 2003 og 10 ára af-
mælis Átaks, félags fólks með þroskahömlun.
Átak, í samstarfi við Landssamtökin Þroska-
hjálp, Fjölmennt, fullorðinsfræðslu fatlaðra,
Sérsveit Hins hússins og vinnustofuna Ás-
garð, stendur fyrir hátíðinni þar sem list-
sköpun fólks með þroskahömlun er í brenni-
depli. Nú þegar hafa um fjórir tugir viðburða
litið dagsins ljós á List án landamæra, í
Reykjavík, á Akureyri og á Sólheimum í
Grímsnesi.
List án landamæra í Borgarleikhúsinu
Morgunblaðið/Golli
Tvinnuð eru saman stutt leikatriði undir slagorðinu „List án landamæra“. Flytjendur eru Perlan,
Leikfélag Sólheima og leikhópar frá Ásgarði, Borgarholtsskóla og Fjölbrautaskóla Garðabæjar.
Leikhópar fatlaðra
hittast og skemmta