Morgunblaðið - 04.11.2003, Blaðsíða 25
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 2003 25
#16 PYLSURNAR
ICELAND REVIEW
ÁSKRIFTARSÍMI 512-7517
askrift@icelandreview.com
HVERS VEGNA ÍSLAND?
40 ÁSTÆ‹UR
! "
JÓN Þorvaldsson á orðið allgott safnkuðunga og skelja. Það telur rösk-lega fimm hundruð tegundir, sem all-
ar hafa verið nafngreindar. Kuðungarnir
og skeljarnar eru öll af Íslandsströndum og
innan um vill Jón meina að séu mjög fágæt-
ar tegundir.
Jón segir að líklega séu liðin ein fjörutíu
ár síðan hann byrjaði að sanka að sér skelj-
um og kuðungum og ekkert lát sé á þeirri
söfnunaráráttu. „Ég byrjaði á því að fara í
fjörur og svo hlóð þetta upp á sig. Hafði svo
samband við Ingimar heitinn Óskarsson,
sem var mikill og góður náttúrufræðingur,
og fór með skeljar og kuðunga til hans sem
ég sjálfur réð ekki við að greina. Hann
hvatti mig eindregið til að halda áfram og
benti mér á leiðir til að fá meira af þessu.
Til að mynda gleypir ýsan kuðunga og
skeljar og lifir á dýrunum frá nóv-
emberbyrjun og fram í febrúar-
mánuð þegar sílin fara að koma
og taka við sem fæða ýsunnar.
Nú orðið er orðið erfitt að fá
innan úr ýsu, en hér áður fyrr
samdi ég t.d. við fiskkaup-
menn og sjómenn eða sópaði
SÖFNUN | Kuðungar og skeljar í hundraðavís
Ómæld
ánægja
Uppáhaldsfjörur: Jón Þorvaldsson
er hrifnastur af fjörunum í Kolla-
firði, Geldinganesi og Stóru-
Sandvík á Reykjanesi.
join@mbl.is
saman sandi og leir af
dekki togara, sem voru að
koma frá veiðum, og fór
með heim til að dunda við.
Það var allur gangur á
þessu.“
Jón segist vera fyrir
löngu hættur að fara í
fjörur því hann sé nú þeg-
ar búin að finna flest það,
sem þar sé hægt að finna.
En þegar hann er spurð-
ur hverjar uppáhaldsfjör-
urnar séu nefnir hann
Stóru-Sandvík á Reykja-
nesi og fjörur uppi í Kollafirði og úti á
Geldinganesi. Við greiningu tegunda segir
Jón að bók Ingimars Óskarssonar, Skel-
dýrafána Íslands, hafi hjálpað sér mikið.
Auk þess hafi skiptivinir sínir ásamt sænsk-
um fræðimanni í þessari grein verið sér af-
ar hjálplegir við greininguna.
Jón, sem nú er 88 ára að aldri, starfaði
lengst af starfsævinni sem húsgagnasmið-
ur. Hann segir að dundið og grúskið við
kuðunga- og skeljasafnið hafi gefið sér
ómælda ánægju. Þetta hafi verið aðal-
áhugamálið í gegnum tíðina auk þess sem
hann hafi gaman af því að ferðast um land-
ið. „Ekki síst eftir að maður hættir að vinna
er nauðsynlegt að hafa eitthvert áhugamál
til að drepa tímann með.“
Morgunblaðið/Jim Smart