Morgunblaðið - 08.11.2003, Síða 1
F
ÁTT er vinsælla hjá litlum stelpum þessi
misserin, bæði hérlendis og í útlandinu, en
hinar bandarísku Bratz-dúkkur. Þær sam-
anstanda af fimm vinkonum, þeim Cloe,
Meygan, Jade, Sasha og Yasmin. Reyndar
hefur Dana komið í stað Meygan, því hún
seldist ekki nógu vel og einnig hefur
skvísan Nevra nýlega bæst í hópinn.
Fjórir Bratz-strákar komu einnig á
markaðinn í sumar, því framleið-
endur komust að því að stelpur um
tíu ára aldurinn væru í leikjum sín-
um mjög uppteknar af pörum.
Dúkkurnar, sem eru nokkr-
um sentímetrum lægri en
Barbie, bera því óneitanlega
vitni að poppmenningin með
fáklæddum dillibossum
hefur haft áhrif á leik-
fangaiðnaðinn.
Bratz-dúkkur (þær
sem eru kvenkyns)
klæðast pínupilsum
og flegnum bolum
eins og poppstjörnur
sem eru á fullorðinsaldri
og eru auk þess stífmál-
aðar. Þær eru vinsælast-
ar hjá stúlkum á aldrinum
fimm til tólf ára og því ekki að undra að sumir for-
eldrar velti fyrir sér hvort slíkar fyrirmyndir séu
heppilegar fyrir svo ungar stúlkur.
Spegilmynd samfélagsins?
Aðrir segja að dúkkurnar spegli einungis sam-
félag okkar þar sem við komum fram við og klæð-
um börn okkar eins og þau séu miklu eldri en þau
eru. Margir setja líka spurningamerki
við þau skilaboð sem Bratz-vinkon-
urnar flytja, því þær virðast ekki gera
neitt annað en að hafa sig til og fara út
að skemmta sér. Þær eru markaðs-
settar með orðunum „The girls with a
passion for fashion“, sem sagt stúlkur með
ástríðu fyrir tísku. Þær eru alveg sjúkar í „funk“-
tísku og allir aukahlutir sem þeim fylgja snúast um
útlit og yfirborð. Mörgum finnst þetta afturför, því
Barbie hefur einmitt þróast frá því að sitja heima
og bíða eftir Ken, til þess að geta hvað sem er.
Vegna gagnrýnisradda um metnaðarlausa
dúkku, var farið að
framleiða Barbie sem
er tannlæknir eða
hvað annað sem hug-
urinn stendur til.
Einnig var málum
hennar breytt, þar
sem hún hafði svo
ógnarstór brjóst
miðað við mittismál og leggi svo óhóflega lengri en búk, að
ekki nokkur lifandi manneskja getur verið þannig í laginu
og þar af leiðandi urðu margar ungar stúlkur fyrir miklum
vonbrigðum þegar þær báru sig saman við vaxtarlag
Barbie.
Risastórt höfuð og þrýstnar varir
Bratz-vinkonurnar hafa önnur hlutföll en lifandi stúlk-
ur, þær eru með risastórt höfuð samanborið við búkinn,
agnarsmátt nef og þrýstnar varirnar ná yfir meirihluta
neðra andlitsins. Einnig eru skásett og hálflukt augun í
yfirstærð.
Telja má framleiðendum Bratz-vinkvennanna það til
tekna að þær standa fyrir fleiri en einn kynþátt því Sasha
og Yasmin eru dökkar á hörund.
Í Dótabúðinni í Kringlunni fengust þær upplýsingar að
Bratz-dúkkurnar væru mjög vinsælar hjá stelpum en að-
eins einn strákur hefði keypt slíka dúkku og þá karlkyns. Í
hvert sinn sem eitthvað nýtt kemur í Bratz, fyllist búðin af
stelpum og vafalítið verður þetta jólagjöfin hjá mörgum í
ár. Auk þess er mikið um fylgihluti, allt frá skarti og klæð-
um til heilu diskótekanna, límósína og hárgreiðslustofa.
Einnig eru til púðar með myndum af skvísunum og hægt
er að kaupa stórt Bratz-höfuð til að farða. Nýjasta nýtt eru
litlar Bratz-dúkkur. Ónefnd móðir sjö ára stúlku sagðist
vera búin að streitast í heilt ár á móti þrýstingi frá dóttur
sinni um að fá Bratz-dúkku og nú væri hún að hugsa um að
láta undan, þótt hún hefði efasemdir um fyrirmyndina.
„En bakgrunnur barnanna skiptir líka
máli og ég treysti dóttur minni alveg til að
láta þessar dúkkur vera þyrluflugmenn eða
eitthvað annað og meira en pjattrófur.“
Bratz-dúkkurnar þustu fram á leikfanga-
markaðinn sumarið 2001 og hafa nú náð 31,7
prósentum á dúkkumarkaðnum. Þær og
fylgihlutir þeirra hafa rakað inn einum milljarði Banda-
ríkjadala og því ekki að undra að margir leikfangafram-
leiðendur hafi farið út í að framleiða og selja Bratz-eftir-
líkingar.
Bratz-dúkkurnar
eru markaðs-
settar sem
stúlkur með
tískuástríðu
Barbie og Bratz:
Þær eiga ekki
mikla samleið,
hin hógværa
Barbie og
glimmergellan
Dana.
LEIKFÖNG
BRATZ-vinkonurnar: Jade, Cloe, Meygan, Sasha og Yasmin. Komn-
ar í glimmerklæðin og háu hælana. Minna svolítið á Spice Girls.
PÚÐAR:
Sasha og
Jade.
Meygan:
Svaka skvísa.
Morgunblaðið/Kristinn
Umdeildar
skvísur
khk@mbl.is
LAUGARDAGUR
8. NÓVEMBER 2003