Morgunblaðið - 09.11.2003, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 2003 53
RÆTT er um Scandinavian tourist, fata-
merki íslensku hönnuðanna Hugrúnar
Daggar Árnadóttur og Þuríðar Rósar Sig-
urþórsdóttur, í nýjasta hefti breska Vogue.
Í greininni eru þær nefndar á meðal þeirra
hönnuða sem eru að hitta á réttu tískunót-
urnar hvað varðar bútasaumsstíl. Nefndir
eru nokkrir ungir hönnuðir til sögunnar og
einnig þekktari hönnuðir og tískuhús á
borð við Hussein Chalayan, Preen og Bal-
enciaga, sem eru að hampa þeim stíl að
blanda saman efnum, litum og stílbrigðum í
einni flík.
Talað er um að Scandinavan tourist sé
að festa sig í sessi og sé búið að afla sér margra aðdáenda og fastakúnna.
Þar segir Vogue að fremst fari í flokki aðdáenda ástralska leikkonan Cate
Blanchett. Eru það mikil meðmæli þar sem Blanchett þykir mjög smekkleg
í alla staði og hafa skemmtilegan stíl.
Íslenska fatamerkið Scandinavian tourist í Vogue
Cate Blanchett
Cate Blanchett
aðdáandi
ÆRSLABELGIRNIR í Tenacio-
us D ákvaðu nú á dögunum að
fara í 45 daga hungurverkfall og
ætluðu að vera í glerbúri sem
héngi fyrir ofan Times Square í
New York. Hmmm, hljómar
þetta kunnuglega? Já, þetta er
nákvæmlega það sem sjónhverf-
ingamaðurinn David Blaine
framkvæmdi nú á dögunum. Eini
munurinn er sá að Tenacious D
var ekki í sömu borg því uppá-
tæki Blaines átti sér stað í Lund-
únum.
Eftir 23 mínútur í glerbúrinu
missti Jack Black, söngvari
sveitarinnar, stjórn á sér. Á sama tíma dró Kyle Gass, hinn helmingur dúetts-
ins, upp úr vasa sínum handfylli af M&M kúlum og hóf að troða þeim brjál-
æðislega upp í sig. Glerbúrið var látið síga aftur niður og voru þeir keyrðir á
brott í sjúkrabíl.
Þeir Black og Gass fóru í hungurverkfallið til að fá fólk til að kaupa nýja
mynddiskinn þeirra: The Complete Master Works.
Þeir ætluðu að vera í verkfallinu í 45 daga en ef diskurinn næði platínusölu
eða friður kæmist á í Mið-Austurlöndum ætluðu þeir að koma niður fyrr.
Jack Black og Kyle Gass á bumbunni.
Tekið fyrir hungurverkfallið.
Misheppnað
hungurverkfall
ÍSLENSKA vefsvæðið tonlist.is
hefur samið við færeysk útgáfu-
fyrirtæki um sölu á færeyskri tón-
list á netinu. Helst ber þar að
nefna Tutl sem er með hundruð
titla á skrá hjá sér, sem þekur vel
flóru færeyskrar tónlistarsköpun-
ar, í dag sem fyrr á dögum.
Vinna við skráningu á færeysku
tónlistinni hefur staðið yfir síðan í
byrjun september og ætlunin er
að setja efnið á vefinn í nóvember.
Undafarin tvö ár eða svo hafa
Íslendingar vaknað til vitundar
um ríka tónlistarhefð náfrænda
okkar og sveitir eins og Týr, 200%
og Clickhaze hafa heimsótt Ís-
lands og spilað. Öllum áskrifend-
um tonlist.is býðst því fljótlega
ótakmarkaður aðgangur að fær-
eyskri tónlist en auk þess verður
hægt að kaupa stök lög og plötur á
vefsvæðinu.
Þess má geta að tonlist.is sendi
útgáfutónleika Eivarar Pálsdótt-
ur, sem fram fóru á þriðjudags-
kvöldið í Íslensku óperunni beint
út á netinu. Hundruð landa henn-
ar nýttu sér tækifærið og fylgdust
með frá heimahöfninni.
Færeysk tónlist
á tonlist.is
tonlist.is, tonlist.com
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 1.45 og 3.50.
ÁLFABAKKI
Kl. 2.
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 3, 5.30, 8 OG 10.30.
Beint á
toppinn
í USA
Ævintýraleg spenna,
grín og hasar
ROGER EBERT
Empire
Kvikmyndir.is
SV MBL
“Fyndnasta barátta
kynjanna á tjaldinu
um langa hríð.”
NÝJASTA MYND COEN BRÆÐRA.
Stórstjörnurnar George Clooney og Catherine
Zeta-Jones fara á kostum í myndinni.
Frábær rómantísk gamanmynd sem bragð er að.
SG DV
„Ein besta
gamanmynd ársins-
fyrir fullorðna“
The Rundown er mikil rússíbanareið og
hún nær þeim ævintýrablæ og húmor sem
einkennir m.a. Indiana Jones myndirnar.
H.K. DV.
KVIKMYNDIR.IS
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8.
ÁLFABAKKI
kl. 2 og 4 . Ísl. tal.
KRINGLAN
kl. 2 . Ísl. tal.
AKUREYRI
kl. 4.
AKUREYRI
kl. 4. Ísl. tal.
AKUREYRI
Kl. 6 og 10.
ÁLFABAKKI
Kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10
KEFLAVÍK
Kl.10.
KRINGLAN
Kl. 8 og 10.05
KRINGLAN
Sýnd kl. 10.30.
ATH!AUKASÝNINGKL. 6.30og 9.
Stundin sem allir hafa beðið eftir er komin!
Lokauppgjör Matrix þríleiksins er hafið!
Stundin sem allir hafa beðið eftir er komin!
Lokauppgjör Matrix þríleiksins er hafið!
Helen Mirren og Julie
Walters fara á kostum í
nýrri og
bráðskemmtilegri
breskri gamanmynd í
anda
„Full Monty“. Mynd sem
kemur skemmtilega
á óvart enda ein stærsta
mynd ársins í Bretlandi.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8.30 og 10.30,
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3, 4, 5.30, 6.30, 8, 9 og 10.30. B.i. 12.
Frábær teiknimynd byggð á sígildu
þjóðsögu
um Tristan og Ísold.
i i í il
j
i Í l .
Miðave
rð
500
kr.
ÍSLENSKT
TAL
AKUREYRI
Kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 . B.i. 12.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 6. B.i.10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2. Ísl. tal.
Með ísl. tali
KEFLAVÍK
Kl. 3, 5.30, 8 og 10.30.
Kvikmyndir.com Kvikmyndir.com Kvikmyndir.com