Morgunblaðið - 11.11.2003, Blaðsíða 22
DAGLEGT LÍF
22 ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
H
ÁRTÍSKAN tekur
reglulegum breyt-
ingum ekki síður en
fatatískan og í höf-
uðstöðvum
Toni&Guy í London
er fylgst vandlega
með öllum tískubreyt-
ingum og þær yfir-
færðar í hártískuna.
Árangurinn er svo ár-
lega birtur í mikilli
bók sem kynnir línu
fyrirtækisins fyrir
næsta árið.
„Toni&Guy kynntu
nýjustu línu sína í
október sl. og því er
gaman fyrir okkur að
koma með sýningu í
kjölfarið,“ segja þær
Sigrún Davíðsdóttir
og Hildur Árnadóttir,
eigendur hársnyrti-
stofu Toni&Guy á Íslandi. „Það
tíðkast hjá Toni&Guy úti að setja
upp sýningu til að kynna línuna,
en okkur langaði að hafa þetta
meira en bara hársýningu og því
reyndum við að horfa á heildar-
umgjörðina og fengum af því til-
efni fjöldann allan af listamönnum
í lið með okkur og eigum örugg-
lega eftir að gera meira af því,“
segir Hildur um sýningu sem sett
var upp í sýningarsal bílaumboðs-
ins Heklu sl. laugardagskvöld.
Voru fatahönnuðirnir Kári Sveins-
son og Svava Magdalena þannig
fengin til að hanna fatnað fyrir-
sætanna og ævintýraleg förðun
var í höndum Guðbjargar Huld-
ísar förðunarmeistara og nemenda
úr förðunarskóla Make Up For-
ever. Að auki mátti finna hljóm-
sveitirnar Funk Harmony Park og
Stonehunter, dansara frá List-
dansskóla Íslands og fleiri
skemmtiatriði.
„Okkur langar að gera þetta að
árlegum viðburði og á næsta ári
getum við sagt að svo hafi orðið,
en þá ætlum við að bjóða upp á
svona sýningu í þriðja skipti.“
Stuttir toppar og síðir
Að sögn Hildar eru alltaf viss
tengsl milli fata- og húsgagnatísku
og hártískunnar. „Núna er til
dæmis viss naumhyggja í gangi og
í hártískunni kemur hún fram í
hreinum línum, hreinum toppum
og stílhreinum greiðslum,“ segir
Hildur, en línan passar jafnt síðu
sem stuttu hári. Toppar eru þá
vinsælir núna og ná jafnvel aftur
fyrir eyru. „Stuttir toppar, síðir
toppar, breiðir toppar og toppar
sem liggja í skálínu. Allt er þetta
vinsælt núna og allir eiga topp-
arnir það sameiginlegt að vera
hreinir og þungir,“ segir Sigrún.
Hártískan sækir þá mikið í smiðju
sjöunda og níunda áratugarins
þetta árið, en þessir áratugir hafa
líka sett mikið svip sinn á fatatísk-
una. „Þegar leitað er til fortíðar
líkt og gert hefur verið undanfarin
ár er það alltaf gert í bland við við
nútímann. Og að þessu sinni eru
flestar sterku línurnar í anda sjö-
unda áratugarins. Styttur og tjás-
ur í hártískunni nú eru svo í anda
níunda áratugarins og í ár hafa
þessar tvær línur verið bræddar
saman á skemmtilegan hátt,“ seg-
ir Hildur og bætir við að hreinu
línuna sé einnig að finna í
greiðslum í anda ára síðari heims-
styrjaldarinnar.
„Við sýndum eina slíka greiðslu
og það var gaman að hafa hana
með því þar kemur fram þetta of-
urkvenlega og fágaða.“
Breidd í herraklippingum
Í herraklippingum má áfram sjá
töluverða sídd, en breiddin er
engu að síður mikil. „Í herraklipp-
ingum þarf vídd eins og hjá döm-
unum því það eru ekki allir sem
nenna að hafa sítt hár
og því er stutt ekki síð-
ur í tísku. Það er í raun
mikil breidd í gangi og
ég held að það sé heila
málið hvort sem um er
að ræða dömur eða herra,
greiðslur eða klippingar. Aðal-
atriðið er að það fari andlitsfallinu
og persónunni,“ útskýrir Hildur
og segir ekki síður mikilvægt að
spá í persónleika og klæðaburð
viðskiptavinar, en andlitsfall og
hárgerð.
„Áður voru kannski bara ein til
tvær línur í gangi á hverju ári en í
dag er tískan miklu fjölbreyttari.“
Toni&Guy fagna 40 ára afmæli
sínu um þessar mundir en reknar
eru um 300 hársnyrtistofur undir
nafninu víða um heim. Þó að línan
sé lögð í höfuðstöðvunum voru
greiðslunar sem sýndar voru á
laugardag hins vegar túlkaðar og
þróaðar frekar af starfsfólki Toni-
&Guy hér á landi. „Það
er ekki gaman að kóp-
era bara beint upp úr
bók og þetta er okkar
túlkun á meginlínunni,“
segir Sigrún.
Brúðargreiðslan sem sýnd var í
lok hársýningarinnar á laugardag
undirstrikar þessi orð, en hún var
á óhefðbundnum nótum. „Það er
gaman að sjá öðruvísi brúði og
okkur þætti gaman ef íslenskar
konur sýndu sig meira tilbúnar að
víkja frá hefðum og sýna meiri
ævintýragirni í útliti. Þó að
greiðslan og klæðnaðurinn sem við
sýndum sé í djarfari kantinum og
falli ef til vill ekki að smekk allra
er engu að síður hægt að sýna
frumleika á margan annan hátt.“
HÁR| Fjölbreytt hártíska þar sem andi naumhyggjunnar er ráðandi hentar jafnt síðum sem stuttum línum
Alveg hreinar línur toppa
Óhefðbundin brúður: Villt og mikið
hár fyrir þá sem vilja vera öðruvísi.
Hárprúður drengur: Mikið og liðað
hárið myndar ramma um andlitið.
Afró-greiðslan: Gengur alltaf, að
sögn þeirra Sigrúnar og Hildar.
Mikil breidd: Stutt hár og sítt verður í tísku fyrir strákana þetta árið og
ættu því allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi hver sem lengdin er.
Hreinar línur og tjásur: Sjöundi og
níundi áratugurinn bræddir saman.
Andstæður: Ofurkvenleiki í greiðslu frá stríðsárunum og liðaðir miklir
lokkar í anda afró-tískunnar voru meðal þess sem bar fyrir sjónir.
Fortíðar-
tilvísanir með
nútímalegum
áherslum.
Morgunblaðið/ Jón Svavarsson
Sérfræðingarnir: Sigrún Davíðsdóttir og Hildur
Árnadóttir, eigendur Toni&Guy.
Einfaldar línur í anda
sjöunda áratugarins í
bland við styttur og
tjásur þess níunda eru
ráðandi í hártískunni í
vetur samkvæmt boð-
skap höfuðstöðva
Toni&Guy í London.
Hreinar línur: Toppar setja sterkan
svip í hárlínur vetrarins.annaei@mbl.is