Morgunblaðið - 11.11.2003, Blaðsíða 23
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 2003 23
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
/
s
ia
.i
s
/
N
M
0
8
5
1
6
Tölum saman
fia› er ód‡rara en flú heldur!
flegar flú hringir úr heimilissímanum.
15 mínútna símtal innanlands á kvöldin
og um helgar kostar innan vi› 20 krónur
15 20/ kr.mín
- á kvöldin og um helgar
Þ
EIR eru í meira lagi
bjartsýnir, kraftmiklir
og einstaklega spenn-
andi í návígi. Líka
þrjóskir, einbeittir og
sjálfselskir, og vita fátt verra en
orlofsferðir. Velkomin í hug-
arheim athafnamannsins, þar
sem áhætta er aukaatriði, hraði
lífsspursmál og ósigur kemur
ekki til greina, segir The Sunday
Times.
Vitnað er í þáttaröð sem BBC2
tók til sýningar nýverið, þar sem
lið sálfræðinga og sérfræðinga í
viðskiptum fékk hóp athafna-
manna til þess að taka marg-
vísleg sálfræðipróf. Þættirnir
nefnast Hugarheimur auðmanns-
ins og segir í grein blaðsins að
niðurstöður prófanna hafi komið
nokkuð á óvart.
Haft er eftir Adrian Atkinson,
viðskiptasálfræðingi hjá ráðgjaf-
arfyrirtæki og einum sérfræðing-
anna í þættinum, að athafnamenn
séu ekki alveg eins og annað
fólk.
„Hegðun þeirra lýtur ekki
sömu lögmálum og annarra. Þeir
eru til í að hætta öllu til þess að
stofna fyrirtæki og elta tækifær-
in alveg óháð bolmagni. Þegar
tækifærið hefur verið gripið snúa
þeir sér að fjármögnuninni. Í of-
análag eru þeir fullvissir um að
allt sem gerist, gott eða slæmt,
sé af þeirra eigin völdum.“
Vondur
félagsskapur?
Drifkrafturinn er jákvæður
fyrir hagkerfið, sem þrífst á
stöðugri framsækni og breyt-
ingum, en ekki ýkja upplífgandi í
veislum.
„Það er ekki gott að lokast inni
í lyftu með athafnamanni, því
fæstir þeirra eru mjög góður fé-
lagsskapur,“ segir Atkinson enn-
fremur.
„Einbeitni þeirra og sýn er
engu lík en þeir virðast ekki
þurfa mikið á návist annarra að
halda. Það eina sem þeir tala um
er viðskipti,“ bætir hann við.
Atkinson segir að skipta megi
kaupsýslumönnum í þrjá flokka.
Í fyrsta lagi eru athafnamenn á
félagslega sviðinu, svo sem Paul
Harrod, sem veitir heim-
ilislausum atvinnu. Drifkraftur
þeirra er betra samfélag.
Í öðru lagi eru
þema-kaupmenn á
borð við Anitu
Roddick, sem
stofna fyrirtæki í
tiltekinni grein.
Í þriðja lagi eru
raðfrumkvöðlar
eins og Richard
Branson, sem
leita stöðugt að
viðskiptatækifær-
um, á hvaða sviði
sem er, og stofna
oft hvert fyr-
irtækið af öðru.
Sameiginlega
eru þeir hins veg-
ar reknir áfram
af einu þriggja;
hefndarþorsta,
metorðagirnd eða
valdafíkn og
frumorsakarinnar
er að leita í upp-
vextinum, að því
er segir í grein-
inni.
Atkinson útskýrir að hefndar-
þorsta-athafnamenn vilji leið-
rétta ranglæti sem fjölskylda
þeirra eða þeir sjálfir hafi orðið
fyrir á barnsaldri.
Metorða-athafnamenn vilji öðl-
ast aðdáun og virðingu mikils-
virtra einstaklinga. Þeir hafi lent
utangarðs í æsku af einhverjum
sökum og vilji umfram allt falla í
kramið hjá þeim sem þeir telji í
fremstu röð.
Valda-athafnamenn finna sig
knúna til þess að
sýna öðrum að þeir
geti gert það sem
þeim sýnist. Þeir
finna öryggi í ríki-
dæmi, en eru ekki á
eftir peningum pen-
inganna vegna. Auð-
æfi eiga að tryggja að þeir þurfi
aldrei að snúa aftur til fyrra lífs.
Rene Carayol, viðskiptaráð-
gjafi og annar liðsmaður í hópi
rannsakenda, segir eitt hið
áhugaverðasta í fari athafna-
manna, að þeir virðist aldrei lúta
í lægra haldi.
Mótlæti lexía
„Ósigur er ekki inni í mynd-
inni. Þeir skilgreina stöðuna
bara upp á nýtt. Mótlæti er lexía
sem gerir þeim kleift að bæta sig
enn frekar. Ef þeim skrikar fót-
ur, rétta þeir sig við á ný. Ég hef
aldrei hitt jafnbjartsýnan hóp af
fólki. Tækifærin eru alls staðar
og glasið er aldrei hálftómt, það
flóir út fyrir,“ segir hann.
Carayol segir fólk í viðskipta-
lífinu geta lært mikið af stórhuga
athafnamönnum.
„Í fyrsta lagi eru mistök engin
endalok heldur nauðsynleg til
þess að læra af. Í öðru lagi er
hraði lykilþáttur í því
að vera skrefi á und-
an í samkeppni. Gæði
eru ekki aðalatriðið,
heldur það að verða
fyrri til. Tíminn var
áður óvinur en er nú
sá sem verður manni
að aldurtila. Í þriðja lagi; að nýta
styrkleika sína,“ segir hann.
En þegar öllu er á botninn
hvolft eru athafnamenn fæddir
með hæfileika, en ekki klæð-
skerasaumaðir að mati Carayol.
„Ef mann vantar þessa óbilandi
orku, drifkraft og sýn nær maður
aldrei að búa til kjúklingasalat
úr kjúklingaskít. Sama hvað
maður reynir.“
SÁLFRÆÐI | Hefndarþorsti, metorðagirnd eða valdafíkn
Hugarheimur
auðmannsins
rannsakaður
Hefnd, metorð eða völd? Richard Branson er
sagður dæmi um svokallaðan raðfrumkvöðul.
Áhætta er auka-
atriði, hraði lífs-
spursmál og
ósigur kemur
ekki til greina.
helga@mbl.is
Reuters
Ókeypis lögfræðiaðstoð
öll fimmtudagskvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012
frá okt.-apríl Orator, félag laganema