Morgunblaðið - 13.11.2003, Page 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2003 Á netinu mbl.is/vidskipti BLAÐ B
Bankaútibú í þínu fyrirtæki
Fyrirtækjabanki Landsbankans
Þú stundar öll bankaviðskipti fyrirtækisins á einfaldan og þægilegan
hátt á Netinu – hvenær sem þér hentar.
Í Fyrirtækjabanka Landsbankans býðst þér m.a. að:
• Framkvæma allar almennar bankaaðgerðir (millifæra, sækja yfirlit, greiða reikninga o.s.frv.).
• Safna greiðslum saman í greiðslubunka sem hægt er að greiða strax eða geyma til úrvinnslu síðar.
• Framkvæma greiðslur með því að senda inn greiðsluskrár úr t.d. bókhaldsforritum.
• Stofna og fella niður innheimtukröfur.
• Greiða erlenda reikninga (SWIFT).
Nánari upplýsingar um Fyrirtækjabankann getur þú fengið í næsta útibúi Landsbankans,
í Þjónustuveri bankans í síma 560 6000 eða á vefsetri bankans, www.landsbanki.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
20
51
08
/2
00
3
VÍSITALA neysluverðs í nóv-
ember er 229,3 stig og hækkaði
um 0,13% frá fyrra mánuði sam-
kvæmt frétt Hagstofunnar. Vísi-
tala neysluverðs án húsnæðis er
224,1 stig eða 0,18% hærri en í
október.
Síðastliðna tólf mánuði hefur
vísitala neysluverðs hækkað um
2,5% en án húsnæðis um 1,1%.
Birgir Ísleifur Gunnarsson
seðlabankastjóri segir að það sem
veki mesta athygli í nýrri vísitölu-
mælingu Hagstofu Íslands sé hús-
næðisliðurinn sem virðist vera
hættur að hækka, en hann dróst
saman um 0,2% í nóvember.
„Það má segja að þetta sé annar
mánuðurinn í röð sem markaðs-
verð húsnæðis stendur í stað. Í
síðasta mánuði stóð það í stað en
lækkar örlítið núna. Húsnæðislið-
urinn í heild hækkaði reyndar að-
eins síðast en þar var það við-
haldsliðurinn sem kom inn í. Það
er spurning hvort þetta þýði að
einhver straumhvörf séu að verða
í þessari stöðugu hækkun hús-
næðisverðs sem er búin að vera nú
um langan tíma,“ sagði Birgir Ís-
leifur Gunnarsson í samtali við
Morgunblaðið.
Greiningardeild Íslandsbanka
telur þó að húsnæðisverð muni
hækka áfram á næstu árum, sam-
hliða auknum kaupmætti, „en þó
með mun minni hraða en var í
sumar,“ segir í Morgunkorni
greiningardeildarinnar.
Verðbólgumarkmið Seðlabanka
Íslands er 2,5% en þetta er í fyrsta
skipti í langan tíma sem verðbólga
fer upp í markmið Seðlabankans.
„Hækkun vísitölunnar er í sam-
ræmi við það sem markaðurinn
hafði spáð og í engu ósamræmi við
okkar spár. Þetta er í fyrsta skipti
lengi sem vísitalan fer upp í mark-
miðið. Hún var 2,4% fyrir ári og
fór í 2,3% í apríl, en hefur verið í
2,2% tvo síðustu mánuðina,“ segir
Birgir Ísleifur Gunnarsson.
Aðspurður hvort sú staðreynd
að vísitalan sé komin í markmið
Seðlabankans þýði að bankinn
þurfi að fara að grípa til vaxta-
hækkunar, segir Birgir að þetta
eitt þrýsti ekki á um það. „Það er
ýmislegt fleira sem við fylgjumst
grannt með sem bendir til að við
þurfum væntanlega að hækka
vexti fljótlega,“ sagði Birgir.
Hann segir að undirliggjandi
vísitala virðist vera nokkuð hærri
en kemur fram í neysluverðsvísi-
tölunni. „Þetta kemur fram í
kjarnavísitölum svokölluðum. Í
kjarnavísitölu 1 til dæmis eru
teknir út sveiflukenndir liðir eins
og búvara, grænmeti, ávextir og
bensín en 12 mánaða hækkun á
þeirri vísitölu er 3,1%. Í kjarna-
vísitölu 2 er búið að taka út op-
inbera þjónustu en þar er hækk-
unin á 12 mánaða tímabili 2,8%.“
Undanfarna þrjá mánuði hefur
vísitala neysluverðs hækkað um
1,3% sem jafngildir 5,4% verð-
bólgu á ári. Aðspurður segir Birg-
ir það ekki vísa til ört hækkandi
verðbólgu. „Það er búið að vera
svo mikið af árstíðabundinni
hækkun, útsölulokum og slíku,
sem skýrir þetta og bendir því
ekki til langtímaþróunar.“
Hækkun neysluverðsvísitöl-
unnar er í samræmi við væntingar
greiningardeilda bankanna
„Verðbólga hefur verið lítil að
undanförnu og undir markmiði
Seðlabankans frá því í nóvember í
fyrra. Greining Íslandsbanka er
enn þeirrar skoðunar að Seðla-
bankinn muni hækka stýrivexti
sína um allt að 50 punkta á fyrsta
ársfjórðungi næsta árs,“ segir í
Morgunkorni Greiningardeildar
Íslandsbanka. Kaupþing Búnað-
arbanki segir að vísbendingar séu
nú um að rætur verðbólgunnar sé
ekki lengur að rekja til húsnæð-
isliðar vísitölunnar og virðist að
þeirra mati sem hækkun dagvöru,
þ.e. matvæla, hafi knúið verðbólg-
una áfram undanfarna 3 mánuði
en matvælaverð hefur hækkað um
1,65% undanfarna 3 mánuði sem
jafngildir um 6,7% hækkun á árs-
grundvelli.
„Velta má fyrir sér hvort Seðla-
bankinn eigi að bregðast við
hækkunum á eignaverði líkt og
húsnæði. Það er klárlega ljóst að
raunstýrivextir Seðlabanka eru
háir með tilliti til vísitölu neyslu-
verðs án húsnæðis sem hefur verið
undir neðri þolmörkum bankans
það sem af er ári. Ljóst er þó að
miðað við þær vísbendingar sem
liggja nú fyrir um hagkerfið að
vextir verða hækkaðir bráðlega til
að bregðast við aukningu peninga-
magns, jafnvel fyrir jól. Vandi
Seðlabankans er sá að þrátt fyrir
þenslu á peningamarkaði og til-
heyrandi hækkunum á eignaverði,
er verðbólgu haldið niðri með
framleiðsluslaka og háu gengi
krónunnar,“ segir í hálffimm
fréttum bankans.
Hugsanleg straumhvörf
í þróun húsnæðisverðs
!
!
"
#$"%& '
(
#$"
'()"$& *)*
#)"
%") +
,!&
)
" #$ %
+-"
".(
/0("
(
/
+
#)
"&
1&
2"
& ' ( )$) %
!"#$%&%
'()"&* (+,"
-./
3
*%+
012
12
*
,
,
*
012
312
0142
012
012
12
012
12
12
012
*
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
KAUPHÖLL Íslands hefur ákveðið að
beita Vopnafjarðarhrepp févíti að fjárhæð
250.000 krónur. Í tilkynningu frá Kauphöll-
inni segir að ástæðan fyrir þessu sé sú að
hreppurinn hafi brotið 30. gr. reglna um
upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa með
því að hafa ekki sent ársuppgjör fyrir árið
2002 til birtingar í fréttakerfi Kauphall-
arinnar þrátt fyrir að sveitarstjórn hafi
þegar samþykkt uppgjörið.Vopnafjarð-
arhreppur er útgefandi skuldabréfaflokks
sem skráður er í Kauphöllinni.
Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. reglna um
upplýsingaskyldu útgefanda verðbréfa ber
sveitarfélögum með skuldabréf sín skráð í
Kauphöll Íslands að skila Kauphöllinni árs-
reikningi, ásamt fréttatilkynningu, um leið
og hann hefur verið samþykktur af sveit-
arstjórn og eigi síðar en 1. júní.
Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar
Íslands, segir að þetta sé í fyrsta skipti sem
Kauphöllin beiti félvíti gagnvart sveitarfé-
lagi. Hann segir að þar sem unnið hafi ver-
ið að ýmsum endurbótum á ársreikningum
sveitarfélaga hafi Kauphöllin verið fremur
sveigjanleg varðandi skil á upplýsingum. Í
tilfelli Vopnarfjarðarhrepps hafi skilin þó
dregist nokkuð langt framyfir hinn tiltekna
skiladag. Því hafi verið tekin ákvörðun um
að beita hreppinn févíti. „Við gerum okkur
vonir um að upplýsingaskyldan verði fram-
vegis í betra horfi að því er varðar útgáfu
skuldabréfa hjá sveitarfélögum. Vonandi
verður þetta einnig til að svona mál komi
ekki upp aftur, því í raun er óþarfi að þetta
gerist,“ segir Þórður.
Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri
Vopnafjarðarhrepps, segir að hreppurinn
hafi gefið út verðbréfaflokk á árinu 1998.
Síðan þá hafi reglum verið breytt en hrepp-
urinn hafi einfaldlega ekki gætt að því að
uppfylla öll formsatriði hvað þessi mál
varðar.
F J Á R M Á L
Kauphöllin
beitir Vopna-
fjarðarhrepp
févíti
Fyrsta mál sinnar tegundar
gagnvart sveitarfélagi
S É R B L A Ð U M V I Ð S K I P T I , E F N A H A G S M Á L O G A T V I N N U L Í F Á S A M T S J Á V A R Ú T V E G S B L A Ð I
Kökudropar og kjötsósur
Katla kemur víða við í matvælaiðnaði 10
Virðisaukaskattur
Nýjar reglur ESB um rafræna sölu 12
UPPLÝSINGATÆKNIN
Á UPPLEIÐ AFTUR