Morgunblaðið - 16.11.2003, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 2003 B 7
Upplýsingafulltrúi og
fræðslufulltrúi
Alþjóðahúsið hyggst ráða tvo starfsmenn.
Upplýsingafulltrúa, sem hefur m.a. umsjón
með útgáfu (þ.á.m. vefsíðu), kynningarmálum
og viðburðum, og tekur þátt í tengslamyndun,
fræðslu og öðru sem til fellur. Leitað er að dríf-
andi einstaklingi með háskólamenntun, sem
hefur reynslu af ritstörfum og kynningarmálum
og þekkingu á málefnum innflytjenda og kunn-
áttu í vefsíðugerð. Góð íslensku- og ensku-
kunnátta nauðsynleg og önnur tungumála-
kunnátta mikilvæg. Gerð er krafa um frum-
kvæði í starfi, sveigjanleika og samvinnuþýði
og viðkomandi þarf að eiga gott með að tjá
sig opinberlega.
Nánari upplýsingar gefa: Einar Skúlason
(einar@ahus.is) og Katla Þorsteinsdóttir
(katla@ahus.is) í síma 530-9300.
Fulltrúa í fræðsludeild, sem hefur m.a. það
hlutverk að semja og flytja fræðsluefni og
koma auga á spennandi nýjungar í því sam-
hengi, kynna Ahús og fræðsludeildina, koma
að rannsóknum á þessu sviði og taka þátt í inn-
lendu og erlendu samstarfi. Leitað er að já-
kvæðum og opnum einstaklingi sem hefur há-
skólamenntun og fræðilegan bakgrunn við
hæfi, jafnframt hæfni til þess að koma fram
og miðla þekkingu á áhugaverðan og lifandi
hátt. Góð íslenskukunnátta í töluðu máli nauð-
synleg og önnur tungumálakunnátta mikilvæg.
Nánari upplýsingar gefa: Einar Skúlason
(einar@ahus.is) og Gerður Gestsdóttir
(gerdur@ahus.is) í síma 530-9300.
Laun fyrir störfin eru samkvæmt samkomulagi.
Gert er ráð fyrir að báðir starfsmenn hefji störf
þann 1. janúar.
Umsóknir ásamt menntun og starfsferli berist
Einari Skúlasyni framkvæmdastjóra Alþjóða-
hússins ehf., Hverfisgötu 18, 101 Reykjavík eigi
síðar en 1. desember.
Nánari upplýsingar um Alþjóðahúsið er að
finna á vefsíðunni www.ahus.is
Starfsmaður
á verkstæði
Radíóþjónusta Sigga Harðar - RSH auglýsir
eftir starfsmanni á verkstæði. Um er að ræða
tækjaísetningar í bíla og annað er viðkemur
bílarafmagni. Einnig er útivinna á ýmsum fjar-
skiptabúnaði til uppsetningar.
Viðkomandi þarf að hafa kunnáttu í bílaraf-
magni og geta unnið sjálfstætt.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í verslun
RSH og einnig er hægt að senda umsókn raf-
rænt á heimasíðu okkar www.rsh.is .
Öllum skriflegum fyrirspurnum er svarað.
Umsóknarfrestur er til 24. nóvember og skulu
skriflegar umsóknir merktar:
Radíóþjónusta Sigga Harðar
Starfsumsókn.
Dalvegi 16b,
201 Kópavogur.
Radíóþjónusta Sigga Harðar var stofnuð 1980
og hefur síðan þá verið leiðandi fyrirtæki á
sviði talstöðvafjarskipta og lausna tengdum
þeim. Vinnuaðstaða er mjög góð í húsnæði
fyrirtækisins á Dalvegi 16b í Kópavogi. Starfs-
mannahópurinn er samhentur og andinn
góður, sem gerir fyrirtækið eitt það öflugasta
á sínu sviði hér á landi.
Yfirlæknir og
2 læknisstöður
við HSSA á Hornafirði
Frá næstu áramótum er laus til umsókn-
ar staða yfirlæknis og tvær læknisstöður
við Heilbrigðisstofnun Suðausturlands
(HSSA) Hornafirði.
Allir læknar ganga gæsluvaktir og er því
alltaf einn í fríi frá gæsluvöktum, þegar
allar stöður eru fullmannaðar. Læknis-
héraðið er öll Austur-Skaftafellssýsla.
Umsækjandi um yfirlæknisstöðu hafi
sérfræðimenntun í heimilislækningum
eða annarri sérgrein. Yfirlæknir hefur
umsjón með læknisfræðilegum þáttum
starfsemi stofnunarinnar, sem hefur eft-
irtaldar undirdeildir: heilsugæslustöð og
heilsugæslusel, sjúkradeild, hjúkrunar-
heimili og dvalarheimili. Yfirlæknir situr
í framkvæmdaráði ásamt framkvæmda-
stjóra og hjúkrunarforstjóra.
Umsóknir ásamt upplýsingum um til-
skylda menntun og störf sendist til Heil-
brigðisstofnunar Suðausturlands, Víkur-
braut 31, 780 Hornafirði.
Nánari upplýsingar um stöðuna veita
Baldur P. Thorstensen yfirlæknir og Jó-
hann Ólafsson framkvæmdastjóri í síma
478 1400.
Þyrluflugmaður
Landhelgisgæsla Íslands auglýsir hér með
lausa til umsóknar stöðu þyrluflugmanns.
Um er að ræða fullt starf í vaktavinnu. Stað-
an tilheyrir flugdeild stofnunarinnar og
heyrir stjórnunarlega beint undir yfirflug-
stjóra. Viðkomandi þarf helst að geta hafið
störf um næstu áramót.
Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi gilt
íslenskt eða JAA atvinnuflugmannsskírteini
á þyrlu með blindflugsáritun ásamt því að
hafa lokið bóklegu ATPL námi. Æskilegt er
að viðkomandi sé einnig handhafi atvinnu-
flugmannsskírteinis á flugvél. Jafnframt
skulu umsækjendur hafa lokið stúdentsprófi
eða öðru sambærilegu námi. Umsækjendur
skulu hafa gott vald á íslensku og ensku.
Launakjör ákvarðast af kjarasamningi fjár-
málaráðherra f.h. ríkissjóðs og Félags
íslenskra atvinnuflugmanna.
Umsóknum ber að skila til starfsmanna-
stjóra Landhelgisgæslu Íslands, Seljavegi
32, 101 Reykjavík á umsóknareyðublöðum
sem þar fást. Umsóknareyðublöðin er
einnig hægt að nálgast á vefslóð Landhelg-
isgæslunnar www.lhg.is. Umsóknum skal
skilað fyrir 10. desember 2003. Nánari upp-
lýsingar um starfið veitir Björn Brekkan flug-
maður í síma 545 2000.
Nauðsynlegt er að endurnýja eldri umsóknir.
Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Sandgerðisbær
Aðstoðarleikskólastjóra vantar við leik-
skólann Sólborgu frá 1. janúar 2004 með
leikskólakennararéttindi í 100% stöðu.
Húsaleiga verður niðurgreidd, veittur verður
flutningsstyrkur.
Upplýsingar um starfið veitir bæjarstjóri í síma
423 7554 eða í gegnum tölvupóst:
sigurdur@sandgerdi.is .
Umsóknum skal skilað á skrifstofu Sandgerð-
isbæjar, Tjarnargötu 4, fyrir 21. nóv. nk. Einnig
eru umsóknareyðublöð á netinu (sandgerdi.is).
Bæjarstjórinn.
Snyrti- og nuddstofan Paradís,
Laugarnesvegi 82, sími 553 1330
Nuddari
Vantar nuddara vegna anna.
Upplýsingar í síma 553 1330 og 659 1332.
Sölumaður
sjávarafurða
Fyrirtæki í útflutningi sjávarafurða
óskar eftir að ráða vanan sölumann/
konu með aðsetur í Reykjavík
Leitað er að aðila með reynslu og sambönd
í sölu saltfisks og saltfiskafurða.
Æskilegt að viðkomandi hafi gott vald á ensku
og helst öðru Evrópumáli (spænska/þýska).
Tölvukunnátta nauðsynleg og viðkomandi þarf
að geta starfað sjálfstætt og sýnt gott frum-
kvæði í starfi.
Farið verður með umsóknirsem trúnaðarmál.
Umsóknir sendist til augldeildar Mbl. eða á
box@mbl.is fyrir 21. nóvember, merktar:
„Sjávarafurðir — 14519“.
Lækna- og
móttökuritarar
Heilsugæslan Salahverfi — Kópavogi
Salus ehf. óskar eftir að ráða læknaritara og
móttökuritara til starfa í Heilsugæslunni Sala-
hverfi í Kópavogi.
Heilsugæslan verður staðsett á Salavegi 2,
Kópavogi, og er fyrst og fremst ætlað að þjóna
íbúum Linda-, Sala- og Vatnsendahverfa í
Kópavogi skv. samningi Salus ehf. við Heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneytið. Stöðin
tekur til starfa um mánaðamótin janúar—febrú-
ar nk. Á stöðinni verður öll almenn heilsu-
gæsla; læknisþjónusta, hjúkrun, meðgöngu-
og ungbarnaeftirlit og rannsóknarstofa. Æski-
legt er að viðkomandi hafi reynslu af heilsu-
gæslu og vinnu við Sögukerfið.
Umsóknir með upplýsingum um náms- og
starfsferil skulu berast fyrir 21. nóvember nk.
til Guðjóns Magnússonar, Salus ehf., Flatahra-
uni 5a, 220 Hafnarfirði, en hann veitir einnig
frekari upplýsingar um starfið í síma 540 6380
eða á netfangið gudjon@nysir.is .