Morgunblaðið - 16.11.2003, Blaðsíða 38
MATUR OG VÍN | STEINGRÍMUR SIGURGEIRSSON
38 | 16.11.2003
viljað aðeins meira bit og að sítrónugrasið hefði fengið að njóta sín meira en
það gerði.
Grillréttirnir voru margbreytilegir. Fyrst komu Yakitori-kjúklingalundir
með „creamy-chilli“-sósu sem var eiginlega milt afbrigði af þúsundeyja/
kokkteilsósu-fjölskyldunni
hvað bragð varðar.
Lamba-„chops“ á spicy-
salati var flott útfærður.
Grillaðar kótiletturnar
spenntar upp með grill-
pinnum, fjögur stykki á
diskinum. Lambið naut
sín vel með mildu krydd-
inu. Hins vegar bar grill-
uð nautalund með sesam
og tofu af. Stór biti af
lund, kryddaður með se-
samfræjum, léttgrillaður
og síðan sneiddur í tvennt
og fylltur með grilluðu
tofu, eins konar „ham-
borgari“ þar sem kjötið er
brauðið, eða þannig. Al-
veg einstaklega góður
réttur, fyrsta flokks kjöt,
rautt og það meyrt að
hægt var að búta það í
sundur með prjónunum.
Með öllum grillréttun-
um fylgdi salat, aldrei hið
sama en „babyleaf“ og jökulsalat var yfirleitt
uppistaðan.
Við fengum afskaplega góða, lipra og vinalega
þjónustu. Vínseðill er fjölbreyttur og greinilega
markmiðið að hafa breiddina sem mesta í lönd-
um og stílbrögðum. Þótt vínin væru ekki ýkja
mörg mátti finna flest helstu svæði og þrúgur.
Það er ágætt andrúmsloft frá Maru í þessu fal-
lega timburhúsi við Aðalstræti, japönsk áhrif í
bland við íslensk. Tónlistin sem var spiluð allt
kvöldið hefði þó mátt vera aðeins frumlegri. Eru
ekki Buddha Bar-diskarnir orðnir svolítið ofnot-
aðir hér í bænum þótt góðir séu? sts@mbl.is
Það voru mörgum vonbrigði þegar fréttist af því að veitingastaðnumSticks n’Sushi í Aðalstræti hefði verið lokað enda hafði hann þegarbest lét boðið upp á eitthvert besta sushi-ið í bænum. Hins vegar létti
mönnum þegar fréttist að hjónin Guðlaug Halldórsdóttir og Guðvarður
Gíslason hygðust opna
stað í sama húsnæði þar
sem sushi yrði í öndvegi.
Staðurinn heitir nú
Maru og þótt stíllinn
haldi sér að mestu hefur
ýmsu verið breytt, ekki
síst með það að markmiði
að gera staðinn hlýlegri
fyrir gesti. Það eru komn-
ar gardínur fyrir glugga
og víða má sjá handbragð
Guðlaugar, sem m.a. sá
um að innrétta stað þeirra
hjóna Apótekið.
Sushi er fyrirferðarmik-
ið á matseðlinum og í
boði er jafnt Nigiri (hrís-
grjónakoddarnir) sem
Maki (rúllurnar). Hver
biti kostar á bilinu 270–
390 krónur en einnig er
hægt að fá disk með tíu
bitum á 2.400 krónum.
Við tókum einn slíkan en
bættum við hrefnu og
nautalund með hvítlauk. Bitarnir voru allir fal-
legir, þéttir og hráefnið ferskt. Túnfiskur Maki
var hvað bestur auk laxa- og hrefnu-Nigiri.
Nautalund sem slík var góð en það fór lítið fyrir
hvítlauknum.
En það er ekki bara sushi í boði heldur einnig
taílenskir „curry“-réttir (það er eiginlega búið að
eyðileggja íslenska orðið karrí), núðlur og jap-
anskir grillréttir.
Hrísgrjónanúðlur með kjúklingi, sítrónugrasi
og kókoshnetu var ágætur réttur. Mikið af kjúk-
lingi og gulrótarræmum í þykkri og mikilli sósu.
Hún var mild, kókosið ráðandi og maður hefði
HRÍSGRJÓNAKODDAR OG RÚLLUR
Það er ágætt andrúmsloft frá Maru í þessu fallega timburhúsi við Aðalstræti, japönsk áhrif í bland við íslensk
Bodegas Roda er einn
þeirra framleiðenda er hafa
verið leiðandi í Rioja-nýbylgjunni,
þ.e. framleiðenda er leggja meira
upp úr því að þróa víngerð Rioja en
að fylgja hefðum héraðsins til hins
ýtrasta. Sígildu Rioja-vínin eru ljós á
lit og bera þess sterklega merki að
hafa legið lengi á eikarámum, oft
gömlum amerískum tunnum. Nú-
tíma Rioja-vín eru dökk og áherslan
á þyngd í ávexti og mikla nýja
franska eik.
Roda II er líklega það vín fyrirtækisins sem er
hvað aðgengilegast fyrir budduna en þarna er samt
sem áður engin smásmíði á ferðinni. Vínið
sýnir vel hversu aflmikil vín úr Tempr-
anillo (82% blöndunnar) geta verið.
Vínið hefur mjög dökkan lit og ungt yf-
irbragð. Svartur sólberjaávöxtur í bland
við mikla eik sem vefst saman við ávöxt-
inn, það örlar á kryddi, jafnvel anís.
Einnig lakkrís og vott af leðri. Þarf tví-
mælalaust umhellingu og það með
nokkrum fyrirvara. Þess má einnig geta
til gamans að Rotllant-fjölskyldan, sem á
Bodegas Roda, er katalónsk og hefur
lengi verið umsvifamikil í innflutningi á
íslenskum saltfiski. 2.490 krónur. 19/20
Lítið spænskt víngerðarsvæði sem farið er að
vekja athygli er Cigales, skammt frá Ribera del
Duero. Eitt þeirra fyrirtækja er þar hafa fjárfest er
Rioja-framleiðandinn El Coto og ber víngerð
þeirra nafnið Museum. Tvö vín frá Museum eru
nú fáanleg hér. Þau fá sömu einkunn en hafið hug-
fast að einkunn tekur einnig mið af verði.
Museum Crianza 2000. Þroskaður dökkur
ávöxtur, sem greinilega hefur fengið sinn skammt
af sól. Þroski, hiti en samt ekki yfirkeyrður. Mildir
vanillutónar. Hefur góða sýru í munni, þykkt og
þægilegt. Flott! 1.390 krónur. 17/20
Museum Real 1999. Þétt, fremur lokað. Ávöxt-
urinn þungur, þurr. Í munni hefur vínið góða
þyngd, það kemur sterkt inn og heldur sínu. 1.790
krónur. 17/20
VÍN
Aðalstræti 12. www.maru.is Sími: 5114440
ANDRÚMSLOFT: Austurlensk naumhyggja með íslensku
Grjótaþorpsívafi.
MÆLT MEÐ: Grillaðri nautalund með tofu, hrefnu-sushi.
ÞJÓNUSTA: Lipur og vinaleg.
VÍNLISTI: Eitthvað fyrir alla.
EINKUNN: Viðunandi Góður Mjög góður
Frábær Afburða veitingastaður
Einkunnagjöf byggist á mati á þjónustu, húsnæði, vín-
lista og mat, að teknu tilliti til verðlags.
MARU ★★★