Morgunblaðið - 17.11.2003, Blaðsíða 46
46 C MÁNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Fjöldi kaupenda á skrá -
Átt þú réttu eignina?
Óskum eftir öllum
gerðum eigna.
Verðmetum samdægurs.
Til sölu eða leigu í Hveragerð
Til sölu eða leigu stórt einbýlishús í Hvera-
gerði alls um 230 fm á einni hæð. Þar er
m.a. mjög björt vinnustofa 77 fm, íbúð með
sólskála 154 fm Mjög fallega staðsett á jað-
arsvæði með stórum garði og útsýni. Mikil
lofthæð, listaverk á 2 baðherbergjum og í
eldhúsi. Nánari uppl. á skrifstofu (og myndir
á www.islandia.is/jboga undir tenglinum
studio-gallery)
Melabraut Vorum að fá í sölu mjög
vel skipulagða 117 fm hæð í þríbýlishúsi.
Íbúðin skiptist í stórar saml. stofur, þrjú
svefnherb. eldhús, baðherb. og þvottahús.
húsið er nýlega klætt að utan með Steni. 32
fm bílskúr fylgir. Skipti á 2ja herb. íbúð á
Nesinu möguleg. Verð 17,8 millj.
Háaleitisbraut
Mjög góð 100 fm 4ra herbergja endaíbúð á
þriðju hæð í góðu fjölbýlishúsi. Aðeins ein
íbúð á hverri hæð. Stórar samliggjandi stof-
ur með eikarparketi. Svalir í suðvestur með
fallegu útsýni. Tvö góð svefnherbergi. Flísa-
lagt baðherbergi með nýlegri innréttingu.
Stórt eldhús með borðkrók. Gler endurnýj-
að. Laus í desember
Eskihlíð Einstaklega falleg 125 fm mik-
ið endurnýjuð íbúð á 4. hæð í góðu fjölbýlis-
húsi með glæsilegu útsýni yfir borgina. Stór-
ar saml. stofur, suðvestursvalir. 2 góð
svefnherbergi. Rúmgott eldhús. Aukaher-
bergi í kjallara með aðgangi að snyrtingu.
Gler endurnýjað. Nýlegt eikarparket á gólf-
um. Húsið nýtekið í gegn að utan. Áhv. 8,2
millj. húsbréf. Verð 15,5 millj.
Strandgata Hafnarfj.
Falleg 113 fm neðri sérhæð í þríbýlishúsi.
Stór stofa, borðstofa og þrjú svefnherbergi.
Eldhús með sixties innréttingu. Suðursvalir.
Útsýni yfir Hafnarfjarðarhöfn. Hús talsvert
endurnýjað. Áhv. 6,5 millj. húsbréf. Verð
13,9 millj.
Sólheimar
Sigtún sérhæð með vinnu-
stofu
Stórglæsileg og vönduð 180 fm miðhæð og
efri hæð í fallegu tvíbýlishúsi. Á hæðinni eru
stórar saml. stofur, glæsilegt eldhús með
birkirótarinnr. og granítborðum, 2 svefnherb.
og baðherb. Á efri hæð er stór alrými með
arni, hjónherb. með fataherb. og baðherb.
Parket. Góðar suðursvalir. íbúðin var öll
endurnýjuð að innan fyrir örfáum árum. Nýr
27,4 fm vinnustofa á lóð. Garður endurgerð-
ur með hellulögn. Eign í algerum sérflokki.
Sólvallagata Glæsileg 127 fm hæð í
nýlegu þríbýlishúsi. Stórar stofa, 3 svefnher-
bergi. Suðursvalir. Opið bílskýli. Einstaklega
skemmtilega frágenginn garður sem snýr í
suður. Eign í sérflokki.
SUÐURGATA 7, 101 REYKJAVÍK, • www.hibyli.is • hibyli@hibyli.is
Ingibjörg Þórðardóttir,
löggiltur fasteignasali.
Mávahraun - einbýli
Fallegt og vel skipulagt 275,1 f tvílyft einbýl-
ishús auk 33,5 fm bílskúrs. Húsið skiptist í
stórar stofur með arni, 4 svefnherb. eldh.
baðherb. snyrt. og þvottahús. Í kjallara eru
tvö herb. og baðherb. með sérinng. Að auki
stór og nýlega innréttuð stúdíóíbúð með sér-
inngangi í kjallara. Húsið er byggt á 767 fm
hraunlóð sem snýr í suður. Ýmsir möguleik-
ar. Skipti á minni eign möguleg.
Ægisíða - einbýli
Glæsilegt og mikið endurnýjað 275 fm ein-
býlishús, tvær hæðir og kjallari á þessum
eftirsótta stað. Þrjár samliggjandi stofur, 3
stór svefnherbergi, baðherbergi, og gest-
asnyrt. Massift eikarparket á gólfum, góðar
innréttingar, gifslistar og rósettur í loftum.
Tvennar svalir. Geymsluloft yfir húsinu. Í
kjallara er sér 2ja herbergja íbúð, þvottahús
o.fl. 58 fm bílskúr. Fallegur garður, skjólgóð-
ur hellulagður bakgarður. 12 fm garðhús.
Góð staðsetning, fallegt útsýni. Eign í sér-
flokki.
Þverbrekka Skemmtileg og björt 110
fm íb á 8. hæð (efstu) í góðri lyftublokk.
Saml. stofur, parket. 2-3 svefnherb. Þvotta-
hús í íb. Tvennar svalir. Stórkostlegt útsýni.
Skipti á íb. í Hamraborg mögul. Áhv. 3,9
millj. hagst. langtimalán. Verð 13,9 millj.
Seilugrandi
4ra herb. 87 fm íbúð á efstu hæð í góðu fjöl-
býli. Íbúðin er á tveimur hæðum, stofa, eld-
hús, svefnherb. og baðherb. á neðri hæð.
Uppi eru tvö svefnherb. og hol, leikloft er yf-
ir herbergjum. Stórar suðursvalir. Glæsilegt
útsýni til suðurs. Stæði í bílageymslu. Áhv.
2,5 millj. Bygg.sj. rík. Verð 13,8 millj.
Listhúsið
Glæsilegt verslunar- og þjónustuhúsnæði á
tveimur hæðum. Bjart og aðgengilegt. Ýmsir
möguleikar á nýtingu. Næg bílastæði. Laust
strax. Verð 8,7 millj.
Auðbrekka Björt 140 fm hæð (3.
hæð), sem í dag er nýtt sem 4ra herb. íbúð.
Húsnæðið hentar einnig sem skrifstofuhús-
næði eða fyrir listamann. Stórir gluggar til
suðurs og norðurs. Gott útsýni. Laus strax.
Verð 12,5 millj.
Auðbrekka
Glæsilegt 152 fm atvinnuhúsnæði á götu-
hæð. Allt nýlega endurnýjað. Rúmgóð mót-
taka. 5-6 skrifstofuherb. Parket á gólfum.
Hentar undir léttan iðn., skrifstofur, heild-
verslun o.fl. Góð aðkoma og bílastæði.
Laust fljótlega.
Gyðufell Mjög falleg 82 fm íbúð á 2.
hæð í snyrtilegu fjölb.húsi. Rúmgóð stofa, 2
svefnherb. Yfirbyggðar suðursvalir. Íbúðin er
mikið endurn. ný eldhúsinnrétting, baðherb.
flísalagt í hólf og gólf. Verð tilboð.
Nýbýlavegur
Vorum að fá í sölu sérstaklega góða 85 fm
íbúð á 2. hæð ásamt 21 fm bílskúr. Stofa,
parket, vestursvalir. Eldhús, flísar, nýlegar
innréttingar. Tvö svefnherbergi, parket.
Rúmgott baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf.
Mjög góður bílskúr með rafmagni og hita.
Verð 14,8 m.
Barmahlíð - risíbúð
Ein af þessum vinsælu risíbúðum í Hlíðun-
um. Íbúðin er 58 fm og skiptist í gott eldhús,
2 svefnherb. stofu og baðherb. Getur losnað
fljótlega. Verð 10,2 milj.
Suðurgata Glæsileg 90 fm íbúð á 3.
hæð í nýlegu fjölbýlishúsi með lyftu. Stórar
stofur og fallegt eldhús, flísar á gólfi. Vestur-
svalir þar útaf. Vandað eldhús. Tvö góð
svefnherbergi. Baðherbergi flísalagt í hólf og
gólf. Sérinngangur af svölum. Stæði í bíla-
geymslu. Laus strax. Verð 16,9 miilj.
Kötlufell
Mjög góð 69 fm íbúð á 3. hæð í fjölb.húsi.
Rúmgóð stofa með yfirbyggðum suðvestur-
svölum. Blokk nýklædd að utan. Fallegt út-
sýni. Sérmerkt bílastæði. Verð 8,5 millj.
Jöklasel
Sérlega falleg 70 fm íbúð á 1. hæð í litlu fjöl-
býlishúsi á rólegum stað. Stór stofa með
suðursvölum. Parket. Þvottaherb. í íbúð.
Hagstæð Íbúðasjóðslán áhv.
Ung og glæsileg norskkona, atferlisfræðingurað mennt, tók sér fyrirhendur að kanna ákveð-
ið atferli mannskepnunnar í gegn-
um tíðina. Ekki lét hún þar við sitja
heldur setti hún upp sýningu ým-
issa gripa, sem sannarlega vakti at-
hygli þar í landi.
Atferlið sem hún rannsakaði var
aldeilis víðfeðmt, þetta var atferli
sem hver einasta mannvera á jörðu
hér hefur óhjákvæmilega orðið háð.
Þetta atferli var eins og atferl-
isfræðingurinn orðaði það „þörf
mannsins til að tæma sig“.
Hún benti réttilega á að þessi
þörf mannsins hefur lengst af verið
„tabú“, eitthvað sem ekki á að ræða
eftir að sex ára aldri er náð. Þá er
yfirleitt búið að innprenta börnum
að svona nokkuð eigi ekki að hafa í
flimtingum, ekkert bull á heimilinu.
Það er ekki svo ýkja langt síðan
mannkynið tók tæknina í gagnið til
að koma frá sér því sem til fellur
þegar það „tæmir sig“.
Saga vatnssalernis, sem nú er
ómissandi á hverju heimili, er tals-
vert gömul, en ekki á Vestur-
löndum. Fyrsta vatnssalernið var
tekið í notkun á Englandi 1812, en
þá höfðu Asíumenn, og þá sér-
staklega Kínverjar, notað það í ár-
hundruð.
Sóðaskapur var víða
landlægur
Þegar saga mannkyns er skoðuð
og rannsökuð kemur á óvart hve
skelfilegir sóðar menn voru fram
eftir öldum.
Oft gerði fólk stykkin sín hvar
sem það var og hvernig sem á stóð,
þótt það að öðru leyti reyndi að
vera hefðarmenn og -meyjar.
Einn mátulega illkvittinn náungi
heldur því fram að sá siður bresku
yfirstéttarinnar fyrr á öldum, sem
hún raunar heldur enn í heiðri, að
vera sífellt að færa sig frá einu
herrasetrinu til annars, komi ekki
til af ferðalöngun, heldur allt öðru.
Þegar menn voru búnir að gera
stykkin sín í öllum hornum og
skúmaskotum eins setursins, þá var
þar orðið ólíft vegna fnyks.
Þá fylltu menn sína vagna af fólki
og fötum og fóru á næsta setur eða
kastala. Eitthvað af vinnuhjúum
var skilið eftir til að moka flórinn.
Í víggirtum borgum á meginlandi
Evrópu fóru menn á miðöldum að
leggja vísi að skólplögnum út fyrir
borgirnar, takmörk fyrir hvað lykt-
arskynið þoldi í þéttsetnum borg-
um.
Þetta reyndist stundum hinn
mesti óvinafagnaður, fjendur kom-
ust stundum inn í borgirnar um
skólpræsin, en aðrir sluppu út úr
þeim einnig.
Einn frægur kóngur, Gústav
Vasa, slapp þannig eitt sinn á sínum
fræga flótta um Dalina sænsku árið
1520, en þessi dáð hans er líklega
sú sem einna minnst er haldið á
lofti.
Norðmenn, sem héldu þessa
merku sýninu á „náttpottum og
örnasetrum“ kalla klósett oft „dass“
og hefur verið nokkur deilt um
hvernig það nafn varð til.
Svo vill til að eitt sinn var uppi
þarlendis einn ágætur prestur, Pet-
er Dass að nafni, sem var skáld
gott. Hann var þeirrar náttúru að
skáldgáfan sótti helst að honum
þegar hann sat á kamrinum. Þar í
landi, eins og löngum hérlendis,
voru kamrar smáhýsi nokkuð frá
íveruhúsum, kaldir og óvistlegir.
Nokkuð mun þetta hafa valdið
skáldtregðu hjá presti, þó ekki
gætti tregðu í því neðra.
Þess vegna brá hann á það ráð að
láta smíða sér einn öndvegisstól
sem jafnframt var ígildi kamars ef
næturgagn var sett undir hann.
Þarna sat prestur löngum og
streymdu nú ljóð af hans vörum um
leið og búkur tæmdist.
Nú hefur málgagn norskra pípu-
lagningamanna „Rörfag“ úrskurðað
að norska orðið „dass“ eigi engar
ættir að rekja til prestsins eða hans
sérkennilegu lífshátta, orðið sé
komið úr þýsku og sé dregið af „Da
Haus“ eða „Hauscen“ sem þýðir lít-
ið hús.
Kamrar eru, eða voru, vissulega
lítil hús, en hér á landi eru þeir
horfnir með öllu, eða hvað?
Náttpottar og örnasetur
Lagnafréttir
eftir Sigurð Grétar Guðmundsson
pípulagningameistara/
sigg@simnet.is
Þetta er næturgagn heldri kvenna fyrr á öldum, en slíkir gripir eru víða til og
halda flestir eigendanna að þetta séu sósukönnur og nota gagnið þannig. Þetta
næturgagn var á sýningu í Noregi fyrir skömmu.
! !
" !
# $% &'#
# $% '
()
*& *+* #
&& && *+ & #