Morgunblaðið - 18.11.2003, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 2003 53
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 4 OG 8.
Empire
Kvikmyndir.is
SV MBL
“Fyndnasta barátta
kynjanna á tjaldinu
um langa hríð.”
SG DV
„Ein besta
gamanmynd ársins-
fyrir fullorðna“
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10.
AKUREYRI
Sýnd kl. 10.
Stundin sem allir hafa beðið eftir er komin!
Lokauppgjör Matrix þríleiksins er hafið!
Stundin sem allir hafa beðið eftir er komin!
Lokauppgjör Matrix þríleiksins er hafið!
i lli i i i !
j i íl i i i !
ÁLFABAKKI
Kl. 4,6, 8 og 10. B.i. 12.
AKUREYRI
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 12.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8. Ísl. tal.
ÁLFABAKKI
kl. 4. Ísl. tal.
AKUREYRI
kl. 6. Ísl. tal.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.50.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.40. B.i.10.
PIRATES OF
THE CARIBBEAN
Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.com
Yfir 200 M
US$ á
5 dögum!.
SG DV
Tristan og Ísold
Miðaverð 500 kr.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.30.
ÁLFABAKKI
Kl. 6, 8 og 10.10
KRINGLAN
Kl. 6, 8 og 10.05
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 10. B.i. 16 ára.
Beint á
toppinn
í USA
KVIKMYNDIR.IS
ROGER EBERT
Mögnuð og yfirnáttúrleg spenna
sem fær hárin til að rísa.
Með hinum unga og efnilega
Jamie Bell úr „Billy Elliot.“
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. B.i. 16.
15.11. 2003
5
2 8 4 9 5
8 2 3 9 5
8 9 13 21
15
12.11. 2003
3 23 31
32 41 46
1 18
EINFALDUR
1. VINNINGUR
Í NÆSTU VIKU!
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4741-5200-0002-4854
4507-4300-0029-4578
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.
FYRIR réttum tveimur árum kom
út platan Ef ég sofna ekki í nótt,
samstarfsverkefni söngvarans Páls
Óskars Hjálmtýssonar og hörpuleik-
arans Moniku Abendroth. Plata sú
fékk frábærar viðtökur, enda á ferð-
inni einstaklega vel heppnaður sam-
sláttur tveggja listamanna ólíkrar
ættar. Fallegur hörpuleikur Moniku
saman með íðilfagurri rödd Páls
náði þar á köflum himneskum hæð-
um í angurværum einfaldleik sínum.
Páll segir að hann og Monika hafi
viljað gera öðruvísi jólaplötu, þar
sem reynt er að fanga hinn sanna
anda jólanna, sem hefur að gera
með frið og ró, frekar en stuð og
læti.
Á plötunni eru innlend lög sem er-
lend, eftir samtímahöfunda og eldri
slíka en einnig eru hér aldagamlir
sálmar og þjóðlög. Í grunninn eru
það Páll og Monika sem leiða lögin
en einnig kemur sönghópurinn
Hljómeyki við sögu og líka strengir.
Þá syngur systir Páls, Sigrún
Hjálmtýsdótir eða Diddú, með bróð-
ur sínum í tveimur lögum.
Páll Óskar fer hér í gegnum plöt-
una, lag fyrir lag.
Ég höfði lýt á jólanótt
„Hreiðar Ingi, lagahöfundurinn
okkar, hitar upp jólastemninguna
sem framundan er á plötunni. Anna
Kristine, útvarpskona og hagyrð-
ingur, gerði textann.“
Ég vona að það verði í dag
„Sumum finnst jólin erfiðasti tími
ársins. Ég er ekki hissa, þar sem jól-
in hafa verið skrumskæld og mark-
aðssett í klessu. Fólk er löngu búið
að tapa þræðinum. Jólin ganga út á
það sem gerist innra með þér – ekki
allt í kringum þig. Maður verður
bara að trúa því að enginn geti tekið
þá stemningu frá manni. Og vona að
stemningin náist í dag.“
Með bæninni kemur ljósið
„Ókei, þetta er mitt „Like A Pra-
yer“ (með Madonnu). Þetta er vel
þekkt írskt þjóðlag, sem ég og Bryn-
hildur vinkona mín gerðum svona
líka sætan texta við. Textann fatta
þeir sem hafa einhverntíma verið
bænheyrðir og þakkað fyrir það.
Sakar ekki að þetta er í fyrsta sinn
sem ég og Diddú systir syngjum
saman í hljóðverinu. Það var nú bara
gott fyrir okkur bæði, styrkti fjöl-
skylduböndin.“
Himinganga
„Munið þið eftir teiknimyndinni
um snjókarlinn sem flaug með litla
strákinn yfir borgina? Sumir Bretar
upplifa engin jól án þess að horfa á
hana (The Snowman, 1982. Byggð á
ævintýri Raymond Briggs). Þetta er
lagið úr henni. Karl Olgeir Olgeirs-
son, upptökustjórinn okkar, íslensk-
aði textann.“
Hin fyrstu jól
„Íslenskt var það heillin. Það er
eitthvað gjörsamlega töfrandi við
þetta lag hjá Ingibjörgu Þorbergs.
Þetta er víst fyrsta íslenska jólalagið
sem gefið var út á plötu sem ekki
var sálmur, heldur dægurlag. Algjör
klassík.“
Come Again
„Ég hef alltaf komist í jólaskap
við að hlusta á madrigala. Þess
vegna urðum við að hafa einn svo-
leiðis með. Ég fékk vini mína – allt
atvinnusöngvara úr bransanum, til
að syngja raddirnar og þau sungu
þetta eins og englar í nuddpotti.“
Þú litla barn
„Þú mátt alveg ímynda þér að
þetta sé María að syngja til Jesú-
barnsins. Hvaða móðir hefur ekki
upplifað það sama?“
Jólakvöld
„Hreiðar Ingi er bestur í að semja
lög við ljóð sem hreyfa við honum.
Hreiðar nær að klófesta dramatík-
ina og ævintýrablæinn í ljóðinu hjá
Davíð Stefánssyni. Ég og Diddú
syngjum þetta saman.“
Hin fegursta rósin er fundin
„Ég man fyrst eftir þessu þar sem
pabbi minn var að syngja þetta á að-
ventukvöldi. Klassískur íslenskur
jólasálmur frá 16. öld.“
Betlehemsstjarnan
„Annar íslenskur jólasálmur, al-
veg magnað lag eftir Áskel Jónsson.
Þetta er oftast sungið af kórum, en
við Monika vildum prófa þetta sem
einsöngsnúmer. Þetta fannst mér
erfiðasta lagið að syngja í stúdíóinu,
en ég er mjög ánægður með útkom-
una.“
A Spaceman Came Travelling
„Uppáhaldslagið mitt á plötunni,
engin spurning. Þetta er í raun end-
ursögn á jólaguðspjallinu, nema það
er búið að taka út orðið „angel“ og
setja „spaceman“ í staðinn. Alveg
frábær pæling. Hver veit nema vitr-
ingarnir þrír hafi í raun orðið vitni
að fljúgandi furðuhlutum? Ég næst-
um því keyrði útaf þegar ég heyrði
þetta lag fyrst á Rás 2, Lísa Páls
spilaði það á aðfangadag. Svo
sprakk ég úr hlátri þegar ég fattaði
að lagið er eftir Chris DeBurgh, sem
átti 80’s smellinn „Lady In Red“.
Ást við fyrstu sýn/
Yndislegt líf (aukalög)
„Ég og Monika ákváðum að bæta
við þessum aukalögum af því við er-
um alltaf beðin um að taka þau á
tónleikum. Svo er alltaf spurt hvort
þessi flutningur sé ekki til á plötu?
Jú, núna. Ég söng þau bæði inná
plötur fyrir rúmlega 10 árum, en
það er líka allt í lagi að bera þessar
upptökur saman og gá hvort manni
hafi farið eitthvað fram…“
Páll Óskar og Monika gefa út jólaplötuna Ljósin heima
Alvöru jólastemning
Páll og Monika munu halda
útgáfutónleika vegna plötunnar
á þremur mismunandi stöðum.
Á miðvikudaginn verða þau á
Akureyri í Akureyrarkikju, á
föstudaginn í Háteigskirkju,
Reykjavík og á sama stað á
sunnudaginn.
Forsala er hafin í Skífubúð-
unum.
arnart@mbl.is
Páll og Monika flytja hugljúf og helg jólalög á Ljósin heima.
Það virðist næsta
eðlilegt að Páll Óskar og
Monika skuli hafa ráðist
í það að gera jólaplötu.
Arnar Eggert Thorodd-
sen ræddi við Pál um
einstök lög plötunnar.
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið