Morgunblaðið - 19.11.2003, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 2003 55
www .regnboginn.is
Það sem þú veist um ótta kemst
ekki nálægt þessu.
Beint á
toppinn í
USA!
Stranglega bönnuð innan 16 ára!
Sýnd kl. 6. Með íslensku tali. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 16.
Hann hélt alltaf að hann væri bara
venjulegur álfur, þangað til annað
kom í ljós. Nú er hann
á leiðinni í stórborgina að finna
pabba sinn.
Will Ferrell
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16.
Sýnd kl. 10. B.i. 12.
Stórkostleg
grínmynd
fyrir alla
fjölskylduna.
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 10 ára.
Skonrokk FM909
ÞÞ FBL
HJ MBL
HK DV
Kvikmyndir.com
lifun
Frítt til áskrifenda!
tímarit um heimili og lífsstíl
Tímaritið Lifun fylgir Morgunblaðinu
miðvikudaginn 26. nóvember
OPEN RANGE
DV
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 10.15.
Frábær grínmynd um
strák sem skilinn er eftir
heilt sumar hjá tveim
snarklikkuðum frændum
sínum.
Stórleikararnir Michael
Caine, Robert Duvall og
Osment úr Sixth Sense
fara á kostum.
Sýnd kl. 4.
„ATH!
SÝND
MEÐ
ÍSLEN
SKU O
G
ENSKU
TALI“
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 4, 6 og 8. Með íslensku tali.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Með ensku tali og íslenskum texta.
Will Ferrell
Stórkostleg grínmynd fyrir alla fjölskylduna.
Hann hélt alltaf að hann væri bara venjulegur álfur, þangað til annað kom í ljós.
Nú er hann á leiðinni í stórborgina að finna pabba sinn.
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
MYNDIN Dulfljót eða Mystic River eftir gamla harð-
jaxlinn Clint Eastwood er sú mynd sem bandarískir
gagnrýnendur telja nú líklegasta til að verða tilnefnda
til óskarverðlauna á næsta ári. Þá er þriðji hluti
Hringadróttinssögu: Hilmir snýr heim talin næstlíkleg-
ust á þessari stundu.
Talið er sennilegt að Tom Cruise verði tilnefndur
sem besti leikari fyrir frammistöðu sína í Síðasta sam-
úræjanum en einnig koma til greina Bill Murray fyrir
hlutverk sitt í Týnd í þýðingu (Lost in Translation) og
Russell Crowe fyrir Meistarann og sjóliðsforingjann
(Master and Commander).
Leikkonur sem nefndar hafa verið eru Naomi Watts
fyrir 21 gramm og Gwyneth Paltrow fyrir túlkun sína
á skáldkonunni Sylvíu Plath í myndinni Sylvia. Ekki er
seinna vænna en að byrja að velta sér upp úr þessu
strax en hátíðin er yfirleitt haldin í mars á ári hverju.
Dulfljótið
talið líklegast
Óskarsumræðan hafin
Líklegt þykir að þriðja myndin um Hringadróttinssögu
verði tilnefnd til Óskarsverðlauna.
EIVÖR Pálsdóttir hefur búið hér
á landi í ríflega tvö ár. Henni skol-
aði á land ef svo má segja með fær-
eyska tónaflóðinu
sem barst hingað
blessunarlega til
lands fyrir um
þremur árum. Á
þessum tíma hefur
henni tekist að
marka sér spor í íslensku tónlistar-
lífi, og það ágætlega djúp. Eivör er
ótrúlega hæfileikaríkur tónlistar-
maður og sannkallað náttúrubarn.
Ég sé það alltaf fyrir mér að hún
hafi fundist nakin úti í skógi, hjal-
andi á tónvissan hátt. Hafi svo verið
borin heim, henni færð hljóðfæri og
þau hafi öll sem eitt leikið í höndum
hennar. Þeir sem séð hafa Eivöru á
sviði skilja væntanlega þetta und-
arlega raus mitt. Úgeislunin, sjarm-
inn og ekki síst hvernig tónlistin
rennur átakalaust út úr henni.
Þetta er allsvakalegt að sjá. Þetta
má aukinheldur heyra á fyrstu út-
gáfu hennar, plötu sem er sam-
nefnd henni og kom út í Færeyjum
árið 2000. Betri frumraun hef ég
ekki heyrt í mörg ár. Eivör var að-
eins sextán ára þegar sú plata kom
út.
En að Krákunni. Eins og fram
kemur í inngangi vinnur hún plöt-
una með innlendum tónlistarmönn-
um, allir saman hinir mestu
reynsluboltar. Áferð plötunnar er
myrk, nánast drungaleg á köflum.
Stemmning fyrri plötunnar var
glaðværari en um leið er hún los-
aralegri þar og ber sú plata með
sér að hún er, þrátt fyrir allt, byrj-
endaverk. Hljóðheimur Krákunnar
er til munn heilsteyptari.
Eivör er prýðilegur lagasmiður.
Lögin láta lítið yfir sér til að byrja
með en sökkva svo rækilega inn
með tímanum. Íslensku djassararn-
ir ljá lögunum spunakennda, var-
færnislega hljóma og yfir liggur
söngrödd Eivarar; voldug, blíð og
ægifalleg – allt í senn. Á köflum
fatast fereykinu þó flugið. Fara líkt
og Íkarus of nálægt sólinni. Lög
eins og „Krákan“ og „Nú brennur
tú í mær“ ganga of langt í loftfim-
leikum, veri það rödd eða hljóð-
færaleikur. Lágstilltari lög, eins og
t.a.m. „Rósufarið“, „Har heiti eldur
brann“ og „Hjarta mitt“ eru til
muna farsælli.
Eivör hefur sig glæsilega til flugs
hér. Höfum það á hreinu. Þetta er
mjög góð plata, þrátt fyrir þessar
aðfinnslur mínar. Smávegis kusk og
grastægjur virðast bara hafa verið
eftir á klónum og gerðu flugtakið
kannski ekki eins formhreint og
fyrirfram hefði mátt búast við. En
þetta litla kusk dettur væntanlega
af eftir því sem fluginu þokar
áfram.
Tónlist
…hefur sig til flugs
Eivör Pálsdóttir
Krákan
12 Tónar
Önnur sólóplata færeysku söngkonunnar
og tónlistarmannsins Eivarar Pálsdóttur.
Með henni leikur Krákan, skipuð þeim
Pétri Grétarssyni (slagverk og harm-
onikka), Eðvarði Lárussyni (gítarar) og
Birgi Bragasyni (bassi og selló). Eivör
syngur og leikur á gítar auk þess að
semja lög og texta. Tvö lög eru þó byggð
á færeyskum þjóðlögum. Hljóðritun gerði
Jan Erik Kongshaug sen einnig hljómjafn-
aði. Jan og Pétur hljóðblönduðu auk þess
sem Hafþór Karlsson kom að ýmislegri
eftirvinnslu.
Arnar Eggert Thoroddsen
Morgunblaðið/Björg Sveinsdóttir
Krákan er önnur sólóplata færeysku söngkonunnar Eivarar Pálsdóttur.