Morgunblaðið - 19.11.2003, Blaðsíða 56
56 MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 12.
ÁLFABAKKI
Kl. 4,6, 8 og 10. B.i. 12.
Empire
Kvikmyndir.is
SV MBL
SG DV
Allar
sýning
ar
í Kring
lunni
eru PO
WER-
SÝNING
AR!
ll
i
í i
l i
I
Stundin sem allir hafa beðið eftir er komin!
Lokauppgjör Matrix þríleiksins er hafið!
i lli f i f i i !
j i íl i i fi !
Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.com
Yfir 200 M
US$ á
5 dögum!.
SG DV
Sýnd kl. 6, 8, 9 og 10.30. B.i. 12.
Mynd sem kemur skemmtilega á óvart enda
ein stærsta mynd ársins í Bretlandi.
ATH
!
AUK
ASÝN
ING
KL.
9.
Stundin sem allir hafa beðið eftir er komin!
Lokauppgjör Matrix þríleiksins er hafið!
Kvikmyndir.com
SG DV
Empire
Kvikmyndir.is
SV MBL
“Fyndnasta barátta
kynjanna á tjaldinu
um langa hríð.”
„Ein besta
gamanmynd ársins-
fyrir fullorðna“
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15.
Nýjasta mynd Coen bræðra. Frábær rómant-
ísk gamanmynd sem bragð er að. 6 Edduverðlaunl
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
M.a. Besta mynd ársins
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15.
Yfir 2
00 M
US$ á
5 dög
um!.
SG DV
Síðustu sýningar
EFTIR margra mánaða töf er nú útlit fyrir að tónlistin
úr kvikmyndinni Nóa albínóa komi út á geisladiski og
plötu í byrjun desember. Tilraunaeldhúsið gefur diskinn
út en 12 tónar sjá um dreifingu.
Ástæðan fyrir seinkuninni eru deilur á milli listamann-
anna og íslensku útgefendanna annars vegar og útgáfu-
fyrirtækisins Milan sem hefur höfuðstöðvar í Frakklandi
og ætlaði að sjá um dreifingu plötunnar erlendis, að sögn
Lárusar Jóhannessonar í 12 tónum.
„Nokkur erlend fyrirtæki slógust um útgáfuréttinn en
við ákváðum að velja Milan sem er einn stærsti útgefandi
heims á sviði kvikmyndatónlistar.“ Þar stóðu menn hins
vegar ekki við sinn hluta samningsins, meðal annars hvað
varðaði fyrirframgreiðslur og útlitshönnun á plötuum-
slaginu, segir Lárus. „Við riftum samningnum og erum
nú í málaferlum til að fá tjónið bætt enda hefur útgáfunni
seinkað um marga mánuði vegna þessa. Við erum hins
vegar að ná okkur á strik aftur eftir þessar hrakfarir. Það
verður alla vega mikil gleðistund þegar við verðum loks-
ins komin með gripinn í hendurnar.“
Eru í málaferlum
við erlenda útgáfu
Nokkuð er síðan kvikmyndin Nói albínói var frumsýnd,
en nú er tónlistin úr henni væntanleg á geisladiski.
Mogwai – Happy Songs For Happy
People
Skoska síð-
rokkssveitin
gengur hér í end-
urnýjun lífdag-
anna. Hér sýna
þeir að enn er
hægt að kreista
líf úr því útjaskaða formi sem þeir
bera svo mikla ábyrgð á að hafa
skapað. Það eru engar stefnubreyt-
ingar í gangi hins vegar, öll lögin
fylgja hefðbundnu reiknilíkani hins
ósungna síðrokks: minimalísk fram-
vinda sem stundum fer hækkandi og
hækkandi þar til brestur á með há-
vaða. Síðustu tvær plötur sveitarinn-
ar ollu talsverðum vonbrigðum,
einkanlega Rock Action frá 2001.
Þessi plata er hins vegar afar heil-
steypt, lögin frábærlega melódísk og
sökkva þægilega inn, öll sem eitt,
með endurtekinni spilun. Platan
slær meira segja fyrstu plötunni,
Young Team (1997) við, slík eru gæð-
in. Það besta sem sveitin hefur gert,
aðeins smáskífusafnið Ten Rapid
(1997) kemst henni nálægt.
A Perfect Circle – Thirteenth
Step
Ekki finnst mér
hún nú skemmti-
leg, þessi önnur
plata A Perfect
Circle. Eins og sú
fyrsta, Mer de
Noms (’00), var nú
góð – og svalaði öllum þörfum Rush-
narðarins í manni. Þessi er bara ekki
að gera sig. Sveitin er runnin undan
rifjum Maynard James Keenan,
söngvara Tool, og Billy Howerdel,
sem eitt sinn var gítarrótari þeirrar
eðlu jaðarþungarokkssveitar. Það
sem gerði fyrstu plötuna fyrst og
fremst svona eftirminnilega voru
flottar og nýstárlegar melódíur – já,
bara grípandi rokklög. Þetta var eins
konar poppuð útgáfa af Tool. Þetta
verk slugsast meira áfram í róleg-
heitunum og er frekar flatt og leið-
inlegt bara. Nei, þá held ég mig frek-
ar við Tool ef þetta á að vera málið.
Black Rebel Motorcycle Club –
Take Them On Your Own
Hljómsveitir
eins og B.R.M.C.
eru ekki hræddar
við áhrifin. Í raun
má segja að
B.R.M.C. sé
100% samsplæs-
ing af Jesus and Mary Chain, Loop
(man enginn eftir þeim?), Velvet
Underground, Stooges og Spacemen
3. Sveitir sem fylgja svipaðri for-
skrift eru t.d. Singapore Sling, The
Kills, The Raveonettes, White Strip-
es og The Strokes. Kannski ekki all-
ar undir nákvæmlega sömu áhrifa-
völdum en allar eru þær
jafnófrumlegar. Og það þarf ekki
endilega að vera slæmur hlutur
(standið upp Rammstein!) Kills og
Raveonettes eru þannig fremur
ómerkilegar sveitir á meðan Sling og
White Stripes gera þetta vel. Strok-
es eru þarna einhvers staðar á milli.
B.M.R.C. eru hins vegar í flokki með
Sling og Stripes. Þeir eru þéttir,
rokkandi og töff – og andskotanum
ófrumlegri. En komast hæglega upp
með það. Skrattakollarnir …
Erlendar plötur
Arnar Eggert Thoroddsen
Hvað ertu að hlusta á um þessar mundir?
Hárið
Uppáhaldsplata allra tíma?
Dark Side of the Moon eða Abbey Road
klikka aldrei, sama hvað maður hlustar oft
á þær. Dark Side kynntist ég þegar ég var í prófatörn fyrir mörgum
árum. Ég lét hana ganga heilu sólarhringana yfir próflestrinum og
fékk aldrei nóg.
Hvaða plötu setur þú á á laugardagskvöldi?
Ég vinn á laugardagskvöldum þannig að … En ef ég ætla að koma
mér í gírinn er það eitthvað með Nick Cave (t.d. Lagið „Ship Song“
á hæsta styrk), Legend með Bob Marley eða Bends með Radio-
head.
Hvaða plötu setur þú á á sunnudagsmorgni?
Núna er það safnplatan Tvöfalda bítið með Stuðmönnum, maður
hressist við það.
Hver er fyrsta platan sem þú keyptir þér?
Það man ég ekki.
Þetta vil
ég heyra
Rúnar Freyr Gíslason
leikari
BRESKA tónlistarblaðið Q segir
hana réttmætan arftaka Madonnu.
Stór orð sem blaðið lætur falla í um-
sögn um nýja plötu hennar Try
This.
Þótt hún sé löngu búin að breyta
um háralit kallar hún sig ennþá
Pink enda er það orðið eitt umtal-
aðasta nafnið í poppheimi samtím-
ans. Rétt eins og þegar Madonna
steig fram á sjónarsviðið næstum
tveimur áratugum áður benti fátt
til þess er bera fór á Pink í blálok
síðustu aldar að hún ætti eftir að
skína svo skært sem raun ber vitni.
Hún heitir réttu nafni Alecia
Moore og fæddist 8. september
1979 í smábænum Doylestown, ná-
lægt borginni Fíladelfíu í
Bandaríkjunum. Viðurnefnið
sitt fékk hún sem barn og hef-
ur í raun ekkert að gera með
háralitinn sem hún bar lengi
vel. Hún ólst upp í tónelskri fjöl-
skyldu og 13 ára var hún orðin
öllum hnútum kunnug í skemmt-
anabransa Fíladelfíuborgar, fyrst
sem dansari og síðar sem bakradd-
arsöngkona fyrir hipp-hopp sveit-
ina Schools of Thought. Hún fór
að semja sín eigin lög 14 ára og
um það leyti fór hún að koma
fram undir listamannsnafni
sínu í félagsmiðstöðvum og
alvöru klúbbum. Það var á
einni slíkri uppákomu sem
fulltrúi MCA kom á hana
auga og bauð henni að
mæta í áheyrnapróf fyrir
R&B sveit sem átti að heita
Basic Instinct. Hún stóðst
prófið með glans, en sveitin
dó drottni sínum áður
nokkuð gerðist. Var hún þá
sett í stúlknatríó sem hét
Choice og það var í þeim fé-
lagsskap sem hún hitti fyrst
mógúlana sem áttu eftir að
gera úr henni stjörnu, L.A. Reid og
Babyface. Choice fékk útgáfusamn-
ing hjá fyrirtæki þeirra LaFace. En
stelpurnar í Choice gátu ekki komið
sér saman um hvernig tónlist þær
vildu syngja og því varð ekkert úr
að þær gæfu út tónlist saman. En
eitt sinnið er þær voru að taka upp
var Pink beðin um að hjálpa til við
að semja lagið „Just to Be Loving
You“. Það var þá sem hún áttaði sig
á hvað hún hafði gaman af því að
semja og L.A. Reid kom auga á
þetta hungur stelpunnar. Varð úr
að hann bauð henni sólósamning og
skömmu síðar, eða snemma árs
2000 kom út fyrsta plata hennar
Can’t Take Me Home, þar
sem hún naut aðstoðar
nokkurra af bestu
smellasmiðum og
R&B upptökustjóra
í bransanum. L.A.
Reid veðjaði stórt
á stelpuna og veðj-
aði rétt því platan
rokseldist og gat af sér þrjá smelli
sem komust á topp tíu í Bandaríkj-
unum; „There U Go“, „Most Girls“
og „You Make Me Sick“.
Í kjölfarið túraði hún með
N*Sync um Bandaríkin og það var
þá sem hún komst að því að hún
hafði engan áhuga á að vera bara í
uppáhaldi hjá yngstu hlustend-
unum. Tók hún sig því til og skipti
rækilega um ímynd, fór úr R&B í
poppað rokk, og steig þá fram á
sjónarsviðið hörkukvendi með bein
í nefinu sem með fasi sínu og fram-
komu gaf rækilega til kynna að
enginn skyldi sko vaða yfir hana á
skítugum skónum. Áður en önnur
platan M!ssundaztood kom út naut
hún þess svo um munaði að syngja
með þeim Myu, Christinu Aguileru
og Lil’ Kim í laginu „Lady Marm-
alade“ úr Moulin Rouge. Og þegar
stóra platan kom út síðla árs 2001
var forsmekkur hennar „Get the
Party Started“ tvímælalaust heit-
asta lagið í heimi og Pink á allra
vörum. M!ssundaztood seldist í bíl-
förmum og gat af sér fleiri smelli
eins og „Don’t Let Me Get Me“.
Eru margir á að þessi sigurganga
Pink sé að stórum hluta Lindu
nokkurri Perry að þakka, alvönum
smellafræðingi, sem áður söng með
4-Non Blonde og gerði með þeim
„What’s Goin’ On“ heimsfrægt.
Perry semur nær helming laga á
nýju plötunni Try This en hinn
helminginn á Tim nokkur Arm-
strong sem er forsprakki ný-pönk-
rokksveitarinnar Rancid. Arm-
strong á m.a. fyrstu smáskífuna
„Trouble“ sem hljómar nú ótt á út-
varps- og sjónvarpsstöðvum.
Þessi þriðja plata Pink var að
koma út og er þegar komin í þriðja
sæti breska listans enda hafa gagn-
rýnendur hampað henni sem einni
allra bestu poppplötu ársins.
Er arftaki Madonnu loksins fundinn?
Pink segir prófaðu
Tónlistin úr Nóa kemur út í desember