Morgunblaðið - 20.11.2003, Side 22
AKUREYRI
22 FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
!"
###$
$
%$
!" &'
(
) * +'
,
-
+ # '
$ .
' .
'. '
//$ + 0 %
-
Aðalfundur Golfklúbbs Akureyrar árið 2003 verður
haldinn að Jaðri fimmtudaginn 27. nóvember kl. 20.00
Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu ári.
2. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram.
3. Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikning sem síðan skal
borinn upp til samþykktar.
4. Kosning stjórnar og varamanna í stjórn.
5. Kosning og/eða tilnefning í aðrar nefndir samkvæmt 8. grein.
6. Kosnir tveir endurskoðendur og einn til vara.
7. Önnur mál.
Stjórnin.
AÐALFUNDUR
„ÞAÐ er lífsstíll að reykja ekki,
góður lífsstíll sem mun skila ykkur
miklu í framtíðinni,“ sagði Úlfar
Björnsson skólastjóri í Glerárskóla,
en Þorgrímur Þráinsson fram-
kvæmdastjóri Tóbaksvarnanefndar
veitti skólanum viðurkenningu í til-
efni af því að nemendur Gler-
árskóla eru reyklausir. Þorgrímur
sagði að vitað væri um þó nokkuð
marga reyklausa skóla, en líklega
væri Glerárskóli þeirra fjölmenn-
astur með tæplega 500 nemendur.
„Þetta er góður árangur og til
marks um að hér er unnið öflugt
forvarnarstarf,“ sagði Þorgrímur,
en hann benti einnig á að í skól-
anum væri stundað öflugt íþrótta-
starf sem skilaði sér, „þannig að
krakkarnir hafa þá minni tíma til
að velta öðru fyrir sér,“ eins og
hann komst að orði. Þorgrímur
sagði í ávarpi til nemenda skólans
að framtíðin væri í þeirra höndum,
„framtíðin veltur á manni sjálfum,“
sagði hann og benti krökkunum á
að þeir væru sterkir sjálfstæðir
einstaklingar, „sem sýnir sig í því
að þið hafið ákveðið að reykja
ekki.“ Úlfar skólastjóri hvatti nem-
endur sína til að halda áfram á
sömu braut, halda í þann lífsstíl að
vera reyklaus.
Þorgrímur las svo upp úr nýj-
ustu bók sinni, Svalasta 7an, sem
er sautjánda bók hans. Stóra upp-
lestrarkeppnin í 7. bekk var jafn-
framt sett í Glerárskóla af þessu
tilefni og er þetta í fjórða sinn sem
nemendur skólans taka þátt í
henni. Sérstök rækt verður lögð
við vandaðan upplestur og fram-
burð, en þegar nær dregur lokum
keppninnar verða fulltrúar skólans
valdir. Lokahátíðin fer fram í mars
á næsta ári.
Glerárskóli er að öllum líkindum fjölmennasti reyklausi skóli landsins
Lífsstíll að reykja ekki
Morgunblaðið/Kristján
Til hamingju: Þorgrímur Þráinsson, framkvæmdastjóri Tóbaksvarn-
arnefndar, afhenti viðurkenningarskjal. Guðrún Hrönn Guðmundsdóttir, í
10. bekk, er formaður nemendaráðs og Úlfar Björnsson t.h. er skólastjóri.
Arkitektar á nýrri öld | Þrír arki-
tektar, Fanney Hauksdóttir, Hlédís
Sveinsdóttir og Gunnar B. Stef-
ánsson, FÍA, halda sameiginlegan
fyrirlestur í Safnaðarheimili Ak-
ureyrarkirkju í kvöld, fimmtudag-
kvöldið 20. nóvember, og hefst hann
kl. 20. Fyrirlesturinn mun fjalla um
þá fersku vinda sem blása í íslensk-
um arkitektúr á nýrri öld segir í
frétt um fyrirlesturinn. Þá munu
arkitektarnir kynna verk sín. Fann-
ey er einn eigenda Arkitekta- og
verkfræðistofunnar AVH en þau
Hlédís og Gunnar starfa hjá EON
arkitektum.
Athafnakonur | Sýninga- og ráð-
stefnuröðin Athafnakonur hefur
verið á ferð um landið undanfarnar
vikur og er röðin nú komin að Ak-
ureyri. Á morgun, föstudag, verður
sýning í Ketilhúsinu, en þar verða
fyrirtæki sem eru í eigu kvenna og
fengið hafa styrk úr kvennasjóði
með sýningu og kynningu á starf-
semi sinni. Þau eru afar fjölbreytt,
allt frá útsaumi til gróðursetn-
ingavéla, frá heilsuvörum til hug-
búnaðar. Hátt í 130 sýnendur verða
á Akureyri auk þess sem fleiri
senda sýnishorn eða kynningarefni
um sína starfsemi án þess að for-
svarskonur þeirra verði á staðnum.
Jólasala | Hlífarkonur verða með
sölu á kökum, jólakúlum og jóla-
kortum á Glerártorgi föstudaginn
21. nóvember frá kl. 14.00. Allur
ágóði af sölunni rennur til styrktar
tækjakaupum fyrir barnadeild
F.S.A.
Félagskonur mæti með brauð og
kökur kl. 14.00 á Glerártorg.
Framkvæmdir | Tvö tilboð bárust í
verkið „Aðalstræti endurbygging
við Minjasafn“ og voru þau bæði
nokkuð yfir kostnaðaráætlun, sem
hljóðaði upp á tæpar 9,9 milljónir
króna. G. Hjálmarsson hf. bauð um
11,8 milljónir króna í verkið, eða um
119% og GV Gröfur ehf. buðu rúmar
12 milljónir króna, eða tæp 122%.
Framkvæmdaráð samþykkti að
ganga til samninga við G. Hjálm-
arsson um verkið.
ALLT útlit er fyrir að Akureyring-
um fjölgi um 200 á þessu ári að því er
fram kom í máli Kristjáns Þórs Júl-
íussonar bæjarstjóra við fyrri um-
ræðu um fjárhagsáætlun bæjarsjóðs
á fundi bæjarstjórnar. Hann sagði að
á árinu yrðu teknar í notkun 150 nýj-
ar íbúðir. „Þá er staðan sú að á sl. 6
árum hefur Akureyringum fjölgað
um rúmlega 1.000 manns og um 730
íbúðir hafa á sama tíma verið teknar
í notkun,“ sagði Kristján Þór.
Hann gerði íbúaþróun og íbúða-
byggingar að umtalsefni í ræðu sinni
og sagði þykja góða mælistiku á vöxt
og viðgang sveitarfélags „og óhætt
að fullyrða að vöxtur á því sviði hér í
bæ er mikill og við getum öll verið
stolt af,“ sagði bæjarstjóri. Hann
benti á að það skyti skökku við að
þurfa að telja fólki trú um að þetta
væri í raun og veru eðlilegt og sjálf-
sagt í bæjarfélagi sem hefði jafngóða
möguleika til vaxtar og Akureyri.
„Margsinnis hef ég verið spurður að
því hvernig í ósköpunum standi eig-
inlega á öllum þessum íbúðabygg-
ingum í bæjarfélaginu. Hverjir eigi
nú að flytja inn í allar þessar íbúðir.
„Þetta getur bara ekki gengið upp“
er sá tónn sem ég hef heyrt öðru
hvoru sleginn undanfarin 3–4 ár,“
sagði bæjarstjóri, en sagði raunveru-
leikann þann að íbúum hefði fjölgað
um 1.000 á sama tíma og teknar
hefðu verið í notkun 730 íbúðir.
„Uppsveiflan á Akureyri hefur
verið mikil undanfarin ár og eðlilegt
er að við horfum bjartsýn fram á
veginn,“ sagði Kristján Þór. Vissu-
lega bæri að sýna fulla aðgát og taka
alvarlega ábendingum um veikleika
sem kynnu að leynast, en úrtölu-
raddir og svartsýnistal væri ekki
besti áttavitinn, hvorki í siglingu í lé-
legu skyggni né heiðríkju.
Bæjarstjóri sagði að ef forsendur
fjárhagsáætlunar stæðust væri ljóst
að haldið yrði áfram öflugri og metn-
aðarfullri grunnþjónustu bæjarins
og benti á að miklum fjármunum
hefði verið varið til uppbyggingar á
liðnum árum, einkum á sviði
fræðslu-, menningar- og tómstunda-
mála og svo yrði enn um sinn.
Í fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar
fyrir árið 2004 er gert ráð fyrir að út-
svar nemi 3.133 milljónum króna,
fasteignaskattur er áætlaður 440
milljónir og framlag úr Jöfnunar-
sjóði sveitarfélaga um 370 milljónir.
Skatttekjur bæjarins vaxa um 200
milljónir króna milli ára, verða sam-
tals um 5,5 milljarðar. Aukningin
hverfur strax í tvær meginstærðir,
130 milljón króna kostnað við rekst-
ur nýrra bygginga og vegna launa-
hækkunar starfsmanna. Gjöld án
fjármagnsliða eru áætluð tæpir 5,7
milljarðar.
Bæjarbúum hefur fjölgað
um rúmlega 1000 á 6 árum
Um 730 nýjar íbúðir teknar
í notkun á sama tíma
FULLTRÚAR frá Hetjunum, að-
standendum langveikra barna á Ak-
ureyri og nágrenni, afhentu for-
svarsmönnum
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
undirskriftalista með rúmlega 100
nöfnum í gær, þar sem mótmælt er
þeim ákvörðunum sem yfirvöld
sjúkrahússins hafa tekið um breyt-
ingar á barnadeildinni. Stöður leik-
skólakennara og iðjuþjálfa á deild-
inni verða m.a. lagðar niður frá og
með 1. janúar 2004.
Sonja Björk Elíasdóttir, stjórn-
armaður í Hetjunum, afhenti Hall-
dóri Jónssyni, forstjóra FSA, undir-
skriftalistana í húsnæði
barnadeildar. Hún sagði við það
tækifæri að ástæða þess að ráðist
hafi verið í að safna undirskriftum
væri sú að það væru fyrst og fremst
börn þeirra sem standa að Hetj-
unum, sem þyrftu á þjónustu barna-
deildar að halda.
Halldór Jónsson sagði að fram-
kvæmdastjórn spítalans hefði farið í
niðurskurð að vandlega athuguðu
máli. Hann sagði að vinna stjórn-
enda spítalans snerist m.a. um það
að ná í aukið fjármagn til þess að
auka þjónustu spítalans og að bæta
þá þjónustu sem fyrir er. Stjórn-
endur stofnunarinnar þyrftu jafn-
framt að nýta þá fjármuni sem henni
eru ætlaðir sem allra best.
Breytingum mótmælt
Í formála með undir-
skriftalistunum kemur
m.a. fram að leikskóla-
kennari barnadeildar
spili stórt hlutverk í lífi
barna meðan á dvöl
þeirra stendur yfir. Börn
á sjúkrahúsi eigi rétt á
að hafa aðgang að leik og
kennslu og skal yfirum-
sjón með hinum uppeld-
islega hluta vera í hönd-
um leikskólakennara og
kennara.
Hetjurnar benda á að
rétt hafi verið að taka aðeins til á
barnadeildinni, þá með tilliti til
fjölda starfsfólks, eins og það er orð-
að. „Hins vegar teljum við hreins-
unardeildina hafa ofgert. Sjúkralið-
ar hafa m.a. sinnt því mikilvæga
starfi að leysa foreldra af, svo þeir
komist aðeins frá. Teljum við því
nauðsynlegt að endurskoða þær
uppsagnir sem hafa átt sér stað.“
Morgunblaðið/Kristján
Vér mótmælum: Sonja Björk Elíasdóttir afhenti
Halldóri Jónssyni forstjóra undirskriftalistana.
Moggabúðin
Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr.