Morgunblaðið - 20.11.2003, Page 27
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 2003 27
Í versluninni
eXs í Kringl-
unni fást
peysur
skreyttar
Playboy-
kanínunni og
aðrar með
áletruninni Miss sexy. Fötin í
búðinni eru ætluð börnum og ungu
fólki allt frá átta ára aldri. Eigandi
verslunarinnar vildi ekki ræða við
Morgunblaðið um það sem er á boð-
stólum í búðinni og leyfði ekki
myndatöku. Blaðamaður fór í nokkr-
ar aðrar búðir sem selja barnafatnað í
gær en fann engar flíkur í þeim versl-
unum með svipuðum áletrunum og
hér er nefnt að ofan.
Í öllum barnafataverslunum eru
bolir sérstaklega ætlaðir stelpum lit-
ríkir með glimmeri, hjörtum, stjörn-
um og blómum. Þeir eru oft bleikir
eða rauðir en einnig svartir og hvítir.
Áletranir eða áprentanir af ýmsum
toga eru mjög algengar um þessar
mundir og segja verslunareigendur
að það sé í tísku. Andlit eða eitthvað
sem minnir á andlit er oft prentað á
bolina eða teiknimyndir af stelpum
eða dúkkum, eins og t.d. Bratz sem
fjallað var um á síðum Daglegs lífs
nýlega og því velt upp hvort slíkar
fyrirmyndir séu heppilegar fyrir
stelpur.
Innihald áletrananna á bolunum
virðist þó fara fyrir ofan garð og neð-
an hjá kaupendunum sem stundum
eru sjálfar ömmur stelpnanna. Oft
eru áletranir saklausar: „Angel“,
„Star“, „Princess“ eða „Barbie“. Á
næsta stigi eru áletranir eins og
„Nothing but trouble“, „Babe“ og svo
„Naughty“ og „Bad girl“. Hinir full-
orðnu tengja svo tákn Playboy, kan-
ínuna, við klám þótt krakkar sjái bara
sæta kanínu.
Renna út eins og heitar lummur
Í Velvakanda í Morgunblaðinu í
gær lýsti móðir áhyggjum sínum af
klámvæðingu sem nær til barna, eftir
verslunarferð með 13 ára dóttur
sinni: „Inni í einni versluninni sem við
fórum í, verslun sem er sérhæfð fyrir
börn og unglinga, varð ég verulega
hugsi yfir því samfélagi sem við búum
í. Við höfðum séð peysu sem okkur
leist ágætlega á, afgreiðslumaðurinn
benti okkur á að hún væri til í fleiri
litum, en benti okkur jafnframt á það
að peysurnar í þeim lit væru allar
merktar Playboy-kanínunni. Ég
spurði hneyksluð af hverju í ósköp-
unum verslað væri með slíkar vörur
og hvort honum þætti slíkt ekki
ósmekklegt í búð sem höfðaði til svo
ungra neytenda. Svarið sem ég fékk,
var að þessi vara rynni út eins og
heitar lummur og á meðan svo væri
yrði hún flutt inn.“
Móðirin skorar á verslunareig-
endur og neytendur að sniðganga
vörur sem stuðla að klámvæðingu
barna og segir þær ekki einungis
ósmekklegar heldur beinlínis hættu-
legar. „Ég spái því að ef neytendur
eru vakandi, deyi búðir sem versla
með kynlífstengdar barnavörur út,
eigi að minnsta kosti erfiðara upp-
dráttar. Við foreldrar getum bannað
börnum okkar að ganga í svona
merktum vörum. Höldum vöku okk-
ar,“ segir móðirin að síðustu.
Í versluninni C og C eru alls kyns
föt til sölu og margir bolir með teikni-
myndum af stelpum og áletrunum
eins og Angel eða Star. Einn bolur
vekur sérstaka athygli en á honum er
áprentuð mynd af ungu barni með
mikið húðflúr, en slíkt getur ekki tal-
ist barnalegt. Þessir bolir fást í
svörtu, bleiku og rauðu fyrir börn allt
frá tveggja ára.
Heiðar Vilhjálmsson, eigandi versl-
unarinnar, segist kaupa inn frá Eng-
landi, Frakklandi og Hollandi og að
erfitt sé að fá barnaboli með engum
myndum eða áletrunum. Hann er
sjálfur hneykslaður á þessum bol og
segist hafa keypt hann blindandi, þ.e.
í gegnum síma, og slíkt muni hann
ekki gera aftur.
„Ég er hins vegar búinn að borga
þessa boli og verð að selja þá,“ segir
Heiðar. Hann segir að tískan hjá börn-
unum gangi mikið út á áletranir og
myndir á bolum og tínir til boli sem
hann segir ekkert athugavert við.
„Við verðum að fylgja straumnum,
þetta er tíðarandinn.“ Hann segir lít-
ið hafa verið keypt af bolnum með
tattóveraða barninu og slíka vöru
muni hann ekki kaupa aftur. Hann
segist setja mörkin við það þegar not-
uð eru orð eins og „sexy“ í áletranir
og segist ekki kaupa inn föt ætluð
börnum sem merkt eru Playboy-
kanínunni. Hins vegar eru slíkir bolir
og sokkar ætlaðir fullorðnum til sölu í
versluninni.
Vilja ekkert sem skaðar ímyndina
Sigríður Gröndal, innkaupastjóri
hjá Hagkaupum, leggur áherslu á að
Hagkaup leitist við að hafa breitt úr-
val af barnafatnaði sem viðskiptavinir
vilji kaupa. Það sé augljóst að það
borgi sig ekki að hafa til sölu eitthvað
sem skaðar ímynd fyrirtækisins.
Í barnafatadeild Hagkaupa var að
finna boli með áletruninni „Bad girl“.
„Þetta er bara einn af tvö hundruð
bolum sem eru til sölu í þessum
stærðum,“ segir Sigríður og Kristín
Boland sem sér um innkaup á barna-
fatnaði fyrir Hagkaup Kringlunni
tekur undir.
Hún segir að sér hafi mörgum
sinnum verið boðnir barnabolir með
Playboy-kanínunni á í innkaupaferð-
um en ávallt hafnað. Allur slíkur fatn-
aður kemur frá Bretlandi og þaðan
kaupa margar verslanir. Hagkaup er
stærsti seljandi barnafatnaðar á land-
inu og kaupir einnig frá Norðurlönd-
unum og stendur fyrir eigin fram-
leiðslu á því sem kalla má
grunnfatnað, buxum, flíspeysum og
bolum án áletrana.
Umræddur bolur með „Bad girl“
áletruninni selst vel, en þær Sigríður
og Kristín segja að það sé vegna þess
að hann er í tískulitunum svörtu og
rauðu og með röndum en ekki endi-
lega vegna áletrunarinnar.
BÖRN| Áhyggjur af klámvæðingu sem nær til barna
Morgunblaðið/Jim Smart
Ekki barnalegt: Ungt barn með húðflúr er meðal þess sem skreytir boli. En
það eru líka til saklausari bolir, með glimmeri eða silfurprenti.
Morgunblaðið/Jim Smart
Einn af 200: Svarti „Bad girl“ bol-
urinn er bara einn af 200 í stærð-
unum 128–176 hjá Hagkaupum.
steingerdur@mbl.is
Barnapeysur með
Playboy-kanínunni
EKKI er laust við að fólk hrökkvi við þegar allur bær-
inn og verslunarmiðstöðvar eru komnar í jólabúning
um miðjan nóvember og jólalög farin að hljóma í út-
varpinu. Í Noregi hafa verið stofnuð samtök sem berj-
ast gegn þessari þróun. Slagorðið er Bíðið þar til á að-
ventunni! eða Vent til advent!
Samtökin hafa að undanförnu verið að safna undir-
skriftum og eru með eigin heimasíðu www.giossjula-
tilbake.no. Einnig eru seldir bolir með mynd af reiðum
jólasveini og áletruninni Vent til advent.
Á heimasíðunni segir að ástæðan fyrir því að þessu
átaki var hleypt af stokkunum sé sú að mörgum blöskr-
aði þegar jólamarsipanið var þegar á boðstólum í versl-
unum í Noregi í september og jólapylsur voru seldar í
verslunum og voru meira að segja komnar fram yfir
síðasta söludag 33 dögum fyrir jól!
Forsvarsmenn samtakanna halda því fram að kaup-
mennska sem þessi sé að eyðileggja eftirvæntinguna
eftir jólunum og efnishyggjan sé að eyðileggja jólin fyr-
ir börnunum. Það sé lítill spenna, gleði eða hátíðleiki
eftir rétt fyrir jólin þegar flestar jólavörur hafi verið á
boðstólum í þrjá mánuði. Jólin séu misnotuð í þeim til-
gangi að markaðssetja vörur og þrýstingur sé mikill á
neytendur að kaupa þær. Þetta fólk vilji ekki sjá jóla-
skraut og ljósum prýdd jólatré um allan bæ í október og
nóvember. Hvort sem fólk sé kristið eða ekki þrái það
að halda hátíð. Jólin séu stærsta hátíðin. Samtökin fara
þess á leit við framleiðendur, markaðsfólk og kaup-
menn að bíða með jólaverslunina fram í desember.
JÓLAUNDIRBÚNINGUR
Skilið jólunum
Frönsk undirföt
Opið virka daga frá kl. 11-18,
laugardaga frá kl. 11-15.
undirfataverslun
Síðumúla 3
FIMMTUDAGS-
TILBOÐ
Suðurlandsbraut
Sími 533 3109
Opið
mán.-fös. kl. 12-18
laugardaga kl. 10-16
Dömusandalar - breiðir
Teg. ACOCORA
St 35 42
Litir Svart, beige, hvítt
Verð áður 3.495
Verð nú 1.995