Morgunblaðið - 20.11.2003, Side 28
LISTIR
28 FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FÓLKIÐ
...á hæðina
...á breiddina
...á lengdina
...á dýptina
á föstudögum!
M
essías eftir Händel er
það kirkjuverk sem
hvað oftast hefur
verið flutt á Íslandi.
Það var Victor Urb-
ancic sem fyrst réðst í flutning þess
hér á landi, árið 1940, með Kór
Tónlistarfélagsins í Reykjavík og
þeim hljóðfæraleikurum sem tiltækir
voru, og æ síðan hefur það verið
meðal vinsælustu verka til flutnings
um stórhátíðir.
Andstætt því sem oft er sagt er
Messías ekki óratoría í hefðbundnum
skilningi. Verkið segir ekki sögu, eins
og óratoríur gera, heldur eru þar
hugleiðingar um spádómana er
greina frá komu Krists, fæðingu
hans, þjáningu, dauða og upprisu.
Textana valdi Charles Jennens í
samráði við Händel. Í Messíasi er
heldur ekki um hefðbundna
hlutverkaskipan að ræða eins og
tíðkast í óratoríum, og ekkert
hlutverk guðspjallamanns, en
guðspjallamaðurinn er jafnan í
hlutverki sögumanns sem túlkar
framvindu dramans. Händel var þó
einn mesti meistari óratoríunnar um
sína daga, og var að auki afar slung-
inn óperusmiður. En það sem kann
að vanta í dramatíska framvindu
verksins bætir hann upp með lýs-
ingum og stemmningum í tónlist sem
á sér vart hliðstæðu að vinsældum,
allt frá því verkið var frumflutt í
Dyflinni á Írlandi í apríl 1742, til okk-
ar daga.
Í Messíasi gegnir kórinn stærra
hlutverki en í óratoríum Händels, en
einsöngsatriðin draga sterkan dám af
óperuaríum hans. Enn eitt sem
greinir Messías frá óratoríunum er
skortur á samsöngsatriðum
einsöngvara. Aríurnar þykja þó hver
annarri fegurri, og nokkrar þeirra,
eins og sú frægasta þeirra: I know
that my redeemer liveth, hafa öðlast
sjálfstætt líf sem söngverk sem
söngvarar grípa til á tónleikum og
ýmis tækifæri önnur.
Hver einasti þáttur er snilld
Enn er verið að flytja Messías, og
að þessu sinni er það Kór Langholts-
kirkju ásamt hljómsveit og einsöngv-
urum sem fagna degi verndara tón-
listarinnar, Heilagrar Sesselju, með
tónleikum í kirkjunni í kvöld kl.
19.30.
Í tilefni 50 ára afmælis kórsins
taka nú margir fyrrverandi félagar
þátt í flutningnum, samtals um 130
manns. Kórinn hefur áður æft verkið
sex sinnum og flutt á 22 tónleikum
meðal annars fimm sinnum í Ísrael
1989, – þetta er því í sjöunda sinn
sem Kór Langholtskirkju flytur
Messías.
Jón Stefánsson segir margt stuðla
að vinsældum verksins: „Það er svo
rosalega margt,“ segir hann. „Það
eru bara svo mörg flott númer í því –
hver einasti kór er stórkostlegur og
svo eru það allar aríurnar – hver ann-
arri fallegri. Það er ótrúlegt hvað
hver einasti þáttur í því er mikil
snilld. Svo er það líka svo sérstaklega
vel samið fyrir kórinn. Händel skilur
raddirnar svo vel. Ef við berum hann
saman við Bach, þá semur Bach
þannig fyrir raddir að það er eins og
hann sé að semja fyrir hvert annað
hljóðfæri; hann er alveg miskunn-
arlaus. Með því er ég ekkert að segja
að það sé endilega skemmtilegra að
flytja Messías. En það er hægt að
syngja Händel endalaust vegna þess
hvað kórþættirnir liggja vel fyrir
söngröddina. Það hlýtur líka að hafa
eitthvað með vinsældirnar að gera
hvað verkið er glaðlegt. Það rímar al-
veg við nýju gluggana hér í kirkjunni,
en textinn í þeim er: „Verið glaðir, ég
segi aftur, verið glaðir.“ Við eigum að
vera glöð í trúnni, hún á ekki að vera
ok sem við berum á herðum okkar.“
Þúsund Messíasarsöngvarar
Kór Langholtskirkju flutti Messías
fyrst árið 1981. Stór hluti kórsins í
dag hefur þó ekki sungið verkið áður.
Við Jón veltum því fyrir okkur hve
margir íslenskir kórsöngvarar hafi
sungið í Messíasi í gegnum tíðina, og
þeir eru margir. „Það er þó áreið-
anlega meir en helmingur þessara
130 kórsöngvara sem kann verkið
nánast utan að. Nú svo var efnt til
tónleika á Listahátíð 1992, þar sem
allir sem höfðu sungið í verkinu áður
gátu sungið með. Það voru um 170–
180 manns.“ Pólýfónkórinn flutti
Messías margsinnis og svo allir hinir
kórarnir, Söngsveitin Fílharmónía,
og fleiri kórar hér á höfuðborg-
arsvæðinu. Verkið var flutt austur á
Egilsstöðum, það hefur verið sungið
á Akureyri, á Ísafirði og víðar. „Við
skulum bara segja að minnsta kosti
þúsund manns, frá því að verkið var
frumflutt hér 1940,“ áætlar Jón eftir
talsverðan hugarreikning og við er-
um sammála um að það sé ansi góður
hópur flytjenda í einu tónverki í litlu
landi.
Einsöngvarar úr röðum
gamalla kórfélaga
Einsöngvarar með Kór Langholts-
kirkju nú eru úr þeim stóra hópi sem
byrjað hafa feril sinn með kórnum,
en þeir eru Ólöf Kolbrún Harð-
ardóttir Þóra Einarsdóttir, Marta
Hrafnsdóttir, Björn I. Jónsson,
Bergþór Pálsson og Viðar Gunn-
arsson. Viðar hefur starfað sem óp-
erusöngvari í Þýskalandi um árabil
en hefur bara einu sinni áður sungið í
Messíasi. „Það var þegar Kór Lang-
holtskirkju flutti verkið í fyrsta sinn,
1981. Ég var þá í söngnámi hér
heima, og söng eina einsöngsstrófu.
Það var allt og sum þá. En menn for-
framast, og nú syng ég aðeins
meira.“ Viðar hefur lítið sungið af
kirkjulegum verkum og lítið af bar-
okkóperum, en segist þó finna fyrir
tengslunum milli aríanna í Messíasi
og hefðbundinna óperuaría. „Ég hef
nú ekki hugsað mikið út í það fyrr en
núna, en það er mikið til í því að
þarna er skyldleiki. Ég syng til dæm-
is aríu sem venjulega er sungin af
sópran, og hún er sérstaklega glæsi-
leg.“ Það er ekki að sópransöngkon-
unum tveimur sé vantreyst fyrir við-
komandi aríu. Händel hafði nefnilega
þann háttinn á, að hann átti aríurnar
til í ýmsum útgáfum, jafnvel fyrir
nokkrar mismunandi raddir, þannig
að hann gat falið þær bestu söngv-
urum sem völ var á, hvort sem það
voru sópranar eða bassar, altar eða
tenórar. Arían sem Viðar nefndi var
upphaflega sungin af bassa, þótt síð-
armeir hafi tíðkast að hún væri sung-
in af sópran.
„En mikið er það nú frábær tilfinn-
ing að koma heim að syngja – alveg
frábær.“ Minnstu munaði að Viðar
gæti ekki verið með á seinni tónleik-
unum á laugardag, því þá átti hann
að vera á sviði ytra að syngja í Töfra-
flautunni. „Ég fékk mig lausan til að
taka þátt í þessu. Ég þurfti nú að
hafa talsvert fyrir því, og húsið þarf
að æfa upp annan söngvara í mitt
hlutverk, en þetta er vel þess virði,
þú getur nú nærri.“
Viðar býr enn í Wiesbaden þar
sem hann fastréð sig að námi loknu.
Að undanförnu hefur hann þó tals-
vert verið að syngja við óperuna í
Kassel. Um tíma störfuðu þeir þrír
við óperuna í Wiesbaden, Viðar,
Kristinn Sigmundsson og Gunnar
Guðbjörnsson. Það þótti tíðindum
sæta að svo margir Íslendingar störf-
uðu við eitt óperuhús í Þýskalandi. „Í
Kassel syng ég oft með Hönnu Dóru
Sturludóttur – hún syngur einmitt
með mér í Töfraflautunni – og svo
búa Þóra Einarsdóttir og Björn
Jónsson í Wiesbaden, þannig að ég er
alltaf í tengslum við íslenska söngv-
ara. Þú getur enn farið í óperu í
Þýskalandi og reiknað með því að það
séu tveir eða fleiri íslenskir söngv-
arar á sviðinu. Þegar ég hitti þýska
kollega mína segja þeir gjarnan:
Ertu frá Íslandi? Þið eigið svo mikið
af frábærum söngvurum hér í Þýska-
landi, – það er alveg með ólíkindum.“
Það er virkilega um það talað úti
hvað við Íslendingar framleiðum góð-
ar og heilbrigðar söngraddir.“
Freistandi að syngja
með kórnum
Þóra Einarsdóttir starfar við óp-
eruna í Wiesbaden, en kemur heim
með manni sínum Birni Jónssyni til
að syngja í Messíasi. Þau kynntust
reyndar í kórnum á sínum tíma, og
voru þá líka bæði í söngnámi við
Söngskólann í Reykjavík. Þóra hefur
margoft sungið í Messíasi sem ein-
söngvari, en kynntist verkinu fyrst
um leið og Viðar, sem kórsöngvari í
Kór Langholtskirkju 1981. „Þetta er
verk sem ég þekki út og inn – gjör-
samlega. Ég var til dæmis með í tón-
leikaferðinni til Ísraels þar sem við
sungum verkið fimm sinnum. Það er
enn freistandi að taka undir með
kórnum, og á æfingu í dag laumaðist
ég til að syngja með.“ Þóra hefur líka
sungið Messías úti, meðal annars á
jólatónleikum í Royal Albert Hall í
London, og það var mikil stemmning.
„Í Bretlandi þekkja þetta allir og fólk
kann verkið út og inn. Þetta er bara
eitt af þessum verkum sem er svo vel
samið. Það slær á alla strengi; – það
er sungið guði til dýrðar á allan þann
máta sem hægt er, – bæði í lýrík og
dramatík og öllu þar á milli, en samt
með þessu glaðlega yfirbragði.“
Tónleikarnir í Langholtskirkju í
kvöld hefjast sem fyrr segir kl. 19.30,
en á laugardag hefjast tónleikarnir
kl. 14.00.
Sungið guði til dýrðar á allan
þann máta sem hægt er
Kór Langholtskirkju fagnar 50 ára afmæli sínu með flutningi á einu vinsælasta tónverki allra tíma, Messíasi
eftir Händel. Bergþóra Jónsdóttir spjallaði við tvo einsöngvara, Viðar Gunnarsson og Þóru Einarsdóttur,
og Jón Stefánsson kórstjóra, sem giskar á að meira en þúsund Íslendingar hafi sungið í verkinu í áranna rás.
Morgunblaðið/Jim Smart
Einbeittir bassar í Halelújakórnum. Frá æfingu á Messíasi eftir Händel í Langholtskirkju í gærdag.
begga@mbl.is