Morgunblaðið - 20.11.2003, Blaðsíða 40
MINNINGAR
40 FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri.
Bryndís Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
Baldur Frederiksen,
útfararstjóri.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Einstakir legsteinar
Sérhannaðar englastyttur
úti og inni
Verið velkomin
Legsteinar og englastyttur
Helluhrauni 10 220 Hfj.
Sími : 565-2566
Engl a s te ina r
Ástkær föðurbróðir okkar,
DIÐRIK JÓNSSON,
Dalbraut 27,
Reykjavík,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 18. nóvember.
Gíslína Vigdís Guðnadóttir,
Óskar Guðnason.
Maðurinn minn,
LÁRUS BJÖRNSSON
frá Ósi,
Höfðagrund 27,
Akranesi,
er látinn.
Júlíana Guðmundsdóttir.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HALLDÓR SIGURÐSSON
gullsmiður,
lést á hjúkrunarheimilinu Kumbaravogi þriðjudaginn 18. nóvember.
Halldór Viðar Hafsteinsson, Erla Engilbertsdóttir,
Margrét Halldórsdóttir, Jan Dirk Elstermann,
barnabörn og langafabörn.
AFMÆLIS- og minningar-
greinum má skila í tölvupósti
(netfangið er minning@mbl.is,
svar er sent sjálfvirkt um leið
og grein hefur borist) eða á
disklingi. Ef greinin er á disk-
lingi þarf útprentun að fylgja.
Nauðsynlegt er að tilgreina
símanúmer höfundar og/eða
sendanda (vinnusíma og
heimasíma). Ekki er tekið við
handskrifuðum greinum.
Um hvern látinn einstakling
birtist ein aðalgrein af hæfi-
legri lengd á útfarardegi, en
aðrar greinar séu um 300 orð
eða 1.500 slög (með bilum) en
það eru um 50 línur í blaðinu
(17 dálksentimetrar). Tilvitn-
anir í sálma eða ljóð takmark-
ast við eitt til þrjú erindi.
Einnig er hægt að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5–15 línur, og votta
virðingu án þess að það sé gert
með langri grein. Greinarhöf-
undar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stutt-
nefni undir greinunum.
Minningargreinum þarf að
fylgja formáli með upplýsing-
um um hvar og hvenær sá sem
fjallað er um er fæddur, hvar
og hvenær dáinn, um foreldra
hans, systkini, maka og börn
og loks hvaðan útförin verður
gerð og klukkan hvað. Ætlast
er til að þetta komi aðeins
fram í formálanum, sem er
feitletraður, en ekki í greinun-
um sjálfum. Þar sem pláss er
takmarkað getur þurft að
fresta birtingu greina, enda
þótt þær berist innan hins til-
tekna frests.
Frágangur
afmælis-
og minn-
ingar-
greina
✝ Olga Sólveig Að-albjörg Sigurð-
ardóttir fæddist í
Hnífsdal 3. júní
1913. Hún lést á
Grund 12. nóvember
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Elísabet Jónsdóttir,
f. 15.3. 1881, d. 1.5.
1930, og Sigurður
Guðmundsson, f.
9.7. 1874, d. 4.10.
1955. Systkini Olgu
eru Kristján Guð-
mundur, f. 1907, d.
1909, Kristján Guð-
mundur, f. 1910, d. 2003, Sigríður
Hanna, f. 1910, d. 1938, Jón Þor-
leifur, f. 1912, d. 1999, Kristjana,
f. 1915, Herdís Þóra, f. 1916, d.
1992, Elísabet Sigríður, f. 1918, d.
17.1. 1947, var gift Hlöðveri Jó-
hannssyni, f. 2.4. 1944, þau eiga
fimm syni: Gunnlaug, látinn, Jó-
hann Helga, Kristján Þór, Heimi
Frey, látinn og Gunnlaug. Elísa-
bet Þóra er gift Reyni Heide, f.
28.6. 1952, hann á þrjú börn. c)
Málfríður, f. 18.4. 1950, gift Sig-
mari Holbergssyni, f. 19.8. 1947,
þau eiga fjögur börn: Kristin,
dreng, látinn, Lindu Björk og
Guðríði Rakel. Langömmubörnin
eru tuttugu.
Olga og Gunnlaugur bjuggu
fyrst í Hnífsdal en fluttu til Siglu-
fjarðar 1948. Þau fluttu til
Reykjavíkur 1964 og þar starfaði
Gunnlaugur fyrst við skreiðarmat
og var síðan starfsmaður Alþing-
is. Auk húsmóðurstarfa vann
Olga mikið að hannyrðum og
kjólasaum ásamt kirkju- og fé-
lagsmálum og er heiðursfélagi í
Kvenfélagi Hallgrímskirkju. Hún
bjó síðustu 20 árin á Grund.
Útför Olgu verður gerð frá
Hallgrímskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
sama ár, Arnór, f.
1920, Bjarni, f. 1921,
og Friðrik Tómas, f.
1922.
Olga giftist 27.
september 1940
Gunnlaugi Jóhannes-
syni frá Hlíð í Álfta-
firði, f. 24. des. 1917,
d. 3. sept. 1980. For-
eldrar hans voru Ein-
ar Jóhannes Gunn-
laugsson og Málfríður
Sigríður Sigurðar-
dóttur. Dætur þeirra
Olgu og Gunnlaugs
eru: a) Guðmunda
Sigríður, f. 17.6. 1943, gift Mar-
inó Friðjónssyni, f. 15.9. 1933,
þau eiga fjögur börn, Olgu Sig-
ríði, Friðjón Albert, Gunnlaug og
Rúnar Örn. b) Elísabet Þóra, f.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Elsku mamma mín.
Það er erfitt að setja bara nokk-
ur orð á blað um þig, þessa stór-
brotnu konu sem þú varst. Það
sem uppúr stendur er það sem þið
pabbi kennduð okkur systrum svo
vel, um gildi fjölskyldunnar og að
þekkja rætur sínar. Að fá að upp-
lifa það sem barn á Siglufirði, að
vera í þeim stóra fjölskylduarmi,
sem við vorum, aðkomufólk að
vestan eins og gjarnan var sagt.
Ótrúlega samhent frændfólk, al-
veg ómetanlegt. Guðstrúin, kirkjan
og fullvissa þín að látnir ástvinir
lifa, hefur yljað mér um hjartaræt-
ur síðastliðnu daga. Þegar ég
hugsa um það að litli ömmustrák-
urinn minn, Victor Páll, hafi lagt
sína litlu hendi í þreyttan lófa
langömmu og leitt hana í kærleiks-
ljósið. Því þú hvarfst á braut á út-
farardegi hans.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem.)
Takk fyrir allt, mamma mín, og
Guð blessi minningu þína. Þín
dóttir,
Elísabet Þóra.
Amma dreki.
Nú ert þú loks frjáls ferða
þinna, getur hlaupið, hoppað og
dansað innan um allan þann fjölda
ástvina, sem eflaust biðu þín með
tilhlökkun hinum megin. Amma,
þú varst einstakur persónuleiki,
eins og við ömmubörnin upplifðum
og okkar á milli varst þú kölluð
amma dreki. Það mátti aldrei
segja þér allt sem á gekk í fjöl-
skyldunni. Þú sagðir líka stundum
hvað þú værir heppin, að eiga
svona einstaka stórfjölskyldu, þar
sem enginn í henni reykti né
drykki!
Ég trúi því hins vegar að þetta
hafi verið dulinn húmor hjá þér, til
þess að standa undir ömmu dreka
nafninu. Við náðum mjög vel sam-
an í húmornum og ég hafði ein-
staklega gaman af því að reyna að
ganga fram af þér með spurning-
um og uppátækjum. Eins og t.d
þegar þú komst í ferminguna (í
fyrra) hjá Elísabetu dóttur minni.
Veislan var á annarri hæð og það
urðu smá vangaveltur um það
hverjir ættu að hjálpa þér upp, en
þú varst orðin fótalúin. Ég kom þá
til þín ósköp alvörugefinn og sagði
þér að klifra upp á bakið á mér,
svo ég gæti borið þig upp.
Amma, þú áttir langa og farsæla
ævi, varst ákaflega mikil listakona
og hannyrðameistari, afkastamikil
með fádæmum og frjó í hugsun.
Þú tileinkaðir starfsorku þína,
sjálfboðavinnu í þágu kirkjunnar
og góðra málefnum. Ég veit að þú
varst farin að bíða eftir því að fá
að hitta Gulla afa, systkini þín, for-
eldra og vini, en að þú skulir hafa
tekið upp á því að kveðja á útfar-
ardegi Victors Páls, sonar míns,
gefur mér huggun í sorginni því ég
veit að amma passar upp á lang-
ömmustrákinn sinn og leiðir hans
litlu hönd inn í ljósið.
Mamma, Fríða og Mumma, ykk-
ar börn, makar og fjölskyldur,
ásamt öllum þeim sem sakna
ömmu, Guð veri með ykkur,
Jóhann Helgi Hlöðversson
og fjölskylda.
Elsku amma mín.
Það er skrýtið að hugsa til þess
að hafa þig ekki lengur hér. Þó
maður hafi vitað að hverju stefndi
og þú orðin 90 ára, þá varstu svo
stór þáttur í tilveru minni frá því
að ég man eftir mér. Þú varst allt-
af svo flott og smekkleg og þið afi
voruð stórglæsileg hjón. Þú hafðir
eiginlega töfrahendur, því það var
alveg sama hvað þú gerðir, það lék
allt í höndunum á þér og það var
alltaf hægt að biðja þig að hjálpa
sér með handavinnu.
Rithönd þín var líka svo falleg
og þú hafðir þann vana að merkja
allar bækur okkar systkinanna
bæði með nafni eiganda og gef-
anda.
Eftir þig liggja allskyns glæsi-
legar hannyrðir, föndur og lista-
verk sem við barnabörnin og svo
langömmubörnin nutum góðs af og
þú passaðir alltaf upp á að allir
fengju eitthvað. Ég og börnin mín
eigum marga fallega muni eftir þig
sem við ætlum að passa vel uppá.
Þú varst líka svo trúuð og kirkju-
rækin og talaðir oft um að þú
þakkaðir Guði fyrir hvað þú værir
rík að eiga svona marga afkom-
endur.
Þú sagðir mér svo margt frá því
þegar þú varst að alast upp í Ysta
húsinu í Hnífsdal í stórum systk-
inahópi og hvað þú upplifðir mikl-
ar breytingar á lífsháttum á þinni
löngu ævi. Ég kveð þig elsku
amma mín með þakklæti fyrir allt
sem þú gerðir fyrir mig, með einni
af bænunum sem þú kenndir mér.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson.)
Blessuð sé minning þín.
Þín nafna
Olga.
Elsku Olga amma og langamma
okkar ástkæra. Við kveðjum þig
nú í táradal barnabarns þíns, sem
þig snerti svo heitt. Dánardagur
þinn einkennir og lýsir upp fal-
legan og trúarlegan hug þinn. Þú
leiðir hann inn í ljósið bjarta.
Yndislega amma, þú skilur eftir
svo hlýjar og skemmtilegar minn-
ingar sem lifa í hjarta okkar og í
fallegum handverkum þínum. Þú
baðst bænir í allar gjafirnar til
stóra barnahópsins þíns, 20 barna-
barna. Gylltu englana tuttugu
gerðirðu handa þeim með trúna og
kærleikann í hjarta þótt líkaminn
hefði vart þrek í það. Með þína
sterku trú, stóra hjarta og miklu
kímni brostirðu til okkar í gegnum
lífsþrautir þínar, sem margar voru
erfiðar. Gleðin, hversu beinskeytt
þú varst og glettnin í einstakri frá-
sagnarlist þinni er okkur mjög
minnisstæð.
Við áttum saman góðar stundir
og einna minnisstæðust er friðsælt
aðfangadagskvöld sem við fjöl-
skyldan áttum saman með þér
1999 hjá Betu ömmu og Reyni afa.
Þú táraðist af gleði þegar barna-
börn þín lásu kortin fyrir þig, með
fallegum Guðsorðum til þín, sem
snart þig mikið og gaf þér lífs-
kraft.
Óliver Adam á sínar góðu minn-
ingar um þig, þú varst honum svo
kær og hann þér, eins og hann
segir sjálfur, Olga langamma var
svo góð og falleg. Glæsileg varstu
ávallt og þannig leyfum við þér að
kveðja okkur líka, með fallegt
skart um hálsinn, barmnælu og
eyrnalokka. Við vitum að Gunn-
laugur afi og langafi tekur þig nú í
faðm sér í Guðsríki. Megi algóður
Guð og englar himinsins leiða þig
inn í ljósið bjarta og gefa þér frið.
Elsku amma Beta, Mumma og
Fríða, við vottum ykkur okkar
dýpstu samúð.
OLGA
SIGURÐARDÓTTIR