Morgunblaðið - 20.11.2003, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 2003 51
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
SPORÐDREKI
Afmælisbörn dagsins:
Þú vilt bæta heiminn og ert
tilbúin/n að berjast fyrir
hugsjónum þínum. Komandi
ár mun að mörgu leyti
marka nýtt upphaf hjá þér.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Reyndu að vera þér meðvit-
andi um það sem þú ert að
gera. Það er hætt við að þú
færist of mikið í fang í dag.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Láttu ekki hugmyndir þínar
eða hugsjónir koma upp á
milli þín og vinar þíns. Vinátta
ykkar skiptir þig meira máli
þannig að þú ættir að hafa í
huga að vinir þurfa ekki alltaf
að vera sammála.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú hefur óþrjótandi metnað í
vinnunni. Þú þarft þó að gæta
þess að færast ekki of mikið í
fang og að ýta ekki fólki frá
þér.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú hefur miklar áætlanir
varðandi útgáfumál, menntun
og ferðalög. Farðu hægt af
stað. Þú getur alltaf aukið
hraðann síðar.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er líklegt að þú þurfir að
taka lán á næstunni vegna
ófyrirsjáanlegra útgjalda. Þar
sem þér hættir til eyðslusemi
ættirðu að fara sérlega var-
lega.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Reyndu að halda þig á jörð-
inni og líta á aðra sem jafn-
ingja. Annars er hætta á því
að þú farir að setja þig á háan
hest.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Vertu ekki of einstrengings-
leg/ur í vinnunni. Þú hefur
sennilega rétt fyrir þér en
málstaður þinn er ekki þess
virði að stofna til illinda út af.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Gættu þess að lofa ekki börn-
um eða maka þínum meiru en
þú getur staðið við í dag. Þig
langar til að gefa þeim allan
heiminn en við verðum öll að
lifa með takmörkunum okkar.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þig langar til að gera breyt-
ingar á heimilinu og þú ert
jafnvel tilbúin/n að leggja allt
undir til þess. Það væri skyn-
samlegra að fara hægar í
hlutina.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú þarft ekki að sannfæra
aðra um að þú hafir rétt fyrir
þér. Láttu þér standa á sama
um fáfræði annarra. Það mun
færa þér meiri sálarró.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Farðu varlega í fjármálunum
í dag. Þú hefur eytt miklu að
undanförnu og þarft að gæta
þess að fara ekki yfir strikið.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Gættu þess að ofgera þér
ekki. Þú þarft að sinna þörf-
um líkama þíns og forðast
óþarfa áhættur sem geta leitt
til slysa.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ÁRNAÐ HEILLA
80 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 20.
nóvember, er áttræð Árelía
Jóhannesdóttir frá Brekku
á Ingjaldssandi, til heimilis
að Bárugranda 11, Reykja-
vík. Hún tekur á móti gest-
um laugardaginn 22. nóv-
ember kl. 16 í sal Félags- og
þjónustumiðstöðvarinnar
Aflagranda 40.
BANDARÍKJAMENN
höfðu tapað 22 IMPum í
slemmusveiflum í byrjun úr-
slitalotunnar gegn Ítölum
og leikurinn var um það bil
að jafnast. Þeir náðu heldur
að rétta úr kútnum í næstu
spilum og leiddu með 12
IMPa mun þegar þetta spil
kom á borðið:
Vestur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ K74
♥ G874
♦ ÁG965
♣D
Vestur Austur
♠ 105 ♠ Á6
♥ Á96 ♥ KD32
♦ 107 ♦ D32
♣ÁG9732 ♣K1065
Suður
♠ DG9832
♥ 105
♦ K84
♣84
Í lokaða salnum keyptu
Bocchi og Duboin samning-
inn í þremur gröndum:
Vestur Norður Austur Suður
Duboin Rodwell Bocchi Meckstr-
oth
Pass 1 tígull Pass 1 spaði
2 lauf Dobl * Redobl 2 spaðar
Dobl * Pass 3 grönd Allir pass
Rodwell vekur kerf-
isbundið á tígli með
hundana í norður, enda stíll-
inn sá að opna létt. En Ítal-
irnir komast inn í sagnir og
eftir nokkrar stimpingar á
lægri nótunum lýkur Bocchi
sögnum með stökki í þrjú
grönd. Út kom spaði og
Bocchi tók sína upplögðu tíu
slagi: 430 í AV.
Í opna salnum passaði
Lauria í norður og Soloway í
austur vakti á 14-16 punkta
grandi:
Vestur Norður Austur Suður
Hamman Lauria Soloway Versace
Pass Pass 1 grand 2 tíglar *
3 grönd 4 hjörtu * Pass 4 spaðar
Pass Pass Dobl Allir pass
Ekki myndu margir
blanda sér í sagnir með spil
suðurs, en Versace lét sig
hafa það að vaða inn á
grandið á móti pössuðum
makker. Innákoman á
tveimur tíglum sýndi sexlit í
hjarta eða spaða, og þar eð
Lauria átti stuðning við
báða litina var auðvelt fyrir
hann að „fórna“ yfir þremur
gröndum.
Fjórir spaðar hefðu með
réttu átt að vera fórn, því
AV eiga fjóra toppslagi. En
það var eins og Soloway
væri alveg heillum horfinn.
Hamman kom út með tromp
og Soloway drap strax á ás-
inn og trompaði aftur út. Og
Versace gjörnýtti tækifær-
ið. Hann taldi líklegt að tíg-
uldrottningin væri í austur,
en varla önnur, því það er
ekki til siðs að vekja á
grandi með tvo tvíliti. Hann
fór því að stað með tígulgos-
ann og lét hann rúlla hring-
inn! Þegar hann hélt, var
tígullinn frír og 11 slagir í
húsi: 690 og 15 IMPar til
Ítala, sem voru nú komnir
yfir í leiknum.
Staðan var: Ítalía 281,
Bandaríkin 278, og átta spil-
um ólokið.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
Bjartir
nóvemberdagar
Dragtir, peysur, jakkar, pils
25%
afsláttur
Hverafold 1-3
Torgið Grafarvogi
Sími 577 4949
Opnunartími:
Frá kl. 11-18 mánud.-föstud.
og frá kl. 12-16 laugard.
Handklæði & flíshúfur
.
Fáið sendan
myndalista
Myndsaumur
Reykjavíkurvegur 62
220 Hafnarfjörður
Sími 565 0488
www.myndsaumur.is
Jólatilboð
Flíspeysur,
& flísteppi
Tilboð
15% afsláttur í 3 daga
Mokkajakkar • Mokkaúlpur • Mokkakápur
Mörkinni 6 • Sími 588 5518 • Opið laugardaga kl. 10-16
Skugginn – Barbara Birgis
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 26. júlí sl. í Háteigs-
kirkju af sr. Ægi Fr. Sig-
urgeirssyni þau Brynja
Sævarsdóttir og Albert
Bjarni Úlfarsson.
Skugginn – Barbara Birgis
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 26. júlí sl. í Hall-
grímskirkju af sr. Sigurði
Grétari Sigurðssyni þau Ás-
dís Björnsdóttir og Guðni
Már Harðarson.
Skugginn – Barbara Birgis
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 19. júlí sl. í Áskirkju
af sr. Braga J. Ingibergs-
syni þau Þóra Kristín Stein-
arsdóttir og Daði Júlíus
Agnarsson.
Misstirðu augnlinsu? Ég
skal hjálpa þér að leita ...
1. e4 Rf6 2. Rc3 d5 3. e5 d4
4. exf6 dxc3 5. bxc3 exf6 6.
d4 Be7 7. Bd3 O-O 8. Df3
Be6 9. Re2 Bd5 10. Dh3 g6
11. O-O Rc6 12. Rf4 Ra5 13.
Hb1 a6 14. Bd2 f5 15. Hbe1
Bf6 16. c4 Rxc4 17. Bb4
Bxd4 18. Bxf8 Kxf8 19.
Dxh7 Rb2 20. h4 Rxd3 21.
cxd3 Bxa2 22. h5 g5 23. Re2
Be6 24. h6 Df6 25. Rxd4
Dxd4 26. Hxe6 fxe6 27.
Dxc7 Kg8 28. Dxb7 He8 29.
h7+ Kh8 30. Df7 Dd8 31.
He1 Hf8 32. Dxe6 Df6 33.
Da2 Kxh7 34. He6 Df7 35.
d4 Hc8
Staðan kom upp í fyrri
hluta Íslandsmóts skák-
félaga, Flugfélagsdeildinni,
sem lauk fyrir nokkru í
Menntaskólanum í Hamra-
hlíð. Jón Viktor Gunn-
arsson (2412) hafði hvítt
gegn Ingvari Ásmundssyni
(2321). 36. Hh6+! og svartur
gafst upp enda verður hann
drottningu undir eftir 36...
Kg7 37. Hh7+.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
EINN Á BÁTI
Ég vind upp hið flöktandi, viðkvæma segl,
í vogum og sundum er flóð.
ég ætla út í heiminn í öreigans leit
að annarri og betri þjóð.
Á blikandi væng svífur bróðir vor már
um bláskæran norðursins geim.
Og svalandi kulið á klöppinni spyr:
Nær kemur þú aftur heim?
Það er alltsaman leyndarmál, elskaða kul,
en andaðu samt á mitt far,
því hugur minn allur er handan við sæ:
Ó, hvernig er fólkið þar?
Jóhannes úr Kötlum
LJÓÐABROT