Morgunblaðið - 20.11.2003, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 2003 C 3
NÚR VERINU Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Í einkasölu glæsilegt 950 fm húsnæði sem byggt var 1997 og stendur á
frábærum stað við hafnarbakkann. Húsið er steypt en klætt að utan með
Garðastáli. Lofthæð 5,3 m upp í 6,85 m. Húsið er fullbúið á afar vandað-
an hátt. 3.500 fm malbikað útisvæði. Glæsileg skrifstofuaðstaða. Upplýs-
ingar veitir Bárður Tryggvason sölustjóri gsm 896 5221 eða á skrifstofu.
Miklir möguleikar á nýtingu. Verð 57 m.
Þorlákshöfn
- v. hafnarbakkannndvinnslu
Ljósmynd/Þorvaldur Þóroddsson
r verið til reynslu með góðum árangri.
SAMKVÆMT rannsóknum byrjar ískristallamyndun í
vökva fiskholds við –1°C og þegar hitastigið er komið
niður í ca. –2°C er talið að 52% af vökvanum sé fros-
ið. Fiskur er talinn frosinn þegar meira en 50% af
frystanlegu vatni hans hefur breyst í ís. Undirkæling á
sér stað þegar hitastigi í fiskholdi er haldið á milli
0°C til –1°C. Þegar fiskholdið er kælt niður fyrir 0°C
er talað um að hann byrji að fara inn í fasaskipti
frystingar. Fasaskipti frystingar eru þegar ískristallar
byrja að myndast í vökvafasa fiskholdsins. Vökvinn í
fiskholdinu inniheldur meðal annars næringarsölt sem
valda því að frostmarkið er svona lágt. Í fasaskipt-
unum breytist seigja vökvans úr því að vera þunnfljót-
andi í seigfljótandi ástand og að lokum í ís.
Vinnslutækni Skagans byggist á því að undirkæla
fiskinn og stýra hitastigi hans á milli 0°C og mínus
1°C en þá er vökvinn í fiskholdinu í seigfljótandi
ástandi og því verður fiskholdið stífara og vökvatap úr
fiskinum er í lágmarki í allri eftirfarandi vinnslu. Á
þessu hitastigsbili er vökvanum haldið á fasaskiptum
frystingar og við það næst hámarksárangur í gæðum
og vinnslu.
Vinnsluferlið
Eftir flökun fara flökin inn á forsnyrtiband en þar eru
utanáliggjandi bein, himnur og ormar fjarlægð. Flökin
fara af forsnyrtibandinu á vog sem vigtar í kar sem í
er krapi með réttu hitastigi. Eftir u.þ.b. einnar
klukkustundar geymslu í krapa er flökunum raðað í
sérhannaðan roðkæli. Í roðkælinum liggur roðhlið
flaksins á teflonhúðuðu álfæribandi sem snöggkælir
þunnt lag af flakinu frá roðhliðinni og samtímis því er
kaldur blástur yfir flakinu. Það hefur komið í ljós að
vegna lágs hitastigs álfæribandsins leitar ormur und-
an kuldanum og verður því sýnilegri og auðveldari í
eftirfarandi snyrtingu.
Þegar flökin koma úr roðkælinum eru þau stíf og
fara gegnum roðdrátt án þess að skemmast en einnig
sér ný roðdráttarvél Skagans til þess að flakið sé
beint allan tíman og beygist ekki né vöðlist í valsinum
og því auðveldara að fjarlægja roð án þess að los
myndist. Eftir roðdrátt eru flökin beinhreinsuð og
snyrt og ýmist pakkað heilum eða þau hlutuð í sund-
ur.
Mismunur í vinnslu á viðkvæmu hráefni með losi og
loslausu hverfur með þessari nýju tækni.
Þessi nýja aðferð opnar leið fyrir Skagann hf. til að
fjarlægja beinagarðinn með sjálfvirkum hætti í fram-
haldi af roðdrættinum. Beinagarðurinn er fjarlægður
frá roðhlið flaksins með nýrri aðferð og flakið nýtist
betur í verðmætustu afurðirnar.
Ef fiskurinn er undirkældur frá því að hann kemur
upp úr sjó þá hægir mjög á því skemmdarferli sem
byrjar við dauða fisksins. Skaginn hf. býður krapaís-
kerfi sem geta framleitt ískrapa sem bráðnar við stýrt
hitastig þannig að hægt er að geyma fisk um borð í
lestum skipa í undirkældu ástandi, eða við – 0,5 °C.
Hvað er
undirkæling?
Myndirnar sýna ýsu sem var unnin við samanburðartilraunir
RF hjá Tanga. Efri myndin er af ýsu sem unnin var með nýrri
aðferð en sú neðri er af ýsu úr hefðbundinni vinnslu.
ari nýju vinnsluað-
ð auka líftíma vör-
fram betri gæði,
fari í dýrari vöru-
ka, auk betri nýt-
am auknum afköst-
framlegðin hefur
samt sem áður á
slu og ég er sann-
færður um að það má gera miklu betur.
Næsta skref er að setja krapakerfi um borð í
Bretting og bæta aðstöðuna um borð. Þannig
má lengja geymsluþolið enn frekar.
Þessi nýja tækni hefur alla burði til að um-
bylta landvinnslunni á næstu árum og auka
samkeppnishæfni hennar. Jafnframt mun út-
flutningsverðmæti fiskafla Íslendinga
aukast,“ segir Einar.
sbyggðina
skkortið
Morgunblaðið/Jón Sigurðarson
ðslustjóri hjá Tanga, með ferskfiskflök sem unnin voru með hinni
vegar til útflutnings með flugi en hinsvegar með skipi.
RAÐAUGLÝSINGAR
BÁTAR/SKIP
Til sölu
Cleópatra 28, árg. 1999
Er með 430 hp. Yanmar vél.
Er í krókaaflamarkskerfi. Þorskur 7.579 kg,
ýsa 9.913 kg, steinbítur 44.830 kg.
Skipasalan Bátar og búnaður,
Barónsstíg 5, 101 Reykjavík,
sími 562 2554, fax 552 6726.
Til sölu er Ási ÍS 106
með öllum veiðiheimildum
sem eru 35.600 þorskíg.
Báturinn er af gerðinni Skel 86, smíðaður 1995
með Perkins-vél 1995. Ml. 8,92 og br. 2,68. Brl.
7,49 og bt. 5,97. Óskað er eftir tilboðum í bátinn
þar sem hann er eins og hann er.
Dragnóta- og netabátur
með eða án veiðiheimilda
Smíðaður úr eik í Hafnarfirði 1977 með Cater-
pillar-vél 370 hö. Ml. 18,52 og br. 4,79. Brl. 29,7
og bt. 33. Í góðu ástandi.
Vantar allar gerðir skipa og báta á sölu-
skrá.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu í síma
551 7282 og 893 3985.
Þuríður Halldórsdóttir hdl.,
lögg. skipasali,
www.hibyliogskip.is