Morgunblaðið - 21.11.2003, Síða 1
STOFNAÐ 1913 316. TBL. 91. ÁRG. FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Verðmæt
auðlind
Hreint og heilbrigt vatn er talinn
sjálfsagður hlutur | Höfuðborg
Sjálftrekkt
í uppsveiflu
Til er fólk sem hefur brennandi
áhuga á úrum | Daglegt líf
Buddy
endurgerð
Sigurjón Sighvatsson kaupir endur-
gerðarrétt á norskri mynd | Fólk
BRESKA lögreglan áætlar að rúm-
lega 100 þúsund manns hafi komið
saman í miðborg Lundúna í gær til
að mótmæla stefnu George W. Bush
Bandaríkjaforseta. Hápunkturinn
var þegar stytta, sem átti að tákna
Bush með eldflaug undir hendinni,
var felld af stalli á Trafalgar-torgi.
Reuters
Felldur af stalli
Svar okkar/19
SIGURÐUR Einarsson, starfandi stjórnarformað-
ur Kaupþings Búnaðarbanka, og Hreiðar Már Sig-
ururðsson, forstjóri bankans, hafa hvor um sig
keypt hluti í Kaupþingi Búnaðarbanka fyrir rúmar
950 milljónir króna, samkvæmt kaupréttarsamn-
ingum við bankann. Gengið á bréfunum í kaupunum
er 156. Gengið í kaupum annarra lykilstjórnenda
bankans samkvæmt kaupréttarsamningum er 210.
Lokaverð á hlutabréfum í bankanum í Kauphöll Ís-
lands í gær var 216. Söluverð hluta þeirra Sigurðar
og Hreiðars Más næmi samkvæmt því um 1.315
milljónum króna. Söluhagnaður hvors um sig gæti
því verið um 365 milljónir króna. Þeir verða hins
vegar að eiga bréfin í 5 ár áður en þeir geta selt þau.
Samhliða viðskiptunum hefur bankinn veitt
kaupendum sölurétt að keyptum hlutum sem ver þá
fyrir mögulegu tapi af viðskiptunum.
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra, segist vera hissa. „Mér finnst að þetta
gangi lengra en ég get sætt mið við þannig að ég láti
ekki í mér heyra. Ég hef ekki verið með stór orð um
það sem er að gerast á markaðinum en mér ofbýð-
ur. Mér finnst felast í þessu mikil ögrun. Og það er
umhugsunarefni að það skuli vera heimilt að gera
kaupréttarsamninga sem miðast við gengi undir
markaðsverði, eins og er í þessu tilviki.“
Valgerður segir að ímynd fyrirtækja skipti miklu
máli og menn verði að hugsa sig tvisvar um áður en
þeir fara út í aðgerð af þessu tagi.
Hluti af ráðningarsamningum
Sigurður Einarsson segir að verðið á hlutabréf-
um hans og Hreiðars Más Sigurðssonar sé hluti af
ráðningarsamningi þeirra við bankann. Hluthafa-
fundur hins sameinaða banka hafi samþykkt að fela
stjórn bankans að ganga frá kaupréttarsamningi
við starfsmenn.
Hjörleifur Jakobsson, varaformaður stjórnar
Kaupþings Búnaðarbanka, segir að gengið í kaup-
réttarsamningum Sigurðar og Hreiðars Más miðist
við 30. júní síðastliðinn, en þá hafi runnið út samn-
ingar sem þeir hafi haft við Kaupþing. Gengi hluta-
bréfa félagsins hafi hins vegar hækkað mikið á þeim
tíma sem liðinn er og hugsanlegur hagnaður þeirra
af sölu hlutabréfanna þar með. Þeir séu hins vegar
ekki búnir að hagnast neitt ennþá þar eð þeir séu
bundnir af því að eiga hlutabéfin í ákveðinn ára-
fjölda og megi ekki selja þau strax. Auk þess þurfi
þeir að greiða vexti af lánum til að fjármagna kaup-
in og þeir vextir dragist frá hugsanlegum hagnaði.
Hann segir að með kaupréttarsamningunum hafi
stjórnin verið að leitast við að tryggja að lykilstjórn-
endur starfi áfram hjá bankanum og binda þannig
saman hagsmuni þeirra og hluthafanna, sem von-
andi verði báðum aðilum til hagsbóta.
Sólon R. Sigurðsson, sem er forstjóri Kaupþings
Búnaðarbanka ásamt Hreiðari Má, segir að ástæð-
an fyrir því að hann sé ekki meðal lykilstjórnenda
sem hafi gert kaupréttarsamninga við bankann, sé
sú að samningarnir séu til þriggja eða fimm ára, en
hann ætli sér ekki að starfa svo lengi hjá bankanum.
Gunnar Páll Pálsson, formaður Verslunarmanna-
félags Reykjavíkur og stjórnarmaður í Kaupþingi
Búnaðarbanka, segir að sérstök launanefnd hafi
skilað umræddum tillögum um kaupréttarsamn-
inga, sem lagðar hafi verið fyrir stjórnina. Hann
segist ekki hafa samþykkt þær tillögur.
Valgerður Sverrisdóttir um kauprétt tveggja stjórnenda Kaupþings Búnaðarbanka
Mér ofbýður - þetta
er mikil ögrun
Hluti af ráðningarsamningum, segir Sigurður Einarsson Kaupendur varðir fyrir
hugsanlegu tapi Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, samþykkti ekki samningana
Markaðsvirðið/16
Hörður Erlingsson var staddur í Ist-
anbúl ásamt eiginkonu sinni, Ernu
Jónu Sigmundsdóttur markaðs-
stjóra sem skipulagði þar læknaráð-
stefnu. 13 manns eru í íslenska hópn-
um. Hörður sagði þau hafa verið á
hóteli um kílómetra frá staðnum.
„Herbergið okkar skalf mikið og
við vissum strax að þetta voru
sprengjur,“ sagði Hörður. „Hér voru
tvær sprengingar á laugardag, í
sama hverfi og við búum í, Evrópu-
megin við Bosporus. Fólk er greini-
lega slegið og Tyrkir spyrja: Af
hverju við? Af hverju hér? Fólk er
eins og lamað, það sá ég í dag þegar
ég átti erindi í grennd við sprengju-
staðinn. Búið var að loka svæðið af.
Þetta var skelfilegt að sjá, menn
voru að sópa upp glerbrot og tína
upp sundursprengda bíla.
Við fljúgum heim á morgun [föstu-
dag] um London og það er nú ekki
uppörvandi að fara með British Air-
ways,“ sagði Hörður Erlingsson.
Viðbúnaður í Bretlandi vegna
heimsóknar George W. Bush Banda-
ríkjaforseta varð til þess að al-
Qaeda-menn ákváðu að gera ekki
árás í London heldur Istanbúl, sem
er „auðveldara skotmark“, að sögn
sérfræðinga. En tímaspursmál væri
hvenær tilræði hæfust í Bretlandi.
Óttast árás
á Bretland
London, Istanbúl. AFP.
Tugir manna/19
LEIÐTOGAR um allan heim fordæmdu sprengjutilræðið við breskan banka
og ræðismannsskrifstofu í Istanbúl í gærmorgun sem kostaði að minnsta
kosti 27 manns lífið. Sérfræðingar í málefnum hryðjuverkahópa segja að mik-
il hætta sé á að fljótlega verði gerðar mannskæðar árásir í Bretlandi.
SÆRÐUM Tyrkja er hjálpað út úr stórskemmdri byggingunni sem hýsir
meðal annars bresku ræðismannsskrifstofuna í Istanbúl. Sprengingarnar
voru tvær, önnur við skrifstofuna en hin við banka með aðalstöðvar í Lond-
on. Talið er að samtök í tengslum við al-Qaeda hafi skipulagt árásina.
Reuters
Harmleikur í Istanbúl
BANDARÍSKI tónlistarmaðurinn
Michael Jackson var í gær handtek-
inn í Santa Barbara í Kaliforníu eftir
að hann gaf sig fram við lögreglu.
Jackson er sakaður um að hafa
leitað á 12 ára dreng á búgarði sín-
um. Jackson, sem er 45 ára, var lát-
inn laus gegn tryggingu sem nam
þrem milljónum dollara, um 225
milljónum króna. Er hann hvarf á
brott brosti hann og myndaði sigur-
merkið, v, með fingrunum. Hann á
nokkurra ára fangelsisdóm yfir höfði
sér verði hann fundinn sekur.
Jackson
handtekinn
Santa Barbara. AP.
Michael Jackson í handjárnum á
leið inn í fangelsið í gær.
Reuters