Morgunblaðið - 21.11.2003, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Borðstofuhúsgögn úr eik
Borðstofuskápur
B. 171 sm
H. 209 sm
D. 52 sm
kr. 138.240
Borðstofuborð
B. 90 sm x L. 190 sm
kr. 59.130
Stóll kr. 17.820
Skenkur L. 234 sm,
H. 105 sm, D. 52 sm
kr. 103.950
Glerskápur B. 117 sm,
H. 189 sm, D. 52 sm
kr. 84.780
Eftir val kónganna á dráttarhrossunum, liggur ljóst fyrir hvert ferðinni er heitið.
Skógræktarfélag Reykjavíkur
Fólk sækir í
skóglendi
SkógræktarfélagReykjavíkur hefurráðið nýjan fram-
kvæmdastjóra, Helga
Gíslason, og ræddi Morg-
unblaðið við hinn nýbak-
aða framkvæmdastjóra.
Hvað er svona heillandi
við skógrækt?
„Það eru áhrif skógarins
á manninn, eða bætt
mannlíf. Fólk sækist mjög
eftir útiveru í skógum. Tvö
dæmi gæti ég nefnt, Heið-
mörk heimsækja 250 þús-
und manns á ári og Hall-
ormsstaðaskóg um 50
þúsund. Fólki líður vel í
miklum gróðri og það af
margvíslegum ástæðum.
Skógurinn er fagur, dulúð-
legur, þar er skjól, meiri
hiti og allir sem hafa komið
í skóg vita að þar er meira fuglalíf
en á berangri og þeir sem hafa
áhuga á fuglum sækjast eftir að
komast í skóga af þeim sökum.
Menning tengd skógum og
skógrækt er sérstök og býður upp
á öðruvísi menningu en almennt
gerist. Þar er auðvelt að halda úti-
samkomur hverskonar, þar sem
hægt er að kveikja upp varðelda
og stunda fjölskylduleiki, böll og
stórveislur við stórkostlegar að-
stæður. Listviðburðir utanhúss
eru farnir að færast meir inn í
skógana. Þá er skógarhögg á vet-
urna afar sérstök vinna sem
krefst mikillar færni og við það
vinna hinir mestu harðjaxlar.
Sumarvinnan er að miklu leyti
gróðursetningar þar sem ungling-
ar eru oft að kynnast atvinnulífinu
í fyrsta sinn og er venjulega mikil
gleði og kátína ríkjandi í hópum
þeirra. Síðan eiga Íslendingar
orðið öfluga sveit vel menntaðra
skógfræðinga og annarra sér-
fræðinga tengdum skógræktinni,
sem stunda rekstur skóglenda,
sem er í raun auðlindastjórnun,
sjá um skipulagsmál, stunda til-
raunir og rannsóknir.“
Segðu okkur aðeins frá starf-
semi Skógræktarfélags Reykja-
víkur.
„Þetta er félag sem byggist á
gömlum grunni og hefur í gegnum
tíðina haft mikil umsvif. Félagið
hefur á að skipa öflugri stjórn og
reyndum starfsmönnum. Helstu
umsvif þess eru umsjá Heiðmerk-
ur fyrir Reykjavíkurborg og síðan
hið merka hús Elliðavatn sem
Orkuveitan á, eða elsta hluta
hússins sem Benedikt Sveinsson,
faðir Einars Ben., byggði 1862. Í
því húsi er fyrirhugað að hafa m.a.
öfluga fræðslustarfsemi sem á að
geta þjónað gestum sem inngang-
ur að Heiðmörk og starfsemi fé-
lagsins. Vilji félagsins er, að þar
verði rekinn náttúruskóli. Heið-
mörkin er afar fjölbreytt svæði
með vötnum, votlendi, hraunum
og skógi. Það hefur komið mér
skemmtilega á óvart hvað skóg-
urinn þarna er stór, u.þ.b. 688
hektarar af gróðursetningum og
605 hektarar af birkiskógi og því
slagar flatarmálið vel í
Hallormsstaðaskóg.
Núna er sala jólatrjáa í
fullum gangi og fer hún
að mestu þannig fram
að vinnustaðir, skólar
og stofnanir hafa samband við
okkur og fara síðan út í skóg
ásamt starfsmanni félagsins þar
sem fólk velur síðan sitt jólatré
sjálft.“
Þínar helstu áherslur í nýju
starfi?
„Þær munu helst vera umhirða,
grisjun á Heiðmörk og að halda
áfram þeirri ágætu uppbyggingu
á útivistaraðstöðu sem þar hefur
verið. Fræðslumálin verða síðan
mjög ofarlega á baugi bæði til fé-
lagsmanna, sem eru 1.200, og ann-
arra borgarbúa, en sem lands-
byggðarmaður tel ég nauðsynlegt
að þeir fái að kynnast þeim stór-
felldu skógræktarframkvæmdum
sem eru nú í gangi um land allt og
að landsbyggðin fái að kynnast
skógrækt á höfuðborgarsvæðinu.“
Muntu breyta miklu?
„Stjórn félagsins hefur unnið að
endurskipulagningu á starfsem-
inni og hefur farið í gegnum mikla
stefnumótunarvinnu og geri ég
ráð fyrir að fylgja þeim línum sem
þar eru lagðar.“
Hver er helsti munur á skóg-
rækt á höfuðborgarsvæðinu eða á
Héraði?
„Markmið skógræktar á Héraði
er að byggja upp hráefnisauðlind
og með því að styrkja byggðina
þar. Hér er verið að byggja upp
annars konar auðlind eða bæta
umhverfi þannig að fólk geti notið
útivistar. Oftast fara þessi mark-
mið ágætlega saman en þó er
þarna ákveðinn áherslumunur við
skipulag og vinnubrögð.“
Það er oft talað um að skógrækt
fari illa saman við aðra umhverf-
isstarfsemi, t.d. endurheimt vot-
lendis.
„Þetta fer mjög vel saman. Það
er yfirlýst stefna þeirra sem
stunda skógrækt að vernda vot-
lendi. Það hefur ekkert vistkerfi á
Íslandi farið jafnilla og skógarnir
okkar. Þeim hefur nánast verið
gjöreytt og því hafa lífverur eins
og t.d. skógarfuglar nánast alfarið
tapað búsvæði sínu. Búast má við
að við höfum tapað einhverjum
tegundum og öðrum hafi fækkað
þótt slíkt sé órannsak-
að. Skógrækt er al-
mennt vel skipulögð og
ávallt reynt að taka til-
lit til votlendis, nátt-
úru- og mannvistarm-
inja.“
Sérðu Ísland fyrir þér í náinni
framtíð, „viði vaxið milli fjalls og
fjöru“?
„Nei, og því miður. Miðað við
hraða skógræktarframkvæmda í
dag verða aðeins um 2 prósent
landsins skógi vaxin eftir hálfa
öld. Núna þekur skógurinn aðeins
um 0,3% af flatarmáli landsins, en
var vel yfir 30% við landnám.“
Helgi Gíslason.
Helgi Gíslason er fæddur í
Neskaupstað 8. október 1962.
Skógræktarfræðingur frá Land-
bruksuniversitet í Svíþjóð og
tækninám í faginu við Skog-
bruksskola. Réðst 1990 til Hér-
aðsskóga sem framkv.stjóri og
framkv.stjóri Austurlandsskóga
frá 2001 Er nú framkv.stjóri
Skógræktarfélags Reykjavíkur.
Helgi á eina dóttur, Tinnu Björk.
Skógrækt er
almennt vel
skipulögð