Morgunblaðið - 21.11.2003, Blaðsíða 19
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2003 19
UPPBOÐ
á persneskum teppum í hæsta gæðaflokki
Stórkostlegur fengur fyrir þá sem þekkja til slíkrar gæðavöru.
EINSTÖK PERSNESK TEPPI
og önnur fyrirtaks austurlensk teppi af hæsta alþjóðlega
gæðastaðli ásamt stórfenglegum persneskum og austurlenskum,
sérhönnuðum skrautteppum í ýmsum stærðum.
Að þessu sinni bjóðum við úrval handofinna austurlenskra teppa í hæsta gæðaflokki:
Skrautofið persneskt Nain úr silki 300 x 200 cm
Fínofið silkiblandað Isfahan 176 x 116 cm
Fíngert Srinagar teppi úr silki 331 x 240 cm
Sígilt Allabahad teppi 353 x 243 cm
Persneskt Kashan úr alsilki, afar verðmætt 150 x 100 cm
Persneskt Tabriz teppi, skrautofið 391 x 297 cm
Glæsileg persneskt Sarouk teppi 287 x 198 cm
Skrautlegur persneskur Zandjan dregill 287 x 114 cm
Satín Agra motta, afar glæsileg 182 x 125 cm
Einstakt persneskt Nahavand teppi 320 x 218 cm
Auk þess bjóðum við mikinn fjölda af úrvals persneskra og austurlenskra gólfmotta,
dregla og teppa sem verða boðin upp og seld á uppboðinu.
Við ábyrgjumst að hvert teppi sé ósvikið, handunnið og að ekki hvíli
á því neinar útistandandi skuldir eða gjöld.
SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER
UPPBOÐ KL. 15:00, HÆGT ER AÐ SKOÐA VÖRUNA FRÁ KL. 12:30
í Sunnusal á
RADISSON SAS Hótel Sögu
Greiðslumáti: Reiðufé, ávísanir með bankaábyrgð, öll helstu greiðslukort.
FREKARI UPPLÝSINGAR FÁST VIÐ SKOÐUN OG Á UPPBOÐINU
sem haldið er í samvinnu við Bickenstaff and Knowles, alþjóðlega uppboðshaldara
í Lundúnum. Uppboð þetta er haldið samkvæmt tilskipun alþjóðlegs stórbanka
til að nýta haldsrétt vegna umtalsverðra vanskila og gjaldþrots leiðandi heildsala
á persneskum teppum.
G A L L E R Í F O L D
AÐ minnsta kosti 27 manns týndu
lífi í sjálfsmorðsárásunum á bresku
ræðismannsskrifstofuna og breska
HSBC-bankann í Istanbúl í Tyrk-
landi í gær. Meðal hinna látnu er
aðalræðismaður Breta í borginni.
Abdulkadir Aksu, innanríkisráð-
herra Tyrklands, sagði, að um 450
manns hefðu særst í árásunum, sem
áttu sér stað á sama tíma.
„Þeir, sem gerðu árásirnar, tætt-
ust sjálfir í sundur í sprengingun-
um,“ sagði Aksu en tyrkneska
fréttastofan Anatolia sagði, að
þangað hefði verið hringt og sagt,
að al-Qaeda, hryðjuverkasamtök
Osama bin Ladens, og Íslamska
framvarðafylkingin hefðu staðið
saman að árásunum. Eru þau einn-
ig sögð hafa borið ábyrgð á árás-
unum á tvö samkunduhús gyðinga í
Istanbúl sl. laugardag en þá biðu 25
manns bana og meira en 300 særð-
ust. Aksu sagði, að tveimur pall-
bílum hlöðnum sprengiefni hefði
verið ekið að byggingunum.
Eins og jarðskjálfti
„Fyrst héldum við, að það hefði
orðið jarðskjálfti en svo áttuðum
við okkur á, að þetta var sprengju-
árás, líka vegna þess, að þarna er
mikið af nýtískulegum byggingum,
táknum kapítalismans,“ sagði tyrk-
neskur maður, sem var staddur
skammt frá 15 hæða HSBC-bank-
anum. Sprungu allar rúður í húsinu
og var umhverfið allt þakið í gleri.
Á götunni mátti einnig sjá blóðpolla
en þar var margt um manninn í
verslunarerindum er sprengjan
sprakk.
Murat Emre Duman hringdi í vin
sinn en kona hans var að vinna í
byggingunni. Fljótlega kom í ljós,
að hún var meðal hinna látnu. „Ég
sá lík hennar,“ sagði Duman, „en
vinur minn þekkti mig ekki. Hann
varð fyrir svo miklu áfalli.“
Annar maður, Hasan að nafni,
kvaðst hafa komið á vettvang strax
eftir sprenginguna við ræðismanns-
skrifstofuna. Sagði hann, að tveir
lögreglumenn, sem þar hefðu verið
á verði, hefðu legið látnir á götunni
og annar maður, götusali handan
götunnar, „hafði þrýst inn í hús-
vegginn við sprenginguna“. Hvert
sem litið var sá hann blóðidrifið og
slasað fólk.
Aðalræðismaður fórst
Ian Sherwood, prestur í bresku
ræðismannsskrifstofunni í Istan-
búl, sagði, að aðalræðismaðurinn,
Roger Short, hefði farist í spreng-
ingunni en hann hafði búið um sig í
einni álmu meðan verið var að end-
urnýja aðalbygginguna. Hrundu
tvær álmur hennar alveg í árásinni.
Breska utanríkisráðuneytið sagði
í gær, að allt að 14 starfsmenn ræð-
ismannsskrifstofunnar hefðu látið
lífið, breskir og tyrkneskir. Varaði
það einnig breska þegna við að fara
að nauðsynjalausu til Istanbúl og
HSBC-bankinn tilkynnti, að öllum
útibúum hans í Tyrklandi hefði ver-
ið lokað af öryggisástæðum.
Fram kom á sjónvarpsstöð í Ist-
anbúl í gær, að hluti af framhlið að-
alstöðva HSBC-bankans hefði
hrunið og inni í byggingunni og fyr-
ir utan hana ægði saman braki og
blóðugum líkamshlutum.
Sundurtætt lík
„Hér eru sundurtætt lík um allt,
fætur, hendur og annað. Við fund-
um blóðuga fingur í 25 metra fjar-
lægð frá húsinu,“ sagði einn björg-
unarmannanna en í
bankabyggingunni voru 600 manns
að störfum er sprengjan sprakk.
Fréttamenn sögðu í gær, að í
næsta nágrenni við HSBC-bankann
hefðu menn verið að fjarlægja nafn-
skilti á erlendum fyrirtækjum og
einnig á verslunum með erlendum
nöfnum. Stórverslunin Akmerkez
var mannlaus og öll börn í skólum í
grenndinni voru send heim.
Tugir manna fórust
í árásum í Istanbúl
Al-Qaeda-samtökin sögð hafa lýst yfir ábyrgð á hryðju-
verkunum. Aðalræðismaður Breta meðal hinna látnu.
Istanbul. AP, AFP.
Reuters
Stórhýsi breska HSBC-bankans eftir sjálfsmorðsárásina. Inni í því og umhverfis ægði saman gleri, braki og blóð-
ugum líkamshlutum fólks, sem lét lífið í sprengingunni. Hefur öllum útibúum bankans í Tyrklandi verið lokað.
"#$
%&'() ) (*+!# & *
$ " ,*- .
"#$
/ 0 . , 1
'
(*+!#
0&
Reuters
Tyrknesk kona, sem særðist í
sprengingunni við bresku ræð-
ismannsskrifstofuna, borin hljóð-
andi í sjúkrabíl.
GEORGE W. Bush Bandaríkjafor-
seti og Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, fordæmdu sjálfsmorðs-
árásirnar í Istanbúl í gær, lýstu þeim
sem „villimannslegri“ atlögu að
frjálsum þjóðum og sögðu að tilræð-
in myndu aðeins styrkja þá í þeim
ásetningi að uppræta hryðjuverka-
starfsemi í heiminum.
„Þeir hata frelsið. Þeir hata frjáls-
ar þjóðir,“ sagði Bush á blaðamanna-
fundi með Blair í London og bætti
við að hryðjuverkamennirnir væru
að reyna að hræða kjark úr frjálsu
þjóðunum. „Þeim tekst það ekki. Við
erum sameinuð í þeim ásetningi að
berjast gegn þessum illu öflum hvar
sem þau finnast.“
Blair tók í sama streng. „Svar okk-
ar er að hvika hvergi í baráttunni og
gefa ekki hætis hót eftir. Við megum
ekki halda aftur af okkur, fallast á
málamiðlanir eða hika í baráttunni
gegn þessari ógn.“
Hermönnunum fjölgað?
Bush og Blair vöruðu við andvara-
leysi og notuðu sprengjuárásirnar í
Istanbúl til að réttlæta hernám
Íraks þrátt fyrir aukið mannfall þar
að undanförnu. Bush sagði að sú
stefna sín að koma á traustu lýðræði
í Írak væri „nauðsynlegur þáttur í
því að sigrast á þessu ofstæki“ sem
hefði kostað saklaust fólk lífið víða
um heim.
Bush gaf til kynna að til greina
kæmi að fjölga bandarísku hermönn-
unum í Írak, fremur en að fækka
þeim eins og margir hafa getið sér til
um að verði gert þegar Írakar taka
við völdunum um mitt næsta ár.
„Við gætum haft færri hermenn,
jafnmarga eða fleiri hermenn …
hvað sem þarf til að tryggja öryggi
Íraks.“
Svo virtist sem Bush og Blair hefði
ekki tekist að leysa deilu ríkjanna
um níu breska ríkisborgara sem
grunaðir eru um aðild að hryðju-
verkastarfsemi og eru í haldi í
bandarísku flotastöðinni í Guant-
anamo á Kúbu.
Blair sagði að deilan yrði leyst
„bráðlega“. „Réttlætinu er fullnægt,
meðferðin á föngunum er mannúð-
leg,“ sagði Bush.
Þegar forsetinn var spurður um
fjöldamótmælin gegn heimsókn hans
í London í gær kvaðst hann vera
ánægður með að vera í landi þar sem
fólk gæti sagt hug sinn að vild. „Ég
veit bara að fólki í Bagdad var ekki
leyft að gera þetta fyrr en nýlega.“
„Svar okkar
er að hvika
hvergi“
Bush og Blair segja tilræðin styrkja
þá í þeim ásetningi að sigrast á
hryðjuverkasamtökum
London. AFP, AP.
Reuters
George W. Bush, forseti Bandaríkj-
anna, og Tony Blair, forsætisráð-
herra Bretlands, á blaðamanna-
fundinum í London gær.