Morgunblaðið - 21.11.2003, Blaðsíða 57
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2003 57
DÝRAVINIR í Bandaríkjunum eru
voðalega sárir út í Clay Aiken,
helstu stjörnuna sem bandaríska
Idol-Stjörnuleitin hefur getið af
sér. Ástæðan er sú að Aiken asn-
aðist til að lýsa því yfir í viðurvist
blaðamanns að hann þoldi ekki
heimilisketti.
Aiken lenti í öðru sæti í síðustu
Idol-keppni vestra á eftir Ruben en
hefur síðan þá notið mun meiri vin-
sælda og til marks um það fór nýút-
komin fyrsta plata hans Measure of
a Man beint á toppinn vestra og hef-
ur nú selst í yfir tveimur milljónum
eintaka. Aiken er því mjög áber-
andi í bandarískum fjölmiðlum og
eftir því tekið hvað hann lætur út
úr sér.
Blaðamaður Rolling Stone tíma-
ritsins hafði eftir honum og birti í
síðasta tölublaði: „Ég veit ekkert
verra en heimilisketti.“ Dýravernd-
unarsamtökin Peta hafa hótað því
að birta auglýsingar þar sem gert
er grín að Aiken, dragi hann um-
mæli sín ekki til baka. Að auki hafa
samtökin þrýst mjög á hann að
hann leggja átaki lið sem hvetur
kattaeigendur til að láta gelda ketti
sína.
Clay er enginn
kattavinur
Reuters
Clay kærir sig miklu frekar um
Ruben en ketti.
BANDARÍSKI kvikmyndaframleið-
andinn Jack Valenti spáir því að árið
2005 verði kvikmyndum dreift á Net-
inu um leið og hætt hefur verið að
sýna þær í kvikmyndahúsum og
hægt verði að hala kvikmyndir niður
af Netinu með löglegum hætti áður
en þær koma út á myndbandi eða
mynddiski.
Á fréttavef BBC er haft eftir Val-
enti, sem er formaður samtaka
bandarískra kvikmyndaframleið-
enda, að nánast sé búið að tryggja að
dreifing kvikmynda á Netinu verði
örugg. Þar kemur einnig fram að
kvikmyndaframleiðendur ætli ekki
að feta í fótspor tónlistarútgefenda
og höfða mál gegn þeim sem verða
uppvísir að því að sækja tónlist á
Netið með ólöglegum hætti.
Það færist í vöxt, með bættum net-
tengingum, að hægt sé að finna nýj-
ar kvikmyndir á Netinu. Margar af
stærstu myndum á þessu ári, þar á
meðal Matrix endurhlaðið og Hulk
voru komnar á Netið áður en þær
birtust á hvíta tjaldinu. Kvikmynda-
framleiðendur hafa einnig gert til-
raunir með kvikmyndadreifingu á
Netinu með löglegum hætti. Á net-
síðunni Movielink er hægt að hala
niður myndir gegn gjaldi en þær
myndir eru allar nokkurra mánaða
gamlar og þjónustan stendur aðeins
til boða innan Bandaríkjanna.
Kvikmyndum dreift
á Netinu árið 2005?
Brátt verður hægt að veiða
Köngulóarmanninn í eigið net … og
það löglega.
SIGURJÓN Sighvatsson hefur
keypt endurgerðarréttinn á norsku
kvikmyndinni Buddy, sem hefur
notið mikilla vin-
sælda í heima-
landinu og verð-
ur nú framleidd í
Bandaríkjunum.
Sigurjón kom til
landsins frá Nor-
egi í gær en
skrifað var undir
samninginn í
fyrradag. Mynd-
in, sem er hugljúf
saga um ástir og vinskap, er önnur
vinsælasta mynd ársins í Noregi en
í kringum 300 þúsund manns hafa
séð hana. Aðeins önnur myndin um
Elling slær hana út með aðsókn upp
á 400 þúsund manns, útskýrir Sig-
urjón. „Hún hefur líka unnið til
verðlauna á kvikmyndahátíðum um
allan heim,“ segir hann.
„Þetta er búið að vera í bígerð
síðan áður en myndin kom út,“ seg-
ir Sigurjón um aðdragandann en nú
er endurgerðarrétturinn loks í
höfn. „Ég er að ganga frá samn-
ingum við amerískan leikstjóra sem
kæmi inn í verkið með mér. Síðan
förum við í það að ákveða hvar við
setjum myndina upp, hvort það
verði í stúdíói,“ segir hann um
næsta skrefið. „Ég hef verið í við-
ræðum við nokkuð þekktan ungan
amerískan leikstjóra um þetta,“
segir Sigurjón en ekki er búið að
skrifa undir þannig að hann vill
ekki upplýsa að svo stöddu hver
þetta sé.
Þetta er ekki fyrsta norska
myndin sem Sigurjón kaupir end-
urgerðarréttinn á því áður hefur
hann keypt réttinn að Elling sem er
nú í framleiðslu í Bandaríkjunum.
Hann segir að norskar myndir
virðist hafa víða skírskotun og því
séu þær eftirsóknarverðar til end-
urgerðar. Svefnleysi (Insomnia),
með Al Pacino í aðalhlutverki, er
dæmi um þetta en hún er gerð eftir
norskri mynd.
Sigurjón Sighvatsson kaupir endurgerðar-
Buddy endurgerð
Sigurjón
Sighvatsson
réttinn á vinsælli norskri mynd
Frá tökum á Buddy í Noregi en
þessi vinsæla mynd verður nú end-
urgerð í Bandaríkjunum.