Morgunblaðið - 21.11.2003, Blaðsíða 58
58 FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Miðasala opnar kl. 15.30
3D
gleraugu
fylgja hverjum
miða
Það sem þú veist um ótta kemst
ekki nálægt þessu.
Beint átoppinn í
USA!
Sýnd kl. 8 og Powersýning kl. 10.10. B.i. 16
kl. 5.40, 8 og 10.10. B.i. 16 ára
Stranglega bönnuð innan 16 ára!
Kvikmyndir.com
Skonrokk FM909
ÞÞ FBL
HJ MBL
HK DV
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 10.
Sýnd kl. 4 og 6. Með íslensku tali.
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 16. Sýnd kl. 4 og 6.
Medallían er annað öflugasta
vopn í heimi.
Hann er það öflugasta!
Frábær mynd stútfull af gríni
og spennu!
Power-sýningkl. 10
FRUMSÝNING
Powe
r-
sýnin
g
kl. 10
.10
Sýnd kl. 4, 6, 8 og Powersýning kl. 10. B.i. 10.
Will
Ferrell
Kvikmyndir.com
Hann hélt alltaf að hann væri bara
venjulegur álfur, þangað
til annað kom í ljós.
Sýnd kl. 8. B.i. 10.
Sýnd kl. 6. Með íslensku tali.
Sýnd kl. 10.Sýnd kl. 6.
Will
Ferrell
Kvikmyndir.com
Stranglega bönnuð innan 16 ára!
Beint átoppinn í
USA!
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16.
Það sem þú veist um ótta kemst
ekki nálægt þessu.
Stærsta
grínmynd
ársins!
í
i !
Frábær skemmtun
fyrir alla
fjölskylduna
HEIMILISFÓLK á Sólheimum gerði sér glaðan dag á
sunnudaginn. Þá var þeim boðið í bæjarferð af Lions-
klúbbnum Ægi. Höfðu Lionsmenn tekið sig til og skipu-
lagt skemmtidagskrá fyrir vini sína á Sólheimum.
Byrjað var á því að bjóða fólkinu í bíó í Laugarásbíó.
Fyrir valinu varð jólamyndin Álfur, sem sýnd er með ís-
lensku tali og var hlegið dátt að öllum látalátunum.
Að myndinni lokinni var haldið í Smáralindina þar
sem bundinn var endi á góða bæjarferð með því að að
snæða kvöldverð á Friday’s í Vetrargarði Smáralind-
arinnar. Tóku menn hraustlega til matar og drykkjar
enda framundan löng keyrsla austur á Sólheima.
Áður en Smáralindin var kvödd voru allir leystir út
með gjöfum frá aðstandendum Smáralindarinnar.
Vinirnir á Sólheimum fóru í fjörlega bæjarferð
Bíó og út að borða
Síkátar í Smáralind: Guðrún Rósalind og Þorbjörg. Hanný María og Reynir Pétur sæl og södd.
Morgunblaðið/Eggert
Það var mikil stemmning á Friday’s þegar heim-
ilisfólkið í Sólheimum mætti í heimsókn.
YFIR hundrað unglingar skemmtu
sér hið besta á fjölmenningarvöku
sem haldin var aðfaranótt laug-
ardags í Fella- og Hólakirkju.
Krakkarnir gerðu ýmislegt sér til
dundurs um nóttina, fræddust um
fordóma, gæddu sér á pitsum og
eldsterkum mexíkönskum mat auk
þess sem þau bjuggu til kínversk-
ar pappírströnur. Þau söfnuðu
áheitum frá fyrirtækjum í ná-
grenninu, upp á 35.000 krónur sem
notaðar verða til að fara í ferð þar
sem krökkum af erlendum upp-
runa verður sérstaklega boðið
með.
Æskulýðsfélag kirkjunnar stóð
fyrir viðburðinum.
Morgunblaðið/Jim Smart
Svandís Ósk Sveinsdóttir og Sigmar Ómarsson með pappírsfuglana.
Fjör í Fella- og Hólakirkju
Ian Anderson,
leiðtogi einu þjóð-
lagaþungarokks-
sveitar heims,
Jethro Tull, hef-
ur tekist að særa
bandaríska þjóð-
arsál. Í viðtali við
dagblað í New Jersey á dögunum
sagði Anderson eftirfarandi: „Ég
þoli ekki að sjá bandaríska fánann
hangandi úti um alla skutbíla, jeppa
og í öllum heimilum að því er virðist í
Miðvesturríkjunum.“ Þessar at-
hugasemdir Andersons urðu til þess
að lög með Tull voru fjarlægð af út-
varpsstöð í New Jersey. Anderson
hefur nú beðist velvirðingar á þess-
ari yfirlýsingu sinni. Hann segir
m.a.: „Ég var ekki að mótmæla
bandaríska fánanum sem slíkum,
heldur flöggunarhneigð almennt. Ég
gerði mér ekki grein fyrir – þrátt
fyrir að hafa ferðast um Bandaríkin í
meira en 35 ár – að fáninn hefði
svona djúpa merkingu hjá Banda-
ríkjamönnum.“ Anderson bætti því
jafnframt við að hann styddi hvorki
utanríkisstefnu Bandaríkjanna né
Bretlands en hann mundi ávallt
virða og verja bandaríska
þjóð …Bernard Butler, sem þekkt-
astur er fyrir að hafa spilað á gítar í
eina tíð með Suede, mun sjá um upp-
tökur á næstu plötu Libertines.
Hann hefur áður unnið með sveit-
inni, að fyrstu smáskífu þeirra og
líka nýjustu. Butler segir á heima-
síðu sinni að hann sé að bíða eftir að
Carl Barat, söngvari og gítarleikari,
jafni sig eftir slys, en á meðan vinni
hann hörðum höndum að þriðju
McAlmont & Butler-plötunni.
Annars virðist rokkbölvun mikil
hvíla á Libertines. Pete Doherty,
sem einnig er söngvari og gítarleik-
ari er nýkominn úr fangelsi eftir að
hafa brotist inn til áðurnefnds Bar-
ats. Slysið sem Barat lenti í fól hins
vegar í sér að hann stóð drukkinn
upp úr baðkeri með viskíflösku í
hendinni. Hann flaug svo á hausinn
og skar sig það illa í andliti að óvíst
er hvort hann haldi sjón á öðru aug-
anu … George Michael hefur á nýj-
an leik gengið til liðs við Sony, fyr-
irtækið sem hann barðist svo
hatrammlega við á sínum tíma. Sony
mun gefa út nýja hljóðversplötu
snemma á næsta
ári með Michael,
sem titluð er
Patience. Nafn
við hæfi enda hef-
ur ekki komið út
plata með frum-
sömdu efni síðan
Older kom út árið 1996. Sony hyggst
einnig taka yfir útgáfurétt á eldra
efni Michael. Þessi samningur þykir
sérstæður þar sem að söngvarinn
fór í mál við Sony árið 1993 og kall-
aði fyrirtækið þrælahaldara. Hann
tapaði málinu en samningurinn var
keyptur þaðan af Virgin.
POPPkorn