Morgunblaðið - 22.11.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 317. TBL. 91. ÁRG. LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Heillandi
svindlarar
Einar Kárason í viðtali um
skáldsöguna Storm Lesbók
Ruth fyrir
nýja kynslóð
Ruth Reginalds gefur út safnplötu
á 30 ára söngafmæli Fólk
Fíkjur og
ferðalög
Girnileg matarkista og ferðaum-
fjöllun á laugardögum Daglegt líf
KATRI Manni, 24 ára gömul og atvinnulaus finnsk
kona, varð í gær stoltur eigandi nýrrar bifreiðar en hún
vann það til að sitja inni í henni í 52 daga og 15 klukku-
stundir.
Manni tók þátt í keppni, sem ný tónlistarútvarpsstöð
efndi til í auglýsingaskyni, en alls voru þátttakendurnir
21 í sex borgum vítt og breitt um Finnland. Hófst
keppnin 29. september. Voru bílarnir inni í stórversl-
unum og var þátttakendum aðeins leyft að stíga út úr
þeim í örlitla stund á tveggja tíma fresti. Finnska frétta-
stofan FNB greindi frá þessu.
Manni sagði í viðtali við FNB í gær, eftir meira en sjö
vikna vist í bílnum, að það væri hálfskrítið að vera aftur
innan um fólk og geta farið ferða sinna.
Mikið skal til
mikils vinna
Helsinki. AFP.
ÆÐSTU stjórnendur Kaupþings
Búnaðarbanka, þeir Sigurður Ein-
arsson stjórnarformaður og Hreið-
ar Már Sigurðsson, annar tveggja
forstjóra, féllu síðdegis í gær frá
samningum sínum um kauprétt á
hlutabréfum í bankanum, sem
gerðir voru á miðvikudag, og
greindu frá því að efnt yrði til
nýrra samningaviðræðna milli sín
og stjórnar bankans um kaup og
kjör. Þá hafði komið fram hörð
gagnrýni á kaupréttarsamningana
frá m.a. hluthöfum í bankanum,
viðskiptavinum, verkalýðshreyf-
ingunni og stjórnvöldum. Enn-
fremur lækkaði gengi bréfa í bank-
anum um 2,8%.
Ríkisstjórnin fjallaði um kaup-
réttarsamningana á fundi sínum í
gærmorgun og að honum loknum
lýsti Davíð Oddsson forsætisráð-
herra því yfir að hann hygðist taka
fjármuni sína í Kaupþingi Búnað-
arbanka, um 400 þúsund krónur, út
úr bankanum. Í samtali við blaðið
sagðist hann ekki geta hugsað sér
að eiga fé í banka sem „gæfi lands-
mönnum langt nef með þessum
hætti“. Síðar um daginn gerði for-
sætisráðherra svo alvöru úr þessu.
Alþýðusamband Íslands sendi
frá sér yfirlýsingu snemma dags,
þar sem m.a. sagði: „Um er að
ræða fáheyrt siðleysi, dómgreind-
arleysi og græðgi þeirra einstak-
linga sem hlut eiga að máli.“ Grétar
Þorsteinsson, forseti sambandsins,
segir að kaupréttarsamningurinn
hafi verið „dropinn sem fyllti mæl-
inn hjá almenningi“.
Klukkan 16.15 í gær barst Kaup-
höll Íslands yfirlýsing Kaupþings
Búnaðarbanka, þar sem greint var
frá því að Sigurður og Hreiðar Már
hefðu fallið frá samningunum. Eft-
ir að þetta varð ljóst sagði Davíð
Oddsson í samtali við Morgunblað-
ið: „Ég held að þau hörðu viðbrögð
sem komu bæði frá mér og almenn-
ingi í landinu hafi orðið til þess að
þessir menn sáu að sér, enda voru
þeir búnir að stórskaða álit bank-
ans og stöðu hans; verðið á bank-
anum hrundi og það var augljóst að
fólk ætlaði að hverfa frá viðskipt-
um við bankann.“
Valgerður Sverrisdóttir við-
skiptaráðherra hefur sett í gang
vinnu í viðskiptaráðuneytinu til að
kanna m.a. hvort eðlilegt sé að
gerðir séu kaupréttarsamningar
sem taka mið af gengi á hlutabréf-
um, sem sé undir markaðsgengi á
hverjum tíma. Hún segir að jafn-
framt verði kannað hvort kveða
þurfi á um kaupréttarsamninga í
hlutafélagalögum. Þá þurfi að
skoða með hvaða hætti eigi að
standa að ákvörðun launa í fyrir-
tækjum sem skráð eru í Kauphöll.
Sigurður Einarsson, stjórnar-
formaður Kaupþings Búnaðar-
banka, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að sér þætti undarlegt að
ráðamenn þjóðarinnar leyfðu sér
að „ráðast á einkafyrirtæki með
þessum hætti sem gert er. Það
þekkist hvergi annars staðar, nema
hugsanlega í Rússlandi og einhvers
staðar í Afríku“, segir hann.
Falla frá kaupréttinum
vegna harðrar gagnrýni
Stjórnendur Kaupþings Búnaðarbanka voru búnir að stórskaða stöðu og álit bankans, segir Davíð
Oddsson Dropinn sem fyllti mælinn hjá almenningi, segir Grétar Þorsteinsson Valgerður
Sverrisdóttir lætur skoða kaupréttarsamninga og launaákvarðanir í skráðum félögum í Kauphöll
Morgunblaðið/Kristinn
HALLDÓR Ás-
grímsson, utan-
ríkisráðherra og
formaður Fram-
sóknarflokksins,
segir að kaup-
réttarsamn-
ingur Kaup-
þings
Búnaðarbanka
við stjórn-
arformann og
annan forstjóra
félagsins sé
„ekki í neinu
samhengi við
það sem gengur
og gerist í íslensku þjóðfélagi“. Halldór
segist sammála Valgerði Sverrisdóttur
viðskiptaráðherra um að nauðsynlegt sé
að sett séu ákvæði í hlutafélagalöggjöf um
kaupréttarsamninga. „Það er t.d. ekki
eðlilegt að kaupréttarsamningar séu
gerðir undir markaðsgengi.“
„Fyrstu tilfinningarnar sem vöknuðu
hjá mér voru: Þetta er hvorki siðlegt né
boðlegt,“ segir Össur Skarphéðinsson,
formaður Samfylkingarinnar. „Það fer
hrollur um mig þegar ég sé tölur af þessu
tagi.“
Steingrímur J. Sigfússon, formaður
Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs,
segir ömurlegt að sjá tölur eins og þær,
sem fram komi í kaupréttarsamningum
stjórnenda Kaupþings Búnaðarbanka.
„Það er eiginlega búið að löggilda græðg-
ina sem hvöt; hún er ekki lengur eitthvað
neikvætt eða óæskilegt heldur virðist hún
vera tekin sem eðlilegur hlutur.“
Úr samhengi
við þjóðfélagið
Höfuðstöðvar Kaupþings
Búnaðarbanka hf.
YFIRMAÐUR öryggissveita
Edúards Shevardnadzes
Georgíuforseta viðurkenndi í
gær að mikil brögð hefðu ver-
ið í tafli í kosningunum sem
fram fóru í landinu fyrr í
mánuðinum.
Hvatti hann til þess, að nýj-
ar kosningar færu fram.
Segja fréttaskýrendur að
þetta bendi til alvarlegs
klofnings innan stjórnarinn-
ar.
Yfirmaður öryggissveit-
anna, Tedo Dzhapardze, var-
aði við því að blóðbað kynni
að hljótast af þeim pólitíska
óstöðugleika sem nú ríkti. Í
gær fóru andstæðingar
stjórnarinnar að flykkjast til
höfuðborgarinnar, en leiðtogi
þeirra hvetur þá til að koma í
veg fyrir að þinghald geti haf-
ist í dag eins og Shevardn-
adze hafði gefið fyrirmæli um.
Stuðningsmenn forsetans,
einnig mjög margir, hafa búið
um sig við þinghúsið og segj-
ast ætla að tryggja að þing-
heimur geti komið þar saman.
Viðurkennir kosn-
ingasvindl í Georgíu
Reuters
Stuðningsmenn stjórnarandstöðunnar koma vígreifir til
Tblisi í gærkvöldi. Talið er að þeir hafi verið um 10.000.
Tblisi. AP.
MIKIÐ var um það í gær að viðskiptavinir Kaup-
þings Búnaðarbanka kæmu í útibú bankans eða
hefðu samband símleiðis til að segja upp viðskiptum
sínum og lýsa óánægju, samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins. „Ég myndi nú ekki segja að það
hefði verið örtröð, en það var eitthvað um að menn
væru að taka út,“ sagði Sólon R. Sigurðsson, for-
stjóri bankans. Hann segir hins vegar engar tölur til
um fjölda þeirra sem hættu í viðskiptum við bank-
ann í gær. Hjá öðrum bönkum fengust þær upplýs-
ingar að margir hefðu fært viðskipti sín frá Kaup-
þingi Búnaðarbanka yfir til þeirra. Jón Þórisson,
framkvæmdastjóri útibúasviðs Íslandsbanka, orðaði
það svo að það hefði verið „vertíðarstemmning“.
Margir færðu viðskipti sín
Kaupþing Búnaðarbanki
/2/10–12/miðopna