Morgunblaðið - 22.11.2003, Blaðsíða 38
Meðlæti
20 sveppir
6 gulrætur, skornar í grófa strimla
1 lítil seljurót, skorin í grófa strimla
8 skallottulaukar, snöggsoðnir,
skornir til helminga
smjör
gróft salt og nýmal-
aður pipar
1 bolli söxuð fersk
steinselja
Allt frá því að Garðar Agn-arsson flutti inn til sam-býliskonu sinnar SigríðarPétursdóttur fyrir tæpu
ári hefur húsmóðirin lítið þurft að
sýsla við eldamennsku sem kemur
sér afar vel fyrir önnum kafinn um-
sjónarmann Vitans, barnaefnis Rás-
ar 1. Garðar er nefnilega mat-
reiðslumeistari að mennt og rekur
veitingaþjónustuna Krydd & kavíar í
Reykjavík sem sérhæft hefur sig í
hádegismat fyrir fyrirtæki, en tekur
líka að sér margskonar veislur. Sig-
ríður bauð húsvískum æsku-
vinkonum í mat á dögunum og Garð-
ar bar fram kjúkling upp á franska
vísu.
„Þetta er gamaldags frönsk
sveitauppskrift. Soðið, sem myndast
í ofnskúffunni, leikur lykilhlutverk í
matreiðslunni, bæði hvað varðar
kjúklinginn sjálfan og grænmetið,
sem á að vera heillegt og gróft þegar
það er borið fram með,“ segir Garð-
ar. Að þessu sinni fékk Sigga að búa
til eftirréttinn sem hún segir að hafi
verið að gerjast í kollinum á sér að
undanförnu og var að prófa í fyrsta
skipti á vinkonum sínum, - með góð-
um árangri. Þar sem uppskriftin er
ný af nálinni fékk rétturinn snarlega
nafnið Siggusæla við matborðið.
Sveitakjúklingur
(fyrir fjóra)
2 meðalstórir kjúklingar
200 g hreinsað smjör (brætt og
fleytt ofan af)
2 greinar ferskt rósmarín
1 laukur
16 kartöflur
gulrótarafskurður
sveppaafskurður
8 hvítlauksgeirar
salt og pipar
Hitið ofninn í 180°. Kjúk-
lingarnir eru smurðir með
smjörinu, saltaðir og pipraðir
að innan sem utan. Rósmarín,
grófsaxað grænmeti og hvítlaukur
sett í ofnskúffu og kjúklingurinn of-
an á. Kartöflurnar eldaðar með.
Eldað í ofni í eina klukkustund
við 180° og síðustu fimm mínúturn-
ar á grilli. Reglulega á eldunarferl-
inu er smjöri og soði af kjúklingnum
ausið yfir með ausu eða soðsprautu.
Fuglinn á að vera stökkur og brúnn.
Smjörið hitað á stórri pönnu og
grænmetið steikt. Í lokin er um
tveimur dl af soði úr ofnskúffunni
hellt yfir grænmetið. Öllu velt á
pönnunni og soðið látið þykkna, í
nokkrar mínútur. Grófu salti, sax-
aðri steinselju og nýmuldum pipar
stráð yfir grænmetið. Soð sett í pott
og soðið ögn niður eða þar til það
þykknar. Þá er sett smávegis
af lime út í og borið fram
sem sósa ásamt góðu
brauði, tómatsalati og
ljúfu víni.
Plómutómata-
salat
plómutómatar
fínt sax-
aður skallottulaukur
þurrristaðar furuhnetur
Maldon-sjávarsalt
nýmalaður pipar
olífuolía
balsamik-vínedik
söxuð steinselja eða basilíka
Tómatarnir skornir í sneiðar. Hinu
dreift yfir.
Siggusæla
4 eggjahvítur
200 g strásykur
1 tsk lyftiduft
2 bollar muldar kornflögur
Ber að eigin vali
100 g brytjað suðusúkkulaði
4 dósir 10% sýrður rjómi
kanill
hnetusíróp (til að bragðbæta kaffi)
Eggjahvítur og sykur stífþeytt.
Lyftidufti og kornflögum blandað
varlega saman við. Sett á bökunar-
plötu með smjörpappír.
Bakað við 110 °C í um klukku-
stund. Látið kólna á plötunni.
Sýrði rjóminn hrærður út með kanil
og hnetusírópi.
Magn fer eftir smekk. Sósan látin
bíða í a.m.k. klukkustund áður en
hún er notuð. Hluta af sósunni
smurt á marensbotninn. Berja-
blanda og súkkulaði sett ofan á og
sósa síðan sett ofan á berin. Afgangur-
inn af sósunni borinn fram með.
MATARKISTAN|Hann sér um eldamennskuna
Sveitakjúklingur
á franska vísu
Kokkurinn: Garðar Agnarsson töfraði
fram kjúklingarétt handa dömunum.
Morgunblaðið/Golli
Salat: Plómutómatar, furuhnetur og skallottulaukur.
Siggusæla: Sigríður Pétursdóttir sá um eftirréttinn.
DAGLEGT LÍF
38 LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ