Morgunblaðið - 22.11.2003, Blaðsíða 66
FRÉTTIR
66 LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Pel Jop 1406 árg. 1998.
Verð 1.750 + vsk. og Bobcat 328
árg. 2000. Verð 2,3 + vsk.
Bobcat 441 árg. 2002.
Verð 4,1 + vsk.
Bomag BW 120-ad árg 1996
víbravaltari verð 1,360 þ. vsk. og
árg. 91 verð 1.050 + vsk.
York Seglavagn árg. 1989.
3ja öxla á loft. Verð 900 + vsk.
Montracon vélaflutningavagn
árg. 1987. Verð 900 þ. vsk.
Fleygar, 80 til 155 kg
árg. 2003.
Nigata díselrafstöð,
5 kw, ný. Verð 300 + vsk.
Iveco 85-E 21 ár 1999 ekinn 40 þ.
Verð 2,4 millj. + vsk. Toppbíll.
Subaru Legacy 2200 árg. 1998 sjsk.
ekinn 137 þ. Verð 1.090 þ. Góður
bíll.
Volvo F 7 árg. 1978, ekinn 300 þ.
Verð 350 þ+vsk.
Hraungörðum, Hafnarfirði.
Sími 565 2727.
www.bilhraun.is
Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar og tæki sem verða til sýnis
þriðjudaginn 25. nóvember 2003 kl. 13-16 í porti bak við skrifstofu
vora í Borgartúni 7 og víðar:
1 stk. Audi A6 4x2 bensín 2000
1 stk. B.M.W. 5 línan 4x2 bensín 2001
1 stk. Subaru Legacy 4x4 bensín 1999
1 stk. Mitsubishi Lancer station 4x4 bensín 1999
2 stk. Suzuki Baleno Wagon 4x4 bensín 1998
1 stk. Mazda 323 Wagon 4x4 bensín 1996
1 stk. Mazda 323 Wagon 4x4 bensín 1995
1 stk. Ford Escort sendibifreið 4x2 bensín 1998
1 stk. Toyota Hi Lux Double Cab 4x4 dísel 1996
1 stk. Ford Ranger XL 4x4 bensín 1996
1 stk. Toyota Hi Ace 4x4 bensín 1993
1 stk. Nissan Double cab 4x4 dísel 1998
1 stk. Mitsubishi L-200 Double cab
m. plasthúsi 4x4 dísel 1992
1 stk. Mitsubishi L-300 4x4 bensín 1988
1 stk. Mercedes Bens 310D
(fólksflutningabifr. 13 farþ.) 4x2 dísel 1990
1 stk. Ford dráttarvél 1967
1 stk. Pasqual dráttarvél 1985
1 stk. Deuts dráttarvél 1989
1 stk. Ski-doo Everest vélsleði 1984
1 stk. Keflasláttuvél dregin 1993
1 stk. sturtuvagn 3 tonn
Til sýnis hjá Vegagerðinni, Stórhöfða 34-40, Reykjavík:
1 stk. Volvo F-10 með 11.900 l
Etnyre tjörutanki árg. 1989 dísel 1985
1 stk. Volvo F 12 með palli
og Hiab 071 krana 8x4 dísel 1993
1 stk. tengivagn til vöruflutninga 1991
1 stk. malardreifari Savalco HS-355 1990
1 stk. valtari Hamm HVT-3 á tengivagni 1983
1 stk. snjótönn á vörubíl Schmidt Vector S-36 1992
1 stk. snjótönn á jeppa Meyer ST-90 1997
1 stk. fjölplógur á jeppa Jongerius J-210 1993
1 stk. undirtönn á vörubíl TEHO 4/3 1999
Til sýnis hjá Vegagerðinni á Akureyri:
1 stk. Man 26,364 FNL
með 14.000 l Etnyre tjörutanki dísel 2001
1 stk. tjöruflutningatankur Etnyre 23,500 l 1999
1 stk. tengivagn með 20 kw rafstöð og tjörudælu 1980
1 stk. tengivagn til vélaflutninga 1986
1 stk. malardreifari Salco HS-355 á tengivagni 1978
1 stk. malardreifari Etnyre Chipspreader 1992
1 stk. valtari Hamm DV-8 1983
1 stk. valtari Hamm GRW-10 1986
1 stk. lyftari Caterpillar V 70 1978
Til sýnis hjá Rarik á Blönduósi:
1 stk. Isuzu Trooper
(skemmdur eftir umferðaróhapp) 4x4 bensín 1992
Til sýnis hjá Flugmálastjórn, Höfn Hornafirði:
1 stk. Subaru 1800 station 4x4 bensín 1988
Vakin er athygli á myndum af bílum og tækjum á vefsíðu
Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is
(ATH. Inngangur í port frá Steintúni)
INGVAR Ásmundsson (2.321) er
efstur ásamt sjö öðrum á heims-
meistaramóti öldunga. Fjórum
umferðum er lokið á mótinu sem
nú er haldið í þrettánda sinn og er
teflt í Bad Zwischenahn í Þýska-
landi. Í fjórðu umferð vann Ingvar
góðan sigur á alþjóðlega meist-
aranum Boris Katalymov (2.404)
frá Kazakstan. Í fimmtu umferð
teflir Ingvar á fyrsta borði gegn
rússneska stórmeistaranum Oleg
Chernikov (2.453).
Tefldar verðar ellefu umferðir
eftir svissnesku kerfi, en umhugs-
unartíminn er tvær klukkustundir
á 40 leiki og síðan ein klukkustund
til að ljúka skákinni. Keppendur
eru 272, þannig að ekki vantar
áhuga þessa aldursflokks á skák-
inni.
Ingvar, sem náð hefur frábær-
um árangri á þessum mótum, er
22. stigahæsti keppandi mótsins. Í
fyrra var hann í toppbaráttunni og
hafnaði að lokum í 5.–15. sæti og
náði áfanga að
alþjóðlegum
meistararatitli.
Stigahæsti kepp-
andinn er lettn-
eski stórmeistar-
inn Janis
Klovans (2.462),
sem hampaði
heimsmeistara-
titlinum 1997 og
1999. Næststiga-
hæstur er þýski stórmeistarinn
Wolfgang Uhlmann (2.457) sem
var um langt árabil sterkasti skák-
maður Austur-Þýskalands. Þekkt-
asti keppandinn er þó rússneski
stórmeistarinn og „Íslandsvinur-
inn“ Mark Taimanov (2.407) sem
var um tíma meðal 10 sterkustu
skákmanna heims og er margfald-
ur heimsmeistari öldunga. Staða
efstu manna eftir fjórar umferðir:
1.-8. Grigory Sanakoev, Manfred
Boehnisch, Hans Karl, Genrikh
Chepukaitis, Boris Arkhangelsky,
Ingvar Ásmundsson, Stanislav
Zhelesny, Oleg Chernikov 4 v.
9.-17. Hans Hecht-Joachim, Pet-
er Rahls, Werner Reichenbach,
Janis Klovans, Sinisa Joksic, Jurij
Ljubarski, Yuri Shabanov, Mark
Taimanov, Ilkka Kanko 3½ v.
o.s.frv.
Einnig er teflt í kvennaflokki.
Þar er aldurslágmarkið 50 ár, en
hjá körlunum er miðað við 60 ár.
Eftir fjórar umferðir er kvenna-
stórmeistarinn Tamara Khmiad-
ashvili (2.195) frá Georgíu efst
með 3½ vinning.
Róbert Harðarson efstur
á atskákmóti öðlinga
Róbert Harðarson er efstur eftir
þrjár umferðir á atskákmóti öð-
linga með þrjá vinninga. Staða
efstu manna eftir 3 umferðir:
1. Róbert Harðarson 3 v.
2.-3. Magnús Gunnarsson,
Sverrir Norðfjörð 2½ v.
4.-8. Björn Þorsteinsson, Sigurð-
ur H. Jónsson, Hörður Garðars-
son, Halldór Gíslason, Uros Iv-
anovic 2 v.
9. Jóhann Ö. Sigurjónss. 1½ v.
o.s.frv.
Keppendur eru 16. Mótinu verð-
ur fram haldið miðvikudaginn 26.
nóvember kl. 19 í Faxafeni 12.
TV sigraði TK í undan-
úrslitum bikarkeppni TG
Taflfélag Vestmannaeyja sigraði
Taflfélag Kópavogs í undanúrslit-
um í bikarkeppni Taflfélags
Garðabæjar með sjö vinningum
gegn fimm. Staðan í hálfleik var
4–2 fyrir TV. TV mætir því A- eða
B-sveit Taflfélags Reykjavíkur í
úrslitum Bikarkeppninnar sem
fram fer 29. nóvember.
Heimsmeistaramót
skákforrita
Heimsmeistararmót skákforrita
verður haldið í Graz í Austurríki
dagana 22. til 30. nóvember. Meðal
keppenda verða Shredder, Quest,
Junior, Brutus og List. Líklega
kannast flestir betur við Quest
undir nafninu Fritz, sem tefldi ein-
vígið við Kasparov um daginn.
ChessBase hefur haft það fyrir
venju að tefla forritinu fram undir
þessu nafni í heimsmeistarakeppn-
inni. Brutus er mjög athyglisvert
forrit sem byggir á notkun mikils
fjölda örgjörva. Heimamenn binda
miklar vonir við frammistöðu þess
á mótinu, enda er höfundurinn
austurrískur. List er hins vegar
eitt sterkasta forritið sem hægt er
að fá ókeypis á Netinu, þótt lík-
lega hafi hin nýja útgáfa Ruffian
(1.0.5) vinninginn.
Áhugamenn um skákforrit telja
að Shredder eða Brutus séu líkleg-
ust til að hreppa heimsmeistaratit-
ilinn að þessu sinni. Shredder hef-
ur nú um nokkurt skeið verið efst
á stigalista skákforrita.
Skákþing Íslands 2003:
Drengja- og telpnaflokkur
Keppni í drengja- og telpna-
flokki 2003 (fædd 1988 og síðar)
verður haldin dagana 22.–23. nóv-
ember nk. Þátttökugjald er kr.
800. Teflt verður í Faxafeni 12,
Reykjavík.
Skráning á skákstað kl. 12.30–
12.55 laugardaginn 22. nóvember.
Íslandsmótið í netskák
á sunnudagskvöld
Íslandsmótið í netskák, há-
punktur Bikarsyrpu Eddu útgáfu,
fer fram sunnudaginn 23. nóvem-
ber. Opinn flokkur er opinn öllum
og hefst nokkru fyrr en venja er
til, eða kl. 18. Landsliðsflokkur
hefst hins vegar á hefðbundnum
tíma kl. 20 eða þegar opnum flokki
lýkur. Þar taka þátt þeir 20 skák-
menn sem hafa staðið sig best í
bikarsyrpunni. Mikil barátta er á
milli Arnars E. Gunnarssonar og
Magnúsar Arnar Úlfarssonar um
sigur í syrpunni. Teflt verður á
ICC. Vegleg verðlaun eru í boði
Eddu útgáfu og ICC.
Tímamörk verða 4 2 (4 mínútur
+ 2 sekúndur á leik) og tefldar
verða 9 umferðir.
Þess má geta að Íslandsmótið í
netskák er elsta landsmót í net-
skák í gervöllum heiminum en
fyrsta Íslandsmótið fór fram 1996.
Bikarsyrpa Eddu útgáfu er
keppni um hver fær flesta vinn-
inga samtals í fjórum af fimm mót-
um keppninnar. Vinningar í lands-
liðsflokki Íslandsmótsins gilda
tvöfalt.
Veitt verða verðlaun fyrir best-
an árangur í sex flokkum í Bik-
arsyrpu Eddu útgáfu og eru sig-
urvegararnir í hverjum flokki
jafnframt Bikarmeistarar Eddu
útgáfu í viðkomandi flokki. Flokk-
arnir eru opinn flokkur (allir),
undir 2.100 skákstigum, undir
1.800 skákstigum, stigalausir, ung-
lingaflokkur og kvennaflokkur.
Einnig verða veitt verðlaun fyrir
bestan árangur á sjálfu Íslands-
mótinu og verða þau einnig vegleg
og flokkaskipt.
Allar upplýsingar um hvernig
eigi að skrá sig og tengjast er að
finna á Hellir.is. Þar er einnig að
finna reglugerð mótsins.
Röð efstu manna í syrpunni:
1. Arnar E. Gunnarsson 28
2. Magnús Örn Úlfarsson 27,5
3. Snorri G. Bergsson 25
4. Ólafur Kristjánsson 24
5. Davíð Kjartansson 23,5
Ingvar Ásmundsson í
1.–8. sæti á HM öldunga
SKÁK
Þýskaland
HM ÖLDUNGA
17.–29. nóv. 2003
Ingvar
Ásmundsson
EINS og undanfarin ár gefa
Barnaheill út jólakort til styrktar
starfi samtakanna í þágu barna.
Markmið samtakanna er að vera
málsvari allra barna og hafa
frumkvæði að málum er varða
réttindi þeirra og velferð. Sex
gerðir eru af kortum með og án
innáprentunar ásamt umslögum.
Kortin í ár eru hönnuð af lista-
mönnunum Brian Pilkington og
Claudiu Mrugwski.
Fyrirtæki og aðrir velunnarar
geta nálgast kort á skrifstofu
Barnaheilla, Laugavegi 7, pantað í
gegnum síma eða með tölvupósti á
netfangið barnaheill@barna-
heill.is, einnig er hægt að nálgast
pöntunarblað á vef samtakanna,
www.barnaheill.is.
Jólakort Barnaheilla