Morgunblaðið - 23.11.2003, Side 1
INNAN Fjármálaeftirlitsins (FME) eru nú í und-
irbúningi „leiðbeinandi tilmæli“ byggð á lögum um
fjármálastofnanir frá 2001 um skilyrði fyrir þátt-
töku viðskiptabanka, sparisjóða og lánafyrirtækja
í atvinnurekstri. Í drögum að tilmælunum er m.a.
gert ráð fyrir að ef bankar taki að sér „tíma-
bundna starfsemi“ verði Fjármálaeftirlitinu gerð
skriflega grein fyrir markmiðum og áætlað hversu
langan tíma verkefnið muni taka og hvernig eigi
að ljúka því.
Umræður um hlutverk banka, skilin á milli við-
skiptabanka og fjárfestingabanka og bein afskipti
bankastofnana af atvinnurekstri eru ekki bundnar
við Ísland einvörðungu. Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra lýsti því yfir í vikunni að hann teldi bank-
ana vera komna út á hálan ís með afskiptum sínum
og inngrip í íslenskt atvinnulíf. Aðrir hafa velt því
fyrir sér hvort rétt sé að setja reglur um það að
skilja að hefðbundna viðskiptabankastarfemi og
fjárfestingabankastarfemi.
Ólíkar leiðir farnar
Ríki heims hafa farið mjög ólíkar leiðir í þessum
efnum. Í Þýskalandi og Japan hafa bankar haft
mikil og bein afskipti af rekstri fyrirtækja í gegn-
um eignaraðild og stjórnarsetu þótt skiptar skoð-
anir séu um hvort þau afskipti hafi verið til góðs.
Bandarísk lagaákvæði frá 1933 um aðskilnað
viðskiptabanka- og fjárfestingarbankastarfsemi
voru felld úr gildi með nýjum lögum 1999. Þau lög
voru hins vegar engan veginn óumdeild og vöruðu
sumir sérfræðingar við því að hætta væri á að af-
skipti banka annarra en fjárfestingabanka af at-
vinnurekstri gætu haft alvarlegar afleiðingar.
Hvert er hlutverk/10
Reykjavíkurbréf/32
Umræður um hlutverk viðskiptabanka og fjárfestingarbanka fara víða fram
Fjármálaeftirlit undirbýr
„leiðbeinandi tilmæli“
Jessica Beil leikur í endurgerð
keðjusagarmorðingjans Fólk
Að láta
hræða sig
Afalegur harðjaxl hvíta tjaldsins í viðtali
um afrek sín og nýjustu myndina Tímarit
CLINT
EASTWOOD
Vændið og
lögin
Úttekt á umræðum um
vændisfrumvarpið 16
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 300
STOFNAÐ 1913 318. TBL. 91. ÁRG. SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
NÝ rannsókn sem gerð var í háskólanum í
Boston bendir til þess að hátt hlutfall af
omega 3-fitusýrum í blóði geti dregið úr lík-
um á því að eldra fólk fái Alzheimer-
sjúkdóminn um allt að 50%. Þetta er í sam-
ræmi við niðurstöður rannsóknar sem birt
var sl. sumar, þar sem niðurstöður bentu til
að fólk á aldrinum 65–94 ára, sem hefði hátt
hlutfall af omega 3-fitusýrum, væri í 60%
minni áhættu á að fá Alzheimer.
„Það eru vísbendingar um það en ekki
búið að sanna að aukin neysla á þessum
omega 3-fitusýrum úr sjávarfangi minnki
verulega líkurnar á því að fólk fái Alzheim-
ersjúkdóminn,“ segir Jón Ögmundsson,
gæðastjóri hjá Lýsi hf. Hann segir að rann-
sóknin gefi til kynna að neysla þessara fitu-
sýra minnki líkurnar um allt að 60%, en sú
niðurstaða byggist á faraldsfræðilegum
rannsóknum en ekki tilraunum. Í athug-
unum á tilraunadýrum komi hins vegar
einnig fram sterkt orsakasamhengi.
Að sögn Jóns er ekki sama hvaða fiskur
er borðaður til þess að auka omega-3 fitu-
sýrumagnið í blóðinu. Þorskur og ýsa séu
t.d. magrir fiskar og því ekki mikið um
omega 3-fitusýrur í þeim fisktegundum.
„En í lýsi er alveg fullt af þessum fitusýrum
og þá flestum tegundum lýsis. Síðan er
þetta í feitari tegundum fiska, eins og síld,
laxi og lúðu.“
Geta dregið
verulega
úr líkum á
Alzheimer
Ný rannsókn á áhrifum
omega 3-fitusýra
Omega 3-fitusýrurnar fást einkum úr
feitum fiski og lýsi.
JÓLIN nálgast en segja má, að í Berlín hefjist að-
dragandi þessarar mestu hátíðar kristinna manna
formlega þegar kveikt hefur verið á ljósunum á
frægasta breiðstræti borgarinnar, Unter den Linden.
Var það gert á föstudag. Eru linditrén, 368 að tölu,
eitt ljósahaf en í baksýn er Brandenborgarhliðið.
AP
Ljósum prýdd linditré
LÖGREGLAN í Tbilisi, höfuðborg
Georgíu, skaut í gær reyksprengjum
að þúsundum manna, sem reyndu að
brjóta sér leið að
skrifstofum Ed-
uards Shevardn-
adzes, forseta
landsins. Hrópaði
fólkið „segðu af
þér, segðu af þér“
en Mikhail Saak-
ashvili, helsti
leiðtogi stjórnar-
andstöðunnar,
hafði áður gefið
Shevardnadze 45 mínútur til að láta
af embætti.
Efnt hefur verið til mótmæla dag-
lega í þrjár vikur en stjórnarand-
staðan heldur því fram, að víðtæku
svindli hafi verið beitt í þingkosning-
unum í landinu 2. þessa mánaðar.
Hafa erlendir eftirlitsmenn tekið
undir það og einnig nokkrir embætt-
ismenn Georgíustjórnar. BBC,
breska ríkisútvarpið, sagði í gær, að
Georgía rambaði á barmi byltingar.
Byltingar-
ástand
í Georgíu
Tbilisi. AFP.
Eduard
Shevardnadze
ÓTTAST er, að rottueitri hafi verið
sprautað í kjöt í sænskri stórverslun
og er þetta í annað sinn á nokkrum
dögum, sem grunur um það vaknar.
Aftonbladet sænska sagði í gær, að
í einni verslun Obs-keðjunnar í Visby
á Gotlandi hefði 85 kílóum af kjöti ver-
ið eytt eftir að ókunnur maður hafði
samband og varaði við eitrinu. Í Upp-
sölum er lögreglan einnig að kanna
sams konar mál en orðrómur er um,
að öfgafullir dýraverndunarsinnar
hafi laumað eitri í kjöt í einhverri
verslun Hemköp-keðjunnar þar.
Enginn hefur enn verið handtekinn.
Rottueitri
dælt í kjöt?
Visby. AFP.
♦ ♦ ♦
AÐ minnsta kosti 18 manns týndu
lífi og meira en 50 særðust í
tveimur sjálfsmorðsárásum á lög-
reglustöðvar í Írak í gær. Þá
neyddist borgaraleg flutninga-
flugvél til að nauðlenda eftir að
hafa orðið fyrir flugskeyti. Er það
í fyrsta sinn, sem slík árás heppn-
ast, en átta sinnum hefur eld-
flaugum verið skotið að flugvélum.
Eyðilegging og dauði blöstu við
eftir að bílar, hlaðnir sprengiefni,
voru sprengdir upp við lögreglu-
stöðvar í tveimur bæjum fyrir
norðan Bagdad, Khan Bani Saad
og Baquba. Þeir, sem létust, voru
aðallega íraskir lögreglumenn.
Borgaraleg flutningaflugvél,
Airbus A-300 á vegum alþjóðlega
flutningafyrirtækisins DHL, varð
í gær fyrir eldflaug rétt eftir flug-
tak frá flugvellinum í Bagdad. Er
haft eftir vitnum, að eldur hafi
komið upp í vinstra væng vélar-
innar en samt tókst að snúa henni
við og lenda heilu og höldnu í
Bagdad. Enginn slasaðist um
borð.
Varað við hryðjuverkum
Stjórnvöld í Bandaríkjunum
vöruðu í gær við vaxandi hættu á
hryðjuverkaárásum á Bandaríkja-
menn og bandaríska hagsmuni er-
lendis og fylgdi það með, að al-
Qaeda-samtökin ráðgerðu árásir,
sem hefðu enn meiri eyðileggingu
og dauða í för með sér en hryðju-
verkin í Bandaríkjunum 11. sept-
ember 2001. Óttast er, að reynt
verði að beita efna- eða lífefna-
vopnum.
Dauði og eyðilegg-
ing í árásum í Írak
Khan Bni Saad. AP, AFP.
Flutningaflugvél
varð fyrir eld-
flaug yfir Bagdad