Morgunblaðið - 23.11.2003, Blaðsíða 45
með heitum mat og öllu því besta sem
völ var á, en það var líka „hljómsveit“
sem lék fyrir dansi. Þá gerðist það að
Olga og Ísleifur bróðir hennar stigu
fram á gólfið og dönsuðu af hjartans
lyst skottís. Þegar ég halla mér aftur
og loka augunum sé ég þau ljóslifandi
fyrir mér. Mig hefur alltaf þótt gam-
an að því að dansa og móðir mín segir
að ég hafi þá þrá úr föðurættinni og
nú hef ég lært skottís en kemst
hvergi nærri þeim töktum sem þau
systkini sýndu forðum daga. Eins og
sönnum Vestmanneyjingum sæmir
höfðu þau systkinin gaman af því að
dansa og syngja þegar komið var
saman á afmælum eða við önnur há-
tíðleg tækifæri. Þar voru margar
góðar raddir.
Því miður eru „frænkuafmælin“
löngu aflögð og góðar samverustund-
ir liðnar, minningin ein lifir, allt hefur
sinn tíma.
Það hefur án efa verið nokkuð erf-
itt fyrir Olgu, þegar Einar var í sigl-
ingum á milli Íslands og Englands öll
stríðsárin, sem var mikið hættuspil.
Öryggis vegna sigldu skipin á þessari
leið mörg saman í lest, því á siglinga-
leiðinni voru ferðir kafbáta tíðar og
virk tundurdufl um allan sjó. Und-
anfarna daga hefur umræðan einmitt
verið um þennan hættulega tíma og
nýútkomna bók sem segir frá því
þegar Goðafoss var skotinn niður ár-
ið 1944 rétt fyrir utan strendur Ís-
lands. Olga átti fallegar minningar
um Einar og hjónaband þeirra en því
miður lést Einar langt um aldur
fram, hann var þá kominn í land, eins
og það er kallað, og ætlaði að njóta
samverustunda með ástvinum sínum
um ókomin ár, en það fór öðruvísi en
ætlað var, hann veiktist af illkynja
sjúkdómi og náði ekki að komast til
heilsu á ný.
Fjölskylda er í mínum huga þeir
sem skilja hvern annan, standa með
manni í lífsins ólgu sjó, í gegnum
þykkt og þunnt. Einhver sem þú get-
ur treyst. Mér finnst þetta eiga vel
við þegar ég minnist kærrar föður-
systur. Þau voru að mörgu leyti lík
faðir minn og hún Olga systir hans.
Þau voru tryggir og traustir einstak-
lingar sem elskuðu fjölskyldur sínar
ofar öllu og ekkert var of gott fyrir þá
einstklinga. Olga var afar sterkur
hlekkur í fjölskyldu sinni eins og fað-
ir minn var í sinni fjölskyldu og ekk-
ert er eins og áður eftir fráfall hans,
hann lést 1988 eftir erfið veikindi, þá
71 árs. Slíkur kærleikur fyrir ástvin-
um sínum er ekki á hverju strái, en er
svo sterkur að hann lifir út yfir gröf
og dauða, það eitt er ég fullviss um.
Ég er sannfærð um að Olga hefur nú
fæðst inn í annað tilverustig og kær-
leikur hennar mun áfram fylgja þeim
sem henni voru kærir.
Ég bið góðan Guð að ljósið eilífa
fylgi og umvefji Olgu mína, svo og
ástvini hennar alla.
Svo er því farið:
sá er lifir
deyr þeim sem deyr
en hinn dáni lifir
í hjarta og minni
manna er hans sakna.
Þeir eru himnarnir
honum yfir.
(Hannes Pét.)
Fríða Björg Þórarinsdóttir.
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2003 45
AFMÆLIS- og minningar-
greinum má skila í tölvupósti
(netfangið er minning-
@mbl.is, svar er sent sjálf-
virkt um leið og grein hefur
borist) eða á disklingi. Ef
greinin er á disklingi þarf út-
prentun að fylgja. Nauðsyn-
legt er að tilgreina símanúm-
er höfundar og/eða sendanda
(vinnusíma og heimasíma).
Ekki er tekið við handskrif-
uðum greinum.
Um hvern látinn einstakling
birtist ein aðalgrein af hæfi-
legri lengd á útfarardegi, en
aðrar greinar séu um 300 orð
eða 1.500 slög (með bilum) en
það eru um 50 línur í blaðinu
(17 dálksentimetrar). Tilvitn-
anir í sálma eða ljóð takmark-
ast við eitt til þrjú erindi.
Einnig er hægt að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5–15 línur, og votta
virðingu án þess að það sé
gert með langri grein. Grein-
arhöfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stutt-
nefni undir greinunum.
Frágangur
afmælis- og
minningar-
greina
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Ólafur Ö. Pétursson,
útfararstjóri,
s. 896 6544
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
S. 551 7080
Vönduð og persónuleg þjónusta.
Blómastofa Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Opið til kl. 19 öll kvöld
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Flatahrauni 5A, sími 565 5892
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri.
Kistur - Krossar
Prestur - Kirkja
Kistulagning
Blóm - Fáni
Val á sálmum
Tónlistarfólk
Sálmaskrá
Tilk. í fjölmiðla
Erfisdrykkja
Gestabók
Legstaður
Flutningur kistu á
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
milli landa og
landshluta
Landsbyggðar-
þjónusta
Baldur Frederiksen,
útfararstjóri.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnuð 1990
Rúnar Geirmundsson
Útfararstjóri
Sími 5679110, 8938638
Heimasíða okkar er
www.utfarir.is
Þar eru upplýsingar um
allt er lýtur að útför:
- Söngfólk og kórar
- Erfidrykkja
- Aðstoð við skrif
minningargreina
- Panta kross og frágang á leiði
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vináttu við andlát og útför
ÁSTRÍÐAR SIGURMUNDARDÓTTUR.
Dætur, barnabörn
og barnabarnabörn.
Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma,
LÍNEY BENTSDÓTTIR,
hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð,
Kópavogi,
áður til heimilis í Vogatungu 45,
lést miðvikudaginn 12. nóvember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Læknum og starfsfólki hjúkrunarheimilisins
Sunnuhlíðar í Kópavogi eru færðar þakkir fyrir hjartahlýja umönnun.
Gísli Gestsson, Edda Þórarinsdóttir,
Ragnheiður Gísladóttir,
Bergur Gestur Gíslason, Linda S. Guðmundsdóttir,
Gísli Garðar Bergsson,
Líney Ólafía Marinósdóttir, Karl Magnússon,
Andri Marinó Karlsson,
Sigrún Ósk Karlsdóttir,
Bent Marinósson, Sif Ásthildur Guðbjartsdóttir,
Anna María Bentsdóttir,
Andreas Máni Helgason.
Þökkum af alúð auðsýnda samúð og alla þá
aðstoð er okkur var sýnd við andlát og útför
yndislegs og ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og tengdasonar,
STEINÞÓRS EYÞÓRSSONAR
veggfóðrara og
dúklagningameistara,
Víðilundi 7,
Garðabæ.
Sérstakar þakkir viljum við senda til hjúkrunarþjónustunnar Karitasar,
séra Hans Markúsar, vina og ættingja.
Guð blessi ykkur öll.
Eiríka Haraldsdóttir,
Eiríkur L. Steinþórsson, Fjóla Þorsteinsdóttir,
Þórarinn L. Steinþórsson, Rut Erla Magnúsdóttir,
Margrét L. Steinþórsdóttir, Mogens Gunnar Mogensen,
Steinþór Örn Helgason,
Helena Sif Mogensen,
Fjóla Eiríksdóttir
og aðrir aðstandendur.
Þökkum öllum þeim sem sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns
míns, föður, tengdaföður, afa og langafa,
BALDURS GUÐJÓNSSONAR,
Langholti 15,
Keflavík.
Kolbrún Guðmundsdóttir,
Hjördís Baldursdóttir, Halldór Kristinsson,
Baldur Jóhann Baldursson, Ingibjörg Soffía Sveinsdóttir,
Tinna Björk Baldursdóttir, Björgvin Færseth,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför
elskulegrar systur okkar,
GUÐRÚNAR GÍSLADÓTTUR
frá Arnarnesi, Dýrafirði,
Bólstaðarhlíð 45.
Elínborg Gísladóttir,
Friðdóra Gísladóttir,
Svanfríður Gísladóttir.
Afmælis- og minningargreinum má skila í
tölvupósti eða á disklingi (netfangið er
minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um
leið og grein hefur borist). Ef greinin er á
disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauð-
synlegt er að símanúmer höfundar og/eða
sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi
með. Þar sem pláss er takmarkað getur
þurft að fresta birtingu greina, enda þótt
þær berist innan hins tiltekna frests. Nán-
ari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern lát-
inn einstakling birtist formáli og ein aðal-
grein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en
aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300
orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50
línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitn-
anir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til
þrjú erindi. Einnig er hægt að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 lín-
ur, og votta virðingu án þess að það sé gert
með langri grein. Greinarhöfundar eru
beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt-
nefni undir greinunum.