Morgunblaðið - 24.11.2003, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 . TBL. 91. ÁRG. MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Barnslegt
skart
Sif Ægisdóttir gerir skartgripi
eftir barnamyndum | Daglegt líf
Handbolta-
konur í sókn
Handboltalandsliðið komið í und-
ankeppni Evrópumóts | Íþróttir
Bankar og
nýja vinstrið
Málefni bankanna og vinstri-
pólitík í brennidepli | Miðopna
HUGSANLEGT er, að „sonur“ Con-
corde-þotunnar muni brátt líta dagsins
ljós en fulltrúar EADS, evrópsku flug-
vélasmiðjanna, eiga nú í viðræðum við
Japani um smíði nýrrar, hljóðfrárrar
farþegavélar.
Stefnt er að því að nýja þotan fari á
tvöföldum hraða Concorde-þotunnar en
það þýddi, að hún færi á milli Parísar
og Tókýó á tveimur klukkustundum. Á
hún að geta flogið næstum 12.000 km
án viðkomu og flutt 300 farþega, helm-
ingi fleiri en Concorde. Kom þetta fram
á fréttavef BBC, breska ríkisútvarpsins,
í gær.
EADS eru aðrar stærstu flugvéla-
smiðjur í heimi, næstar á eftir Boeing,
og eru með 100.000 manns í vinnu á 70
stöðum víða um heim. Framleiða þær
meðal annars Airbus-þoturnar.
„Sonur“ Con-
corde í sigtinu
SAMNINGAR stjórnar Kaupþings Búnaðar-
banka við æðstu stjórnendur fyrirtækisins voru
of háir miðað við aðstæður hér á landi og voru
mistök að mati Sigurðar Einarssonar stjórnar-
formanns. Hann segir að bankinn hafi ekki beð-
ið fjárhagslegt tjón vegna þessa máls en ímynd
hans skaðast. Þetta kemur fram í viðtali við Sig-
urð í Morgunblaðinu í dag.
Sigurður segist hafa átt von á viðbrögðum
vegna kaupréttarsamninga sem stjórn Kaup-
þings Búnaðarbanka gerði við hann og Hreiðar
Má Sigurðsson, annan af tveimur forstjórum,
„en ekki alveg þeim sem urðu. Í ljósi þess er al-
veg ljóst að þessir samningar voru mistök af
okkar hálfu,“ segir Sigurður í viðtalinu.
Hann segir að stjórn fyrirtækisins og launa-
nefnd á hennar vegum hafi talið að kauprétt-
arsamningar við æðstu stjórnendur ættu að
taka mið af því alþjóðlega samkeppnisumhverfi
sem fyrirtækið starfaði í og það hafi verið gert.
„Það er hins vegar ljóst að samningarnir falla
illa inn í íslenskan veruleika og við erum búnir
að átta okkur á því núna,“ segir Sigurður. Hann
segir að þótt samningarnir séu ekkert í líkingu
hlutabréfa Kaupþings Búnaðarbanka á næstu
fimm árum.
Ekki beint fjárhagstjón
Kaupþing Búnaðarbanki hefur enn ekki orðið
fyrir beinu fjárhagslegu tjóni vegna málsins, að
sögn Sigurðar. Viðskiptavinum hafi ekki fækkað
á föstudag og innlán einstaklinga ekki minnkað.
Hjá öðrum bönkum segja menn hins vegar
straum viðskiptavina hafa verið frá Kaupþingi
Búnaðarbanka. Íslandsbanki segir um 500
manns hafa bæst í viðskiptamannahóp bankans
á föstudag og laugardag, sem séu jafnmargir og
vænta megi á fjórum mánuðum. Landsbankinn
fékk 100 nýja viðskiptavini á laugardag.
Sigurður telur sjálfsagt að leggja kauprétt-
arsamninga fyrir hluthafafund til samþykktar.
Kristján Ragnarsson, formaður bankaráðs Ís-
landsbanka, telur slíkt hins vegar ekki nauðsyn-
legt. Það nægi að stjórn félagsins taki ákvörðun,
enda sé um hana fjallað á hluthafafundi.
við þá ofurlaunasamninga sem gagnrýndir hafa
verið erlendis séu fjárhæðirnar háar miðað við
íslenskt viðskiptaumhverfi. Hann leggur þó
áherslu á að samningarnir hefðu engu skilað
strax til þeirra félaga og myndu ekki hafa gert
það nema tækist að viðhalda og hækka gengi
Sigurður Einarsson segir að kaupréttarsamningarnir hafi verið mistök
Of háir miðað við
íslenskan veruleika
Morgunblaðið/Kristinn
„Mistök sem ég sem stjórnarformaður bank-
ans ber fulla ábyrgð á,“ segir Sigurður.
Samningarnir voru mistök/6
Kaupþing Búnaðarbanki/4/10
MARGT benti til þess, að þjóð-
ernissinnar, Króatíska lýðræð-
issambandið, HDZ, hefðu feng-
ið meirihluta sæta í
þingkosningum, sem fram fóru
í Króatíu í gær. Var það byggt á
talningu 10% atkvæða.
Ef þetta gengur eftir fá HDZ
og tveir stuðningsflokkar 75
þingmenn en þeir flokkar, sem
standa að núverandi stjórn
mið- og vinstriflokka, 63 menn.
Ivica Racan, forsætisráð-
herra fráfarandi stjórnar, við-
urkenndi í gærkvöld, að líklega
væru dagar hennar taldir.
Grunaður um græsku
Það var Franjo heitinn
Tudjman, sem stjórnaði Króat-
íu nánast eins og einræðisherra
eftir sjálfstæðistökuna 1991,
sem stofnaði HDZ og hefur
flokkurinn lengi einkennst af
mikilli þjóðernis- og einangrun-
arhyggju. Að undanförnu hefur
flokkurinn reynt að nálgast
hina hefðbundnu, evrópsku
hægriflokka en leiðtogi hans,
Ivo Sanader, hefur þó verið
tregur til að fordæma ýmsar
gerðir hans á síðasta áratug.
Vegna þess gruna hann margir
um græsku, ekki síst serbneski
minnihlutinn, og ólíklegt er, að
sigur hans muni vekja fögnuð í
aðalstöðvum ESB.
Stefndi
í sigur
þjóðernis-
sinna
Zagreb. AFP.
„Þessi dagur er einn sá stærsti í sögu
Georgíu, þetta er fæðingardagur
hinnar nýju Georgíu,“ sagði Mikhail
Saakashvili, helsti leiðtogi stjórnar-
andstöðunnar og „flauelsbyltingar-
innar“ en hún hófst með víðtækum
mótmælum í kjölfar umdeildra þing-
kosninga 2. nóvember síðastliðinn.
Er almennt viðurkennt, að þá hafi
miklum svikum verið beitt.
„Hann er farinn,
hann er farinn“
„Ég er á förum,“ sagði Shevardn-
adze í gær eftir fund með leiðtogum
stjórnarandstöðunnar en áður hafði
hann átt fund í Tbilisi með Ígor Ív-
anov, utanríkisráðherra Rússlands.
Var þessari yfirlýsingu hans tekið
með miklum fögnuði af þúsundum
manna, sem mótmælt hafa í tvo sól-
arhringa samfellt fyrir framan þing-
húsið. „Hann er farinn, hann er far-
inn,“ hrópaði fólkið, sem veifaði
þjóðfánanum og lýsti upp næturhim-
ininn með flugeldum. Um alla borg-
ina voru bílflautur þeyttar og efnt til
veisluhalda á öðru hverju götuhorni.
Saakashvili hrósaði Shevardnadze
fyrir að hafa sagt af sér og komið
þannig í veg fyrir hugsanleg átök en
eftir miðjan dag í gær var orðið ljóst,
að honum var ekki lengur sætt á for-
setastóli. Þá höfðu yfirmenn hersins
og öryggissveita innanríkisráðu-
neytisins lýst yfir stuðningi sínum
við stjórnarandstöðuna.
Kosningar haldnar
innan 45 daga
Zurab Zhvaniya, einn af leiðtogum
stjórnarandstöðunnar, sagði í gær,
að efnt yrði til forsetakosninga í
Georgíu innan 45 daga og ganga
flestir að því sem gefnu, að Saakas-
hvili muni þá fara með sigur af hólmi.
Vildi Burjanadze, sem nú gegnir
embættinu til bráðabirgða, ekkert
um það segja hvort hún byði sig
fram.
Víst þótti í gær, að einkaþota
Shevardnadzes hefði stefnt til
Þýskalands en þýska stjórnin bauð
hann í gær velkominn til landsins. Er
hann sagður eiga mjög glæsilegt hús
í heilsuræktarbænum Baden-Baden.
„Fæðingar-
dagur hinnar
nýju Georgíu“
Tbilisi. AP, AFP.
MIKILL fögnuður ríkti í Tbilisi, höfuðborg Georgíu, í gær er fréttist, að Ed-
uard Shevardnadze, forseti landsins, hefði látið undan margra vikna mótmæl-
um og eindreginni kröfu um að segja af sér. Hefur Nino Burjanadze, forseti
þingsins, tekið við sem forseti til bráðabirgða en sjálfur hélt Shevardnadze
strax úr landi og var talið líklegt, að hann færi til Þýskalands.
Gjaldþrota/14
MIKILL fögnuður braust út meðal mótmælenda í Tbilisi þegar Eduard
Shevardnadze, forseti landsins, gafst upp fyrir „flauelsbyltingu“ fólksins
og sagði af sér. Efndu borgarbúar til þess, sem þeir kölluðu „frelsishátíð“
með veisluhöldum fram á nótt. Shevardnadze hélt strax úr landi og þótti
víst, að hann hefði farið til Þýskalands.
Reuters
„Frelsishátíð“ í höfuðborginni