Vísir - 23.10.1980, Page 1
Sáttafundur meö prenturum stöð til kl. 7 í morgun:
TÆKNIDEILAN LEYSTIST!
s
Samkvæmt heimild-
um Visis náðist i nótt
samkomulag um tækni-
og atvinnuöryggismál
prentara. Verður það
kynnt á fundi með
félagsmönnum
Grafiska sveinafélags-
ins kl. 4 i dag.
Fundur prentara og viðsemj-
enda þeirra hjá sáttasemjara
hófst um hálfsex leytið i gær og
lauk honum ekki fyrr en kl. 7 i
morgun. Annar fundur hefur
verið boðaður kl. 3 í dag.
Visir spurði Guðlaug Þor-
valdsson i morgun, hvort ASl og
VSl yrði boðuð til viðræðuíund-
ar i dag. Kvað hann ekkert hafa
verið ákveðið um það, en
sagðist mundu hafa samband
við báða deiluaðila til að leyfa
þeim að fylgjast með gangi
mála. Það yrði svo að ráðast
hvenær þætti ástæöa til að boða
þá til fundar.
„Ég get ekkert sagt um það á
þessu stigi”, sagði Þorsteinn
Pálsson framkvæmdastjóri
VSÍ, þegar Visir spurði hann
hvort VSí væri lilbúið til
samningaviðræðna, ef sérkröf-
ur prentara væru leystar.
Kvaðst Þorsteinn ekkert hafa
frétt af niðurstöðum fundarins i
nótt og þvi ekkert geta tjáð sig
um málið.
—JSS
Slefnuræðan í kvðld:
Flmmtl hver hlng-
maður fjarverandi!
A milli tiu og tólf þingmenn
héldu flugleiðis til Hafnar i
Hornafirði i morgun og verða þvi
fjarri góðu gamni þegar forsætis-
ráðherra flytur stefnuræðu sina á
alþingi i kvöld.
Stjórn Framkvæmdastofnunar
heldir fund á Höfn i fyrramálið,
eni stjorninni eiga sæti sjö þing-
menn, Eggert Haukdal, Stefán
Guðmundsson, Matthias Bjama-
son, Geir Gunnarsson, Þórarinn
Sigurjónsson, Karl Steinar
Guðnason og Steinþór Gestsson.
Stjórnin mun siöan halda fund
með sveitarstjórnarmönnum á
Austfjöröum og á hann hefur
einnig veriö boðið öllum sex þing-
mönnum kjördæmisins, þeim
Hjörleifi Guttormssyni, Tómasi
Arnasyni, Sverri Hermannssyni,
Halldóri Asgrimssyni, Helga
Seljanog Agli Jónssyni. Tveireöa
þrir ofangreindra þingmanna
telja sigekki hafa tima til þess að
fara i þessa ferð, en hinir héldu
sem sagt austur i morgun.
Benedikt Antonsson, skrifstofu-
stjóri hjá Framkvæmdastofnun,
sagði i samtali við blaðamann
Visis i morgun, að til þessa fundar
hafi veriö boöað fyrir tveimur
mánuðum og búið að stefna til
hans mönnum alls staðar að af
Austfjörðum, þannig að ómögu-
legt hafi verið aö breyta tima-
setningunni.
„Menn munu að sjálfsögðu
fylgjast með stefnuræðu forsætis-
ráöherra og umræðum um hana i
útvarpinu”, sagði Benedikt..P M
Breytingar halnar vegna steríó-
tækjabúnaðar útvarnsins:
Þullrnlr voru
flutllr
„Það þarf að gera nokkrar
breytingar, meðan verið er að
koma sterió-útbúnaðinum fyrir.
Meðal annars verður að færa þul-
ina inn i upptökuherbergið, þar
sem leikrit og annað efni er tekið
upp, og var það gert i nótt”, sagöi
Magnús Hjálmarsson, tækni-
maður hjá útvarpinu.
Undirbúningur og útsendingum
útvarps i sterió er nú að hefjast,
og er von á sjálfum tækjaútbún-
aðinum um mánaðamót. Sagði
Magnús, að i sjálfu sér væri ekki
mikil vinna að koma tækjunum
fyrir, en leiðslulagnir fyrir þau
væru talsvert umfangsmiklar.
Hefði þvi þurft að flytja þulina,
í nðtt
meðan unniö væri að uppsetning-
unni i þulaherberginu. Siöan yröi
þeir aftur færöir á fyrri staö.
Aöspurður um, hvenær yrði
farið að senda út i sterió til
reynslu, sagöi Magnús, aö þaö
heföi ekki verið endanlega ákveð-
iö, en eingöngu yröi um reynslu-
útsendingar aö ræða fyrstu
mánuöina eftir uppsetningu
tækjanna. Gætu hlustendur þvi
allt eins átt von á slikum reynslu-
sendingum eftir skamman tima.
„Það ætti aö verða töluverður
munur á útsendingunni eftir
breytinguna, a.m.k. hjá fólki,
sem á sæmileg tæki”, sagði
Magnús. — JSS
Þularboröi komiö út úr þularherbergi i nótt.
Vísismynd: GVA
Elnangrunar-
fangeisinu á
Litia-Hrauni
lokað aftur:
„Ég reikna meö þvl aö fang-
arnir heföu veriö haföir þarna
áfram að öUu óbreyttu. Þaö
vantaði bara formlegheitin á
þetta”, sagöi Frimann Sigurðs-
son fulltrúi á Litla-Hrauni, þeg-
ar Visir spuröi hann, hvort loka
Glevmdist að afhenda
bygginguna formlegal
heföi oröið nýju fangelsisbygg-
ingu á staönum, þar sem
gleymst hefði aö afhenda hana
formlega.
Byggingin, sem um ræöir er
einangrunarfangelsi, sem unnið
hefur verið við að undanfömu,
ener nú aö veröa fullbúiö. Verð-
ur gengiðendanlega frá því eftir
fáeina daga, og það tekiö I
notkun, eftir formlega afhend-
ingu að sjálfsögðu.
Sagöi Frimann að tveir fang-
ar, annar frá Litla-Hrauni og
hinn úr Reykjavik hefðu verið
settir i einangrunarfangelsið.
Þeir hefðu siöan veriö teknir
þaðan aftur og annar þeirra
settur á vinnuhælið, en hinn aft-
ur til Reykjavikur. —JSS
1
I
I
I
I
I
t
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
-I
Háhyrningsveiðarnar:
EKKERT
HEFUR
GENGKI
ENNÞA
Háhyrning,sveiðimennirnir á
mb. Guörúnu sem ætla að veiöa
háhyrninga á vegum Sædýra-
safnsins til útflutnings, hafa nú
verið tæpar þrjár vikur á miðun-
um án þess að hafa árangur sem
erfiöi.
Ýmislegt hefur oröiö til þess að
þeim hefur enn ekki tekist að
veiða neitt dýr, t.d. var veðriö
mjög vont og svo hafa komiö upp
bilanir hjá þeim og þeir orðið að
fara i land vegna þess.
A þriðjudaginn köstuðu þeir
hins vegar og fengu þá fjóra há-
hyrninga i nótina. Þrir þeirra
sluppu, en sá fjórði var svo stór
aö ekki var hægt aö taka hann um
borð. Eftir þetta héldu þeir á.
Guðrúnu til Vestmannaeyja.en nú
eru þeir komnir á miðin aftur og
gæti eitthvað fariö að gerast i
þeirra málum alveg á næstunni.
Ifk-.
Kosnlngar í 1. des.
nelnd H.Í.:
vinstrl menn
slgruðu með 27
atkvæða mun
Vinstri menn hlutu kosningu til
1. des. nefndar i Háskóla Islands i
gær, með 27 atkvæða mun. Þeir
hlutu 298 atkvæði.
Vaka, félag lýðræðissinnaðra
stúdenta, hlaut 271 atkvæði en
Salt, 87 atkvæði. Kosningaþátt-
taka var mjög léleg að venju, eða
um 20% og lætur nærri að vinstri
menn hafi sigrað meö um 45%
greiddra atkvæöa en ekki fékkst
upp um fjölda auðra seðla i
morgun. —AS
Átökum
rjúpna-
velðar
Sjá opnu