Morgunblaðið - 24.11.2003, Blaðsíða 32
DAGBÓK
32 MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Goðafoss og Ametist
koma í dag. Venus og
Triton fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Selfoss kemur í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Vinnu-
stofa og leikfimi kl. 9,
boccia kl. 10, kl. 14 fé-
lagsvist, hársnyrting,
fótaaðgerð. Jóga,
næsta námskeið byrj-
ar á morgun þriðjudag
kl. 9, og verður þriðju-
og fimmtudaga.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 10
söngstund, kl. 13–
16.30 smíðar, út-
skurður, kl. 13–16.30
handavinna, kl. 13.30
félagsvist, kl. 16
myndlist.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
9–16 handavinna, kl.
9–12 bútasaumur, kl.
9–17 fótaaðgerð, kl.
10–11, samverustund,
kl. 13.30–14.30 söngur
við píanóið, kl. 13–16
bútasaumur, kl. 15
boccia.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 kl. 20.30.
Fótaaðgerð kl. 10.
Skrifstofan er opin í
dag kl. 10–11.30.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9
fótaaðgerð, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13
föndur og handavinna.
Félagsstarfið Dal-
braut 18–20. Kl. 10
leikfimi, kl. 13 brids.
Félagsstarfið Dal-
braut 27. Kl. 8–16
handavinnustofan op-
in, kl. 10–13 verslunin
opin, kl. 11–11.30 leik-
fimi.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Bað kl. 9–
12, opin vinnustofa, kl.
9–16.30, félagsvist kl.
13.30, kl. 9–12 hár-
greiðsla.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Jólakorta-
gerð í Garðabergi kl.
13 mánudag.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Brids í dag
kl. 13. Handmennt,
spjall og kaffi kl. 13.30.
Félagsstarf eldri
borgara Mosfellssveit.
Spænska kl. 16, línu-
dans kl. 17.30, postu-
línsmálun.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. á morgun kl.
13 boccia. S. 575 7720.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraun-
seli, Flatahrauni 3.
Opnað kl. 9, pútt í
Hraunseli kl. 10–11.30,
biljardsalurinn opinn
til 16, kóræfing Gafl-
arakórsins kl. 10.30,
tréútskurður kl 13 og
félagsvist kl. 13.30.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9–17 handavinna,
kl. 9.30 gler og postu-
lín, kl. 13 skák, kl. 20
skapandi skrif.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
9.05 og kl. 9.55 leik-
fimi, kl. 10 ganga, kl.
11 boccia, kl. 13 leir-
mótun og brids, kl.
20.30 félagsvist.
Hraunbær 105. Kl. 9
postulín, keramik og
fótaaðgerð, kl. 10
bænastund, kl. 13.30
sögustund, spjall og
skrautskrift, kl. 13
hárgreiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9–15 handmennt, kl.
9–10 og kl. 10–11 jóga,
kl. 13–16 spilað. Fóta-
aðgerðir alla virka
daga, hársnyrting
þriðjudaga–föstudaga.
Korpúlfar Grafarvogi.
Á morgun kl. 9.30
sundleikfimi í Graf-
arvogslaug.
Norðurbrún 1. kl. 9–
16 fótaaðgerð, kl. 10–
11 ganga, kl. 13–16.45
opin vinnustofa, mynd-
list.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9–10
boccia, kl. 9–12 mós-
aik, kl. 9.15–15.30
handavinna, kl. 9.30–
10.30 boccia, kl. 11–12
leikfimi, kl. 12.15–
13.15 danskennsla, kl.
13–16 kóræfing.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 9.30 bók-
band, bútasaumur og
morgunstund, kl. 10
fótaaðgerðir og boccia,
kl. 13 handmennt,
glerbræðsla og spilað.
Félag eldri borgara
Suðurnesjum. Bingó í
Selinu Vallarbraut 4,
Njarðvík öll mánu-
dagskvöld kl. 20.
Gullsmárabrids.
Bridsdeild FEBK
Gullsmára spilar í fé-
lagsheimilinu, Gull-
smára 13, mánu- og
fimmtudaga. Skráning
kl. 12.45. Spil hefst kl.
13.
Hana-nú. Fundur í
starfsstjórn Kópavog-
sundranna mánudags-
kvöld 3. nóvember kl.
20 í Gjábakka. Allir
áhugamenn um Kópa-
vogsundrin og þeir
sem vilja leggja fram
efni í bókina, velkomn-
ir.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, Hátúni 12.
Kl. 19 brids.
Í dag er mánudagur 24. nóv-
ember, 328. dagur ársins 2003.
Orð dagsins: Enn sagði hann við
þá: „Gætið að, hvað þér heyrið.
Með þeim mæli, sem þér mælið,
mun yður mælt verða og við yður
bætt.“
(Mk.. 4, 24.)
Björn Bjarnason,dóms- og kirkju-
málaráðherra, skrifar á
heimasíðu sína, bjorn.is,
um viðbrögð Davíðs
Oddssonar forsætisráð-
herra við fregnum um
kaupréttarsamninga
stjórnarformanns og for-
stjóra Kaupþings Bún-
aðarbanka.
Að ganga svo rösklegaog skipulega til
verks sýnir, að Davíð
hefur ákveðið að láta
ekki neinn velkjast í
vafa um afstöðu sína í
þessu máli frekar en
öðrum, þar sem hann
tekur af skarið,“ skrifar
Björn. „Við blasir, að hin
einarða afstaða hans
hafði gífurleg áhrif og
er ekki neinum vafa
undirorpið, að KB sá
fram á brotthvarf fjöl-
margra viðskiptavina, ef
afstöðu Davíðs og allra,
sem eru honum sam-
mála, hefði verið sýnt
skeytingarleysi.
Raunar á eftir að
koma í ljós, hvort
nokkru sinni verður
bættur skaðinn vegna
þessa frumhlaups meðal
stjórnenda KB, því að
heilbrigð dómgreind, til-
finning fyrir umhverfi
sínu og almenn kurteisi í
garð annarra eru meðal
höfuðkosta farsælla
bankamanna, en allt
þetta var að engu haft af
hálfu æðstu stjórnenda
KB í þessu máli. Við
gagnrýninni er ekki
brugðist af hógværð
hins iðrandi manns. Sig-
urður Einarsson ræðst
af offorsi á forsætisráð-
herra og Valgerði Sverr-
isdóttur viðskiptaráð-
herra, en þó sérstaklega
á Davíð. Segir gagnrýni
þeirra „hneyksli“, sakar
Davíð um „einelti“. Í
Morgunblaðinu laug-
ardaginn 22. nóvember
segir Sigurður orðrétt:
„Það er mjög und-
arlegt að ráðamenn
þjóðarinnar leyfi sér að
ráðast á einkafyrirtæki
með þessum hætti sem
gert er. Það þekkist
hvergi annars staðar,
nema hugsanlega í Rúss-
landi og einhvers staðar
í Afríku. Það gengur al-
gerlega fram af mér að
ráðherrar og æðstu
ráðamenn reyni að
stuðla að því að koma
stærsta banka landsins í
vandræði.“ Og í Morg-
unblaðinu segir enn-
fremur: „Hann [Sig-
urður] segist ekki vilja
hugsa þá hugsun til enda
hverjar ástæður um-
mæla ráðamanna eru.“
Af þessum ummælumverður ekki ráðið, að
Sigurður hafi neina til-
finningu fyrir þeirri
reiðiöldu, sem fór um
allt þjóðfélagið vegna
þessa máls. Hann skilur
ekki, hvers vegna menn
telja nauðsynlegt að
sporna við fæti, þegar
fréttist af þessari ráð-
stöfun á fé KB. Skír-
skotun til Rússlands er
næsta kaldhæðnisleg í
ljósi þess, sem þar er að
gerast um þessar mundir
vegna hneykslunar á
framgöngu kaupenda
ríkisfyrirtækja við
einkavæðingu þeirra,“
skrifar Björn Bjarnason.
STAKSTEINAR
Skortur á helstu kost-
um góðra bankamanna
Víkverji skrifar...
Oft endar Víkverji útvarps-hlustun sína í pirringi og ör-
væntingu. Hann gerir oft tilraun til
að hlusta á tónlistarstöðvar – það
er að segja aðrar stöðvar en Rík-
isútvarpið rás 1 – en sífellt oftar
stendur hann sig að því að gefast
upp á að skipta á milli stöðva í leit
að einhverju skemmtilegu og
slökkva einfaldlega. Þarna kemur
ýmislegt til. Oft einfaldlega að ekki
er neins staðar að finna tónlist sem
höfðar til Víkverja, sem telur sig
þó hafa svo breiðan smekk að jaðri
við smekkleysi, en einnig er ástæð-
an í mörgum tilvikum sú, að ekkert
er að hafa nema talandi útvarps-
fólk, eða öllu heldur ótalandi, því
orð eins og „ja“, „uuu ...“, „sem-
sagt“ og fleira sem flokkast undir
tafs fer alveg með það sem blessað
fólkið er að reyna að segja. Að ekki
sé svo minnst á orðskrípi, flat-
neskjulegt orðalag og almennt
innihaldslaust blaður. Væri betra
ef þetta fólk sleppti því að tala og
léti bara tónlistina óma.
En einnig verður að geta þess
sem gott er. Það hefur komið fyrir
að Víkverji kveiki á útvarpinu þeg-
ar á Rás 2 er þátturinn Rokkland, í
umsjá Ólafs Páls Gunnarssonar.
Ólafur þessi er fágæti í íslensku
tónlistarútvarpi vegna þess að
hann talar rétt mál, tafsar ekki og
það sem hann segir hefur í raun-
inni innihald. Víkverji hefur Ólaf
þennan grunaðan um að verja tíma
til að undirbúa þættina og hafa
jafnvel skrifað handrit. Svoleiðis
lagað virðist annars óþekkt hjá
tónlistarútvarpsfólki á Íslandi, og
hér með skorar Víkverji á þetta
fólk að taka Ólaf sér til fyr-
irmyndar.
Ekki vill Víkverji trúa því að tón-listarútvarpsfólk íslenskt
skorti hæfileika, og telur að fremur
sé um að ræða skort á metnaði hjá
þessu fólki. Kannski er líka hlust-
endum flestum sléttsama (nema
stöku þusurum eins og Víkverja)
og útvarpsfólkið sér því ekki til-
ganginn í því að vanda sig.
En Víkverja langar til að benda
þessu fólki á að gott málfar er ekki
einungis spurnig um metnað, held-
ur líka um að koma hugsun sinni til
skila. Tafs, ambögur og flatneskja
drekkja því sem maður vill segja
hlustendum – hugsuninni sem mað-
ur vill koma á framfæri.
Og meira að segja vísvitandi bull
er hlustendavænna ef það er laust
við ambögur og tafs. Víkverji átti
þess kost um tíma að hlýða reglu-
lega á þá alræmdu, bandarísku út-
varpsbullveitu Howard Stern og
getur vitnað um að merkilegt nokk
er orðavaðallinn í þeim manni góð
enska og laus við hljóð sem eru í
rauninni ekki orð („ja“, „sko“, „eee
...“, „semsagt“ – í íslensku tónlist-
arútvarpi er þetta síðastnefnda
reyndar oftast borið fram „sesst“).
Enda er Stern afburðavinsæll.
Howard Stern
ÞEGAR þetta bréf er ritað
hef ég verið í fimm sólar-
hringa á hjartadeild Land-
spítala – háskólasjúkra-
húss. Þar af hef ég þurft að
vera í þrjár nætur, ásamt
fjórum öðrum sjúklingum,
á gangi deildarinnar þar
sem öll herbergi voru yfir-
full.
Það er ólíðandi fyrir
sjúklinga og starfsfólk. Það
er hins vegar aðdáunarvert
að starfsfólk skuli sinna
sínum störfum eins vel og
raun ber vitni við þessar
slæmu aðstæður. Það verð-
ur að teljast lítilsvirðing
gagnvart okkar færa
starfsfólki heilbrigðisstétta
að vinna við þessi skilyrði.
Nú eru uppi hugmyndir
um að bjóða Færeyingum í
hjartaaðgerðir til Íslands.
Mér er spurn: Á hvaða
gangi eiga þeir sjúklingar
að liggja? Að auki langar
mig að beina þeirri spurn-
ingu til ráðuneytisins
hversu lengi þetta ófremd-
arástand á að vara?
Virðingarfyllst,
Hallfríður Georgsdóttir.
Auglýsingapésar
í póstkassa
ÞEIR sem bera út auglýs-
ingapésa ættu að læra að
lesa betur því að þrátt fyrir
að póstkassar séu vel
merktir að ekki eigi að
setja þar auglýsingabæk-
linga fyllist allt samt sem
áður af auglýsingapésum.
Eins vil ég lýsa yfir
óánægju minni með að
Fréttablaðið skuli ekki
borga blaðburðarbörnum
sínum meira kaup eins og
t.d. Morgunblaðið, ég tek
ofan fyrir blaðburðarfólki.
Lesandi.
Frábær þjónusta
og velvild
ÞETTA er skrifað í tilefni
þess að nýlokið er við um-
fangsmiklar viðgerðir á
heimili mínu í Hesthömrum
19, nánar tiltekið leka í bað-
herbergi.
Er okkur hjónunum varð
ljóst að baðherbergi okkar
var farið að skemmast
vegna leka inni í vegg setti
að okkur léttan hroll vegna
væntanlegrar snerru við
tryggingafélagið. En það
var nú annað uppi á ten-
ingnum. Eftir að hafa til-
kynnt tjónið hafði samband
við okkur ákaflega al-
mennilegur starfsmaður
VÍS að nafni Pétur Hauk-
ur. Eftir ítarlega skoðun
bauð hann okkur að velja
annars vegar greiðslu fyrir
tjónið eða að útvega menn,
sem reyndar voru ekki til-
tækir þá stundina, svo að
ég útvegaði menn sjálfur.
Eftir að farið var að rífa
kom í ljós að skemmdirnar
voru mun meiri en nokkurn
hafði grunað. Pétur Hauk-
ur mætti aftur á staðinn og
fyrirskipaði iðnaðarmönn-
unum að þetta yrði að vinn-
ast fljótt og vel og vera al-
gjörlega skothelt.
Nú er þessari raun okkar
lokið og Pétur Haukur og
starfsbróðir hans, Oddur,
sem sér um greiðslurnar,
stóðu sig með einstakri
prýði og voru vinnuveitend-
um sínum til sóma.
Við hjónum þökkum
þeim og VÍS fyrir frábæra
þjónustu og velvild.
Það borgar sig svo sann-
arlega að vera með F+.
Jóhann Þór Hopkins,
Arnheiður Magnúsdótt-
ir, Hesthömrum 19, R.
Dýrahald
Lady er týnd
LADY er þriggja lita kisa,
hvít og brún með svörtum
skellum og sást síðast í
Laufrima.
Þeir sem hafa orðið
hennar varir hafi samband í
síma 896 7683.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Opið bréf til
heilbrigðis-
ráðuneytisins
Morgunblaðið/Eggert
LÁRÉTT
1 prettvís, 8 um síðir, 9
moðreykur, 10 miður sín,
11 fiskar, 13 ákveð, 15
hárknippis, 18 frásögnin,
21 glöð, 22 rifja hey, 23
kjánar, 24 sjálfhælinn.
LÓÐRÉTT
2 gestagangur, 3 við-
urkennir, 4 lengdarein-
ing, 5 dysjar, 6 fjall, 7
klukkan, 12 umfram, 14
fáláta, 15 eldur, 16 kerl-
ing, 17 háð, 18 vísa, 19
borguðu, 20 líffæri.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 busla, 4 súlda, 7 kenna, 8 tukta, 9 rit, 11 róar,
13 hrun, 14 ógnar, 15 hofs, 17 æfur, 20 fró, 22 ískur, 23
lesti, 24 arður, 25 narti.
Lóðrétt: 1 búkur, 2 sunna, 3 afar, 4 sótt, 5 lýkur, 6 ak-
arn, 10 iðnir, 12 rós, 13 hræ, 15 hníga, 16 fíkið, 18 fýsir,
19 reipi, 20 frír, 21 ólán.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16