Vísir - 27.10.1980, Blaðsíða 1

Vísir - 27.10.1980, Blaðsíða 1
Mánudagur 27. október 1980, 251. tbl. 70. árg. Háhyrningurinn látinn siga niður i laugina i Sædýrasafninu. Visismynd: GK Sædýrasafnsmenn á veiðum: Fengu loks háhyrnlng væntanlega seldur fyrir um 25 milliónir króna „Við fengum fimm háhvrninga i nótina á Meðallandsbugtinni og náðum þessum eina, sem er ungt dýr og litur mjög ve! út”, sagði Jón Kr. Gunnarsson, forstöðu- maður Sædýrasafnsins, er Visir hitti hann að máli i Sædýrasafn- inu á laugardagsmorgun. Þá var verið að koma með há- hyrninginn þangað og hann var settur i stóra laug, sem þar hefur verið byggð. Dýrið virtist vera i mjög göðu ásigkomulagi. Jón sagði, að þeir væru búnir að vera á háhyrningsveiðum á mb. Guðrúnu i þrjár vikur án þess að ná nokkrum háhyrningi fyrr en nú. Hefði þar margt spilað inn i, til dæmis veður og bilanir hjá þeim, en áformað væri að halda áfram og reyna að veiða fimm dýr til viðbótar. Dýrið,sem þeirkomu með i Sæ- dýrasafnið á laugardag, er tæpir þrir metrar á lengd, og er talið að söluverðmæti þess, en það verður selt til Bandarikjanna, sé um 25 milljónir króna. gk—• Næturfundur flSi-manna og fulltrúa rlkisstiórnarlnnar: Samið um félags- málapakka í nóll Á fundi samninga- nefndar Alþýðusam- bandsins með fulltrú- um rikisstjórnarinnar sem hófst i gærdag og stóð langt fram á nótt var að mestu leyti gengið frá þeim „félagsmálapakka”, sem verið hefur i burðarliðnum undan- farna mánuði. Enn hef- ur þó ekki tekist sam- komulag um lifeyris- málin, en frá þeim verður væntanlega gengið á fundi nú um hádegið. Að sögn Karls Steinars Guðnasonar, sem sæti á i samn- inganefnd Alþýðusambandsins, hefur „fæðing félagsmálapakk- ans verið mjög erfið og það var ekki fyrr en á siðustu klukku- stundunum, sem eitthvað já- kvætt fó,r að gerast.” Meðal þeirra atriða, sem félagsmálapakkinn tekur til, eru dagvistunarmál, fæðingar- orlof, sjómannastofur og fridag- ar, orlof, orlofsvextir, orlofs- heimili og almannatryggingar. Eins og fyrr segir, er búist við, að endanlega verði gengið frá samkomulaginu i dag. P.M. Sjávarútvegsráðherra átti i morgun fund meö fulltrúum hagsmunaaöila f sjávarútvegi og fiskifræöing- um um nýjustu mælingar á loðnustofninum, en þær benda til þess aö veiða megi mun minna af loðnu en áður var álitið. Sjá nánar frétt á bls. 3. Visismynd: G VA »P Samkomuiag HiP og FÍB um tæknl- og aivinnuöryggismál: MISSA 90% SETNINGARVINNU l l l f ?! „Með þessum samningi. sem Hið íslenska prentarafélag vill láta samþykkja er verið að svipta prentara rétti á um eða yfir 90% af allri setningu lesmáls með þeirri tækni sem notuö er i dag. Þeim er ekki tryggður réttur til aö setja nema titilslður, töflu- setningu og álika, sem er örlitiö brot af setningarvinnunni”, sagði prentari I HIP I samtali við Visi. Hann sagði ennfremur, að með sameiginlegri yfirlýsingu sem samningamenn HIP og FIP hefðu undirritað væri óskað eftir þvi við fræðslunefnd og prófnefnd i setn- ingu, að þær veldu önnur verkefni við sveinspróf. Burtu yrðu tekin ákvæði sem búið var að sam- þykkja um verkefni við setningu alls meginmáls. Þar með væri gerð að engu mikil vinna fræðslu- nefndar til að innskrift verði lög- gilt og prentsmiðjueigendur raunar búnir að samþykkja. „Ef þetta nær fram að ganga getur hver sem er tekið að sér setningu á prentmáli og við höf- um enga tryggingu fyrir þvi að þar fái prentarar nokkru ráðið, nema viljayfirlýsingu prent- smiðjueigenda um að prentarar skuli að öllu jöfnu látnir ganga fyrir um setningarvinnu”, sagði þessi prentari. Hann kvaðst þeirrar skoðunar að rétt væri að fresta samningum um þetta atriði að sinni og visa þvi frekar til hins nýja sameigin- lega félags bókagerðarmanna, sem stofna ætti á sunnudaginn. Að öðrum kosti væri mikil hætta á I 1 að af þessari sameiningu yrði | ekki. Þvi er við að bæta, að i þeirri yfirlýsingu, sem getið er um varðandi verkefni við sveinspróf, mun Iðnskólinn beðinn um að breyta námskrá fyrir bókagerð- armenn þannig, að þeim verði tryggð sambærileg vélritunar- kennsla og Verslunarskólinn veit- ir. —SG. Níðurgreíðslur auknar til aö lækka vísitöiuna: Munar 0,6% í vísitölu 1. desember „Þessar auknu niðurgreiðslur á mjólk og kartöflum, sem koma til framkvæmda I dag, munu lækka veröbæturnar á launin 1. desem- ber um 0,6%”, sagði Hrólfur Avaldsson i Hagstofunni, I sam- tali við blaöamann Visis i morg- un. Niðurgreiðsluaukningin veldur þvi að mjólkurlitrinn lækkar um 18 krónur, úr 371 krónimi 353. Kartöflukilóið lækkar um 99 krón- ur, úr 356 i 257. Kostnaður rikis- sjóðs vegna þessara ráðstafana verður 150-200 milljónir á þessu ári. Þess má geta, að íramfærslu- visitalan, sem liggur til grund- vallar verðbótunum 1. desem- ber, er reiknuð út 1. nóvember. — P.M. Albingi: Vílja atnema barnaskatta „Við viljum afnema barna- skatta og liggja til þess margar ástæður”, sagöi Halldór Blöndal alþingismaður i morgun, en hann ásamt Pétri Sigurðssyni og Matt- hiasi Bjarnasyni leggja fram á alþingi I dag frumvarp um af- nám tekjuskatta, útsvars, kirkju- garösgjalds og sjúkratryggingar- gjaldaá börn innan 16 ára aldurs. Skattbyrði heimilanna er orðin nú þegar of mikil og þegar bæt- ist við vaxtabyrði og dagleg út- gjöld, þá er þessi skattheimta fraleit. Auk þess hef ég alla tlö verið andvigur tekjuskatti, þvi hann er aðeins óréttlátur laun- þegaskattur”, satöi Halldór Blön- dal.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.