Vísir - 03.11.1980, Blaðsíða 1
I I ' ' t ' V« \'.
UMSJÓN: Sigmundur Ó.
Steinarsson og Gylfi
Kristjánsson
íþróttii helgarinnar
VÍSiR FYRSTUR MEÐ ÍÞROTTAFRÉTTIRNAR
Gústal hættur í lyltingum
Heíur lést um
25 kg
- SÍÐAN HANN
IHÆTTI AÐ ÆFA
,,.);'!, ég er hættur keppni, ég er
búinn ao skila minu i þessuV sagöi
lyf tinga maöurinn Gústaf
Agnarsson er viö ræddum viö
hann um helgina.
Gústaf hefur um langt árabil
verið einn fremsti lyftingamaður
okkar. Hann hefur á sinum ferli
sett aragrúa Islandsmeta, og
hann hefur bæði orðið unglinga-
meistari Norðurlanda og Norður-
landameistari i flokki fullorðinna.
Siðustu árin hefur Gústaf átt
við nær stöðug meiðsl að stríða,
og hefur alltaf eitthvað verið aö
koma uppá i þeim efnum. En
samt gafst hann aldrei upp og
hefur nað árangri á heimsmæli-
kvarða i sínum þyngdarflokki.
— Gústaf sagði i viötali við Visi,
að hann ætlaði sér að lyfta sér til
gamans eingöngu úr þessu, hann
langaði alls ekki til að keppa
meira.
Gústaf hefur að undanförnu
verið i yfirþungavigt og vó þá um
110—115 kg. Siöan hann hætti lyft-
ingum af alvöru hefur hann lagt
mjög af, og er nú ekki nema um 90
kg. gk—.
Margrét Noröuriandameistari
i
16 ára stúlka úr Ármanni
¦ Margrét Þráinsdóttir, varð
I Norðurlandameistari á NM-
1 mótinu i jiídó, sem fo'r fram f
I Turku f Finnlandi um helgina.
Margrét vakti mikla athygli,
þar sem hún var langyngsti
keppandinn og léttust. Htin
keppti i 64 kg flokki og sigraði
með yfirburðum.
Tyrkinn seldur fyrir Magnús
GÚSTAF AGNARSSON
og hann gerði áður.
borðar ekki eins mikið þessa dagana
„Reiknaði aldrei með
Teiturtn að enda hjá Dortmund'
TEITUR ÞÓRÐARSON
Bristol
Cíty?
Bob Hoghton er kominn
tii Svíbjóðar tii
viðræðna við öster
Bob Houghton, framkvæmda-
stjóri Bristol City, er væntanlegur
til Sviþjóðar I dag til viðræðna við
öster um kaup á Teiti Þóröar-
syni, landsliðsmanni islands I
knattspyrnu. Með Houghton I
ferðinni verður Roy Hodson,
þjálfari Bristol City og fyrrum
þjálfari Halmstad.
Bristol City geröi Oster tilboð
fyrir helgina og nú I vikunni
verður ákveðið, hvort Teitur
fer til Bristol City. Teitur er
mjög spenntur fyrir að fara til
Englands og leika með Bristol-
liðinu — það eina sem hann er
kviðinn fyrir, er aö rifa sig upp
með fjölskyldu sina, þar sem
dóttir hans er byrjuð i skóla i Svi-
þjóð. —SOS
- segir Magnús Bergs. sem gerðist leikmaður hlá Borussia Dortmund í morgun
• MAGNCS BERGS ... landsliðsmaðurinn snjalli.
„Jú mér list mjög vel á þetta
allt hjá Dortmund og þetta er allt
miklu betra en ég átti von á, ég
reiknaði aldrei með að enda hjá
Dortmund I 1. deild þegar ég fór
til ÞýskalandsV sagði Magniis
Bergs sem I dag gerist leikmaður
hjá Borussia Dortmund að
aflokinni læknisskoðun, sem fdr
fram f morgun.
Magnús gerði samning til 32
mánaða en hann sagðist ekki
reikna með að komast i liðið i
vetur, þaö tæki tima fyrir sig að
komast inn i hlutina.
t þýsku knattspyrnunni mega
félögin aðeins hafa tvo útlendinga
á samningi og verða Islendingar
þvi i báðum þeim stöðum hjá
Dortmund, Atli og Magnús.
Reyndar er einn Tyrki þar fyrir,
eh hann verður látinn fara og
Magniis kemur i hans stað.
Magnús sagði I viðtali við Visi i
fyrradag, aö sér fyndist leitt, ef
Tyrkinn færi illa ut úr þessu máli,
þvi hann hefði tekið einna best á
móti sér af öllum hjá félaginu. En
það sannast á þessu að i þeim
haföa „bisness" sem atvinnu-
mannaknattspyrna er þar, er eins
dauði annars brauð.v Sk—
ÁSGEIR
OG ARNÓR
EflSl
Asgeir Sigurvinsson og Arndr
Guðjohnsen skoruðu fyrir lið sfn f
Belgfu I bikarkeppninni á laugar-
daginn. Asgeir skoraði úr vlta-
spyrnu, þegar Standard Liege
lagði Berchem að velli 3:0.
Lokeren vann sigur 3:0 yfir FC
Malines. Standard og Lokeren
eru þvi komin I 16-liða úrslit
bikarkeppninnar. —SOS
r
Janus á skotskónum
- skoraði 2 mðrk gegn Gðttingen
JANUS GUÐLAUGSSON
Janus Guðlaugsson, landsliðs-
maður I knattspyrnu, var heldur
betur á skotskónum I Hahnstadi-
on, þar sem Fortuna Köln vann
góðan sigur 5:3 yfir Göttingen 05.
Janus gerði út um leikinn með
tveimur glæsilegum mörkum —
staðan var 2:1, þegar hann
skoraði með þrumuskoti af 23 m
færi — knötturinn hafnaði efst I
samskeytunum og siðan skoraði
hann 4:1 af stuttu færi. Janus lék i
stööu miövarðar — oft mátti sjá
hann I fremstu viglinu. Fortuna
Köln hefur verið að sækja I sig
veöriö aö undanförnu — leikiö
mjóg vel.
—SOS
L
SIGURÐUR
OG RAGNAR
- hafa skrifað undir
samning við Homburg
Ragnar Margeirsson úr
Keflavlk og Kópavogsbúinn
Sigurður Gré*arsson hafa
skrifað undir samning við FC
Homburg — þeir verba hjá
félaginu til 31. júni 1981 og eftir
það fær Homburg forgangs-
rétt á að kaupa þá. Samning-
arnir sem þeir gerðu voru mjög
hagstæðir — þeir fá góð laun,
ibúö og bfl. —SOS