Morgunblaðið - 26.11.2003, Blaðsíða 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
18 MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Byggingaframkvæmdir | Sjö til-
boð bárust í byggingu tveggja fjög-
urra íbúða húsa við Gránufélagsgötu
og voru sex þeirra undir kostnaðar-
áætlun, sem hljóðaði upp á rúmar
73,8 milljónir króna. Lægsta tilboðið
átti Tosco ehf. og var það 93% af
kostnaðaráætlun. Farið var yfir til-
boðin á síðasta fundi stjórnar Fast-
eigna Akureyrarbæjar en afgreiðslu
frestað.
Fyrirlestur |Gunnar Smári Egils-
son ritstjóri flytur fyrirlestur á Fé-
lagsvísindatorgi í dag, miðvikudag-
inn 26. nóvember, kl. 16.30 í
Þingvallastræti 23, stofu 14 og nefn-
ist hann Hrörnun blaðamennsk-
unnar?
Í erindi sínu á Félagsvísindatorgi
mun Gunnar Smári velta því fyrir
sér hvort sígild sjónarmið blaða-
mennskunnar eigi undir högg að
sækja.
„Að undanförnu hefur mikið verið
deilt um hugsanlega hættu af valda-
miklum eigendum fjölmiðla og
meintum áhrifum þeirra á frétta-
flutning. Gunnar Smári fjallar m.a.
um áhrif eigenda, hagsmunahópa,
sérfræðinga og stjórnmálamanna á
sjónarhorn blaða og fjölmiðla. Hann
mun einnig ræða um vald fjölmiðla
og valdaleysi og óttann við mann-
eskjuna í fréttum og nafnleysi,“ seg-
ir í frétt um fyrirlesturinn.
Skylduleikjamót | Svonefnt
skylduleikjamót Skákfélags Ak-
ureyrar verður á fimmtudagskvöld.
Teflt verður kóngsbragð. Mótið fer
fram í Íþróttahöllinni og hefst kl. 20.
Halldór Brynjar Halldórsson bar
sigur úr býtum á Atskákmóti Ak-
ureyrar, hlaut 7 1⁄2 vinning af 9
mögulegum.
ELSTU börnin á leikskólanum
Síðuseli brugðu sér bæjarleið í gær-
morgun ásamt leikskólakennurum
og skoðuðu jólakertagerð hjá
starfsfólki Iðjulundar á Gler-
áreyrum. Börnin voru hin ánægð-
ustu með heimsóknina enda flest
þeirra vafalítið farin að hugsa til
jóla. Hópurinn fór gangandi báðar
leiðir en á leiðinni heim varð einn
drengur úr hópnum fyrir slysi.
Drengurinn rann á svelli með þeim
afleiðingum að hann fékk skurð á
ennið og var farið með hann í leigu-
bíl á slysadeild FSA, þar sem gert
var að sárum hans. Að öðru leyti
gekk ferðin vel en börnin voru þó
farin að þreytast undir lokin og ein-
hver þeirra farin að tala um strætó
eða leigubíla en þau luku þó ferða-
laginu á tveimur jafnfljótum.
Morgunblaðið/Kristján
Á heimleið: Börnin á Síðuseli ásamt leikskólakennurunum Hildi Óladóttur og Ernu Rós Ingvarsdóttur.
Börnin skoðuðu jólakertagerð
LJÓST er að einhverjar tafir verða á
því að framkvæmdir geti hafist við
nýja viðbyggingu við Hlíð, dvalar-
heimili aldraðra á Akureyri að því er
fram kemur í frétt á heimasíðu Ak-
ureyrarbæjar.
Samningar um viðbyggingu við
Hlíð náðust loks síðasta vor eftir
stranga baráttu heimamanna. Til að
flýta þessari samningsgerð við rík-
isvaldið buðust bæjaryfirvöld á Ak-
ureyri til þess að greiða 30% af
kostnaði við viðbygginguna í stað
15% eins og venjan er. Samkvæmt
samningnum við ríkið á viðbyggingin
að rúma 60 ný hjúkrunarrými auk
stoðþjónustu.
Skipuð var þriggja manna nefnd
til þess að sjá um undirbúning verks-
ins. Undirbúningur var unninn eftir
nýlegum verklagsreglum um opin-
berar framkvæmdir og var skýrslu
skilað eins fljótt og auðið var eða í
júní síðastliðnum. Skýrslan átti síðan
að fara fyrir samstarfsnefnd um op-
inberar framkvæmdir en fundur
hennar um málið dróst úr hömlu
þrátt fyrir mikinn eftirrekstur Ak-
ureyringa segir í frétt á heimasíðu
bæjarins. Eftir fjögurra mánaða bið
kom loks beiðni um ítarlegri upplýs-
ingar sem fyrir lágu allan tímann og
voru þær snarlega sendar suður yfir
heiðar.
Fyrirséð er að einhverjar tafir
verða á framkvæmdum vegna þess
seinagangs sem orðinn er. Vonir
standa þó til að nú styttist óðum í út-
boð á hönnun.
Tafir á ný-
byggingu
við Hlíð
AKUREYRI
átta ára og var áhersla lögð á að eng-
inn toppur var ákveðinn á aldri að-
spurðra. Alls svöruðu 62,2% úrtaks-
ins.
Aukin ánægja með leikskólana
Eins og áður segir voru borgarbú-
ar ánægðastir með ÍTR, en einkunn
ÍTR hækkaði úr 3,9 í 4,2 á skalanum
1–5. Mikil og almenn ánægja er með
starf ÍTR og nýttu um 80% borgar-
búa sér sundlaugar borgarinnar á
síðasta ári auk þess sem rúmur
þriðjungur borgarbúa heimsótti yl-
ströndina í Nauthólsvík á síðasta ári.
Leikskólar Reykjavíkur fylgdu
fast á eftir ÍTR í vinsældum en þar
hefur ánægja snaraukist og ánægja
með samskipti við starfsfólk batnað
til muna. Segir Þórólfur Árnason
borgarstjóri, að þar skili sér mark-
viss starfsemi í ímyndarvinnu auk
mikillar áherslu á að laða að hæfara
starfsfólk.
Netið í mikilli sókn
Mestrar óánægju gætti með þjón-
ustu Skipulags- og byggingasviðs, en
þar var ánægjan einungis þrír af
fimm. Borgarstjóri taldi að þetta
mætti að vissu leyti rekja til þess að
samskipti við Skipulags- og bygg-
ingasvið eru gjarnan vegna erinda
sem oft er neitað og ekki hægt að
leysa með jákvæðum niðurstöðum
fyrir íbúa. Mest var óánægjan með
Skipulags- og byggingasvið í Graf-
arvogi og sagði borgarstjóri mál svo-
nefnds Landssímareits án efa spila
þar inn í.
Þegar spurt var hvernig best
hentaði að nálgast upplýsingar um
starfsemi borgarinnar kom í ljós að
gríðarleg aukning var í áherslu á
notkun Internetsins. Um 44,4% að-
spurðra sögðust vilja fá upplýsingar
á Netinu, en fyrir tveimur árum var
þessi tala 24,6%. Reykjavíkurborg
mun nýta þessar niðurstöður í sinni
upplýsingamiðlun og verður því
mest áhersla lögð á Netið í miðlun
upplýsinga en jafnframt verða skoð-
aðar aðrar leiðir sem borgarbúar
leggja áherslu á, til dæmis hverf-
ablöð. Athygli vakti að rúmlega níu
af hverjum tíu íbúum undir 55 ára
aldri hafa aðgang að Netinu.
Nálgast óðfluga markmiðið
Vilji til að auka sjálfstæði hverf-
anna jókst einnig nokkuð, þó tæp
60% borgarbúa vilji enn halda sjálf-
stæði hverfa óbreyttu vill nú rúmur
þriðjungur auka sjálfstæði þeirra og
hefur sú tala vaxið um rúm fjögur
prósentustig síðan í síðustu könnun.
Þórólfur Árnason sagði þessar
kannanir gegna stóru hlutverki í því
að bæta þjónustuna og gera Reykja-
vík að betri borg. Þá sagði hann að
mörg af þeim löndum sem Íslend-
ingar miða sig við stundi svona kann-
anir og sé algengt markmið um 80%
ánægja. Taldi hann það þó frábæran
árangur að hafa náð að auka ánægju
borgarbúa með þjónustuna um tæp
20% á fjórum árum.
Könnunin og úrdráttur úr henni
eru aðgengileg á vef Reykjavíkur-
borgar, www.reykjavik.is.
TÆP sjötíu og þrjú prósent Reyk-
víkinga eru ánægð með þjónustu
Reykjavíkurborgar. Ánægðastir eru
borgarbúar með þjónustu Íþrótta-
og tómstundaráðs, en tæp níutíu
prósent borgarbúa eru ánægð með
þá ákvörðun borgaryfirvalda að
setja upp þjónustumiðstöðvar í
hverfum þar sem hægt er að nálgast
ýmsa þjónustu borgarinnar. Þetta
má lesa í nýrri skýrslu um könnun
sem Gallup gerði fyrir Reykjavíkur-
borg í september og október síðast-
liðnum. Niðurstöður könnunarinnar
verða nýttar til að gera úrbætur á
þjónustu borgarinnar og samskipt-
um við borgarbúa auk þess sem upp-
lýsingar verða nýttar í stefnumótun
hjá borginni.
Þetta er í þriðja skiptið sem
Reykjavíkurborg lætur kanna á
samræmdan hátt skoðanir borgar-
búa á þjónustunni. Mikilvægt er að
hafa spurningarnar þær sömu og
spyrja um sömu hlutina til að
tryggja áreiðanleika. Fram kom að
ánægja með þjónustu borgarinnar
hefur aukist um tæp þrettán pró-
sentustig frá síðustu sambærilegu
könnun, sem gerð var árið 2001, og
um tæp tuttugu prósent frá sam-
bærilegri könnun sem gerð var 1999,
en þá voru 53% borgarbúa ánægðir
með þjónustu borgarinnar. Þeim
sem telja þjónustu borgarinnar
fremur eða mjög slæma fækkar
einnig til muna. Úrtak könnunarinn-
ar var 1.300 einstaklingar á aldrinum
sextán ára og eldri. Elsti einstak-
lingurinn sem svaraði var áttatíu og
Aukin ánægja með
þjónustu Reykjavíkur
!
"##!
"##$!
%$&
$'&
$
% &
$#&
($&
"
(
)
*
) ,
ÞÁTTTAKENDUM í könnuninni
var boðið að tjá sig um það sem vel
gengur og það sem betur má fara
og voru svörin á ýmsa lund.
Helstu kostir Reykjavíkur:
Gott þjónustustig
Hrein borg, lítil mengun
Borgin er falleg
Hefur upp á margt að bjóða
Helstu gallar Reykjavíkur:
Of mikil bílaumferð
Slæmt gatnakerfi
Slæmar almenningssamgöngur
Borgin of dreifð
Hverju má breyta í borginni:
Bættar samgöngur
Betri almenningssamgöngur
færri einkabílar
Efling miðborgarinnar
Bætt umferðarmenning
Óvenjulegar óskir borgarbúa:
Þróttur verði fastur í 1. deild
Tyggjóið af götunum
Að ríkið hætti með einokun á
áfengi
Grennra fólk, hollara fæði, betri
matsölustaði með hollari mat
Kostir og gallar
Morgunblaðið/Svavar
Ánægður með niðurstöður: Þórólfur Árnason borgarstjóri kynnti nið-
urstöður könnunar Gallup í þjónustumiðstöðinni Miðgarði í Grafarvogi og
var að sjálfsögðu ánægður með árangur starfsfólks borgarinnar.
Áhugaverðar og nytsamlegar niðurstöður í nýrri könnun Gallup fyrir Reykjavíkurborg
Leikskólarnir og
ÍTR standa sig
sérstaklega vel