Vísir - 18.11.1980, Blaðsíða 16
20
VÍStR
Þriðjudagur 18. nóvember 1980
lesendur hafa oröiö
EHGINN AFSLÁTTUR
HJÁ DAGBLAGINU
,,Lesandi" hringdi.
Mig langar til þess aö vekja at-
hygli á þvi aö áskriftargjald Visis
og Dagblaösins fyrir september-
mánuö var ekki hiö sama.
Askriftargjald blaöanna er 5500
krónur, en vegna verkfallsdaga i
september lækkaöi Visir sina
áskrift um 500 krónur fyrir þann
mánuö, en þeir dagblaösmenn
geröu þaö ekki eins og sést á meö-
fylgjandi innheimtuseöli fyrir
þann mánuö.
Nú langar mig til aö spyrja.
Héldu þeir hina „stórfenglegu”
afmælisveislu sina fyrir þessar
500 krónur sem þeir innheimtu
hjá öllum áskrifendum sinum
þrátt fyrir aö hiö frjálsa og óháöa
dagblaö kæmi ekki út alla virka
daga ársins?
Útvarp og sjónvarp:
GOTT EFNI Á
SLÆMUM TÍMA
Sigríður Hannesdóttir
hringdi:
Mig langar til aö gera athuga-
semd viö dagskrána hjá útvarp-
inu og sjónvarpinu. Fyrst er þaö
hljóövarpiö. Mér finnst megin-
hluti efnis þar vera ágætt, en þaö
sem ég vil hreyfa hér er tima-
setning á dagskrárliöum á kvöld-
in.
Þar á ég viö hvaö góöir þættir
eru haföir seint á dagskránni. Svo
vil ég nota tækifæriö fyrst ég er aö
þessu og þakka Þórarni Guöna-
syni fyrirhans skemmtilega þátt.
Þaö er ekki oft sem aö slikt heyr-
ist, tónlistin, skýringar hans og
svo söngur þessara ódauölegu
söngvara.
Fulloröiö fólk er þreytt aö vaka
á kvöldin en vill alls ekki missa af
góöum þáttum. Allskyns efni sem
fáir hafa gaman af er haft á betri
timum mætti þá bíöa á dag-
skránni þeirra sem á þaö vildu
hlusta.
Þaö er hart aö i sjónvarpinu
skuli alltaf vera byrjaö á þáttun-
um sem almenningur hefur ekki
gaman af eins og að draga viö-
talsþætti fram til klukkan aö
ganga tólf á kvöldin, og ef eitt-
hvaö er gott I sjónvarpinu skal
þaö alltaf vera dregiö þangaö til
fulloröiö fólk og unglingar sem á
aö vakna aö morgni er fariö aö
sofa, en verra efni haft á undan
sem mætti biöa þar til siöar á
dagskránni.
Ég tel aö hér þurfi endurskoö-
unar viö og aö tekiö sé tillit til
þessa fólks. Ég er lltill sjónvarps-
glápari, en ég vil hafa þaö og
helst ekki missa af þvi sem
skemmtilegt og gott er, ég vil
geta notiö þess sem ég heyri og
sé.
Kabarettínn góð tllbreytlng
„Skemmtanaglaður"
hringdi:
Mig langar aö koma á framfæri
þakklæti til Leikfélags Akureyrar
fyrir Kabarettinn i Sjálfstæöis-
húsinu. Þetta er góö tilbreyting i
annarss heldur faskrúgt skemmt-
analif bæjarins, sem vonandi
veröur framhald á.
Ekki ætla ég aö dæma um efni
kabarettsins, en sýningin er létt,
gengur hnökralaust fyrir sig og
ég gat ekki annaö séö en allir
skemmtu sér vel, allavega var
lengi klappaö aö leikslokum.
Kabarettinn gefur félaginu lika
peninga i kassann, sem hefur ver-
iö tómur. Vonandi fer félagiö inn
á þá braut i framtiöinni, aö sýna
svonefnd „kassaverk”. Ég er
nefnilega á þvi, aö meira en
helmingur bæjarbúa vilji sjá slik
verk þegar farið er I leikhús, viljii
létta af sér stressinu og hlæja al-
mennilega. Kassa verkin minnka
lika tómahljóöið i kassanum ei
vel tekst til.
Kikisstjórnin kemur eins og höggormur I bakiö á launþegunum.
„Leikhúsgestur" skrifar.
Ég er ekki ánægöur meö þaö aö
Þjóöleikhúsiö skuli hafa skóla-
sýningar meö þeim hætti aö setja
nemendur á barnsaldri inn á
venjulegar kvöldsýningar.
Ég lenti I þvi að sjá leikritiö
Smalastúlkan og útlagarnir I svo-
kallaðri skólasýningu, og ég verö
aö segja eins og er aö ég heföi allt
eins getaö setiö heima.
Byrjun leikritsins var ekki
björguleg, leikkonan sem fyrst
kom fram á sviðið varö aö biöa i
langan tima eftir þvi aö börnin
þögnuöu svo hún gæti hafiö mál
sitt. Og þetta var forsmekkurinn
af þvi sem á eftir fylgdi.
Börnin voru talandi saman alla
sýninguna út i gegn og kennar-
arnir sem voru meö þeim höföu
greinilega ekkert vald yfir börn-
unum. Svo fór lika aö leikritið fór
algjörlega fyrir ofan garö og neö-
an hjá þvi fullorðna fólki sem var
á sýningunni, þaö heyröist ekkert
I leikurunum langtlmum saman
Bréfritari skorar á forráöamenn Þjóöleikhússins aö auglýsa sérstak-
lega ef um skólasýningar er aö ræöa.
vegna skvaldursins i börnunum.
Ég vil skora á forráöamenn
Þjóöleikhússins aö þeir hafi sér-
stakar sýningar fyrir skólafólk,
en veröi þaö ekki hægt, þá veröi
skýrt tekið fram I auglýsingum
hvort um skólasýningu sé að ræöa
eöa ekki svo fólk sem vill fá aö
njóta þess I næöi aö fara I leikhús
geti haft af þvi gaman.
Skvaldur skólabarna
eyðllagði sýnlnguna
BARNASKATTAR
Hringlð í
síma 86611
milli kl. 2-4
eða skrifið til
lesenda-
síðunnar
Starkaður skrifar:
Undanfariö hefur mikiö veriö
rætt um barnaskattana. Þar hafa
margir talað og skrifaö. Allir
hafa talið, aö skv. eldra skattkerfi
hafi tekjur barnanna lagst ofan á
tekjur foreldranna viö skattlagn-
ingu. Þetta er ekki nema aö hluta
til rétt. Skv. eldra skattkerfi var
heimilt aö fara fram á sérsköttun
barna, ef þau höföu nokkrar tekj-
ur. Voru þau þá skattlögö sem
fullorönir einstaklingar og fengu
fullan persónufrádrátt og náms-
frádrátt og aðra frádrætti, sem
fulloröna fólkiö naut. Mun fólk
yfirleitt hafa notfært sér þetta, ef
börnin höföu tekjur aö ráöi, og
lentu þessar tekjur þvi ekki I
skatti nema þær væru þeim mun
meiri. Aö þessu leyti er um ný-
mæli aö ræöa skv. nýju lögunum,
þótt allir, sem um þessi mál
fjalla, viröist vilja halda þessari
staðreynd leyndri, meira aö segja
þingmenn og ráöherrar, sem rætt
hafa um máliö opinberlega.
Hermann Arason og Kjartan Óiafsson i hlutverkum sinum I kabarettin-
um I Sjálfstæöishúsinu á Akureyri.
ÞEIR SKAMMTA SER
EKKI Vlfl NÖGL ...
F.Æ. skrifar.
Ekki var fyrr búiö aö semja um
kjör þeirra lægst launuöu I þjóö-
félaginu en aö rikisstjórnin tók
sig til og heimiluöu hækkanir á
ýmissi þjónustu opinberra stofn-
anna.
Þetta eroröinn nær viss atburö-
ur þegar þeir sem minnst hafa
umleikis I þessu geðveikisþjóöfé-
lagifá smá kauphækkun, þá kem-
ur rikisvaldið eins og höggormur I
bakiö á launþegunum og hrifsar
til sin hækkunina og vel þaö.
Og svo kemur Tómas litli ráö-
herra eins og skrattinn úr sauöa-
leggnum og segist vilja fá verö-
stöövun um áramótin. Hann ætti
aö vita aö þaö er veröstöðvun I
gildi samkvæmt lögum þótt svo
hann og fleiri hans likar hafi
heimilaö skefjalausar hækkanir
og ætli aö sleppa þeim óhindraö út
á heröar almennings nú i svart-
asta skammdeginu. En hvaö gera
þessir menn svo fyrir sjálfa sig á
meöan?
Þeir skammta sjálfum sér
kauphækkanir aö eigin vild, og
þar er sko ekki skoriö viö nögl eöa
nærri henni. Forustan I þjóöfélag-
inu er orðin svo úldin og óskamm-
feilin aö engu tali tekur og ætti aö
setja þessa menn af viö fyrsta
^ækifæri.
Ný llUfl-
stðð en
engir
farpegar
Suðurnesjabúi skrifar.
Þaö er eitt eftir ööru hjá for-
ráðamönnum I þessu þjóöfélagi
okkar. Þeir hófu fyrst aö byggja
upp glæsilegan fiskveiðiskipa-
flota þegar svo var komiö aö nær
öllum fiskistofnum haföi veriö
eytt i hafinu umhverfis landiö, og
siöan hefur eitt af ööru i sama dúr
rekiö annað.
Þaö nýjasta er aö nú á aö fara
aö byggja nýja glæsilega flugstöð
á Keflavikurflugvelli á sama
tima og allt bendir til þess aö um-
ferö farþega um völlinn muni
dragast saman um helming eða
meira.
Finnst mönnum vera eitthvert
vit i þessu? Ég held aö sá maöur
sem hagaöi sér svona i einka-
rekstri myndi vera álitinn eitt-
hvaö bilaöur og almenningur
myndi ekki vilja fjárfesta meö
honum. En þegar rikisvaldiö á i
hlut þegja allir þunnu hljóöi og
borga þessa vitleysu aö þvi er
viröist meö bros á vör.
Ég veit aö bygging flugstöövar-
innar myndi skapa talsveröa
vinnu hjá iönaöarmönnum á Suö-
urnesjum og væri þaö vel. En mér
finnst einsýnt aö þaö megi nota þá
milljaröa sem i þessa byggingu
eiga aö fara á skynsamlegri hátt,
þá hér á Suðurnesjum svo skapa
megi atvinnuna fyrir iönaöar-
mennina. Nóg er hægt aö byggja
af arðvænlegum fyrirtækjum og
efla þau sem fyrir eru.