Morgunblaðið - 26.11.2003, Blaðsíða 44
ÍÞRÓTTIR
44 MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MEÐ jafnteflisleiknum eft-
irminnilega í Barcelona á laug-
ardaginn tryggðu Íslandsmeist-
arar Hauka sér þátttökurétt í
16-liða úrslitum í Evrópukeppni
bikarhafa í handknattleik þar
sem andstæðingarnir verða Crét-
eil frá Frakklandi. Haukar mæta
Vardar Skopje í lokaumferð
riðlakeppni Meistaradeildarinnar
í Makedóníu um næstu helgi en
sá leikur skiptir engu máli því
Haukarnir eru öruggir með
þriðja sætið í riðlinum.
Créteil er í 4. sæti frönsku 1.
deildarinnar með 22 stig en
Montpellier trónir á toppi deild-
arinnar með 25 stig. Créteil hef-
ur unnið sex leiki, gert eitt jafn-
tefli, gegn Ragnari Óskarssyni og
félögum hans í Dunkerque, og
tapleikir liðsins eru tveir, báðir á
heimavelli, 28:21 gegn Chambery
og 29:24 fyrir Paris SG.
Créteil sló út Vilnius frá Lithá-
en í 1. umferð Evrópukeppni bik-
arhafa en Frakkarnir unnu báða
leikina, 27:17, og 27:18. Í 2. um-
ferðinni hafði Créteil svo betur á
móti austurríska liðinu Bregenz,
liði Dags Sigurðssonar. Créteil
vann útileikinn, 24:22, og heima-
leikinn, 19:16.
Créteil hefur einu sinni hamp-
að franska meistaratitlinum,
1989, og þá hefur liðið tvívegis
orðið bikarmeistari, 1989 og
1997.
Þekktasti leikmaður liðsins er
Guéric Kervadec. Þessi 31 árs
gamli línumaður á fjöldann allan
af leikjum með franska landslið-
inu og var í nokkur ár í her-
búðum Magdeburgar undir stjórn
Alfreðs Gíslasonar en hann sneri
heim til Frakklands í fyrra eftir
að Magdeburg varð Evrópumeist-
ari.
Flestir leikmanna Créteil eru
Frakkar en með því leikur lands-
liðsmaður frá Alsír, Salim Nedjel
Hammou, og serbneskur mark-
vörður, Dragan Pocuca að nafni.
Fyrri leikur Hauka og Créteil
verður í Frakklandi 13. eða 14.
desember og síðari leikurinn á
Ásvöllum viku síðar.
FRAMKVÆMDASTJÓRAR úrvals-
deildarfélaganna í knattspyrnu
komu saman á fundi á Akureyri um
helgina og ræddu þar ýmis sameig-
inleg mál.
„Það var orðið tímabært að þessi
hópur kæmi saman, knattspyrnan er
orðin stór atvinnugrein og sameig-
inleg hagsmunamál þessara aðila eru
fjölmörg. Fundurinn var mjög gagn-
legur, opinn og skemmtilegur, og það
var komið inn á fjölmörg mál sem við
erum allir að vinna að,“ sagði Brynjar
Jóhannesson, framkvæmdastjóri
Fram, við Morgunblaðið.
Meðal umræðuefna voru samn-
ingar við leikmenn, aðgangur að
völlunum og aðgangur fjölmiðla að
leikmönnum og þjálfurum eftir leiki.
„Við fórum vel yfir samninga-
málin og það kom í ljós að þau eru
með ýmsum hætti og t.d. misjafnt
hvort leikmennirnir séu launþegar
eða verktakar. Þá kynntu Fylk-
ismenn fyrir okkur vel heppnaða að-
gerð þeirra sem fólst í að allir sem
eru í þeirra stuðningsklúbbi eru með
strikamerkt skírteini, sem gera
þeim kleift að fylgjast mjög ná-
kvæmlega með aðsókn ársmiðahafa,
hvaðan þeir koma og hversu vel þeir
mæta. Ennfremur var farið yfir
hvað mætti betur fara í samskiptum
við fjölmiðlana og meðal annars rætt
um þau atvik sem áttu sér stað eftir
leiki í sumar þegar menn voru tekn-
ir í viðtöl um leið og þeir komu af
velli, skapheitir eftir umdeild atvik,
þar sem þeir gættu ekki orða sinna,“
sagði Brynjar Jóhannesson.
DUNKERQUE, lið Ragnars Ósk-
arssonar, sigraði Toulouse, 24:22, í
frönsku 1. deildinni í handknattleik
og komst með því í annað sætið.
Ragnar hafði óvenju hægt um sig,
skoraði aðeins eitt mark og nýtti
ekki tvö vítaköst.
DUNKERQUE er með 23 stig en
Montpellier er á toppnum með 25. Á
eftir koma síðan Chambéry, Créteil
og Nimes með 22 stig hvert, París
SG með 21 og þá Ivry og Sélestat
með 20. Lið Pontault-Combault, sem
tók þátt í opna Reykjavíkurmótinu í
haust, situr á botni deildarinnar og
hefur tapað átta af 10 leikjum sínum
í vetur.
SIGNÝ Hermannsdóttir skoraði
10 stig og tók 11 fráköst þegar lið
hennar, Isla de Tenerife frá Kanarí-
eyjum, sigraði Santos Adba, 78:67, í
2. deild kvenna í spænska körfubolt-
anum um síðustu helgi. Signý er
annar stigahæsti leikmaður liðsins í
vetur og hefur tekið flest fráköst en
lið hennar er í sjötta sæti af fjórtán
liðum í deildinni.
DUSAN Galis mun taka við þjálf-
un knattspyrnulandsliðs Slóvakíu í
lok ársins en Ladislav Jurkemik hef-
ur stýrt liðinu undanfarin misseri.
Liðinu tókst ekki að tryggja sér sæti
í úrslitakeppni EM á næsta ári, en
Galis var í landsliði Tékkóslóvakíu
sem varð Evrópumeistari árið 1976.
Slóvakía hefur aldrei tekið þátt í úr-
slitum stórmóts frá því að landið
fékk sjálfstæði árið 1993.
ROY Keane, fyrirliði Manchester
United, verður ekki með liði sínu
þegar það mætir Panathinaikos í
Aþenu í Meistaradeild Evrópu í
knattspyrnu í kvöld. Keane er togn-
aður í læri en meiðslin eru ekki al-
varleg og líklegt talið að hann verði
með í stórleiknum gegn Eiði Smára
Guðjohnsen og félögum í Chelsea
um næstu helgi.
WOLFGANG Wolf, þjálfari þýska
knattspyrnuliðsins Nürnberg, slas-
aðist á höfði í fyrrakvöld þegar
áhorfandi kastaði einhverju í hann á
meðan lið hans lék gegn Alemannia í
Aachen í þýsku 2. deildinni.
ATVIKIÐ átti sér stað á 71. mín-
útu leiksins, strax eftir að sóknar-
manni Alemannia, Erik Meijer, var
vísað af velli fyrir gróft brot á mark-
verði Nürnberg. Hluturinn lenti á
hnakka Wolfs svo sprakk fyrir og
hann var leiddur blóðugur inn í bún-
ingsklefa. Leikmenn Nürnberg
gengu af velli þegar þetta gerðist en
dómarinn fékk þá til að koma til leiks
á ný og haldið var áfram eftir fimm
mínútna hlé. Reiknað er með að at-
vikið hafi alvarlegar afleiðingar fyrir
Alemannia. Þýska knattspyrnusam-
bandið er með málið til rannsóknar
og búist er við sektum og heima-
leikjabanni.
FÓLK
Ólafur Ingi var ekki nema átjánára þegar hann gerði samning
við Arsenal, fór til liðsins eftir leik-
tímabilið heima. „Mér líkar alveg
ljómandi vel hjá Arsenal og alltaf
betur og betur,“ segir Ólafur Ingi en
viðurkennir að þetta hafi verið erfitt
í byrjun. „Ég kom til félagsins dauð-
þreyttur eftir langt og strangt tíma-
bil heima með Fylki, fór síðan beint
með 19 ára landsliðinu til Tékklands
og þaðan til Arsenal. Ég var því
þreyttur, bæði á sál og líkama, og
þetta var virkilega erfitt. Pabbi kom
með mér út til London til að byrja
með og það hjálpaði mikið, en það
var samt erfitt að fara frá öllum vin-
unum og fjölskyldunni heima. Það
er erfiðara að koma inn í félög þar
sem maður þekkir ekkert til á miðju
tímabili en á undirbúningstíma-
bilinu, þá er auðveldara að kynnast
mönnum og meiri tími til að komast
inn í hlutina. Þetta gerði manni erf-
iðara fyrir en mér
finnst þetta allt
hafa verið upp á
við síðan. Þegar ég
kom út núna eftir
tímabilið heima
var þetta allt ann-
að og ég vissi ná-
kvæmlega að
hverju ég gekk.
Auðvitað er ég
bæði eldri og
þroskaðri en ég
var þegar ég kom
fyrst til liðsins og
það skiptir máli,“
segir Ólafur Ingi.
Hann segist
kunna vel við sig
hjá Lundúnaliðinu
og hefur lært heil-
mikið. „Það er
rosalega mikill
skóli að fara svona
út og maður lítur
fyrst og fremst á
þetta sem slíkt.
Arsenal er eitt af
bestu liðum í heimi
og ég hef reynt að
læra eins mikið og
ég get af öllum
þeim snillingum
sem maður um-
gengst á Highbury
– og taka sem
mest með sér í því
ferðalagi, sem
þetta óneitanlega
er. Mér finnst þetta rosalega gaman
og lærdómsríkt.“
– Hvernig eru þessar stjörnur
sem við þekkjum úr enska bolt-
anum í sjónvarpinu heima?
„Varaliðið æfir sér, er ekki með
aðalliðinu, en liðin eru með sama
sjúkraþjálfarann, sömu aðstöðuna
og eftir hverja æfingu borðum við
allir saman þannig að maður um-
gengst þá á hverjum degi. Eins eru
þeir sem eru að ná sér eftir meiðsli á
æfingum með okkur og stundum
gefst tækifæri til að æfa með að-
alliðinu og þegar það gerist reynir
maður að nýta sér það eins og hægt
er og læra sem mest.
Þetta eru allt mjög venjulegir
strákar og það þýðir ekkert að víla
það fyrir sér að fara í tæklingu við
þá þótt þeir séu frægir. Þeir tuddast
í manni og vilja að það sé vel tekið á
þannig að við erum ekkert að hlífa
þeim – alls ekki. Raunar var maður
dálítið smeykur fyrst, en svo lærir
maður inn á þetta og þetta er ekkert
öðruvísi en á æfingu hjá Fylki, mað-
ur tekur vel á mótherjanum þannig
að æfingin líkist alvöruleik sem
mest.
Arsenal er auðvitað atvinnu-
mannafélag og leikmenn umgangast
ekkert mikið utan æfinga og leikja.
Það er ekki eins og heima þegar
menn hittast eftir æfingu, þarna æfa
menn og svo fer hver til síns heima.
Heima ólst maður
upp með öllum strák-
unum og við lékum
saman upp alla yngri
flokkana og í meist-
araflokki þannig að
við þekkjumst mjög
vel. Þarna koma
menn alls staðar að
og Englendingarnir
líka, þeir koma víða
að þannig að það
myndast ekki þessi
vinátta sem er heima.
Reyndar halda menn
aðeins hópinn hjá
Arsenal og þá þannig
að Frakkarnir eru
saman, Hollending-
arnir, Skandinavarnir
og svo Englending-
arnir. Í varaliðinu er
þetta líka dálítið
þannig.
Margir sem vilja
verða frægir
Þetta eru allt
venjulegir strákar, en
þeir vita meira af sér
enda frægir menn og
geta ekki hegðað sér
eins og þeir vilja. Það
er mikið áreiti á
þessa menn og þeir
hafa allir staðið á
sama tímapunkti og
ég er á núna og skilja
vel hvernig það er og
gera sér fyllilega grein fyrir stöðu
mála og reyna að hjálpa manni, sér-
staklega Englendingarnir. Þeir
þekkja þetta vel því það er fjöldinn
Ólafi Inga Skúlasyni líkar vistin vel hjá Arsenal í London, en er að hugsa sér til hreyfings
Reyni að læra af snill-
ingunum á Highbury
Ólafur Ingi Skúlason er á sínu þriðja ári hjá
enska liðinu Arsenal og samningur hans
rennur út eftir þessa leiktíð. Hann hefur
verið fastamaður í varaliði félagsins í vetur
og staðið sig vel og minnstu munaði að hann
fengi tækifæri með aðalliðinu á dögunum í
deildabikarkeppninni. Það gekk ekki eftir
en hann segir í viðtali við Skúla Unnar
Sveinsson að hann sé alls ekki óþolinmóður
en geti þó vel hugsað sér að skipta um félag
eftir tímabilið, þrátt fyrir að Arsenal sé og
hafi ávallt verið hans lið í enska boltanum.
Guéric Kervadec er þekktasti
leikmaður Créteil frá Frakklandi
Framkvæmdastjórarnir
stungu saman nefjum
Ólafur Ingi tekur mynd yfir San Francisco-borgina þar sem hann var með landsliðinu í síð-
ustu viku. Björgólfur Takefusa fylgist með myndasmiðnum.
Morgunblaðið/Skúli Unnar Sveinsson