Morgunblaðið - 26.11.2003, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2003 B 3
bílar
era 4S Coupé, hafi kraftalegt útlit að
aftan vegna afturstuðarans, og blæj-
an og frágangur hennar sé til fyrir-
myndar og veiti góða einangrun, jafn-
vel á miklum hraða. Hægt er að opna
og loka blæjunni á allt að 50 km
hraða. Hemlakerfið er hið sama og í
911 Turbo. Það var blaðamaðurinn og
útgefandinn Bruno Alfieri sem
hleypti af stokkunum valinu á feg-
ursta bíl heims árið 1993 og hann er
jafnframt formaður dómnefndarinn-
ar. Verðlaunin verða afhent 5. mars
nk. í Palazzo dell’ Arte í Mílanó.
PORSCHE 911 Carrera 4S-blæjubíll
er heimsins fegursti opni sportbíllinn.
Þetta er mat alþjóðlegrar dómnefnd-
ar 17 listamanna, arkitekta, listfræð-
inga og hönnuða, sem á hverju ári
velja heimsins fegursta bíl í Mílanó á
Ítalíu. Porsche varð fyrir valinu í
flokki blæjusportbíla og roadstera.
Í umsögn dómnefndar segir að
Porsche 911 Carrera 4S, sem er fjór-
hjóladrifinn, 320 hestafla bíll, haldi
öllum sporteinkennum, jafnvel með
rafstýrðri blæjunni. Yfirbyggingin,
sem er þróuð út frá Porsche 911 Carr-
Porsche 911 Carrera
heimsins fegursti bíll
Porsche 911 Carrera 4S.
10 dýrustu
uppboðs-
bílarnir
1962 Ferrari 250GTO (813 millj-
ónir ÍSK). Þetta verð fékkst fyrir
bílinn á uppboði Sothebys í Mónakó
1990. Þetta er einn eftirsóknar-
verðasti bíllinn í sögu Ferrari.
1931 Bugatti Royale Kellner
(704 milljónir ÍSK). Á uppboði í Al-
bert Hall í London slógust tveir
kaupendur um bílinn árið 1989.
Greitt var hæsta verð nokkru sinni
fyrir bíl frá fyrirstríðsárunum.
1931 Bugatti Royale Berline de
Voyage (550 milljónir ÍSK). Einn af
sex bílum sem til voru. Þessi var í
eigu spilavítisjöfursins Bills Harrah.
Seldur sem hluti af dánarbúi hans
1986.
1966 Ferrari P3 (473 milljónir
ÍSK). Margir Ferrari-aðdáendur telja
P3 besta bíl Ferrari. Þessi var seld-
ur hjá Christies 2000.
1963 Ferrari 250GTO (409
milljónir ÍSK). Safnarar eltust við
GTO eftir metsöluna í Mónakó
1990. En þessi gerð bílsins hafði
ekki sama feril að baki í keppnum.
AC Cobra Daytona (371 milljón
ÍSK). Allir upprunalegir Cobra-bílar
eru mjög verðmætir, en Daytona er
afar fágætur. RM-uppboðsfyr-
irtækið seldi þennan kúpubak í
Monterey í Bandaríkjunum árið
2000.
1960 Ferrari Dino 196S (352
milljónir ÍSK). Dino er eins sætis
bíll og afar fágætur. Christies seldi
hann í Mónakó 1990.
1937 Mercedes 540K (320
milljónir ÍSK). Dýrasti þýski bíllinn
sem seldur hefur verið á uppboði.
Var seldur á síðasta ári.
1937 Alfa Romeo 8C 2900B
(320 milljónir ÍSK). Yfirbygging
smíðuð af Pininfarina, fjögurra
sæta blæjubíll. Seldur 1999. Talinn
einn af fallegustu bílum allra tíma.
1957 Aston Martin DBR2 (279
milljónir ÍSK). Aðeins tveir bílar
voru smíðaðir vegna þess að reglur
Le Mans-kappakstursins breyttust
sem þýddi að 3,7 lítra vélin var of
stór.
Nissan – góður árangur
Hagnaður Nissan á fyrri helmingi
ársins jókst um 15,2 %. Nissan seldi á
þessum tíma 1.470.000 bíla og gerir
ráð fyrir að hafa
selt meira en 3
milljónir bíla þegar
árið er allt. Nissan
þakkar þetta nýj-
um bílum sem
kynntir hafa verið og kostnaðaraðhaldi
sem beitt hefur verið. Samkvæmt
skráningartölum í Þýskalandi fyrir
október, á stærsta bílamarkaði Evrópu,
fór Nissan yfir Toyota í sölu. Á meðan
Toyota jók sinn hlut í skráningum um
17% jók Nissan sinn hlut um 54%.
VEÐUR
mbl.is