Morgunblaðið - 27.11.2003, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2003 49
INGVAR Ásmundsson (2.321) er
enn í forystusveit heimsmeistara-
móts öldunga í Þýskalandi eftir sjö
umferðir. Hann gerði jafntefli við
fimmta stigahæsta keppanda móts-
ins, rússneska alþjóðlega meistar-
ann Yuri Shabanov (2.422) í sjöundu
umferð. Þrír keppendur eru nú
jafnir í 1.–3. sæti með 6½ vinning.
Ingvar hefur teflt við sterkustu
andstæðingana af þeim þremur,
þótt ekki muni miklu. Nú eru fjórar
umferðir ótefldar á mótinu. Of
snemmt er að leiða hugann að hugs-
anlegum sigri Ingvars á mótinu, til
þess er samkeppnin of hörð. Á hinn
bóginn er Ingvar kominn vel á veg
með að tryggja sér áfanga að al-
þjóðlegum meistaratitli. Honum
dugir líklega hálfur vinningur úr
næstu tveimur umferðum til þess og
verði hann heppinn með andstæðing
í níundu umferð gæti núverandi
vinningafjöldi dugað honum. Staða
efstu manna á mótinu:
1. Ingvar Ásmundsson, Genrikh Chepukait-
is (Rússl., 2.428), Peter Rahls (Þýskal.,
2.341) 6½ v.
4. Yuri Shabanov (Rússl., 2.422) 6 v.
Í áttundu umferð teflir Ingvar við
Chepukaitis, sem deilir efsta sætinu
með honum. Chepukaitis er fjórði
stigahæsti keppandinn á mótinu
skv. FIDE-stigum, en Ingvar er 22.
í stigaröðinni. Alls eru keppendur
272. Samhliða fer fram keppni í
kvennaflokki og þar er kvennastór-
meistarinn Tamara Khmiadashvili
(2.195) frá Georgíu efst eftir sjö um-
ferðir með 6 vinninga.
Sigurður Daði
atskákmeistari Hellis
Sigurður Daði Sigfússon (2.215)
sigraði með fullu húsi á atskákmóti
Hellis sem lauk nú í vikunni, en
Daði lagði alla andstæðinga sína sjö
að tölu. Gunnar Björnsson (1.990)
varð annar með 6 vinninga. Björn
Þorfinnsson (2.260), stigahæsti
keppandi mótsins, varð að sætta sig
við þriðja sæti með með 5 vinninga.
Lokastaðan:
1. Sigurður Daði Sigfússon 7 v.
2. Gunnar Björnsson 6 v.
3. Björn Þorfinnsson 5 v.
4. Sigurður Ingason 4 v.
5.–7. Gunnar Nikulásson, Halldór Gunnar
Haraldsson, Gylfi Davíðsson 3 v.
o.s.frv. Keppendur voru 13 talsins.
Skákþing Garðabæjar hafið
Skákþing Garðabæjar hófst nú í
vikunni. Fjórtán skákmenn taka
þátt í mótinu og þeirra stigahæstur
er Jóhann H. Ragnarsson (2.100). Í
fyrstu umferð kom Hjörvar Steinn
Grétarsson (1.355) á óvart með því
að sigra Patrick Svansson (1.715),
en að öðru leyti urðu úrslit í sam-
ræmi við stig:
Þórir Benediktss. – Jóhann H. Sigurðss. 0-1
Jóhann H. Ragnarss. – Hlynur Gylfason 1-0
Bergur Helgason – Atli Antonsson 0-1
Jón E. Karlss. – Jóhann S. Þorsteinss. 1-0
Sigurður H. Jónss. – Svanberg M. Pálss.
1-0
Hjörvar Grétarsson – Patrick Svansson 1-0
Shredder og Brutus
efst á HM skákforrita
Heimsmeistaramót skákforrita
stendur nú yfir í Graz í Austurríki,
en keppnin er hluti af mikilli
skákhátíð þar sem m.a. fer fram
fyrsta meistaramót Evrópusam-
bandsins í skák í flokki 14 ára og
yngri.
Eftir fimm umferðir á HM skák-
forrita eru Shredder og Brutus efst
á mótinu með 4 vinninga, en Fritz
og Deep Junior eru næst með 3½
vinning. Fritz-forritið er það sama
og tefldi við Kasparov um daginn og
teflir á sama vélbúnaði. Brutus
byggist á átta samtengdum PC-
tölvum og sérhönnuðum búnaði í
hverri þeirra sem sér um útreikn-
inga og mat á leikjum.
Íslandsmótið í atskák
– undanrásir
Dagana 28. og 30. nóvember
verða haldnar í Reykjavík undan-
rásir vegna Íslandsmótsins í atskák
2004. Einnig verður teflt á Akur-
eyri. Í Reykjavík verður teflt föstu-
daginn 28. nóvember kl. 19 og
sunnudaginn 30. nóvember kl. 14 í
húsnæði Taflfélags Reykjavíkur í
Faxafeni 12.
Skilyrði fyrir því að mótið á Ak-
ureyri verði tekið gilt sem hluti af
Íslandsmóti í atskák eru þau að
mótið verði fyrirfram tilkynnt til
Skáksambands Íslands og vel kynnt
sem undanrásir Íslandsmóts í at-
skák. Mótshaldarar á Akureyri
munu auglýsa tímasetningar og
verðlaun á sínu móti.
Þátttökugjald er kr. 1.500, en kr.
800 fyrir unglinga 15 ára og yngri.
Verðlaun í Reykjavík:
1. verðlaun kr. 15.000
2. verðlaun kr. 10.000
3. verðlaun kr. 5.000
Fjölmennt barna- og
unglingaskákmót
á Akureyri um helgina
Hið árlega Kiwanis-skákmót sem
Skákfélag Akureyrar stendur fyrir í
samvinnu við Kiwanisklúbbinn
Kaldbak fer fram á laugardag í hús-
næði Lundarskóla. Taflmennska
hefst klukkan 11 og er skipt í fjölda
flokka eftir aldri. Kiwanismótið er
ávallt eitt fjölmennasta skákmót
ársins, en það sækja oftast upp und-
ir 100 krakkar á grunnskólaaldri.
Allir nemendur grunnskóla Akur-
eyrar eru velkomnir, en boðið verð-
ur upp á hressingu á staðnum.
Ingvar í 1.–3. sæti
á HM eftir sjö umferðir
Morgunblaðið/Kristinn.
Ingvar Ásmundsson.
SKÁK
Þýskaland
HM ÖLDUNGA
17.–29. nóv. 2003
Daði Örn Jónsson
dadi@vks.is
Mikið úrval af vörum
á tilboðsverði!
í gjafakassa
FIMMTUDAGS-
TILBOÐ
Suðurlandsbraut
Sími 533 3109
Opið
mán.-fös. kl. 12-18
laugardaga kl. 10-16
Jólaskórnir
á stelpur og stráka
St. 19-26
Verð áður 3.995
Verð nú 1.995
Margir litir
Fim. - fös. - lau.
FRÉTTIR
EFTIRFARANDI áskorun hefur
borist frá starfandi náttúrufræðing-
um hjá Umhverfisstofnun:
„Fundur félagsmanna í FÍN hjá
Umhverfisstofnun, haldinn þann
25.11. 2003, mótmælir harðlega
frumvarpi ríkisstjórnarinnar um
breytingar á lögum um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins.
Frumvarpið felur í sér grundvall-
arbreytingu á rétti ríkisstarfsmanna
um starfsöryggi. Faglegu sjálfstæði
þeirra sem vinna við stjórnsýslu- eða
vísindastörf er ógnað. Lágmarks-
réttindi sem stjórnsýslulög tryggja
eru tekin af ríkisstarfsmönnum, þar
sem þeir munu eftirleiðis ekki njóta
andmælaréttar, reglunnar um jafn-
ræði, meðalhófsreglunnar o.fl. Með
þessu frumvarpi er ennfremur verið
að gera rétt ríkisstarfsmanna mikið
lakari en annarra, þar sem laun
þeirra eru lægri en á almennum
markaði.
Félagsmenn í FÍN starfandi hjá
Umhverfisstofnun skora á alþingis-
menn að beita sér af alefli gegn laga-
breytingum þessum.“
Náttúrufræðingar
skora á þingmenn
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni
Nýbýlavegi 12 • 200 Kópavogi • Sími 554 4433
Opið virka daga 10-18, laugardaga 10-16
Föt fyrir
allar konur