Morgunblaðið - 27.11.2003, Blaðsíða 6
6 B FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
NFRÉTTIR HÁR byggingarkostnaður sem
fór fram úr áætlun, og slæm fjár-
hagsstaða Kaupfélags Árnesinga,
KÁ, eru tvær helstu ástæður þess
að hið nýuppgerða Hótel Selfoss,
eða Brú ehf., eigandi hótelsins, var
lýst gjaldþrota í september sl. Brú
var stofnað um kaup og endurbygg-
ingu á Hótel Selfossi og hótelið var
eina eign Brúar. Gjaldþrotið er að
upphæð um einn milljarður króna.
Kaupfélag Árnesinga var stærsti
eigandi Brúar ehf. með 63% eign-
arhlut, eða sem svarar til 142 millj-
óna króna í hlutafé.
KÁ hefur verið í greiðslustöðvun
frá því í júní og stefnir að nauða-
samningum við lánardrottna til að
forðast gjaldþrot.
Nýir eigendur bjartsýnir
Nýir eigendur eru nú komnir að
Hótel Selfossi, bæði húseigninni og
rekstrinum. 3G fasteignir ehf. á
húsið en Brúnás ehf. mun sjá um
reksturinn. Félögin tvö eru í eigu
sömu aðila, þeirra Gísla Steins
Gíslasonar, Jóns Gunnars Aðils og
Gests Ólafs Auðunssonar.
Þremenningarnir eru bjartsýnir
á framhald rekstursins og segir
Gísli Steinn í samtali við Morgun-
blaðið að einingin sé ákjósanleg að
stærð og 40% nýtingu þurfi á hót-
elið á ári til að fjárfestingin standi
undir sér. Hótelið er 100 herbergja
en Gísli segir að oft sé miðað við 50
herbergja hótel sem vel rekstrar-
hæfa einingu.
Nýir aðilar ætla að opna hótelið
fyrir gestum sínum 15. janúar nk.
og bókanir fyrir næsta ár líta vel út,
að sögn Gísla. Gengið hefur verið
frá ráðningu hótelstjóra, en það er
fyrrverandi hótelstjóri Hótels Sel-
foss; Sigurður Skúli Bárðarson.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins keypti 3G hótelið af
þrotabúi Brúar á um 250 milljónir
króna, en kröfur í búið eru taldar
nema um einum milljarði króna eins
og fyrr sagði. Þessar 250 milljónir
eru einu fjármunirnir sem fást upp í
þær kröfur. Frestur til að lýsa kröf-
um í búið er ekki liðinn og því er
ekki endanlega ljóst hver upphæð
krafna er.
Það fæst því einungis hluti lög-
veðskrafna, s.s. fasteignagjöld og
gatnagerðargjöld og kröfur á fyrsta
veðrétti, úr gjaldþrotinu en þær eru
taldar vera um 400 milljónir króna.
Kröfuhafar á fyrsta veðrétti eru
VÍS, Samvinnulífeyrissjóðurinn,
Byggðastofnun og Sparisjóður
Kópavogs sem er stærsti kröfuhaf-
inn.
Þær spurningar vakna þegar
málin hafa þróast með þessum
hætti afhverju hótelið var jafn dýrt
í byggingu og raun ber vitni. Þegar
KÁ var að hefja undirbúning
stækkunar hótelsins var haft eftir
framkvæmdastjóra ferðaþjónustu-
sviðs KÁ, Sigurði Jónssyni, í Morg-
unblaðinu í ágúst árið 1998, að fyr-
irhugað sé að byggja gistiálmu með
50–70 herbergjum til viðbótar þeim
tuttugu sem fyrir voru og áætlað að
gistiálman kosti eitthvað á annað
hundrað milljónir króna.
Þegar nær dró framkvæmdinni
og búið var að stofna eignarhalds-
félagið Brú um hótelið, var talað um
kostnað upp á 500 milljónir króna.
Hvort sem ástæða framúrkeyrsl-
unnar er óráðsía, vanáætlun eða
annað er ljóst að farið var verulega
fram úr áætlun.
Þurfti hótelið í þrot?
Það er eðlilegt að menn spyrji sig
núna, þegar gjaldþrotið er stað-
reynd og nýir menn hafa komið að
rekstrinum, og borgað fyrir það
fjórðung af byggingarkostnaðinum,
hvort menn hafi reiknað dæmið til
enda á sínum tíma. Þurfti hótelið
kannski að fara í þrot til að eiga sér
framtíð?
Var raunhæft hjá fyrri eigendum
að ætla að leigutekjur vegna hótels-
ins stæðu undir 5–600 milljóna
króna fjárfestingu, hvað þá millj-
arði?
Víst er að hinir nýju eigendur
telja það verð sem þeir borguðu fyr-
ir hótelið kappnóg. Gísli Steinn
Gíslason, einn hinna nýju eigenda
hótelsins, segist vera nokkuð sáttur
við verðið sem félagið fékk hótelið á
en viðurkennir þó að hafa borgað
meira fyrir það en 3G hafi upphaf-
lega ætlað sér. Að hans sögn voru
fleiri um hituna þegar kom að
samningum.
Spurður um fyrirætlanir 3G
varðandi hótelið segir Gísli að félag-
ið ætli að reka það með hefðbundn-
um hætti en í samvinnuu við Flug-
leiðir sem þýðir að hótelið verður
hluti af Icelandair-hótelkeðjunni.
Gísli segir að ætlunin sé að fá inn
í húsið ýmsa þjónustu sem bæði
nýtist hótelgestum og bæjarbúum,
eins og hárgreiðslustofu, veitinga-
staði og fleira. Hann segir að 3G
ætli sér einnig að klára viðbyggingu
sem stendur ókláruð við hótelið, en
eins og komið hefur fram í fréttum
er talið að um 100 milljónir króna
kosti að ljúka við hana. Í viðbygg-
ingunni á að verða veitingstaaður
og bar fyrir hótelið að sögn Gísla,
og heilsulind þar að auki.
Spurður um menningarhús svo-
kallað sem tilheyrir upprunalegu
hótelbyggingunni og staðið hefur
fokhelt frá árinu 1986 segir Gísli að
það verði klárað með tíð og tíma.
„Við erum nokkuð sannfærðir um
að hótelið komi til með að standa
undir fjárfestingunni sem við fórum
út í. Þetta er eitt af betri ráðstefnu-
hótelum landsins og langstærsta
hótelið á landsbyggðinni,“ sagði
Gísli Steinn.
KÁ tók við 1998
Hótel Selfoss var fyrir breytingar
21 herbergis hótel. Í júní 1996 er
haft eftir Heiðari Ragnarssyni hót-
elstjóra í Morgunblaðinu að það
sem helst hái starfsemi hótelsins
varðandi ráðstefnur sé að hótel-
pláss sé heldur lítið.
Greinilegt er reksturinn gengur
ekki sem best því árið 1998 er geng-
ið frá yfirtöku KÁ á rekstri Hótels
Selfoss eftir að HR ehf. óskaði eftir
því að vera leyst undan leigusamn-
ingi vegna mikilla rekstrarerfið-
leika, eins og það er orðað í frétt
Morgunblaðsins.
Í kjölfarið tekur við nýr hótel-
stjóri, Stefán Örn Þórisson.
Í mars árið 2000 er tilkynnt um
kaup KÁ á Hótel Selfossi af sveitar-
félaginu fyrir 40 milljónir króna og
fljótlega eru kynntar áætlanir um
miklar breytingar á hótelinu og
sagt að ráðgert sé að opna 80–100
herbergja ráðstefnuhótel í júní árið
2002.
„KÁ mun stofna sérstakt eignar-
haldsfélag sem mun stækka hótelið
um a.m.k. 60 hótelherbergi og ljúka
framkvæmdum við 400 manna kvik-
mynda-, leikhús-, tónlistar- og ráð-
stefnusal og leigja fasteignina út til
rekstraraðila að loknum fram-
kvæmdum. Gert er ráð fyrir að
framkvæmdakostnaður geti numið
allt að 500 milljónum króna. Eignin
verður afhent hinu nýja félagi til af-
nota 1. maí nk.,“ segir í frétt af
áætlunum.
Síðar í greininni segir að gert sé
ráð fyrir að KÁ ætli sér að eiga um
20–25% í eignarhaldsfélaginu um
kaupin á Hótel Selfossi.
Eignarhaldsfélagið Brú var síðan
stofnað sumarið 2000, 58% í eigu
KÁ og 42% í eigu Ísport hf. Stofn-
hlutafé var 70 milljónir króna og í
stofnsamþykktum var heimild til að
auka hlutafé félagsins um 70 millj-
ónir króna og gert ráð fyrir að
bjóða aðilum, félögum og einstak-
lingum í Árborg og nágrenni að
gerast hluthafar.
Ekki fór þó allt samkvæmt þeim
áætlunum og KÁ átti á endanum
63% hlut í félaginu og heimild Brú-
ar til aukningar hlutafjár hafði ver-
ið nýtt og meira til.
Af hverju er KÁ horfið frá?
Að lokum má spyrja sig af hverju
KÁ, sem var rekstraraðili hótelsins
allt fram á seinni hluta þessa árs,
þurfti frá að hverfa. Af hverju er
kaupfélagið ekki enn þá með rekst-
urinn á sinni könnu, burtséð frá af-
drifum Brúar?
Svarið við því er einfalt, leigu-
samningi félagsins var ekki þing-
lýst á fyrsta veðrétti. Þar með var
hann fyrir bí þegar ljóst var að ein-
ungis lánardrottnar á fyrsta veð-
rétti fengju eitthvað upp í kröfur
sínar.
Gjaldþrot Hótels Sel-
foss nemur milljarði
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nýir eigendur eru komnir að Hótel Selfossi, bæði húseign og rekstri. 3G fasteignir eiga húsið en Brúnás er með reksturinn.
Hótel Selfoss er gjald-
þrota. Hár bygging-
arkostnaður og fjár-
hagsvandræði fyrrv.
eiganda hótelsins er
einkum um að kenna.
Þóroddur Bjarnason
fjallar um fortíð og
framtíð hótelsins.
tobj@mbl.is
SKOLLABORG ehf., sem er alfar-
ið í eigu Hraðfrystihússins Gunnvar-
ar hf., hefur selt allan eignarhlut sinn
í Guðmundi Runólfssyni hf. í Grund-
arfirði, eða 39,25% heildarhlutafjár.
Kaupandi hlutarins er GR-útgerð
ehf., sem er í eigu Guðmundar Run-
ólfssonar sem stofnaði Guðmund
Runólfsson hf.
Kaupverð hlutarins var 7,10 krónur
á hlut en um var að ræða rúmlega 54,2
milljónir hluta. Heildarkaupverðið
nemur því rúmum 384,9 milljónum
króna.
Söluhagnaður samstæðu Hrað-
frystihússins Gunnvarar er sam-
kvæmt tilkynningu 34 milljónir
króna. Síðustu skráðu viðskipti með
bréf í Guðmundi Runólfssyni hf. fóru
fram í ágúst á genginu 6,35 og er hér
um 11,8% hærra gengi að ræða.
„Við höfum haft áhyggjur af eign-
arhaldi fyrirtækisins um nokkurn
tíma, þ.e. hlutabréfin voru ekki í
höndum heimamanna, og þegar stofn-
andanum bauðst að kaupa þennan
hlut þá sló hann til,“ sagði Guðmund-
ur Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Guðmundar Runólfssonar hf., í sam-
tali við Morgunblaðið.
Einar Valur Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri og stjórnarformaður
Skollaborgar ehf. og framkvæmda-
stjóri Hraðfrystihúsins Gunnvarar
hf., auk þess að vera stjórnarformað-
ur Guðmundar Runólfssonar hf.,
sagði fjölskyldu Guðmundar Runólfs-
sonar hafa óskað mjög stíft eftir að
kaupa. „Það er ljóst að þau vilja halda
eignarhaldinu heima og við fengum
viðunandi verð fyrir okkar hlut. Við
munum þó áfram vinna saman að
ýmsum málum, s.s. þorskeldi,“ sagði
Einar Valur.
Runólfur Viðar Guðmundsson er
framkvæmdastjóri og stjórnarmaður
GR-útgerðar en Guðmundur Runólfs-
son er varamaður í stjórn félagsins.
Seldu stofn-
anda 39,25%
í Guðmundi
Runólfssyni
BANKASTJÓRI seðlabanka Evr-
ópu, Jean-Claude Trichet, segir að
hagvöxtur sé að taka við sér í álfunni,
að því er fram kemur í The Wall
Street Journal. Trichet segir einnig
að vöxturinn geti orðið mun meiri ef
ríkisstjórnir evrulandanna geri nauð-
synlegar kerfisumbætur, svo sem að
auka sveigjanleika á vinnumarkaði og
draga úr útgjöldum til velferðarmála.
Trichet segir að þó að slíkar umbætur
hafi mætt mótspyrnu séu þær nauð-
synlegar og viðhorfið til þeirra sé að
breytast.
Í Bandaríkjunum hafa Landssam-
tök hagfræðinga í atvinnulífinu sent
frá sér spá um að skattalækkun og
lágir vextir muni stuðla að mesta
vexti þar í landi í tvo áratugi, en að at-
vinnuleysi muni ekki minnka mikið þó
að það muni þróast í rétta átt. Þetta
kom fram í frétt AP og þar segir enn-
fremur að spáð sé að vextinum muni
fylgja mikil framleiðniaukning þar
sem fyrirtæki í samkeppni muni finna
leiðir til að auka framleiðslu sína án
þess að ráða fleiri starfsmenn.
Spá auknum
vexti í Evrópu
og Banda-
ríkjunum
◆