Morgunblaðið - 28.11.2003, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.11.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 323. TBL. 91. ÁRG. FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Orða fyrir fótbolta Drottningin veitti knattspyrnu- goðinu OBE-orðuna Fólk í fréttum Leikfanga- sníkir Eltingaleikur við jólasvein í Esjuhlíðum Höfuðborgin Ævintýri á Akureyri Fjöllistakona og spunadansari með dansleikhús Listir VALGERÐUR Sverrisdóttir iðnaðarráð- herra segir einkunnagjöf um umhverfis- áhrif Norðlingaölduveitu, sem finna má í nýrri rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma, ekki hafa áhrif á virkjana- áform á svæðinu. Í áætluninni, sem kynnt var í gær, kemur fram að Norðlingaölduveita hefur talsverð áhrif á umhverfið, og fær ekki nógu góða einkunn til að vera í þeim hópi virkjana- kosta sem iðnaðar- og umhverfisráðherrar vilja að orkufyrirtækin einbeiti sér að. Valgerður segir þessa einkunnagjöf um áhrif Norðlingaölduveitu á umhverfið byggða á öðrum forsendum en þeim sem verið er að útfæra í dag. „Það er alveg augljóst að niðurstaðan í sambandi við Norðlingaölduveitu yrði allt önnur ef menn gefa sér þær forsendur að lónið fari ekki inn á friðlandið,“ segir Val- gerður. Í dag segir Valgerður að miðað sé við að lónið sé í 568 metra hæð yfir sjávarmáli, en þegar úttektin í rammaáætluninni var gerð hafi verið miðað við 575 metra hæð, og lónið því náð inn fyrir mörk friðlandsins. Hefur ekki áhrif á áform um Norðlinga- ölduveitu  Orkufyrirtækin/11 BANDARÍSKIR hermenn í her- skála á Bagdad-flugvelli voru furðu lostnir og fögnuðu George W. Bush forseta ákaft í gær er hann kom í óvænta heimsókn til Íraks. Bush dvaldi í rúmar tvær stundir á flug- vellinum og snæddi kalkún með um 600 hermönnum þar í tilefni af þakk- argjörðarhátíðinni í gær. Hann sagði hryðjuverkamenn vona að Banda- ríkjamenn gæfust upp en þeir myndu ekki hafa erindi sem erfiði. „Við sendum ekki herlið hundruð mílna inn í hjarta Íraks, fórnuðum ekki dýrmætum mannslífum, sigruð- um ekki grimman einræðisherra og frelsuðum ekki 25 milljónir manna til þess eins að hörfa fyrir hópi óþokka og launmorðingja,“ sagði forsetinn. Hermennirnir lýstu sumir yfir að- dáun sinni á því að Bush skyldi fara til Bagdad þótt aðeins nokkrir dagar væru síðan skotið var á flugvél sem nauðlenti logandi á flugvellinum. Flugvél forsetans lenti á flugvell- inum í Bagdad undir kvöld, dregið var fyrir gluggana og ljós vélarinnar slökkt til að draga úr hættu á árás. Bush var á búgarði sínum í Texas í fyrradag en laumaðist þaðan og hélt flugleiðis til Washington til að sækja aðstoðarmenn og fréttamenn sem höfðu heitið að segja ekki frá neinu fyrr en vélin væri farin frá Írak. Áð- ur hafði verið sagt opinberlega að Bush myndi verja helginni í Texas. Bush forseti birtist óvænt í Bagdad AP Bush Bandaríkjaforseti með kalkúnasteik, hefðbundinn rétt Bandaríkjamanna á þakkargjörðardeginum. Bagdad. AP, AFP. ENN aukast vandræði sænska tryggingafélagsins Skandia en í gær var skýrt frá því að 11 háttsettir starfsmenn þess hefðu fengið alls um þrjá milljarða sænskra króna, nær 30 milljarða ísl. kr., í kaup- auka. Að sögn blaðsins Dagens Industri voru það þrír menn í útibúum fyrirtækisins í Bandaríkjunum og Bretlandi sem fengu megnið af peningunum. Skandia er stærsta tryggingafélag í Svíþjóð og viðskiptavinir um 1,2 milljónir en reksturinn hefur gengið illa síðustu árin. Stjórn félagsins tók á sín- um tíma ákvörðun um innri rannsókn á rekstrinum vegna árangurstengdra greiðslna, starfslokasamn- inga og ýmissa bitlinga sem æðstu ráðamenn höfðu úthlutað sér. Er meðal annars um að ræða nokkrar rándýrar íbúðir á besta stað í Stokkhólmi sem þeir fengu fyrir milligöngu félagsins og létu síðan endurnýja fyrir um átta milljónir sænskra króna, nær 80 milljónir ísl. kr. Otto Rydbeck, sem stýrir innri rannsókninni, segir að kostnaður- inn hafi verið færður sem endurbætur á skrifstofuhúsnæði. Talsmaður félagsins, Gunilla Svensson, sagði í gær að niðurstöður innri rannsóknarinnar yrðu birtar nk. mánudag en þegar hefur verið höfðað mál gegn fyrrverandi forstjóra félagsins, Lars-Eric Petersson, og tveim öðrum mönnum. Gætu þeir fengið allt að sex ára fangelsi. Höfðinglegir kaup- aukar og bitlingar Stokkhólmi. AFP. Lars-Eric Petersson ÞENGILL Otri Óskarsson, 14 ára Breiðhylt- ingur, er á góðum batavegi á Barnaspítala Hringsins eftir að hafa nær drukknað í Breið- holtslaug fyrir rúmum tveimur vikum. Á spít- alanum gengur hann undir nafninu „krafta- verkamaðurinn“, enda fullyrða læknar hans að batinn gangi kraftaverki næst. Eru batahorfur mjög góðar þrátt fyrir alvarlegt slys þar sem þurfti að endurlífga hann tvisvar sinnum, fyrst á laugarbakkanum og síðan á spítalanum. Þengill segir það ótrúlega tilhugsun að hann hafi verið í lífshættu. „Það er mjög skrýtin til- finning. Pabbi var að lesa fyrir mig um það sem var gert fyrir mig á spítalanum og ég bara ...vá.“ Er komið var með Þengil meðvitund- arlausan á Landspítalann í Fossvogi var hann tengdur við öndunarvél og sneiðmynd tekin af heila. Fljótlega var ákveðið að senda hann á gjörgæsludeildina við Hringbraut, til að kæla líkamshitann niður. Kom þá í ljós hve lungu hans voru illa sködduð og því ákváðu sérfræð- ingar að tengja Þengil við hjarta- og lungnavél. Að því loknu tók ekki betra við. Rétt áður en foreldrar Þengils áttu að fá að sjá son sinn í fyrsta sinn eftir slysið fór hann í hjartastopp. Hófst þá endurlífgun öðru sinni og tók heilar 15 til 20 mínútur. „Þetta kom okkur öllum í opna skjöldu en fljótlega kom í ljós að Þengill var með mikla blæðingu frá lungum, sem ekki gekk að stöðva með hefðbundnum aðferðum. Þá var ákveðið að reyna lyf sem nýlega er komið á markað fyrir dreyrasjúka,“ segir Felix Valsson læknir, sem annaðist Þengil ásamt fjölmörgu öðru starfsfólki spítalans. Blæðingin stöðvaðist og eftir þetta gekk meðferðin ótrúlega vel. Var Þengill útskrifaður af gjörgæsludeild sl. mánu- dag. Eftir því sem best er vitað hefur lyfið sem Felix nefnir hvergi áður verið notað í heiminum með jafn góðum árangri á meðan sjúklingur er tengdur hjarta- og lungnavél. Endurlífgaður tvisvar sinnum Gengur undir nafninu „kraftaverkamaður- inn“ á spítalanum Morgunblaðið/Jim Smart Þengill Otri Óskarsson er allur að koma til eftir slysið í Breiðholtslaug. Örið á hálsinum er eftir slöngu úr hjarta- og lungnavél sem hélt í honum lífinu ásamt öndunarvél og fleiri tækjum.  Ótrúleg tilhugsun/36–37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.