Morgunblaðið - 29.11.2003, Síða 1
STOFNAÐ 1913 324. TBL. 91. ÁRG. LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Saltfiskur
Barlóma
Þeir spila körfubolta, syngja
saman og borða Daglegt líf
Spurt
og svarað
Andri Guðmundsson spurður
spjörunum úr Fólk í fréttum
LÝÐRÆÐISLEGI sambandsflokkurinn
(DUP), flokkur harðlínumannsins Ians
Paisleys, vann mikinn sigur í kosningum
til heimastjórnarþingsins á Norður-Ír-
landi sem fram fóru á miðvikudag. Taln-
ingu atkvæða lauk í gær og reyndist
flokkur Paisleys hafa tryggt sér 30 þing-
sæti af 108 mögulegum en Sam-
bandsflokkur Ulsters (UUP), flokkur
Davids Trimbles, 27. Niðurstaðan er áfall
fyrir fylgjendur friðarsamkomulagsins
sem gert var 1998.
Eftir kosningar sem haldnar voru 1998
hafði flokkur Trimbles 28 þingmenn og
DUP 20. Andstæðingar friðarsamkomu-
lagsins hafa nú náð yfirhöndinni í röðum
mótmælenda og Peter Robinson, varaleið-
togi DUP, fullyrti í gær í samtali við írska
ríkisútvarpið, RTÉ, að samkomulagið
væri úr sögunni. Hann sagði líka að við-
ræður við Sinn Féin, stjórnmálaarm Írska
lýðveldishersins (IRA), kæmu ekki til
greina. „Ef þú felur örlög þín í hendur
byssumönnum og morðingjum þá ertu á
beinni leið til glötunar,“ bætti Paisley við.
Sinn Féin bætti verulega við sig
Sinn Féin fékk 24 þingmenn kjörna í
kosningunum og er þar með orðinn
stærsti flokkur kaþólikka á Norður-Ír-
landi en Jafnaðar- og verkamannaflokk-
urinn (SDLP), flokkur hófsamra kaþól-
ikka, fékk aðeins 18 þingsæti. Samkvæmt
ákvæðum friðarsamkomulagsins þýða úr-
slit kosninganna að DUP ætti að fá for-
sætisráðherra í heimastjórn og Sinn Féin
varaforsætisráðherra en heimastjórnin
verður vart endurreist við þessar aðstæð-
ur. „Það mun ekkert þing verða kallað
saman næstu misserin. Það sem líklega
blasir nú við er að fram fara viðræður um
nýjan samning eða endurskoðun þess nú-
verandi,“ sagði stjórnmálaskýrandinn
Paul Arthur.
Trimble í vondum málum
Staða Davids Trimble, leiðtoga UUP,
er afar erfið eftir þessar kosningar, en
hann gegndi embætti forsætisráðherra í
heimastjórninni þar til hún var leyst upp í
október 2002 vegna deilna um afvopnun
IRA. Trimble, sem fékk friðarverðlaun
Nóbels fyrir sinn þátt í gerð friðarsam-
komulagsins á N-Írlandi, sagðist hins
vegar ekki hafa nein áform um að segja af
sér leiðtogaembættinu.
Reuters
Klerkurinn Ian Paisley (t.h.) fagnar sigri
ásamt syni sínum, Ian Paisley yngri.
Segja friðar-
samkomulag
úr sögunni
Belfast. AP.
Flokkur Ians Paisleys
sigraði í kosningum
á Norður-Írlandi
GÖRAN Persson, forsætisráð-
herra Svíþjóðar, segir að stjórn-
endur tryggingafélagsins Skandia
eigi að greiða til baka risavaxna
kaupauka sem þeir hafa fengið
greidda. „Það er ekki hægt að verja
þessar upphæðir,“ sagði Persson á
blaðamannafundi í Gautaborg. Lík-
ir Persson málinu við ABB-málið
fyrir nokkrum árum þegar yfir-
menn þess fyrirtækis neyddust til
að greiða kaupauka til baka.
„Þetta mál er þannig vaxið að
það skapar spennu í samfélaginu
sem er erfitt að
draga úr,“ hefur
Aftonbladet
sænska eftir
Persson. Hann
gagnrýndi einn-
ig Hans-Erik
Andersson, nýj-
an forstjóra
Skandia, fyrir
að upplýsa ekki
strax um alla kaupauka og kaup-
réttarsamninga sem hann gerði
þegar hann tók við starfinu.
Upplýst hefur verið að 11 hátt-
settir starfsmenn Skandia hefðu
fengið alls um þrjá milljarða
sænskra króna, nær 30 milljarða
íslenskra króna, í kaupauka. Að
sögn blaðsins Dagens Industri
voru það þrír menn í útibúum fyr-
irtækisins í Bandaríkjunum og
Bretlandi sem fengu megnið af
peningunum.
Skandia er stærsta trygginga-
félag í Svíþjóð og viðskiptavinir um
1,2 milljónir en reksturinn hefur
gengið illa síðustu árin.
Kaupaukarnir verði
greiddir til baka
Göran Persson
HILLARY Clinton, öldungadeildarþingmaður og
fyrrverandi forsetafrú Bandaríkjanna, heimsótti
Bagdad, höfuðborg Íraks, í gær, degi eftir að George
W. Bush Bandaríkjaforseti kom þangað í óvænta
skyndiheimsókn. Clinton hitti m.a. Paul Bremer,
landstjóra í Írak, að máli, fór í skoðunarferð og
snæddi síðan hádegisverð með hermönnum úr kjör-
dæmi hennar, New York-ríki.
AP
Hillary Clinton í Bagdad
TRYGGINGAFÉLÖGIN ætla öll að lækka lög-
boðnar ökutækjatryggingar um allt að 10% frá
og með næstu áramótum. Að auki hafa öll félög-
in tekið upp endurgreiðslur til tjónlausra við-
skiptavina.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins tók
Tryggingamiðstöðin fyrst ákvörðun um lækkun
iðgjalda. Var hún ekki gerð opinber strax á
meðan samkeppnisaðilarnir undirbjuggu út-
sendingu endurnýjunarseðla. Þeir skulu sendir
út fyrir byrjun desember. Fyrirtækin bíða því
með að sýna spilin þangað til á síðustu stundu til
að keppinautarnir fái ekki forskot í samkeppn-
inni og verðleggi sína þjónustu ódýrar. Þegar
stjórnendum Sjóvár-Almennra og Vátrygginga-
félags Íslands (VÍS) varð kunnugt um lækkun
TM ákváðu þau að fylgja í kjölfarið áður en þeir
sendu viðskiptavinum beiðni um endurnýjun.
VÍS ákvað það á miðvikudaginn og kynnti lækk-
unina fyrir starfsfólki í gærmorgun en stjórn-
endur Sjóvár-Almennra tóku endanlega
ákvörðun um lækkun iðgjalda í gær.
Lækkun iðgjalda ábyrgðartrygginga bíla hjá
Sjóvá lækkar því um 10% frá 1. janúar nk.
Tryggingamiðstöðin hefur ákveðið að lækka sín
gjöld um 5–9% og Vátryggingafélag Íslands
(VÍS) um 8–10% frá sama tíma. Allir forsvars-
menn tryggingafélaganna segja afkomu bíla-
trygginga betri og viðskiptavinir njóti þess í
hagstæðari kjörum.
Gunnar Felixson, forstjóri Tryggingamið-
stöðvarinnar, segir að ef tekið sé tillit til 7% af-
sláttar sem tjónlausir viðskiptavinir fái af
tryggingum sínum lækki iðgjöldin um 12–16% á
þessu ári. Fyrir meðalstóran fjölskyldubíl gæti
þetta þýtt 8–9.000 krónur lægri greiðslur á ári.
Hjá Sjóvá-Almennum er iðgjaldalækkunin
einnig misjöfn eftir flokkum en í kringum 6.500
krónur fyrir meðalstóran bíl. Viðskiptavinir
sem eru í svokölluðu Stofn-kerfi fyrirtækisins
muni eftir sem áður fá allt að 10% iðgjalda end-
urgreidd í febrúar á næsta ári og muni lækk-
unin nú ekki hafa áhrif á þá endurgreiðslu. Ein-
ar Sveinsson, forstjóri Sjóvár-Almennra, segir
þetta samkeppnismarkað og hann eigi frekar
von á því að iðgjöld hreyfist nokkuð í kjölfar
lækkunar síns fyrirtækis.
Ásgeir Baldurs, forstöðumaður hjá VÍS, segir
að til viðbótar við iðgjaldalækkun verði tekinn
upp 10% tjónleysisafsláttur á allar grunntrygg-
ingar. Til að njóta þess afsláttar verða við-
skiptavinir að vera með minnst þrjár grunn-
tryggingar hjá fyrirtækinu. Ábyrgðartrygg- ing
bifreiða myndi þá lækka að meðaltali um 6.500
krónur en um 14.000 krónur sé einnig tekið tillit
til tjónleysisafsláttarins af öllum grunntrygg-
ingum.
Tryggingafélögin elta
hvert annað í lækkun
BRETAR, Frakkar og Þjóðverjar
hafa náð samkomulagi um áætlanir
er miða að því að styrkja varnar-
málasamstarfið innan Evrópusam-
bandsins. Kynntu þeir hugmyndir
sínar á utanríkisráðherrafundi
ESB-ríkja í Napólí á Ítalíu í gær.
Bandaríkjamenn hafa lýst
áhyggjum af áformum ESB og var-
að við því að þau ógnuðu framtíð
NATO. Breskur embættismaður
fullyrti hins vegar að samkomulag-
ið í gær væri ekki þess eðlis að
ástæða væri til að hafa áhyggjur af
því að varnarmálasamstarfið græfi
undan einingu NATO.
Sátt um
varnarmál
Napoli. AFP, AP.
SÆNSK yfirvöld vara menn
nú við drukknum elgjum sem
geti verið árásargjarnir og
leggi jafnvel til atlögu gegn
mannfólki, segir á vefsíðu
norska blaðsins Aftenposten.
Á fimmtudag réðst hamslaus
elgur á konu í einbýlishúsa-
hverfi í borginni Karlshamn í
sunnanverðri Svíþjóð.
Elgurinn reyndi að sögn
Blekinge Läns Tidning að
sparka í konuna og er talið að
dýrið hafi orðið drukkið af
því að éta gerjaða ávexti sem
fallið hafa af trjám.
Nokkuð mun vera um það
að dýr verði vel hífuð á haust-
in af því að éta morkin ber og
ávexti sem hafa gerjast og
myndað alkóhól. Sami vandi
hefur komið upp í grennd við
Kristiansand í Noregi þar
sem ölóðir elgir hafa valdið
óskunda. „Sumir elgir eru
sallarólegir með víni en aðrir
verða árásargjarnir,“ sagði
dýralæknirinn Paul Stam-
berg við Aftenposten. „Þeir
eru alveg eins og mennirnir.“
Ölóðir elgir
Dansað í
Hollandi
Íslenski dansflokkurinn tók þátt í
Holland Dance Festival Lesbók