Morgunblaðið - 29.11.2003, Page 6

Morgunblaðið - 29.11.2003, Page 6
FRÉTTIR 6 LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Hér er loksins komin heildarsaga Jóns Sigur›ssonar forseta, eftir vinsælasta ævisagnahöfund fljó›arinnar, Gu›jón Fri›riksson. Fjalla› er um vi›bur›aríka ævi hans, flar sem margt kemur á óvart, og miki› umbrota- og átakaskei› í sögu Íslands. Gu›jón Fri›riksson Sómi Íslands – sagan öll edda.is af fyrra bindinu ef keyptar eru bá›ar bækurnar saman í pakka 50% afsláttur FJÁRHAGSLEGUR ávinningur af sameiningu sjúkrahúsanna í Reykja- vík varð enginn en faglegur styrkur hefur aukist. Frá árinu 1999, þegar Sjúkrahús Reykjavíkur og Landspít- alinn störfuðu hvor í sínu lagi, var launakostnaður þeirra samanlagt 12,8 milljarðar króna, en á síðasta ári námu launagreiðslur sameinaðs spít- ala, Landspítala - háskólasjúkrahúss, 16,6 milljörðum króna. Nemur aukn- ingin 29,5% og ef öll útgjöld eru tekin með í reikninginn jókst kostnaður við rekstur sjúkrahúsanna um sjö millj- arða króna, úr rúmum 19 milljörðum árið 1999 í rúma 26 milljarða í fyrra, eða um 36%. Á sama tíma hækkaði al- mennt verðlag um 17% og launavísi- talan um 24%. Þetta er meðal þess sem lesa má út úr nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar sem metið hefur árangur sameining- ar sjúkrahúsanna í Reykjavík. Skýrslan var gefin út í gær og kynnt sérstaklega á fundi með starfsmönn- um Landspítalans, LSH. Má nálgast skýrsluna á vef Ríkisendurskoðunar. Í skýrslunni kemur fram að erfitt sé að gefa afdráttarlaus svör við því hvort sameiningin hafi skilað tilætl- uðum árangri þar sem ekki hafi verið sett fram mælanleg markmið fyrir sameininguna. Ljóst sé þó að kostn- aðarlega hafi sameiningin ekki skilað ávinningi en faglega séð hafi hún styrkt spítalann. Hann geti þó nýtt enn betur þá möguleika sem nýja fyr- irkomulagið veitir og bætt starfsemi sína á ýmsum sviðum. Þá þurfi stjórn- völd að leggja skýrari línur um það hvernig sjúkrahús LSH er ætlað að vera í framtíðinni. Meginmarkmið náðust að mestu Í skýrslunni kemur fram, að með sameiningu sjúkrahúsanna í Reykja- vík árið 2000 var stefnt að því að gera starfsemi þeirra skilvirkari og ódýr- ari, bæta þjónustuna og auka ánægju sjúklinga með hana og að lokum að styrkja rannsóknir og kennslu innan sjúkrahússins. Ríkisendurskoðun segir ljóst að þessi meginmarkmið hafi að mörgu leyti náðst. Með sam- einingu sérgreina mynduðust faglega sterkar einingar sem gáfu aukna möguleika á sérhæfingu, markvissari og betri þjónustu við sjúklinga og meiri möguleikum á kennslu og vís- indastörfum. Þá sé umfang þeirrar þjónustu sem starfsfólkið skili svipað og fyrir sameiningu þrátt fyrir að því hafi fækkað nokkuð. Sumir þættir starfseminnar hafa að vísu dregist saman en á móti komi að hægt hafi verið að veita ýmsa nýja þjónustu og efla þá sem fyrir var. Sameiningin hafi hins vegar hvorki leitt til aukinna afkasta né sparnaðar eins og að var stefnt. Þó að biðlistar hafi styst í sumum sérgreinum hafi þeir lengst í öðrum. Þá hafi sameining deilda, fækkun starfsfólks og minni yfirvinna ekki orðið til að draga úr kostnaði. Hann hafi þvert á móti hækkað svo mikið að nú fáist minni þjónusta fyrir hverja krónu en áður var. Þetta megi m.a. rekja til mikilla launahækkana á tímabilinu en einnig til aukins kostnaðar vegna tækninýj- unga og nýrra lyfja. Minni afköst en í Bretlandi en gæðin meiri Í skýrslu Ríkisendurskoðunar er birtur ýmiss konar samanburður á LSH og breskum háskólasjúkrahús- um. Þar kemur m.a. fram að í heild er meðallegutími sjúklinga á LSH mjög svipaður og á breskum sjúkrahúsum og þegar horft er til 10 algengustu sjúkdómsflokka á LSH sést að í sjö tilvikum er legutími á LSH styttri en í Bretlandi. Athugun á kostnaði vegna 28 algengustu sjúkdómsflokka á LSH er einnig viðunandi fyrir spítalann. Í 13 tilvikum veitir LSH ódýrari þjón- ustu en bresku sjúkrahúsin en í 12 til- vikum dýrari þjónustu. Þá reiðir sjúk- lingum LSH almennt betur af eftir aðgerð en sjúklingum samanburðar- sjúkrahúsanna. Segir Ríkisendur- skoðun, að þetta megi telja styrk- leikamerki fyrir LSH. Starfsfólk LHS skilar minni afköstum en starfs- fólk breskra sjúkrahúsa. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur ennfremur fram að fjárheim- ildir LSH hafi ekki aukist að sama marki og útgjöldin. Vegna þessa hafi uppsafnaður halli aukist úr 186 millj- ónum króna við sameiningu í rúmar 840 millljónir. Ríkisendurskoðun tel- ur nauðsynlegt að taka á þessum vanda. Þá sé einnig mikilvægt að huga að húsnæðismálum spítalans, en hluti hans sé orðinn gamall og óhent- ugur. Það hafi sömuleiðis sett samein- ingunni ákveðin takmörk að megin- starfsemin fari fram á tveimur stöðum. Enginn fjárhagslegur ávinningur af sameiningu sjúkrahúsa í Reykjavík en faglegur styrkur jókst Rekstrarkostn- aður jókst um sjö milljarða á þremur árum Morgunblaðið/Ásdís Fjölmargir starfsmenn Landspítalans fóru á kynningarfund í gær þar sem skýrslan var kynnt. Hér fremst eru Margrét E. Arnórsdóttir, starfsmaður Ríkisendurskoðunar, Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi, Magnús Pétursson, forstjóri Landspítalans, og Ólafur Gunnarsson frá Ríkisendurskoðun. NOKKRAR umræður urðu um skýrslu Ríkisendurskoðunar á kynn- ingarfundi í hringsal Barnaspítala Hringsins í gær. Í máli nokkurra lækna kom fram ákveðin gagnrýni á skýrsluna. Flestir voru þó á því að þrátt fyrir allt væri Landspítalinn góður spítali, líkt og Sigurður Guðmundsson landlæknir sagði ítrekað í sinni ræðu. Magnús Pétursson, forstjóri Landspítalans, fagnaði skýrslunni og þakkaði Ríkisendurskoðun fyrir vönduð vinnubrögð. Sagði hann skýrsluna vera námu af ábendingum og upplýsingum sem vega ætti og meta, hún gæti orðið notadrjúg í umræðu og samanburði við önnur lönd. Sigurður landlæknir þakkaði Ríkisendurskoðun sömuleiðis fyrir skýrsluna. Hún sýndi að fagleg markmið hefðu náðst, þjónustan væri öflug og rannsóknarstarfið einnig. Varla hefði mátt búast við því að fjárhagsleg markmið næðust strax. Það væri til dæmis bagalegt að sínu mati að bráða- og lyflækningadeildir væru enn tvískiptar. Land- læknir sagði að umræðan um spítalann þyrfti að vera jákvæðari, oftar þyrfti að segja sögu eins og lesa hefði mátt um í gær af drengnum sem bjargaðist úr Breiðholtslaug og var Sigurður þar að vísa til umfjöll- unar Morgunblaðsins. „Landspítalinn er góður spítali“ því rýmra um starfsmennina fimm og gesti, og auk þess fær sendiráðspresturinn skrif- stofu á jarðhæð hússins, en hann hefur hingað til haft aðstöðu í Jónshúsi. Áttatíu ár með sama leigusala Þorsteinn segir að það hafi löngu verið orð- ið tímabært að flytja úr gamla húsnæðinu. „Það var orðið allt of þröngt og óhentugt fyrir nútímalega sendiráðsþjónustu. Aðstaðan til að taka á móti fólki sem átti erindi við sendiráðið var til dæmis mjög bágborin. Íslendinga- samfélagið hér er mjög stórt og jafnframt er mikill straumur ferðamanna þannig að það leiðir af sjálfu sér að þjónustan við þetta fólk er mjög umfangsmikill þáttur í starfsemi sendiráðsins. Það sem við gerum okkur einna mestar vonir um er þó að geta bætt þjón- ustuna við viðskiptalífið. Það er orðin allt önn- ur og betri aðstaða til þess eftir flutninginn. Ég held líka að nábýlið við menningar- miðstöðina Norðurbryggju geti eflt menning- arstarfsemi af ýmsu tagi.“ Þorsteinn segir að flutningurinn marki tölu- verð tímamót, því sendiráðið hafi verið til húsa á Dantes Plads í miðborg Kaup- GÓLFIN í nýju sendiráði Íslands á Norður- bryggju í Kaupmannahöfn eru maðkétin og óslétt. Það er svo lágt til lofts að hávaxið fólk þarf stöðugt að vera á varðbergi. Loftið er rykmettað eftir endurbæturnar sem gera þurfti á húsinu, og iðnaðarmenn eru enn að í anddyri sendiráðsins og göngum. Þorsteinn Pálsson sendiherra segir að sem betur fer þurfi hann ekki að hafa áhyggjur af því að rekast í loftbitana á skrifstofunni sinni. Hann segir að ekki hafi verið rætt um að setja reglur um hámarkshæð starfsmanna, en á hinn bóginn hafi hjálmar komið til tals. Tvöfalt stærra en gamla sendiráðið „Það eru auðvitað ýmsir erfiðleikar við að gera gamalt pakkhús að hentugu skrifstofu- húsnæði en það er annað sem kemur á móti,“ segir Þorsteinn. „Hér er til dæmis falleg birta, og nábýlið við sendisskrifstofur Fær- eyinga og Grænlendinga og ýmis konar menn- ingarstarfsemi hefur einnig töluvert gildi.“ Þorsteinn segir að nýja húsnæðið sé meira en tvöfalt stærra en það gamla. Það verður mannahafnar í meira en áttatíu ár. „Fyrst eft- ir opnun sendiráðsins var það í bráðabirgða- húsnæði þar sem nú er Konunglega bókasafnið, en árið 1921 flutti það í hús í eigu Carlsberg-sjóðsins við Dantes Plads, og þar hefur það verið síðan og alltaf með sama leigusala. Þar hafa margir mætir menn og konur setið í gegnum tíðina.“ Sendiráðið í Kaupmannahöfn er elsta sendi- ráð Íslands, stofnsett 16. ágúst árið 1920. Sveinn Björnsson, síðar forseti, var fyrsti sendiherrann, en meðal annarra sem gegnt hafa embættinu má nefna Jakob Möller, Sig- urð Nordal, Stefán Jóhann Stefánsson og Gunnar Thoroddsen. Þorsteinn Pálsson tók við sendiherrastöðunni í janúar sl., og hafði því setið skamman tíma í embætti þegar sendiráðið flutti. Nýr leigusali sendiráðsins er Norður- bryggjusjóðurinn sem á og rekur Norður- bryggju. Leigutekjurnar frá íslenska sendi- ráðinu, sendiskrifstofum Færeyja og Grænlands og öðrum þeim sem fá aðstöðu í húsinu eiga að standa undir stórum hluta þeirrar menningarstarfsemi sem verður í hús- inu auk viðhalds- og rekstrarkostnaðar. Betri þjónusta við viðskiptalífið Morgunblaðið/Helgi Þorsteinsson Þorsteinn Pálsson sendiherra á skrifstofu sinni í nýja sendiráðinu á Norðurbryggju. Sendiráð Íslands flyt- ur í endurnýjað hús- næði á Norðurbryggju

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.