Morgunblaðið - 29.11.2003, Side 39

Morgunblaðið - 29.11.2003, Side 39
DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2003 39 MAGNÚS Pálsson, öryggisstjóri í Kringlunni, er mikið á ferðinni í sínu starfi og hefur oftar en ekki göngu- mæli á sér. Hann hefur gengið allt að 200 kílómetra á vinnutímanum í desember og þá um Kringluna og fyrir utan hana. „Kringlan er í raun eins og lítið þorp og ég er þá lögreglustjóri þorpsbúanna,“ segir Magnús en hann hefur starfað sem öryggisstjóri í Kringlunni frá því hún var enn á byggingarstigi árið 1987. Áður starf- aði hann sem lögreglumaður og við öryggisvörslu í Texas í Bandaríkj- unum. „Við erum með fólk á vakt allan sólarhringinn og þau eru margvísleg störfin sem við þurfum að sinna. Stöku sinnum þurfa öryggisverðir að hafa afskipti af gestum sem eru á ferð síðla kvölds eða að nóttu til og einnig þarf að opna fyrir versl- unarfólki sem er seint á ferð. Þá þarf að ganga á allar verslanir og athuga hvort ekki sé allt með felldu. Það hefur til dæmis komið fyrir að gleymst hefur að slökkva kertaljós. Það þarf að lagfæra ýmislegt eftir nóttina, fara yfir þrif í húsinu, at- huga hvort allt er með felldu á bíla- stæðum og veita kaupmönnum margvíslega aðstoð. Allir þjófnaðir eru tilkynntir til öryggisdeildar Kringlunnar og viðskiptavinir leita einnig með ýmis mál til örygg- isvarða. Þegar Magnús er spurður hvort öryggisverðirnir hafi náð að kynnast föstum viðskiptavinum Kringlunnar segist hann eiga orðið marga kunningja sem komi til dæm- is og fái sér kaffi á morgnana í Kaffi- tári eða starfi í fyrirtækjum sem eru í nágrenninu. „Auðvitað heilsar mað- ur svo upp á fasta viðskiptavini sem hafa haldið tryggð við Kringluna í áranna rás og þeir eru margir.“ En hvað gengur Magnús mikið á venjulegum degi? „Það er ekki óalgengt að ég gangi milli fimm og sjö kílómetra á dag. Þegar mest hefur verið að gera hjá mér hefur göngumælirinn farið upp 12 kílómetra á dag.“ Morgunblaðið/Júlíus Magnús Pálsson: Á orðið marga kunningja sem koma daglega í Kringluna.  JÓLAÖS | Gengur 200 kílómetra í desember Eins og lögreglu- stjóri í litlu þorpi Þegar jólaösin hefst í Kringlunni er eins gott fyrir Magnús Pálsson öryggisstjóra að vera í góðu formi því hann gengur þá allt að átta til tíu kílómetra á dag. AÐVENTUKRANSAR eru líklega tilbúnir á mörgum heimilum núna, enda á samkvæmt hefðinni að kveikja á fyrsta kertinu á morgun, fyrsta sunnudegi í aðventu. Aðventukransar eru af öllum stærðum og gerðum, litum og efn- um. Það sem þeir eiga yfirleitt sam- eiginlegt er að vera hringlaga og með fjórum kertum. Kertin fjögur í kransinum bera hvert sitt nafn. Fyrsta kertið heitir spádómskerti, annað Betlehemskerti, það þriðja nefnist englakerti og hið fjórða er fjárhirðakertið. Eldhætta á aðventu Eldsvoðar vegna kertabruna eru áberandi algengastir á aðventunni af öllum árstíma. Til að sporna gegn eldhættu af aðventukrönsum eða kertaljósi eru til fleiri leiðir en að blása á kertin. Eldvarnarúði fæst m.a. í blóma- búðum og er honum þá úðað á skreytingar með kertum til að varna því að eldur breiðist út. Um er að ræða efni sem tefur að eldur breiðist út en getur ekki komið í veg fyrir það að öllu leyti. Einnig fást m.a. í gjafavöru- eða búsá- haldaverslunum sérstakir hólkar til að smeygja upp á kerti í aðventu- krönsum eða kertaskreytingum. Og þegar kertið er brunnið niður í miðjan glerhólk slokknar sjálfkrafa á því. Forvarnir af þessu tagi geta þó ekki komið í staðinn fyrir að vera vakandi yfir kertunum. Mikilvægt er að yfirgefa ekki logandi kerti og hafa þau ekki í nágrenni við gluggatjöld.  AÐVENTA Kertin í kransinum Morgunblaðið/Kristinn Spádómskertið: Kveikið á fyrsta kertinu á aðventukransinum á morgun. TILBOÐ RAUÐ PAKISTÖNSK TEPPI - SÓFABORÐSSTÆRÐ - 34.900 kr. Frábært úrval - Gott verð 10% afsláttur m.v. staðgreiðslu RAÐGREIÐSLUR Sími 861 4883 á handhnýttum, austurlenskum gæðateppum á Grand Hóteli, Sigtúni, Reykjavík Sölusýning Í dag, laugardag 29. nóv. kl. 12 - 19 og á morgun, sunnudag 30. nóv. kl. 13 - 19. Töfrateppið DAGURINN í gær var enginn annar en „Buy nothing day“ upp á ensku eða Bindindisdagur neytenda. Það eru samtök sem kalla sig Adbusters Media Foundation sem standa fyrir degi þessum og hafa gert síðustu ár. AMF lýsa sér sem „hnattrænum samtökum lista- manna, skríbenta, athafnamanna, námsmanna, leið- beinenda og grallara“. Þeir halda úti myndarlegri vef- síðu, http://adbusters.org/campaigns/bnd/, og yfirlýst stefna þeirra er að stokka upp í neysluþjóðfélaginu. Þeir segja að mikill árangur hafi náðst, til merkis um það sé vaxandi félagafjöldi samtakanna. Samtökin eru rekin með samskotum þeirra sem trúa á málstaðinn. Bindindisdagur neytenda Ljósmynd/Kolbrún Kristjánsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.