Morgunblaðið - 29.11.2003, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 29.11.2003, Qupperneq 56
MINNINGAR 56 LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Geir Pálssonfæddist á Brekkuborg í Breið- dal 7. júlí 1931. Hann lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu í Nes- kaupstað 22. nóv. síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Páll Jó- hannesson, f. 23.10. 1897, d. 28.3. 1959, og Þorbjörg Magn- úsdóttir, f. 15.8. 1904, d. 6.1. 1980. Systkini Geirs eru: 1) Ester, f. 15.1. 1937, maki Sigurjón Geirs- son Sigurjónsson, f. 16.2. 1930, d. 18.8. 2002. Dætur þeirra eru: a) Eygló, f. 3.6. 1958, maki Rúnar V. Arnarson, f. 19.10. 1956, börn þeirra eru Ester, f. 5.3. 1980, og Hólmar Örn, f. 10.12. 1981. b) Björk, f. 20.5. 1959, fyrrverandi maki Örn Vilmundarson, f. 26.10. d) Hrefna, f. 22.7. 1972, maki Sverrir R. Reynisson, f. 27.8. 1971, synir þeirra eru Daði Fannar, f. 18.4. 1996, og Atli Geir, f. 19.1. 1998. Geir var ókvæntur og barnlaus. Hann flutti með foreldrum sínum frá Brekkuborg í Háteig í Stöðv- arfirði árið 1934 og síðar í Stöð í Stöðvarfirði 1944. Árið 1949 flutti fjölskyldan í Kirkjubólsþorp (síðar nefnt Stöðvarfjörður) og bjó lengst af í Sigtúni. Að foreldrum sínum báðum gengnum keypti Geir íbúðarhúsið Heiðmörk 8 í Stöðvarfirði og bjó þar til æviloka. Á yngri árum stundaði Geir al- geng störf, einkum sjósókn og fiskvinnslu, m.a. síldarverkun. Síð- ar rak hann vörubíl og samhliða því og einkum síðar fékkst hann við húsamálun. Aflaði hann sér réttinda á því sviði um 1990. Geir var þekktur fyrir listræna hæfi- leika og málaði mikið af myndum, skreytti hús að utan og innan og vann auk þess merki fyrir ýmis fé- lög og stofnanir. Útför Geirs verður gerð frá Stöðvarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. 1947, börn þeirra eru Sigurjón Geirsson, f. 17.1. 1984, og Árný Ösp, f. 3.4. 1987. 2) Björn, f. 7.10. 1940, maki Guðríður Frið- geirsdóttir, f. 10.6. 1937. Börn þeirra eru: a) Páll, f. 27.5. 1964, maki Jóhanna G. Sól- mundardóttir, f. 26.4 1965, synir þeirra eru Björn Steinar, f. 9.5. 1985, og Andri Valur, f. 25.11. 1990. b) Þor- steinn Mýrmann, f. 24.5. 1965, maki Jó- hanna M. Agnarsdóttir, f. 11.9. 1970, börn þeirra eru Leó Örn, f. 18.5. 1995, Dagur, f. 8.8. 1996, Rakel, f. 12.9. 2000, og Máni, f. 4.3. 2002. c) Elsa Jóna, f. 13.9 1970, maki Agnar Ásgeirsson, f. 5.2. 1974. Dóttir Elsu Jónu er Steinunn Pála Guðmundsdóttir, f. 1.5. 1987. Hið litla, en fagra byggðarlag, Stöðvarfjörður, sem „hvílir milli himinhárra fjalla“ eins og segir í ljóðinu, er sungið verður í Stöðvar- fjarðarkirkju í dag yfir moldum Geirs Pálssonar, þarf á öllum sínum að halda. Þegar einn fellur frá sakna hans margir og finnst bæjarmyndin ekki vera sú hin sama og áður var. Geir var Stöðfirðingur í húð og hár. Hvergi leið honum betur og fjöl- margar ljósmyndir hans af náttúru, fólki, dýrum, athöfnum, mannlífi og öðru því, sem tengist byggðarlaginu, sýna listfengi hans, ást og virðingu á þeim stað, er hann mat öllum öðrum fremur. Í uppvextinum inni í Stöðvardal kynntist hann lífinu í sveitinni, en líklega hefur það ekki höfðað til hans, þótt dýravinur væri. Vinnan við sjávarsíðuna varð því fljótlega hlutskipti hans. Hann fór á vertíðir í Eyjum og víðar, stundaði sjó og beitningu, var á bátum með Kalla Kristjáns o.fl. góðum mönnum. Varð síðan einn af fyrstu starfsmönnum á síldarplaninu hjá athafnamanninum Guðmundi Björnssyni og gekk vask- lega fram í að „slá upp“ og „slá til“ tunnur, meta gæði síldarinnar við söltun og flest annað, er til féll. Síðar eignaðist hann fyrstu vörubifreið sína. Varð það síðan aðalstarf hans áratugi á uppgangsárum í byggðar- laginu. Snemma fékk Geir dálæti á tónlist og hóf ungur að leika á gítar með öðrum tónelskum mönnum á Stöðv- arfirði. Síðar varð hann einn af stofn- endum hljómsveitarinnar „Essgó“, sem lék á dansleikjum, einkum á Stöðvarfirði og í nágrannabyggðar- lögum. Geir gat verið fastur fyrir og vildi hafa nokkuð að segja um laga- valið. Þótt menn væru ekki alltaf sammála kom gjarnan í ljós að hann hafði haft rétt fyrir sér, þegar góður taktur og grípandi lag fyllti gólfið dansandi fólki. Og þótt menn væru hvorki fingrafimastir hljómlistar- manna á þessum árum, né gætu stát- að af nokkurri menntun sem næmi á þessu sviði, var „bítið“ á sínum stað og ekki slegið slöku við, þegar allt var komið á ið. Á síldarárunum var stundum tekin ákvörðun með skömmum fyrirvara um að slá upp balli og hlaupið með símskeyti á síð- ustu stundu á símstöðina til að fá auglýsingu lesna í Ríkisútvarpinu. Og það hafa menn frétt síðar að til voru þeir síldarsjómenn, er voru í höfn á öðrum fjörðum, sem lögðu það á sig að kaupa far á ball með „Essgó“ vegna góðrar reynslu af slíkum sam- kundum. Mjög ungur að árum sýndi Geir mikið listnæmi í meðferð teikni- áhalda og lita. T.d. hannaði hann merki Bindindisfélagsins Nýgræð- ings á Stöðvarfirði um fermingarald- ur. Aldrei leitaði hann sér formlegr- ar menntunar á þessu sviði, en ástundaði sjálfsnám af bókum og var óhræddur að setjast á fremsta bekk í skóla reynslunnar í því skyni að efla sig sem meistara ljóss og lita. Það er ekki nokkur vafi að á þessu sviði mun nafn Geirs Pálssonar haldast lengi á lofti, þar sem víða eru til verk, er hann vann, annaðhvort til að fá útrás fyrir sköpunargleðina eða til að svara eftirspurn. Ekki var þá ein- göngu um að ræða teikningar eða málverk, heldur skreytti hann heilu húsveggina svo eftir var tekið, ýmist með máluðum myndum eða formum, sem gengið var frá, þegar húsin voru steypt upp. Einnig var oft til hans leitað með skreytingar á mannamót- um og vöktu t.d. athygli verk hans á samkomum Lions-manna á Stöðvar- firði og þorrablótum Karlakórs Stöðvarfjarðar, en hann tók virkan þátt í starfi kórsins. Ennfremur vann hann oft til verðlauna með listi- legum grímubúningum sínum á þrettándaskemmtunum á Stöðvar- firði. Ýmsum þykir ekki við hæfi að nota orðið listamaður um þá, sem eigi geta státað af langskólanámi í þeim efnum. Geir var líklega sama, en hér verður fullyrt og ekki með það aftur snúið að hann var í hópi allra færustu manna, þeirra er tómstundamálarar nefnast, þótt verk hans væru vissu- lega misjöfn eins og gengur. Hans beztu „skilirí“, sem hann oftar gaf en seldi, eru hreinustu gersemar og mikils metin af eigendum og þeim, er þau líta. Hið sama gildir um merki þau, er hann hannaði fyrir félög, fyr- irtæki og sveitarfélög, en hann varð nokkrum sinnum sigurvegari í sam- keppnum á þeim vettvangi. Meðal slíkra verka má nefna merki Sam- bands sveitarfélaga á Austurlandi, merki Skógræktarstöðvarinnar Barra á Egilsstöðum, byggðamerki Eskifjarðarkaupstaðar og Búða- hrepps hinna fornu o.m.fl. Auk þessa var hann afkastamikill, vandvirkur og natinn húsamálari og aflaði sér réttinda á því sviði síðar á ævinni. Varð það hans aðalstarf, þegar rekstri vörubifreiðar lauk. Ýmist starfaði hann með öðrum verktökum, eða vann sjálfstætt. Hafði hann þá gjarnan í vinnu á mestu álagstímum handlagna menn, sem af honum lærðu og náðu tökum á handverkinu. Um Geir hefur verið sagt af verkfróðum manni, sem vinn- ur við að hanna mannvirki og fylgj- ast með þeim á byggingarstigum, að hann hafi verið einstakur fagmaður. Segja þau orð allt sem þarf, auk þess sem vitni bera þær fjölmörgu bygg- ingar, er hann málaði, hinar síðustu orðinn helsjúkur, þótt dult færi. Áður hefur verið nefndur hæfileiki Geirs til að taka skemmtilegar og fagrar ljósmyndir. Á þeim sést glöggt listnæmi hans og ást á við- fangsefninu, hvort sem um var að ræða fjöll og ský, skip og spegilslétt- an sæ, fossa, læki og frosin vötn, dýr í landslagi, úfið haf við ólgandi strönd eða fólk við leik og störf. Hið sama gildir um íþróttamyndir frá gullaldarárum Umf. Súlunnar, en í starfi félagsins tók hann virkan þátt og hafði mikinn metnað fyrir þess hönd. Sérstakur þáttur í listsköpun Geirs og okkur kær, er þetta skrif- um, eru myndir hans, sem hann gaf okkur síðar, af einstökum vini okkar allra, hundinum Alex. Þær hafa mik- ið tilfinningalegt gildi og bera jafn- framt listfengi hans gott vitni. Með þessum fjórfætta vini sínum átti hann margar og langar göngur um landið sem hann unni mest, Stöðv- ardal og Jafnadal. Hafði hann, auk ánægjunnar af samskiptunum við hinn einstaka hund, greinilega gott af þeirri hreyfingu, sem af þessu hlauzt. Hann kaus að vera viðstadd- ur, þegar hinn tryggi og einlægi vin- ur varð að kveðja þessa tilvist, þrátt fyrir að sú stund væri honum mjög þungbær. Á mótunarskeiði ólgaði lista- mannseðlið af miklum krafti í brjósti hins unga manns. Síðar öðlaðist hann innri ró og mikla lífsfyllingu, ekki sízt í hópi sinna nánustu, er reyndust honum bezt. Gestgjafi var hann ágætur og góður heim að sækja, næmur á hið skoplega í mannlífinu og gat hlegið „eins og berserkur“, þegar svo bar undir. Hann var einhleypur, en nokkru eft- ir að móðir hans féll frá keypti hann nýlegt hús í Heiðmörk 8 og sat það með sóma æ síðan. Síðustu misserin stofnaði hann til mjög sterks og kær- leiksríks vináttusambands við ynd- islega konu, Jónu Gunnarsdóttur, og var hún honum mikil stoð og stytta undir það síðasta. Einnig skal hér nefnd vinátta hans við Kristin Helgason frá Brynju og ekki má gleyma fyrrum mági hans, Sigurjóni Geirssyni. Honum reyndist Geir af- skaplega vel í erfiðum veikindum, vildi allt fyrir gera og kýs að lokinni vegferð að hvíla við hlið hans inni á Stöðvargrund. Á heimili okkar átti hann ætíð griðastað og reyndist okk- ur og ekki síður börnum okkar bæði faðir og afi og sýndi kærleik sinn til fjölskyldunnar á fjölbreytilegan hátt. Hann var hluti af jólahaldi fjöl- skyldunnar í áratugi og erfitt verður að halda jól án hans á næstunni. Þegar Geir varð fyrir því áfalli fyrr á þessu ári að lenda í þeirri að- stöðu að glíma við ofjarl sinn kom mörgum á óvart þrek hans og styrk- ur út á við að takast á við hina nýju ógn. Við hefðum gjarnan viljað geta kvatt hann betur, þótt mörg kær- leiksrík símtöl og heimsóknir ættu sér stað á sjúkrabeði hans í Nes- kaupstað, þar sem hann fékk frá- bæra aðhlynningu, sem við verðum ævinlega þakklát fyrir. Vissulega varð viðureignin styttri en við öll hefðum kosið, en í dag fögnum við því að dauðastríðið varð ekki þung- bærara en raun ber vitni og munum ætíð minnast þess, hve svipur hins látna á dánarbeði sýndi vel þann virðuleika og frið, sem við vitum að hann vildi kveðja með. Og myndin úr sjötugsafmælinu í kirkjunni á útfarardeginum, við hlið- ina á hinu logandi kerti, sem hans kærasta frænka útbjó til minningar um þennan litaglaða góðvin okkar, mun sýna íbygginn mann, dálítið feimnislegan, en samt með yfirbragð stórborgara og gefa til kynna að þar sitji maður með þá vissu innst inni, að hann hafi skilað sínu til sam- félagsins og geti verið stoltur af því. Blessuð sé minning Geirs Pálsson- ar og megi styrkur hans í hinum stóra og seinasta byl færa okkur, er hann syrgjum, þann frið, sem yfir honum var á kveðjustundu. Hlíf og Hafþór. Senn húmar að kvöldi og ég sit hljóð og horfi út um gluggann. Fjöll- in standa hnípin við fjörðinn og horfa á mig í þögulli spurn. En ég kann engin svör. Orð eru til alls fyrst en þó er það þannig að á stundum sem þessum er erfitt að koma því í orð sem mann langar til að segja. Í dag kveð ég þig, elsku frændi, með sorg í hjarta en þó er það svo skrýtið að í hvert sinn er ég hugsa til baka rifjast upp allar gleðilegu stundirnar sem við áttum saman og það verður stutt í brosið. Því er nefnilega þannig háttað að minning- arnar sem þér tengjast eru fullar af gleði og hlátri. Frá því að ég man eft- ir mér varstu hluti af fjölskyldunni minni. Sem barn var ég oft spurð að því hvort þú værir afi minn og Guð- mundar bróður míns, en ég sagði, sem satt var, að þú værir frændi okkar. Samt varstu okkur svo miklu meira. Þú varst félagi okkar og vinur en líka afi og pabbi. Þú varst hann Gúddi. Maðurinn sem átti hlýja faðminn og fallega brosið, hláturinn sem var svo smitandi og sagði allar skemmtilegu sögurnar. Maðurinn sem dansaði með mig á tánum þegar ég var lítil, dekstraði mig þegar ég vildi ekki borða matinn minn og deildi með okkur gleði og sorgum. Þú varst og verður alltaf hluti af fjöl- skyldu minni og við munum aldrei gleyma þér. Við Albert erum svo þakklát fyrir að hafa átt þig að og að drengirnir okkar hafi fengið að kynnast þér og fá að kúra í fanginu þínu. Ég veit að vel hefur verið tekið á móti þér þar sem þú ert nú. Hann hefur eflaust verið glaður guli seppinn með mjúka feldinn að hitta þig aftur og ég veit að nú eruð þið saman, eflaust syngj- andi kátir komnir langt inn fyrir Grænabala, búnir að henda mörgum steinum í lækina og borða mikið af berjum. Handan ár horfa fjöllin um heima þeirra er lifðu. Mættu þau málið hafa margt gætu eflaust talað. En þau eru þvingunareiðum þrítugra kletta bundin. Hljóðlát á söguna hlusta hulin eilífðarbláma. Grasið grænkar á leiðum gamalla vina og frænda. fyrnist all fas og æði fjöllin yfir þeim vaka. (Indriði G. Þorsteinsson.) Elsku Gúddi. Við Albert og dreng- irnir kveðjum þig með ævarandi þakklæti í hjarta og biðjum Guð að geyma þig að eilífu. Hvíl í friði. Þín Halldóra Dröfn. Kvöldið fyrir andlát þitt átti ég svo skemmtilegt samtal við þig, að ég mun ætíð geyma það með mér. Þar varstu þú sjálfur, svo hress. Við hlógum saman eins og okkar var háttur, því ætíð var stutt í hláturinn á samverustundum okkar. Í 24 ár, meðan ég bjó á Stöðvar- firði,var ég undir þínum verndar- væng. Eftir að ég flutti þaðan, breyttist það ekki og ég fékk áfram hjálp og góð ráð við það sem ég tók mér fyrir hendur. Núna eftir að þú ert látinn, minn kæri Gúddi, veit ég að þú munt fylgja mér áfram og vera mér stoð og stytta, hvað sem á bját- ar. Frá því að ég man eftir mér hefur þú verið einn af fjölskyldunni og varst alltaf svo góður við okkur systkinin, mig og Dóru. Ég sat oft í vörubílnum þínum þegar þú varst að keyra möl og mold og alltaf varst þú jafn glaður að hafa mig með. Þú komst og horfðir á alla fótboltaleiki sem ég spilaði þegar ég var pjakkur og hvattir mig áfram. Eftir leiki GEIR PÁLSSON Hjartkær sonur minn, faðir minn og bróðir okkar, ÓLAFUR MÁR MATTHÍASSON kennari, er látinn. Jarðarförin auglýst síðar. Elín G. Ólafsdóttir, Matthías Már Ólafsson, Valgerður Matthíasdóttir, Sigurborg Matthíasdóttir, Haraldur Matthíasson, Brynja Dagmar Matthíasdóttir, Ása Björk Matthíasdóttir. Okkar ástkæri JÓEL KR. SIGURÐSSON, Hrafnistu, Hafnarfirði, áður Sunnuflöt 30, Garðabæ, andaðist að morgni föstudagsins 28. nóvem- ber. Jarðarförin auglýst síðar. Aðstandendur. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, INGIMAR RÓSAR SIGURTRYGGVASON, andaðist á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut fimmtudaginn 27. nóvember. Guðrún Jóna Zóphóníasdóttir, Sigurður Ingi Ingimarsson, Helga Óskarsdóttir, Soffía Margrét Ingimarsdóttir, Kristján Rögnvaldur Einarsson, Hafdís Ingimarsdóttir, Hugrún Ingimarsdóttir, Gunnar Vignir Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.