Morgunblaðið - 29.11.2003, Side 60
MESSUR Á MORGUN
60 LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Kór Áskirkju syngur.
Organisti Kári Þormar. Prestur sr. Karl V.
Matthíasson. Kökubasar Safnaðarfélags
Áskirkju eftir messu. Sunnudagurinn 30.
nóvember kl. 17. Orgeltónleikar (end-
urteknir) Kári Þormar, organisti Áskirkju,
leikur verk eftir Bach, Buxtehude , Pachel-
bel og fleiri. Áður auglýstir aðventu-
tónleikar sem vera áttu á sama tíma, falla
niður vegna veikinda. Ókeypis aðgangur.
BÚSTAÐAKIRKJA: Kirkjudagur Bústaða-
sóknar. Minnst vígsludags kirkjunnar.
Barnamessa klukkan 11:00. Líflegar og
skemmtilegar samverur með léttum
söngvum, fræðslu og bæn. Guðmundur
Sigurðsson annast tónlistarstjórn og leik-
ur með félögunum Emil, Grími, Heiðari
Smára og Guðnýju. Umsjón Bára, Sara,
Helena Marta, Brynhildur, Edda Björk og
sr. Pálmi. Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.00.
Karlar í sóknarnefnd bjóða kirkjugestum í
vöfflukaffi eftir messu. Aðventuhátíð kl.
20:00. Ræðumaður Þórólfur Árnason,
borgarstjóri. Fjölbreytt tónlistardagskrá.
Kór Bústaðakirkju, ásamt einsöngvurum
og kammersveit, flytur Magnificat eftir
Pergolesi. Stjórnandi Guðmundur Sigurðs-
son. Konsertmeistari Hjörleifur Valsson.
Allir barnakórar Bústaðakirkju og bjöllu-
sveit flytja fjölbreytta jólatónlist. Stjórn-
andi Jóhanna V. Þórhallsdóttir. Ljósin
tendruð.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Sr. Hjálmar
Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt sr. Þóri Stephensen. Dómkórinn
syngur. Marteinn H. Friðriksson leikur á
orgel. Barnastarf á kirkjuloftinu meðan á
messu stendur. Sænsk messa kl. 14. Sr.
Jakob Ágúst Hjálmarsson prédikar. Mar-
teinn H. Friðriksson og María Cederborg
sjá um tónlist. Aðventukvöld kl. 20.
Ræðumaður er Forseti Íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson. Dómkórinn og Barna-
kór Dómkirkjunnar syngja.
GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11 í
umsjá Hrundar Þórarinsdóttur djákna o.fl.
Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Halldór S. Grön-
dal prédikar. Tekin samskot til starfs
Hjálparstarfs kirkjunnar. Kirkjukór Grens-
áskirkju syngur. Organisti Árni Arinbjarn-
arson. Ólafur Jóhannsson. Aðventukvöld
kl. 20. Ræðumaður Björn Bjarnason
dóms- og kirkjumálaráðherra. Barnakór
Hvassaleitisskóla syngur undir stjórn Kol-
brúnar Ásgrímsdóttur. Kirkjukór Grens-
áskirkju syngur undir stjórn Árna Arinbjarn-
arsonar organista.
GRUND, dvalar- og hjúkrunarheimili:
Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Kjartan
Ólafsson. Sr. Hreinn S. Hákonarson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Hátíðarguðsþjón-
usta og barnastarf kl. 11. Biskup Íslands,
Karl Sigurbjörnsson, prédikar og þjónar
fyrir altari ásamt sr. Jóni Dalbú Hróbjarts-
syni og dr. Sigurði Árna Þórðarsyni. Barna-
starfið er í umsjón Magneu Sverrisdóttur.
Flutt verður kantata fyrir 1. sunnudag í að-
ventu e. Bach. Flytjendur Schola cantor-
um, Kammersveit Hallgrímskirkju og ein-
söngvarar. Organisti Björn Steinar
Sólbergsson. Bachtónleikar kl. 17. Flytj-
endur: Schola cantorum, einsöngvarar og
Kammersveit. Björn Steinar Sólbergsson,
orgel. Stjórnandi Hörður Áskelsson. Kons-
ertmeistari Rut Ingólfsdóttir.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11 Sr. Tómas
Sveinsson. Organisti Douglas A. Brotchie.
Barnaguðsþjónusta kl. 13. Umsjón Hrund
Þórarinsdóttir, djákni. Tónleikar Kirkjukórs
Háteigskirkju kl. 20. Flutt verða Te Deum
eftir Mozart og Introduzione e Gloria eftir
Vivaldi. Flytjendur Gyða Björgvinsdóttir,
sópran, Jóhanna Ósk Valsdóttir, mezzó-
sópran, Garðar Thór Cortes, tenór, kamm-
ersveit, konsertmeistari Greta Guðnadótt-
ir og Kór Háteigskirkju, stjórnandi Douglas
A. Brotchie.
LANDSPÍTALI – háskólasjúkrahús: Hring-
braut: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.30.
Ólafur Skúlason biskup prédikar og vígir
altari og altarisbúnað sem er gjöf Lions-
klúbbsins Baldurs til spítalans. Sr. Jón
Dalbú Hróbjartsson prófastur, prestar og
djákni spítalans taka þátt í athöfninni.
Organisti Stefán Kristinsson. Sjúklingar,
aðstandendur og starfsfólk velkomið.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Hátíðarmessa og barnastarf kl.
11. Gradualekór Langholtskirkju syngur
„Englamessuna“. Kveikt verður á fyrsta
aðventukertinu. Barnastarfið hefst í kirkj-
unni en síðan fara börnin í safnaðarheim-
ilið. Aðventuhátíð kl. 20. Ólöf Kolbrún
Harðardóttir, söngkona, flytur aðventu-
hugvekju. Kór Langholtskirkju syngur að-
ventu- og jólalög. Kór Kórskólans flytur
Lúsíuleik. Kaffiveitingar verða á eftir (500
kr.). Sóknarprestur.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Kór Laugarneskirkju syngur undir
stjórn Gunnars Gunnarssonar. Sr. Bjarni
Karlsson þjónar ásamt Sigurbirni Þorkels-
syni meðhjálpara. Fulltrúar lesarahóps
flytja texta og fermingarbörn aðstoða. Að
messu lokinni er hinn árlegi kökubasar
Mömmumorgna haldinn meðfram messu-
kaffinu. Guðsþjónusta kl. 13 í Þjónustu-
miðstöð Sjálfsbjargar í Hátúni 12. Sr.
Bjarni Karlsson þjónar ásamt Gunnari
Gunnarssyni organista og hópi sjálf-
boðaliða. Aðventukvöld Laugarneskirkju
kl. 20. Ræðumaður kvöldsins er Helgi
Grímsson skólastjóri Laugarnesskóla. Kór
Laugarneskirkju syngur undir stjórn Gunn-
ars Gunnarssonar og Barnakór Laug-
arness kemur fram undir stjórn Sigríðar
Ásu Sigurðardóttur. Bjarni Karlsson sókn-
arprestur og Sigurbjörn Þorkelsson með-
hjálpari þjóna ásamt hópi fermingarbarna.
Loks býður sóknarnefnd öllum til súkku-
laðidrykkju í safnaðarheimilinu.
NESKIRKJA: Messa kl. 11. Gideonfélagar
kynna starf sitt. Sigurbjörn Þorkelsson,
framkv.stjóri og rithöfundur, prédikar.
Kirkjukór Neskirkju syngur. Organisti
Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Frank
M. Halldórsson. Tekið verður á móti fram-
lögum til Gideonfélagsins. Barnastarf á
sama tíma. Sögur, brúður og söngur. Öll
börn fá kirkjubókina og límmiða. Kaffi,
djús og spjall í safnaðarheimilinu eftir
messu. Aðventustund kl. 17. Dr. Sig-
urbjörn Einarsson biskup flytur hugleið-
ingu. Kórar kirkjunnar syngja: Litli kórinn,
stjórnandi Inga J. Bachman, Drengjakór
Neskirkju, stjórnandi Friðrik S. Krist-
insson og undirleikari Lenka Mateova,
Stúlknakór kirkjunnar og kirkjukór Nes-
kirkju undir stjórn Steingríms Þórhalls-
sonar, organista. Sr. Frank M. Hall-
dórsson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Fyrsti sunnu-
dagur í aðventu. Guðsþjónusta. kl. 11.
Kammerkór Seltjarnarneskirkju syngur fal-
leg jólalög. Sunnudagaskólinn verður á
sama tíma og eru börnin boðin sér-
staklega velkomin til skemmtilegrar jóla-
stundar. Sóknarprestar minna á aðvent-
ustund sunnudagskvöld kl. 20. Vandað er
til dagskrár með metnaðarfullri og fallegri
tónlist sem Kammerkór Seltjarnar-
neskirkju flytur með strengjasveit undir
stjórn Pavels Manaseks en organisti verð-
ur Violeta Smíd. Barnakór Seltjarnarness
syngur falleg jólalög. Ræðumaður verður
Ágúst Einarsson, prófessor. Að lokinni at-
höfn verður kirkjugestum boðið í jólakaffi í
safnaðarheimilinu. Prestar verða séra
Arna Grétarsdóttir og séra Sigurður Gr.
Helgason.
ÍSLENSKA KIRKJAN ERLENDIS:
GAUTABORG: Aðventuhátíð í Skårs kirkju
1. sunnud. í aðventu kl. 14. Íslensku kór-
arnir í Gautaborg og Stokkhólmi syngja.
Stjórnandi Kristinn Jóhannesson. Ein-
söngur Jóhannes G. Kristinsson. Einleikur
Einar G. Sveinbjörnsson. Við orgelið Tuula
Jóhannesson. Kirkjukaffi. Sr. Ágúst Ein-
arsson.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Guðsþjónusta
kl. 11. Nýtt kirkjuár hefst. Kveikt verður
ljós á fyrsta aðventukertinu. Tónlist verður
í umsjón Carls Möller og Önnu Sigríðar
Helgadóttur ásamt Fríkirkjukórnum. Sögu-
stund fyrir börnin og fuglunum á Tjörninni
gefið brauð að lokinni guðsþjónustu. Allir
hjartanlega velkomnir. Hjörtur Magni Jó-
hannsson.
ÁRBÆJARKIRKJA: Kirkjudagur Árbæjar-
og Grafarholtssafnaða. Sunnudagaskól-
inn kl. 11. Tendrað á fyrsta kerti aðventu-
kransins. Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. Sr.
Guðmundur Þorsteinsson fyrrverandi
sóknarprestur og dómprófastur prédikar.
Prestar safnaðarins sr. Þór Hauksson og
sr. Sigrún Óskarsdóttir þjóna fyrir altari.
Yngveldur Ýr Jónsdóttir syngur einsöng og
Sólrún Gunnarsdóttir leikur á fiðlu. Kirkju-
kórinn syngur undir stjórn organistans
Krisztinar Kalló Szklenár. Kaffi kven-
félagsins í safnaðarheimili eftir guðsþjón-
ustu. Bergþór Pálsson syngur nokkur lög.
Líknarsjóðshappdrætti á vegum líkn-
arsjóðs kirkjunnar á sama tíma. Afrakstur
hans rennur óskiptur til þeirra sem minna
mega sín í söfnuðinum fyrir þessi jól.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Kveikt á fyrsta aðventukert-
inu. Yngri barnakórinn syngur. Aðventu-
samkoma kl. 20. Kór Breiðholtskirkju og
Eldri barnakór kirkjunnar flytja aðventu- og
jólasöngva undir stjórn organistans, Sig-
rúnar M. Þórsteinsdóttur. Einsöngur: Lára
Bryndís Eggertsdóttir. Undirleikari barna-
kórsins er Stefán Ólafsson. Sr. Lárus Hall-
dórsson flytur aðventuhugleiðingu. Ferm-
ingarbörn sjá um stutta dagskrá.
Samkomunni lýkur með helgistund við
kertaljós. Kaffisala á vegum kórs Breið-
holtskirkju í safnaðarheimilinu eftir sam-
komuna. Sr. Gísli Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Fjölskyldumessa kl.
11. Prestur sr. Magnús B. Björnsson. Org-
anisti Kjartan Sigurjónsson. Unglingakór
Digraneskirkju. Stjórnandi Heiðrún Há-
konardóttir. Sunnudagaskóli hefst í kirkju
og færist síðan í kapellu á neðri hæð kirkj-
unnar. Aðventuhátíð kl. 20.30. Kór Digra-
neskirkju flytur kirkjuleg verk undir stjórn
organistans Kjartans Sigurjónssonar. Ein-
söngur Vilborg Helgadóttir. Hugleiðingu
flytur sr. Guðmundur Þorsteinsson, fyrr-
verandi dómprófastur. Færi gefst á að
styrkja Hjálparstarf kirkjunnar við kaffi-
sölu í safnaðarsal. Stjórn og undirbún-
ingur hátíðarkvöldsins er í höndum kórs
Digraneskirkju (Sjá nánar: www.digra-
neskirkja.is).
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Form. Kvenfélagsins Fjallkonurnar,
Sveinborg Jónsdóttir, kveikir á fyrsta að-
ventukertinu. Prestur: Sr. Guðmundur Karl
Ágústsson. Organisti: Lenka Mátéová.
Kór kirkjunnar syngur undir stjórn org-
anista. Kvenfélagskonurnar Hildigunnur
Gestsdóttir og Erla Guðjónsdóttir lesa ritn-
ingartexta. Meðhjálpari: Jóhanna Freyja
Björnsdóttir. Sunnudagaskóli í safn-
aðarheimilinu á sama tíma undir stjórn El-
ínar Elísabetar Jóhannsdóttur. Eftir guðs-
þjónustu er framreidd súpa í
safnaðarheimilinu. Rúta ekur um hverfið í
lokin. Aðventukvöld kl. 20 í kirkjunni.
Ræðumaður: Haraldur Ólafsson, prófess-
or. Sólveig Samúelsdóttir, mezzósópran,
syngur einsöng. Kór Fella- og Hólakirkju
syngur undir stjórn Lenku Mátéová, org-
anista. Barnakórar kirkjunnar syngja undir
stjórn Lenku og Þórdísar Þórhallsdóttur.
Elín Elísabet Jóhannsdóttir les jólasögu. Í
lokin verður kirkjan myrkvuð og hver kirkju-
gestur tendrar á sínu kerti. Kaffi, svala-
drykkur og smákökur í safnaðarheimilinu
á eftir í umsjón sóknarnefndarfólks í Hóla-
brekkusókn.
GRAFARVOGSKIRKJA: Sameiginleg
barna- og fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.
Séra Vigfús Þór Árnason prédikar og þjón-
ar fyrir altari. Krakkakór Grafarvogskirkju
flytur helgisöngleik. Stjórnandi Oddný J.
Þorsteinsdóttir. Organisti: Hörður Braga-
son. Að guðsþjónustu lokinni verður
Krakkakórinn með kökubasar. Börnum í
Borgarholtsskóla er bent á að barnaguðs-
þjónustan er í Grafarvogskirkju vegna
helgileiks Krakkakórsins. Aðventuhátíð kl.
20. Ræðumaður: Guðni Ágústsson land-
búnaðarráðherra. Pálmar Guðjónsson
kennari les jólasögu. Kór Grafarvogskirkju
og Unglingakór Grafarvogskirkju syngja.
Einsöngur: Arnþrúður Ösp Karlsdóttir.
Stjórnendur kóra: Hörður Bragason org-
anisti og Oddný J. Þorsteinsdóttir. Ferm-
ingarbörn flytja helgileik. Prestar safn-
aðarins flytja bænarorð.
HJALLAKIRKJA: Tónlistarguðsþjónusta kl.
11. Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar. Flutt
verður kantatan Nú kemur heimsins hjálp-
arráð eftir J.S. Bach. Flytjendur Hrafnhild-
ur Björnsdóttir, Jóhanna Ósk Valsdóttir,
Hákon Hákonarson og Gunnar Jónsson.
Katalin Lörincz leikur undir á orgel. Söng-
stjóri Jón Ólafur Sigurðsson. Barnaguðs-
þjónusta kl. 13. Aðventuhátíð fjölskyld-
unnar kl. 17. Létt jólastund fyrir börn og
fullorðna með söngvum og sögum. Barna-
kór úr Hjallaskóla kemur í heimsókn og
syngur undir stjórn Guðrúnar Magn-
úsdóttur. Flutt verður brúðuleikritið Æv-
intýri Steins Bollasonar. Pipaköpur og
kakó í safnaðarsal að hátíð lokinni. Allir
velkomnir. Við minnum á bæna- og kyrrð-
arstund á þriðjudag kl. 18 (sjá einnig á
www.hjallakirkja.is). Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf kl. 11 í
safnaðarheimilinu Borgum í umsjón Dóru
Guðrúnar, Bóasar og Önnu Kristínar.
Helgistund kl. 11. Aðventusamvera kl.
17. Fjölbreytt dagskrá. Aðventuræðu flytur
Halla Halldórsdóttir forseti bæjarstjórnar,
Elva Ósk Ólafsdóttir leikari les jólasögu.
Hlín Finnsdóttir og Soffía Sigurðardóttir
leika á flautur. Skólakór Kársness syngur
undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur og kór
Kópavogskirkju syngur og leiðir safn-
aðarsöng. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
LINDAKIRKJA í Kópavogi: Fyrsti sunnu-
dagur í aðventu. Kl. 11. Föndur í Linda-
skóla. Við kveikjum einu kerti á... og opn-
um hjörtun fyrir jólunum. Stutt helgistund
við aðventukransinn. Eftir það verða leikin
jólalög og boðið upp á föndur við allra
hæfi, kakó og piparkökur.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Hressandi söngur, lifandi samfélag! Að-
ventuljós tendrað. Guðsþjónusta kl. 14.
Sr. Valgeir Ástráðsson prédikar. Anna Mar-
grét Óskarsdóttir syngur einsöng. Org-
anisti Jón Bjarnason. Kór Seljakirkju leiðir
söng. Altarisganga. Guðsþjónusta í Skóg-
arbæ kl. 16. Sr. Valgeir Ástráðsson pré-
dikar. Kór Seljakirkju syngur undir stjórn
Jóns Bjarnasonar. Aðventukvöld kl. 20.
Kirkjukórinn, barnakórinn og Seljur syngja
aðventusöngva. Martial Nareau leikur á
flautu. Gunnar Guðbjörnsson syngur ein-
söng. Kristín Ísfeld les upp. Þórður Krist-
jánsson skólastjóri flytur hugvekju. Að-
ventuljósin tendruð.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Morgunguð-
sþjónusta kl.11.00. Fræðsla fyrir börn og
fullorðna. Friðrik Schram kennir. Einnig
verður heilög kvöldmáltíð. Samkoman
kl.20.00 verður að þessu sinni í nýju ófull-
búnu kirkjuhúsi safnaðarins að Fossaleyni
14 í Grafarvogi. Það verður Guð lofaður í
tali og tónum. Allir velkomnir. Þáttur kirkj-
unnar „Um trúna og tilveruna“ verður
sýndur á Ómega kl.13.30.
BOÐUNARKIRKJAN, Hlíðasmára 9, Kóp:
Samkomur alla laugardaga kl. 11. Bæna-
stund alla þriðjudaga kl. 20. Biblíufræðsla
allan sólarhringinn á Útvarp Boðun FM
105,5. Allir alltaf velkomnir.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ: Sam-
koma á morgun kl. 16.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Kl. 17 samkoma
fyrir Hermenn og Samherja. Kl. 19.30
bænastund. Kl. 20 hjálpræðissamkoma.
Umsjón majór Elsabet Daníelsdóttir.
Mánudagur 1. des.: Kl. 20 Fullveldishátíð.
Umsjón kafteinn Miriam Óskarsdóttir.
Happdrætti og veitingar.
FRÍKIRKJAN KEFAS, Vatnsendabletti
601: Hinn fyrsta í aðventu, sunnudaginn
30. nóvember, verðum við með okkar ár-
lega basar frá kl. 13–17. Þar verða á boð-
stólum heimabakaðar kökur, smákökur,
fallegar gjafavörur, geisladiskar með
hljómsveit kirkjunnar og ýmislegt annað á
mjög góðu verði. Einnig verða seldir lukku-
pakkar og haldin tombóla með vinningum
á öllum miðum. Frábærar veitingar verða
til sölu, rjómavöfflur og rjúkandi kaffi eða
gos og annað góðgæti. Hægt verður að
njóta veitinganna undir ljúfri hátíðartónlist
sem hljómsveit hússins leikur. Allir eru
hjartanlega velkomnir.
KFUM og KFUK v/Holtaveg: Laug-
ardagur: Basar KFUK hefst kl. 14. Seldir
verða heimaunnir munir, kökur, tertur o.fl.
Kaffi og vöfflur seldar á staðnum. Sam-
koma kl. 17 fyrsta sunnudag í aðventu.
Lofgjörð fyrir samkomuna frá kl. 16.40.
Fjölskyldusamkoma, kveikt á fyrsta að-
ventukertinu. Samtalspredikun í höndum
Ragnhildar Ásgeirsdóttur og Elísabetar
Haraldsdóttur fyrir fullorðna fólkið, en Val-
dís Magnúsdóttir verður með hugleiðingu
fyrir börnin. Stopp leikhópurinn Kaaber
sýnir einþáttung. Lofgjörð og fyrirbæn að
lokinni samkomu. Matur á fjölskylduvænu
verði eftir samkomu. Verið öll hjartanlega
velkomin.
FÍLADELFÍA: Almenn samkoma í boði
Samhjálpar kl. 16.30. Ræðumaður Heið-
ar Guðnason. Mikil lofgjörð. Fyrirbænir.
Allir hjartanlega velkomnir. Bænastundir
alla virka morgna kl. 6. filadelfia@gosp-
el.is www.gospel.is
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík, Kristskirkja í Landakoti, dóm-
kirkja og basilíka: Sunnudaga: Messa kl.
10.30. Messa á ensku kl. 18. Alla virka
daga: Messa kl. 18. Sunnudaginn 30.
nóvember: Við messu í dag fara fram sam-
skot á vegum Caritas á Íslandi í þágu bág-
staddra á landi okkar. Föstudaginn 5. des-
ember: Föstudagur Jesú hjarta. Að
kvöldmessu lokinni er tilbeiðslustund til
kl. 19.15.
Reykjavík, Maríukirkja við Raufarsel,
Sunnudaga: Messa kl. 11. Laugardaga:
Messa á ensku kl. 18.30. Virka daga:
Messa kl. 18.30.
Riftún í Ölfusi, Sunnudaga: Messa kl. 16.
Miðvikudaga kl. 20.
Hafnarfjörður, Jósefskirkja:
Sunnudaga: Messa kl. 10.30. Miðviku-
daga: Messa kl. 18.30. Föstudaginn 5.
desember: Föstudagur Jesú hjarta. Helgi-
stund kl. 17.30. Messa kl. 18.30.
Karmelklaustur. Sunnudaga: Messa kl.
8.30. Virka daga: Messa kl. 8.
Keflavík, Barbörukapella, Skólavegi 38:
Sunnudaga: Messa kl. 14. Fimmtudaginn,
4. desember: Hátíð hl. Barböru, vernd-
ardýrlings kapellunnar í Keflavík. Messa
kl. 19.
Stykkishólmur, Austurgötu 7. Alla virka
daga: Messa kl. 18.30. Sunnudaga:
Messa kl. 10.
Ísafjörður. Sunnud: Messa kl. 11.
Flateyri. Laugard: Messa kl. 18.
Bolungarvík. Sunnudaga kl. 16.
Suðureyri. Sunnud: Messa kl. 19.
Akureyri, Kaþólska kirkjan, Péturskirkja,
Hrafnagilsstræti 2: Laugardaga: Messa
kl. 18. Sunnudaga: Messa kl. 11.
BRAUTARHOLTSKIRKJA á Kjalarnesi:
Guðsþjónusta sunnudag kl. 11 fh. Gunnar
Kristjánsson, sóknarprestur.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Kl. 11
sunnudagaskóli á fyrsta sunnudegi í að-
ventu. Litlir lærisveinar syngja undir stjórn
og leiðsögn Joönnu Wlaszczyk og Sig-
urlínu Guðjónsdóttur. Við kveikjum á
fyrsta kertinu á aðventukransinum. Ætli
rebbi viti um hvað jólin og aðventan snú-
ast? Jólalögin sungin, biblíusaga og
bænagjörð. Allir krakkar fá biblíumynd. Sr.
Fjölnir Ásbjörnsson og barnafræðararnir.
Kl. 14 guðsþjónusta á fyrsta sunnudegi í
aðventu. Aðventukaffi og basar Kven-
félags Landakirkju eftir guðsþjónustu.
Kirkjudagur Kiwanismanna og munu fé-
lagar lesa ritningarlestra. Kveikt verður á
fyrsta aðventuljósinu og jólatónar hljóma.
Kór Landakirkju syngur undir stjórn Guð-
mundar H. Guðjónssonar organista. Prest-
ur sr. Fjölnir Ásbjörnsson. Kl. 20 Æsku-
lýðsfélag Landakirkju og KFUM&K á fyrsta
sunnudegi í aðventu, jólin framundan.
Helgistund, leikir og söngur. Sr. Fjölnir Ás-
björnsson, Esther Bergsdóttir æskulýðs-
fulltrúi og leiðtogarnir.
LÁGAFELLSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Prestur sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir.
Kirkjukór Lágafellssóknar. Organisti Guð-
mundur Ómar Óskarsson. Sunnudaga-
skóli í safnaðarheimilinu kl. 13. Jón Þor-
steinsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Tónlist-
armessa í byrjun aðventu kl. 11 alt-
Guðspjall dagsins:
Innreið Krists í
Jerúsalem.
(Matt. 21.)
Hólar í Hjaltadal.